Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 21
ATVINNU RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
A TVINNUAUGL ÝSINGAR
Kennarar við Há-
skólann á Akureyri
Menntamálaráðuneytið auglýsir lausar stöður við Háskólann
á Akureyri. Þær eru staða lektors í iðnrekstrarfræði við
rekstrardeild, en þar eru helztu kennslugreinar framleiðslu-
stjórnun, birgðastýring, verksmiðjuskipulagning og vinnu-
rannsóknir. Eirmig eru anglýstar staða lektors i rekstrar-
hagfræði við rekstrardeild og staða lektors í hjúkrunarfræði
við heilbrigðisdeild.
V eiðieftirlitsmenn
Sjávarútvegsráðuneytið óskar eftir tveimur veiðieftirlits-
mönnum. Annar þeirra verður staðsettur á Akureyri, en
gert er ráð fyrir, að hinn fái þjálfun við að síga um borð í
veiðiskip úr þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Sölumenn ritverka
Örn og Örlygur óska eftir sölumönnum til að bjóða ný og
eldri ritverk í Reykjavík og úti á landi. Tekið er fram, að
þara sé um mjög seljanlega vöru að ræða, háa söluprósentu
og því mikla tekjumöguleika. Oskað er eftir kappsömu og
ábyggilegu fólki.
Atvinnuleit
fyrir fatlaða
Akureyrarbær auglýsir eftir starfsmanni að vinnumiðlunar-
skrifstofu, er sinni atvinnuleit fyrir fatlaða og aðra þá, sem
hafa slæma samkeppnisaðstöðu á vinnumarkaði. Vinnan
felst í mati á starfshæfni, ráðgjöf, atvinnuleit og stuðningi
við fatlaðan starfsmann í vinnu, samstarfsfólk hans og vinnu-
veitanda. Menntun í ráðgjöf, reynsla af málefnum fatlaðra
og staðgóð þekking á vinnumarkaði á Akureyri koma um-
sækjanda til tekna.
RAÐAUGL ÝSINGAR
Alþjóðleg
ungmennaskipti
Tuttugu skiptinemar víðs vegar að koma til landsins í lok
þessa mánaðar til ársdvalar. A meðan þeir eru að kynnast
og læra fyrstu orðin í íslenzku, dveljast þeir í Reykjavík,
en um miðjan ágúst fara þeir allir í sveitina. Alþjóðleg ung-
mennaskipti (AUS) óska eftir fjölskyldum eða sambýlum á
höfuðborgarsvæðinu, sem vilja opna heimili sín fyrir skipti-
nemunum í þær 3 vikur, sem þeir dvelja í Reykjavík.
SMÁAUGL ÝSINGAR
Sumarleyfísferðir
Ferðafélag Islands auglýsir sumarleyfisferðir á næstunni.
Hinn 19. júlí verður lagt upp í 5 daga ferð í Landmannaiaug-
ar og Þórsmörk. Gengið verður milli sæluhúss F.í. á leiðinni
frá Landmannalaugum til Þórsmerkur þ. e. í Hrafntinnu-
skeri, við Alftavatn og á Emstrum. Dagana 20.-25. júlí verð-
ur farið í Landmannalaugar - Þórsmörk og 21.-30. júlí (10
dagar) í Nýjadal - Vonarskarð - Hamarinn - Jökulheima -
Veiðivötn. Hinn 2L-26. júlí (6 dagar) verður farið í Land-
mannalaugar - Þórsmörk og 26.-30. júlí (5 dagar) í Land-
mannalaugar - Alftavatn. Dagana 26.-30. júlí (5 dagar)
verður farið í Þórsmörk - Alftavatn og 26-30 júlí (5 dagar)
í Landmannalaugar - Þórsmörk. Dagana 27. júlí-1. ágúst
(6 dagar) verður farið í Landmannalaugar - Þórsmörk og
9.-13. ágúst í Eldgjá - Strútslaug - Alftavatn.
Fæðingarheimili Reykjavíkur:
V estmannaeyj ar:
Nægatvinna
í sumar
Vestmannaeyjuin.
NÆG atvinna hefur verið í Vest-
tnannaeyjum í sumar. Agætlega
hefur aflast og stöðug vinna hef-
ur verið í frystihúsunum.
Atvinnuástand í Eyjum hefur
verið svipað nú og undanfarin
sumur. Næg atvinna hefur verið
og nánast ekkert atvinnuleysi.
Framundan er sumarlokun hjá
frystihúsunum, en lokað verður í
þrjár vikur eftir Þjóðhátíð, en lokun
sem þessi hefur verið viðhöfð hjá
frystihúsunum undanfarin ár.
Að sögn Amar Sigurmundsson-
ar, hjá Samfrost í Eyjum, tengist
lokun frystihúsanna núna m.a. því
að Eyjabátar eiga mjög lítinn kvóta
eftir. Það er því líklegt að þeim
verði lagt um leið og frystihúsin
loka og má því búast við að lakara
ástand verði í atvinnumálum Eyja-
manna í næsta mánuði.
Arnar sagðist vera frekar svart-
sýnn á atvinnuna í haust, vegna
þess litla kvóta sem bátarnir ættu
eftir. Hann sagði að rekstur frysti-
húsanna yrði einnig óhagkvæmari
að kvótinn minnkaði vegna afla-
samsetningarinnar en menn settu
traust sitt á að síldin og hráefni til
fiskimjölsverksmiðjanna myndi
bjarga atvinnunni í Eyjum í haust.
