Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 17
sinnum Castros í marz 1958 tók hann þátt í töku borgarinnar Santa Clara, sem átti mikinn þátt í því að Batista einræðisherra flúði land. Eftir byltinguna hjálpaði hann skæruliðum í Venezúela. Á árunum 1975-1976 var hann yfirmaður kúbverskra fótgönguliða í Angóla. Síðan stjórnaði hann sigur- sælli sókn kúbversks skriðdrekaliðs gegn Sómölum í Ogaden-stríðinu. Um tveggja ára skeið var hann yfir- maður kúbverskra hernaðarráðu- nauta í Nicaragua og átti þátt í raun- verulegum sigri sandinista á kontra-skæruliðum. í desember 1987 tók Ochoa við yfirstjórn kúbverska herliðsins í Suð- ur-Angóla og stjórnaði síðustu orr- ustum þess við Suður-Afríkumenn. Skömmu áður höfðu Kúbveijar beðið mikinn ósigur við ána Lomba, en Ochoa tókst að hrinda þremur skrið- drekaárásum Suður-Afríkumanna í ársbyrjun 1988. Tilgangur árásanna var að hrekja Kúbverja og Angóla- menn frá austurbakka árinnar Cuito og Castro líkti örvæntingarfullri vörn bæjarins Cuito Cuanavale við orrustuna um Stalíngrad. Fílabeinssmygl í réttarhöldunum viðurkenndu Ochoa og fleiri sakborningar að þeir hefðu stundað smygl og svartamark- aðsbrask í Angóla. Meðal þess sem þeir smygluðu og seldu voru demant- ar, fílabein, 'sykur, hveiti; romm, fágætar viðartegundir og sjónvarps- tæki. Gróðann notuðu þeir til að hasla sér völl á sviði eiturlyfjavið- skipta. Ochoa kvaðst hafa talið að sam- vinna hans við kólombísku kókaín- barónana mundi hjálpa ríkinu. Öll ólögleg viðskipti hans hefðu þjónað þeim tilgangi að afla erlends gjald- eyris til að reisa hótel fyrir skemmti- ferðamenn í Varadero. „Efling ferðamannaþjónustu yrði Kúbu lyfti- stöng,“ sagði hann. Hann bar sig vel í réttarhöldunum, þótt hann væri stöðugt auðmýktur, virtist sannfærandi og játaði allt sem hann var sakaður um. Hann héit því fram að Castro hefði ekkert vitað um eiturlyfja- viðskiptin. Hann kvað ekkert hæft í því að hann hefði verið leiddur fyrir rétt vegna andstöðu við Castro, neitaði því að hafa unnið gegn bylt- ingunni og sagðist enn vera „sannur byltingarmaður". „Ef ég verð dæmd- ur til dauða mun síðasta hugsun mín snúast um Fidel og byltinguna, sem hann hefur fært þjóðinni," sagði hann. Yfirmaður leyniþjónustu hersins, Manuel Fernandez Crespo hershöfð- ingi, sagði að sakborningarnir ættu ekki aðeins sök á spillingu í heraflan- um, þeir hefðu unnið gegn öryggi landsins með því að hleypa smyglur- um inn í lögsögu Kúbu. „Við teljum þetta landráð," sagði hann. „Þeir hafa svikið landið." Ochoa tók fús- lega undir það. „Ég sveik landið," sagði hann, „og menn verða að gjalda fyrir það með lífinu . . . ég fyrirlít sjálfan mig .. . ég hef enga ástæðu til að lifa.“ Byltingarsamsæri? Þegar Ochoa var handtekinn 12. júní stóð hann á hátindi frægðar sinnar. Til stóð að gera hann yfir- mann hersins á Vestur-Kúbu, einu þriggja herstjórnarumdæma lands- ins. A næstu 25 dögum var hann sviptur öllum heiðursmerkjum, þing- mennsku og sæti í miðstjórn komm- únistaflokksins, rekinn úr hernum og loks dæmdur til dauða fyrir eitur- MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JULI 1989 Kúbverskir hermenn í Angóla: óán- ægja í hernum. lyfjasmygl. Ochoa hafði notið allra þeirra for- réttinda, sem „byltingaraðlinum" getur