Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C 159. tbl. 77. árg. SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Leiðtogafimdur sjö helstu iðnríkja heims í París: Fordæma ofbeldisverk kínverskra stj órnvalda Erlend blöð bönnuð í Peking í þeim tilgangi að „uppræta ranghugmyndir“ Tímaritið Time: Raftnagnsleiðsl- ur varhugaverðar EKKI alls fyrir löngu kom út hjá opinberri banda- rískri stofnun, sem Qallar um áhrif nýrrar tækni, skýrsla um hættu, sem fólki stafar af rafmagnsleiðslum, að því er segir í bandaríska fréttatímaritinu Time. I skýrslunni segir að nálægð við há- spennulínur stofni heilsu fólks í hættu vegna segulsviðs sein myndast í kringum þær. I skýrslunni er einnig gefið til kynna að venjulegar leiðslur í íbúðarhúsum og heimilistæki eins og brauðristar og rafinagnsteppi, sjónvörp og tölvuskjáir geti verið skaðleg heilsu af sömu sökum. Er vitn- að í rannsóknir sem sýni að hætta á krabbameini aukist hjá þeim sem búa nærri háspennulínum og að hjá kon- um sem vinni 20 stundir á viku eða lengur við skjái sé tvöfalt meiri hætta á fósturskaða en hjá öðrum skrifstofú- konum. Þó er tekið fram að ekki hafi verið sýnt fram á beint orsakasam- band þarna á milli. Time ráðleggur því fólki að flylja rafhiagnsvekjara- klukkuna af náttborðinu og yfir í hinn enda herbergisins, gæta þess að sitja þijá metra frá sjónvarpstækinu og umfiram allt varast að hafa of miklar áhyggjur. Grænland: A reiðhjólum yfir jökulinn Kaupinannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, frétta- ritara Morgunblaðsins. TVEIR Vestur- Þjóðveijar freista þess nú að komast yfir Grænlands- jökul á reiðhjólum, alls 600 kílómetra vegalengd. Þeir eru búnir að vera 19 daga í þessum óvenjulega leið- angri sínum og eru um það bil hálfh- aðir, að sögn grænlenska útvarpsins. Mennirnir eru á sérbúnum reiðhjólum með sleða í togi. Vísindanefiid Græn- lands og Danska heimskautamiðstöð- in hafa viðurkennt leiðangurinn, sem er fyrsta tilraunin til að fara yfir jök- ulinn á reiðhjólum. Leiðangurinn hef- ur fengið nafiiið „Minningarleiðangur Nansens 1989“ — til heiðurs norska heimskautakönnuðinum Friðþjófi Nansen, sem fetaði sömu leið og hjól- reiðamennirnir þræða nú — á skíðum. París. Rcutcr. ASTANDIÐ í Kína var meginviðfangsefhið á öðrum og næstsíðasta degi leiðtogafund- ar sjö helstu iðnríkja lieims í París í gær. Stjórnmálaleiðtogar Japans, Banda- ríkjanna, Vestur-Þýskalands, Bretlands, Frakklands, Kanada og Ítalíu fordæmdu sfjárnvöld í Kína fyrir að kveða niður mótmæli kínverskra námsmanna á blóðug- an hátt, og án tillits til mannréttinda. Að sögn Rcuters- fré ttasto f u n n ar reis nokkur ágreiningur á fundinum um af- stöðuna til Kína. Francois Mitterrand Frakk- landsforseti reyndi að fá því framgengt að samþykkt yrði harðorð ályktun þar sem kínversk stjórnvöld væru fordæmd fyrir fjöldamorðin á námsmönnum í Peking 4. júní. Sosuke Uno, forsætisráðhérra Japans, vildi fara hægar í sakirnar og varaði við því að Kínveijar yrðu einangraðir. Niðurstaðan varð harðorð fordæming án mikilla refsiaðgerða. Kínversk stjórnvöld eru hvött til að „hætta aðgerðum gegn þeim sem ekki hafi gert ann- að en að krefjast lögmæts réttar síns til lýð- ræðis og frelsis". í yfirlýsingunni sem samþykkt var segir orðrétt: „Kúgunin [í Kína] hefur leitt hvert okkar til að grípa til viðeigandi ráðstafana til að láta í ljós djúpstæða fordæmingu. Tvíhliða samskipti ráðherra og annarra hátt- settra manna hafa verið stöðvuð og einnig vopnaviðskipti þar sem þau voru fyrir hendi.“ Leiðtogarnir samþykktu einnig að stöðva ætti afgreiðslu nýrra lána til Kína frá Al- þjóðabankanum og að kínverskir námsmenn sem þessu óskuðu fengju að dvelja áfram í löndunum sjö. Þær fréttir bárust frá Kína í gær að sala á erlendum dagblöðum og tímaritum hefði verið bönnuð í Peking „til að uppræta rang- hugmyndir almennings". Háskólum landsins, þar sem lýðræðishreyfingin spratt upp, hefur einnig verið skipað að beijast gegn vestræn- um hugmyndum í landinu. BARATTAIj VID BðLVALDIN Brjóstakrabbamein er fjórdungurgreincira ~1 krabbameina kvenna JL < CASTROGATE Dularfullt kókaínhneyksli á Kúbu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.