Grímur.
Lokað á mesta
annatímanum
Aukið álag á starfsfólk fæðingardeildar
Landspítalans fyrir vikið
FÆÐINGARHEIMILINU í Reykjavík verður
lokað 24. júlí næstkomandi og ekki opnað
aftur fyrr en í byijun september. Hluta heimil-
isins var lokað þegar í vor í sparnaðarskyni.
Á milli 50 og 60 starfsmenn vinna á heimilinu
þegar full starfsemi er þar en um 30 starfs-
menn munu fara í sumarfrí 24. júlí. Hulda
Jensdóttir forstöðukona Fæðingarheimilisins
segir að starfsfólkið sé mjög ósátt við þessa
tilhögun. Gera má ráð fyrir að allt að sextíu
fæðingar hefðu orðið á heimilinu þann tíma
sem það verður lokað en þær færast yfir á
Landspitala. Tíðkast hefur undanfarin ár að
loka Fæðingarheimilinu á meðan á sumarleyf-
um stendur í sparnaðarskyni.
Að sögn Gunnlaugs Snædals yfir-
læknis fæðingardeildar Land-
spítalans er þessi tími einn mestí
annatíminn á fæðingardeild spítalans
auk þess sem hluti starfsfólks þar
er einnig í sumarleyfi. Brugðist verð-
ur við því með því meðal annars að
senda sængurkonur fyrr heim en ella.
og reyna að taka færri sjúklinga inn
á aðrar deildir á meðan álagið er
mest. Við þetta bætist að fæðingum
hefur farið heldur flölgandi undan-
farin ár. Er að sögn Gunnlaugs aði
verða sífellt algengara að konur á
milli þrítugs og fertugs eignist sitt
þriðja eða íjórða barn.
Hulda Jensdóttir segir að ekki
hafi verið algengt að þurft hafi að
vísa sængurkonum frá vegna þess
að hluta Fæðingarheimilisins var lok-
að fyrr í sumar en að það hafi á
ýmsan hátt komið illa við starfsem-
ina. Hún segir að aðsókn að heimil-
inu hafi farið minnkandi undanfarin
ár og þess vegna hafi þessi lokun
haft minni áhrif en ella.
Hún segir að sumarleyfi starfs-
fólks séu öll tekin í einu í sparnaðar-
skyni, svo að ekki þurfi að ráða að-
stoðarfólk. Hulda er mjög ósátt við
þessar aðgerðir. „Það er ógurlega
hart að það skuli þrengt að fæðandi
konum og börnum í sambandi við
þessar sparnaðarráðstafanir," sagði
Hulda.
Hún segir að vegna álagsins á
Landspítala þurfi jafnvel að senda
konur heim á þriðja degi og það sé
mjög slæmt í ljósi þess að ekki tíðkast
lengur að hjúkrunarfólk fari heim til
sængurkvenna fyrstu dagana eftir
fæðingar.
Gunnlaugur Snædal segir að
greinilegt sé að konur vilji frekar
fæða á sumrin. Hann segir að fæð-
ingar séu flestar frá júlí og fram í
september. Hann segir að ekki sé
gripið til þess að útskrifa konur fyrr
vegna álags á fæðingardeildina nema
í neyð. Hann segir að það sé einung-
is gert ef allt hefur gengið eðlilega
við fæðinguna og konurnar geti haft
samband við fæðingardeildina ef eitt-
hvað kemur upp á. Þessar sparnaðar-
aðgerðir koma því ekki niður á ör-
yggi mæðra og barna að mati Gunn-
laugs.
Borgarnes:
Betra
atvinnu-
ástand
Borgaraesi
Atvinnuástand í Borgamesi er
betra en gert hafði verið ráð fyr-
ir og svipaður fjöldi er á atvinnu-
leysisskrá og í fyrra. Vel tókst
að útvega skólabörnum sumar-
vinnu í Borgamesi og nágrenni.
Að sögn Jóns Arnar Eggertsson-
ar formanns Verkalýðsfélags
Borgarness og nágrennis fengu 35
manns atvinnuleysisbætur við
síðustu útborgun, þar af 23 Borg-
nesingar. í Borgarnesi er aðallega
um eldra fólk að ræða sem er at-
vinnulaust, til dæmis eru 14 manns
yfir 67 ára en aðeins einn undir
50 ára. í uppsveitunum er meira
um að ungt fólk sé atvinnulaust.
Vel hefur gengið að útvega
skólabörnum og ungmennum sum-
arvinnu. Hafði Borgarnesbær milli-
göngu um að útvega 80 unglingum
vinnu í sumar. Flest störfin eru hjá
bænum, við að snyrta og fegra stað-
inn, en önnur hjá Vegagerð ríkisins
í Borgarnesi og Skógrækt ríkisins
í Skorradal.
Aðilar sem rætt var við voru
sammála um að atvinnuástand væri
betra en spáð hefði verið. Þá kom
einnig fram að mikill skortur væri
á leiguhúsnæði í bænum en vonast
væri til þess að úr rættist þegar tíu
félagslegar íbúðir sem nú væru í
smíðum yrðu teknar í notkun um -
næstu áramót. TKÞ