Morgunblaðið - 20.06.1989, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JUNI 1989
Lokað hjá fyrirtækjum sem eiga mál
til úrskurðar hjá Ríkisskattanefhd
MEÐAL þeirra fyrirtælqa sem lokað var hjá í gær vegna söluskatts-
skulda voru 10 fyrirtæki sem framleiða myndbönd vegna skulda sem
samtals nema 40-50 milljónum króna. 1987 var fyrirtækjum í grein-
inni gert að greiða söluskatt vegna efniskaupa við framleiðslu mynd-
banda og náði skattskyldan með afturvirkum hætti til áranna 1985
og 1986. Pjárhæð sú sem fyrirtækjunum var lokað vegna er byggð
á áætlun yfirvalda en fyrirtækin játa ekki skattskylduna, segja að
þar sem þau greiði söluskatt af framleiðslu sinni á smásölustigi sé
um tvísköttun að ræða. Ríkisskattanefnd hefúr verið fengið mál
þetta til meðferðar og mun á næstunni kveða upp úrskurð.
Steinar Berg ísleifsson forstjóri
Steina h/f segir að gert hafi verið
munnlegt samkomulag við sölu-
skattsdeild tollstjóra um að niður-
stöðu Ríkisskattanefndar yrði beðið
en með því að hefja lokunaraðgerð-
ir sé þetta samkomulag brotið.
Steinar segir að mörg þessara fyrir-
tækja hafi fjölþætta starfsemi sem
þau greiði skilvíslega söluksatt af,
aðeins á þessu eina sviði sé um
ágreining um skattskyldu að ræða.
Hann segist telja framkomu yfir-
valda í þessu máli óþolandi. „Þessar
aðgerðir eru svo einræðislegar að
ég hef aldrei kynnst öðru eins. Það
er byggt á tilbúnu reikningsyfirliti
ríkisins sjálfs, farið inn í fyrirtæki
og þau innsigluð og maður er ekki
virtur viðlits. Ég fór fram á fárra
daga frest til meðan ég seldi við-
skiptabanka mínum veðskuldabréf
til að greiða þetta til að geta hald-
ið opnu en það var ekki á það hlust-
að. Þessi niðurlæging er engu lík.
Mitt fyrirtæki skilar ríkissjóði skilv-
íslega að minnsta kostað 35 milljón-
um í söluskatt á ári og þessar að-
gerðir er ekki hægt að skilja öðruv-
ísi en að ríkið sé að drepa gjöfula
mjólkurkú,“ sagði Steinar Berg
ísleifsson.
Aðspurður um mál myndbanda-
fyrirtækjanna sagði Snorri Olsen
deildarstjóri hjá fjármálaráðuneyti
að samkvæmt lögum um söluskatt
frestaði ákvörðun skattákvörðunar
eða deila um skattskyldu ekki ein-
daga skattsins né leysti undan við-
urlögum. Hann sagðist ekki vita
um samkomulag það sem vísað
væri til en með þessum nýju og
hertu innheimtuaðgerðum væri
bókstaf laganna fylgt til hlítar. Þar
lægi það sjónarmið meðal annars
-til- grundvallar að mismuna ekki
gjaldendum. Þeir sem gerðu ágrein-
ing við skattskyldu ættu eki að
njóta góðs af meðan aðrir, sem eins
væri ástatt um, kysu að greiða sam-
kvæmt álagningu. Komi hins vegar
á daginn að Ríkisskattanefnd úr-
skurði fyrirtækjunum í vil, verði
öllum í greininni endurgreidd fram-
lög sín með vöxtum.
símrn
SUMMMBOD
PINNRETTINGAR - ISLENSK FRAMLEIÐSLA
mm
Mstonmf
IB ELDHÚSIN OKKAR HAFA VAKIÐ MIKLA ATHYGLI
OG VERIÐ EFTIRSÓTT
Þeir sem hafa leitað eftir stílhreinum og vönduðum innréttingum á
hagkvæmu verði hafa fundið eitthvað við sitt hæfi hjá IB Innréttingum.
