Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ATVINIMA/RAÐ/SMÁ
SUNNUDAGUR 16. JULI 1989
25
ATimUIMBB A I tr^l Y^II\ir^AI?
Bifvélavirkjameistari
- bifreiðasmíða-
meistari
óskast til starfa við að meta tjón á bifreiðum.
Einnig vantar starfskraft til að hreinsa, for-
færa og afgreiða bíla.
Sölumaður
óskast til að selja bíla, sem lent hafa í um-
ferðaróhöppum. Þarf að vera vanur.
Tilboð fyrir öll störfin sendist auglýsingadeild
Mbl. merkt: „Bifreiðar - 7092“.
Svæfinga-
W hjúkrunarfræðing
vantar í eins árs afleysingastöðu á sjúkrahús
Akraness frá og með 1. sept. nk.
Um 80% starf er að ræða.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 93-12311.
Sölustarf
Vaka-Helgafell hf. óskar eftir að ráða fólk til
sölustarfa. Starfið getur hvort sem er verið
aðal- eða aukavinna viðkomandi. Við leitum
eftir traustu og áreiðanlegu sölufólki til að
selja bækur og bókaflokka eftir þekkta höf-
unda. Við greiðum góð sölulaun og tekju-
möguleikar eru því góðir. Nauðsynlegt er að
hafa bifreið til afnota.
Allar nánari upplýsingar veita Viðar Gunnars-
son og Páll Kristjánsson í dag frá kl. 12-15
og virka daga á skrifstofutíma í síma 688300.
Vaka-Helgafell hf.,
Síðumúla 29,
108 Reykjavík.
Vélstjóri ífrystihús
Þormóðs Ramma hf., Siglufirði, óskast til
starfa. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Upplýsingar gefnar í síma 96-71200 og í
heimasíma 96-71841.
Þormóður Rammi hf.
Auglýsing
frá sjávarútvegsráðuneytinu
um lausar stöður
veiðieftirlitsmanna
Sjávarútvegsráðuneytið óskar að ráða tvo
veiðieftirlitsmenn. Annar veiðieftirlitsmaður-
inn verður staðsettur á Akureyri. Gert er ráð
fyrir að hinn eftirlitsmaðurinn fái þjálfun við
að síga um borð í veiðiskip úr þyrlu Land-
helgisgæslunnar.
Umsækjendur sem til greina koma þurfa að
uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Hafa lokið prófi frá Stýrimannaskólanum,
Tækniskóla íslands (útgerðratækni) eða hafa
sambærilega menntun.
2. Hafa þekkingu á öllum algengustu veiðum
og veiðarfærum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf berist ráðuneytinu
fyrir 1. ágúst nk.
Sjávarútvegsráðuneytið, 14.júlí 1989.
Trésmiðir
Skrifstofustarf
Starfsmaður óskast hálfan daginn til al-
mennra skrifstofustarfa, einkum til að skrifa
nótur og svara í síma. Vélritunarkunnátta er
nauðsynleg. Enskukunnátta og kynni af tölv-
um er æskileg.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „KGG - 12658“
Kristján G. Gíslason hf.,
Hverfisgötu 6.
Ixi
RIKISSPITALAR
Dagheimilið Sunnuhlíð v/Kleppsspítala
óskar eftir deildarfóstrum og/eða fólki með
aðra uppeldismenntun frá 1. ágúst eða 1.
september nk. til að sjá um deildarstjórn á
deildum með 1-3ja ára og 3ja-5 ára börnum.
Einnig vantar starfsmenn frá 24. júlí nk.
Um full störf er að ræða á deildum 1 —3ja
ára og 3ja-5 ára. Breytilegar vaktir.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Soffía Þorsteinsdóttir í síma 602600/95.
Reykjavík, 16.júlí 1989.
Starfskraft vantar til afgreiðslu- og skrifstofu-
starfa nú þegar. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Umsókn berist á þar til gerðum umsóknar-
eyðublöðum, sem fást hjá símaverði á 5. hæð.