veitzt. Forréttindum sínum og völdum stefndi hann í hættu fyrir hlut í þremur og hálfri milljón doll- ara, sem hann gat ekki eytt á Kúbu án þess að vekja grunsemdir. Áður en málið varð uppskátt virt- ist ræða, sem Raul Castro, bróðir Fidels og landvarnaráðherra, hélt á fundi með liðsforingjum, benda til þess að eitthvað alvarlegt væri á seyði á Kúbu. Raul sagði að „Fidel væri pabbi okkar“ og kvaðst mundu standa með Rússum fram í rauðan dauðann. Ef einhveijir yfirmenn í heraflanum væru óánægðir á Kúbu skyldi hann sjá til þess að þeir fengju að fara til Ungverjalands eða Pól- lands. Ýmsir telja að Ochoa hafi keppt að því að ná völdunum þegar Fidel fellur frá (Fidel er 62 ára og hefur skipað Raul eftirmann sinn). Ekki er talið ólíklegt að hann hafi ætlað að nota gróðann af aðstoðinni við Medellin-hringinn til að gera draum sinn um að ná völdunum að veru- leika. Vera má að hann hafi ætlað að koma á sams konar breytingum á Kúbu og Míkhaíl Gorbatsjov í Sov- étríkjunum og Castro-bræður hafi brotið samsæri hans og stuðnings- manna hans á bak aftur undir því yfirskini að þeir hafi stundað eitur- lyfjabrask. Ásakanirnar gegn Ochoa eru ein- kennilegar að sögn brezka blaðsins Sunday Telegraph. Nafn hans er hvergi að finna í ítarlegum skýrslum bandarískra yfirvalda um milli- göngumenn Medellin-hringsins. Hins vegar var einn af dómurum Ochoa, Aldo Santa Maria varaaðmír- áll, yfirmaður sjóhers Kúbu, ákærð- ur fyrir eiturlyfjasmygl í Miami að honum fjarstöddum fyrir fjórum árum. Sumir telja að það geti bent til þess að eiturlyfjasmygl hafi ekki verið ástæðan fyrir réttarhöldunum gegn Ochoa, heldur alvarlegasta ógnunin við völd Fidels Castros í 30 ár. Óánægja í hernum Einnig er talið hugsanlegt að kúb- verska leyniþjónustan hafi látið til skarar skríða, þar sem hún hafi óttazt að alvarleg óánægja, sem grafið hefur um sig í hernum, gæti leitt til uppreisnar. Hins vegar efast margir um að til uppreisnar hefði komið nema í neyð, telja að Ochoa hafi ekki haft nógu mikið fylgi og benda á að Castro hafi á að skipa alþýðuherliði, sem á að vega upp á móti óánægju í hernum. Heimili Ochoa virðist hafa orðið fundarstaður fyrrverandi hermanna, sem barizt höfðu í Angóla og kvart- að yfir slæmri meðferð, er þeir hafi sætt síðan þeir komu heim. Þótt þeim hafi verið vel fagnað við heim- komuna hefur ekki tekizt að útvega þeim atvinnu og húsnæði og þeir hafa aukið mikinn efnahagsvanda Kúbveija. Ochoa kann að hafa verið leiðtogi hóps óánægðra liðsforingja, sem börðust í Angóla. Fyrir því eru heim- ildir að Ochoa hafi verið kominn á fremsta hlunn með að semja ákall til Castros um bættan aðbúnað heim- kominna hermanna og ætlað að fá kunna menn til að skrifa undir skjal- ið. Perestrojka Gorbatsjovs virðist einkum hafa fallið í góðan jarðveg hjá Kúbveijum, sem hafa gegnt her- þjónustu erlendis og kynnzt því 17 hvernig hugmyndir kommúnisía hafa brugðizt í Þriðja heiminum. Vinsæl hetja eins og Ochoa gat ógnað Castro forseta vegna ákvörð- unarinnar um að kalla herliðið í Angóla heim. Því er getum að því leitt að Castro hafi ákveðið að gera áhrif Ochoa að engu með því að bendla hann við tvo eiturlyfjasmygl- ara, Tony og Patricio de la Guardia. Um leið hafi Castro viljað friðmæl- ast við Bandaríkjastjórn og hafa áhrif á almenningsálitið