Þar hafa viðskiptavinir okkar notið þjónustu og ráðleggingar
fagmanna á staðnum.
Þeirhafa leyst málin og skapað persónulegan svip fyrirhvern og einn,
því möguleikarnireru margir.
Láttu fagleg sjónarmið ráða þegarþú velur innréttingar.
BCIÐÍN ARMÍILA 17a
BYGGINGAWÓNUSTA SÍMAR 84585-84461
^llSonHsían hf
Stillholt 16-300 Akranes Slmi 93-11799
Bvúnns bf.
® 97-11480 Egilsstöðum
Aðgerðirnar eru nákvæm-
lega eftir vanskilaskrám
- segir Olafur Ragnar Grímsson
fj ármálaráðherra
„ÍTARLEGAR skrár eru gerðar yfir vanskil í söluskatti. Síðan eru
hafiiar aðgerðir nákvæmlega eftir skránum, það er enginn mannamun-
ur gerður, heldur sitja allir við sama borð,“ sagði Ólafur Ragnar
Grimsson fjánnálaráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann
var spurður um lokanir fyrirtækja vegna söluskattsvanskila. Hann seg-
ir þá stefhubreytingu vera fólgna í þessum aðgerðum, að innheimtu-
menn ríkissjóðs hafi fúllan stuðning ríkisstjómarinnar við þær.
til þess. Það felur í sér ákveðna
stefnubreytingu að innheimtuaðil-
amir fá fullt umboð til að fram-
kvæma innheimtuna og það verður
staðið fullkomlega við bakið á þeim
í þessari innheimtuaðgerð," sagði
fjármálaráðherra.
Ólafur segir að til aðgerða hefði
verið gripið gegn tíu myndbanda-
framleiðslufyrirtækjum nú, vegna
þess að allir séu settir undir einn
hatt. Fyrirtækin hafa farið fram á
úrskurð ríkisskattanefndar um hvort
þeim beri að greiða afturvirkan sölu-
skatt, sem lagður var á þau árið
1987 fyrir viðskipti áranna á undan.
„Það var talið, að dómi lögfræðinga,
að ekki væri hægt að gera neinn
greinarmun þar á, fyrst úrskurður
lá ekki fyrir og þar væri um skuld
að ræða. Þannig væri farið eftir bók-
staf laganna."
Ólafur kvaðst ekki vita nákvæm-
lega um hlutfallsegan fjölda fyrir-
tækjanna eftir landshlutum. Þó væri
stærsti hluti þeirra á höfuðborgar-
svæðinu, en þau væri engu að síður
að finna í öllum skattheimtuumdæm-
um landsins.
„Það eru nokkur hundruð fyrir-
tæki sem eru á þessum lista,“ sagði
Ólafur. Hann segir þessar aðgerðir
hafa verið í undirbúningi í nokkrar
vikur og byggjast á víðtæku sam-
starfi skattyfirvalda, það er bæjar-
fógeta, tollþjónustu í Reykjavík, lög-
reglu og annarra innheimtuaðila.
„Þeim er falið að tryggja að fullkom-
in skil verði á söluskatti.“ Ólafur
segir að verið sé að takast á við stórt
þjóðfélagslegt og efnahagslegt
vandamál. Þess vegna hafi orðið að
undirbúa þessar aðgerðir mjög vel
og heija þær á öllu landinu á sama
tíma.
„Embættum á hveijum stað er
falið að framkvæma þessar aðgerðir
og þau hafa fullan stuðning fjármála-
ráðuneytisins og ríkisstjómarinnar
Þegar þú vilt lúta
ferskleikann njóta sín ...
Þegar kartöflu- og/eða grænmetissalat, kaldar sósur
eða ídýfur eru á matseðli dagsins er MS sýrði
rjóminn, 10%, betri en enginn. Sannaðu til
- fátt gefur meiri ferskleika.
Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa
10% (Mayonnaise)
1 tsk (5 g) 5.7 37
1 msk (15 g) 17 112
100 g 116 753