Tollstjórinn í Reykjavík,
Tryggvagötu 19,
101 Reykjavík.
13. júlí 1989.
Verkstjóri
Hótel í borginni vill ráða röggsaman og
drífandi, vinnandi verkstjóra til starfa frá og
með 1. ágúst nk.
Vinnutími kl. 11-20 daglega, frí um helgar.
Viðkomandi sér um skiþulagningu og dag-
lega stjórnun í eldhúsi og að þrif og hrein-
læti sé til fyrirmyndar.
Umsóknir og upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu okkar til 23. júlí nk.
Guðnt Tónsson
RÁÐCJÖF & RAÐN I NC.ARMÓN USTA
TIARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Ritari
Ritari óskast á lögmannsstofu í Reykjavík frá
1. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Æskileg menntun stúdentspróf ásamt ein-
hverri reynslu í tölvuvinnu.
Umsóknir er greini frá menntun, starfs-
reynslu og aldri leggist inn á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 22. júlí merkfar: „Ritari - 7358“.
Unglingaheimili ríkisins
Uppeldisfulltrúi
óskast til starfa við unglingasambýli frá og
með 1. september 1989. Askilin er 3ja ára
háskólamenntun á sviði uppeldis-, félags-
fræði eða skildra greina.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum 39844
og 19980.
„Au pair“ í Svíþjóð
íslensk fjölskylda með tvö börn óskar eftir
barngóðri stúlku til eins árs, frá ágústlokum
'89.
Áhugasamar sendi umsóknir á auglýsinga-
deild Mbl. merktar: „Gautaborg - 4221“ fyr-
ir fimmtud. 20. júlí. Nánari uppl. veittar í síma
623909.
RÍKISSPÍTALAR
Deildariðjuþjálfi
óskast í iðjuþjálfun á öldrunarlækninga-
deild frá 1. ágúst nk. í 6-7 mánuði, jafnvel
til frambúðar.
Upplýsingar gefur Rósa Hauksdóttir, yfiriðju-
þjálfi, í síma 602257.
Reykjavík, 16júlí 1989.
Sjúkrahús Skagfirðinga
Hjúkrunarfræðingar
Okkur bráðvantar nú þegar hjúkrunarfræð-
inga til sumarafleysinga.
Upplýsingar um laun og fleira gefur hjúkrun-
arforstjóri á staðnum og í síma 95-35270.
Getum bætt við okkur 2-3 duglegum og
samviskusömum smiðum við smíði sumar-
húsa.
Áhugasamir leggi inn nafn, heimilisfang,
símanúmer og annað er máli skiptir á auglýs-
ingadeild Mbl., Aðalstræti 6, sem fyrst,
merkt: „Sumarhús - 7317“.
Múrarar-múrarar
Veggprýði hf., sem er umboðs- og þjónustu-
aðili fyrir STO-utanhússklæðningarefnin
óskar eftir að komast í samband við múrara
sem víðast á landinu, er áhuga hafa á að
kynna sér meðferð og ásetningu STO-utan-
hússklæðningarinnar.
RYÐI f
Bíldshöfða 18 (bakhús),
112 Reykjavík- sími 673320.
„Au pair“ -
Ameríku
Við óskum eftir „au pair“, eldri en 18 ára.
Þarf að hafa ökuskírteini. Tvö börn á heimil-
inu, 4ra mán. og 7 ára. Erum í nágrenni Los
Angeles. Skilyrði að viðkomandi dvelji 1 ár
og geti komið sem fyrst.
Tónlistarskólinn
ÍGarði
Staða skólastjóra er laus til umsóknar. Þarf
að hafa píanópróf.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 28. júlí.
Upplýsingar í símum 92-14222 (Jóna) og
92-27211 (Björk).
DAGVIST BARIVA
Forstöðumenn
Dagvist barna auglýsir stöðu forstöðumanns
við dagheimilið Kvarnaborg lausa til umsókn-
ar. Fóstrumenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa skrifstofustjóri og
umsjónarfóstrur í síma 27277.