í Banda- ríkjunum, einkum í ljósi þess að nokkrir bandarískir þingmenn beita sér fyrir endurmati á samskiptunum við Kúbu og viðskiptabanninu á eyj- Bætt sambúð? Kúbustjórn kann að hafa áhuga á bættri sambúð við Bandaríkin vegna hinna alvarlegu efnahagserf- iðleika, sem hafa aukið óvinsældir hennar. Bætt sambúð gæti byggzt á baráttu gegn eiturlyfjabarónum Suður-Ameríku og Noriega hers- höfðingja og látið hefur verið að því liggja að um þetta hafi tekizt sam- komulag. í staðinn verði slakað á viðskiptabanninu og því jafnvel af- létt. Ýmsir telja að Noriega, sem hefur verið ein helzta hjálparhella Medellin- hringsins, hafi ef til vill staðið í sambandi við Ochoa hers- höfðingja. Réttarhöldin staðfestu það sem Bandaríkjamenn hafa haldið fram í sjö ár, að Kúbveijar séu viðriðnir eiturlyfjasmygl. Castro forseti hefur þráfaídlega neitað þessu og fáir virð- ast hafa trúað Bandaríkjamönnum. Sumir álíta að Castró hafi látið sem hann hafi ekki vitað um eitur- lyfjaflutningana, þar sem þeir hafi skaðað Bandaríkin, erkióvininn, og aðeins fært Kúbu mikilvægar gjald- eyristekjur. Síðan hafi spurzt að Bandaríkjastjórn og Noriega hygð- ust birta sannanir um þátttöku kúb- verskra liðsforingja í kókaínsmygl- inu og Castro hafi ákveðið að verða fyrri til. í Havana er því haldið fram að Fidel og Raul hafi fengið fyrstu fréttirnar um smyglið þegar Manuel Solis, sem Noriega hershöfðingi skipaði forseta Panama í vor, sagði þeim allt af létta þegar hann var í Havana fyrir nokkrum vikum. Hafi Castro ekkert vitað um smyglið fyrr en þá gæti það bent til þess að völd hans séu ekki eins mikil og talið hefur verið eða að skortur sé á ein- drægni meðal æðstu manna í Ha- vana. Mikið áfall Ein skýringin á hinum þungu dómum á Kúbu kann að vera aukinn eiturlyfjavandi á eyjunni. Castro hefur lengi státað af því að endir hafi verið bundinn á eiturlyfjaneyzlu eftir byltinguna, en listamenn og fleiri hópar hafa haft aðgang að kókaíni og marijúana og nú hefur eiturlyfjafíkn breiðzt út til ungs fólks, blökkumanna og að því er virð- ist hermanna. Hingað til hafa*Tieraflinn og inn- anrikisráðuneytið verið talin ein helztu tákn „hreinleika sósíalism- ans“ og verndarar siðgæðis á Kúbu og réttarhöldin eru túlkuð sem áfall fyrir „sál byltingarinnar". Þau hafa afhjúpað spillingu, sem sanntrúaða óraði ekki fyrir, og hugmyndir um „óeigingjarna byltingarleiðtoga" hafa beðið hnekki á sama tíma og aukinn vöruskortur þjakar almenn- ing. Til þessa hefur Castro komið í veg fyrir að honum og byltingunni hafi verið kennt um misgerðir með því að skella skuldinni á breyzka ein- staklinga. Þannig hefur honum tekizt að komast hjá því að breyta „kerfinu“. Nú er talið að hann reyni að nota eiturlyfjamálið til að vekja andúð á breytingum í anda perestroj- ku og glasnost, sem Kúbveijar virð- ast veikir fyrir, með því að kenna „neyzlugræðgi" um spillinguna. Castro berst gegn „hægfara þró- un til kapítalisma" og hefur meiri áhuga á hreinsunum í kerfinu en pólitískum og efnahagslegum um- bótum. Sambúð hans við Rússa hef- ur kólnað síðan Gorbatsjov kom til valda og einangrun Kúbu. hefur aukizt. En Gorbatsjov er í sparnaðar- hugleiðingum og Castro mundi ekki hafna vestrænni efnahagsaðstoð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.