Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JULI 1989
ERLENT
IIMNLENT
Fréttayfírlit:
Kona og
þrjár telpur
fórust er bíl
hvolfdi í á
UNG kona og þrjár telpur lét-
ust þegar bíll sem þær voru í
valt í Bergvatnskvísl, norð-
austur af Hofsjökli á sunnu-
dagskvöld. Eiginmaður kon-
unnar og hjón, foreldrar
tveggja telpnanna, komust af
en hjálp barst á þriðjudags-
morgun, 36 klukkutímum eftir
að slysið varð. Fólkið var allt
frá Akureyri og hafði farið á
tveimur jeppum upp á hálend-
ið, þeirra erinda að flytja
skálavörð í sæluhús Ferðafé-
lags Akureyrar við Laugafell.
Féll í jökulsprungu
Dani,
búsettur
hér á
landi, féll
í sprungu
í Snæ-
fellsjökli
á þriðju-
dags-
kvöld, og sat fastur á 40 metra
dýpi í nokkra klukkutíma. Með
honum var kona hans og tvö
böm og sótti 15 ára sonur hans
hjálp til byggða. Þyrla Land-
helgisgæslunnar lenti á jöklinum
og flutti manninn til byggða en
hann slapp með viðbeinsbrot.
Langferðabíll í á
Langferðabíll með 22 Sviss-
lendinga festist í Ströngukvísl í
Eldgjá á mánudaginn. Fólkinu
var bjargað upp með kaðli og
engan sakaði.
Ríkisstjórnin
ræðir Qárlagagat
Gat upp á tæpar 5.000 milljón-
ir króna á fjárlögum þessa árs
var umræðuefni sérstaks ríkis-
stjórnarfundar á Þingvöllum í
vikunni. Eru meðal annars rædd-
ar leiðir til þess að auka innlenda
lánsfjáröflun án þess að raun-
vextir hækki. Ríkisstjórnin leitar
einnig leiða til að aðstoða refa-
bændur. Alþýðuflokkurinn hefur
hafnað tillögu landbúnaðaráð-
herra sem gerir ráð fyrir 4-500
milljón króna framlagi ríkisins.
Grunur um PCB mengun
í Sundahöín
Heil-
brigðis-
eftirlit
Reykja-
víkur
setti bann
á endur-
vinnslu
gamalla ragmagnsspenna hjá
endurvinnslufyrirtækinu Hring-
rás, vegna gruns um að olía í
spennunum kunni að vera meng-
uð eiturefninu PCB. Jarðvegs-
sýni bentu til þess að PCB væri
að finna í jarðveginum.
Hagvirki á að greiða
söluskatt
Ríkisskattanefnd hefur úr-
skurðað að Hagvirki hf. skuli
greiða 108 milljónir í söluskatt
af vinnu við virkjanir á árunum
1981-85. Hefur sýslumanninum
í Rangárvallarsýslu verið falið
að innheimta skattinn, en inn-
heimtuaðgerðum var frestað fyr-
ir tveimur vikum meðan beðið
var eftir úrskurði nefndarinnar.
Flugfreyjur boða verkfall
Flug-
freyjur
hjá Flug-
leiðum
hafa boð-
að
tveggja
daga verkfal! á þriðjudag og
miðvikudag haft ekki samist fyr-
ir þann tíma. Síðasti sáttafundur
stóð yfir í 30 klukkutíma.
;
ERLENT
Franska
stjórnar-
byltingin
200 ára
Hátíðahöld vegna 200 ára af-
mælis frönsku byltingarinnar hóf-
ust formlega á fimmtudag þegar
minnst var
mannréttinda-
yfirlýsingar
franska þings-
ins. Föstudaginn
14. júlí var þess
minnst að 200
ár voru síðan ráðist var á Bastill-
una í París. Mikið er um dýrðir í
París og þar eru 30 þjóðarleið-
togar heims. Þá hófst þar einnig
á föstudag fundur leiðtoga sjö
helstu iðnríkja heims.
Afvopnunartillögur NATO
tilbúnar
Hlé var gert á viðræðum Atl-
antshafsbandalagsins og Varsjár-
bandalagsins á fimmtudag. Þá
lagði NATO fram nýjar tillögur
og búist er við svari Varsjár-
bandalagsins 7. september þegar
viðræðumar hefjast á ný. Nokkur
bjartsýni ríkir um að takist að ná
samkomulagi um takmörkun
hefðbundinna vopna innan þeirra
tímamarka sem George Bush
Bandaríkjaforseti hefur sett við-
ræðunum.
Papandreou kvænist
Andreas Pap-
andreou, fyrr-
ver- andi forsæt-
isráðherra
Grikklands,
kvæntist á
fimmtudag heit-
konu sinni Dimi-
tru Liani, 34 ára
gamalli flugfreyju. Brúðhjónin
eiga bæði tvö hjónabönd að baki.
Þörungaplága í Adríahafi
Fulltrúadeild ítalska þingsins
hefur ákveðið að verja gífurlegum
fjárhæðum til að hreinsa Adría-
hafið. Ferðamenn hafa verið var-
aðir við að synda í sjónum við
austurströnd Italíu frá Feneyjum
til Ancona vegna þörungaplágu.
Evrópuheimsókn Bush
George Bush Bandaríkjaforseti
heimsótti Pólland og Ungverja-
land í vikunni. Var honum mjög
vel tekið af al-
menningi og í
Póllandi snæddi
hann meðal ann-
ars kvöldverð
heima hjá Lech
Walesa, leiðtoga
Samstöðu. Bush
lofaði ekki mikl-
um fjárstuðningi Bandaríkja-
manna við umbætur í þessum
löndum en tilkynnti þó stofnun
sjóða tit styrktar einkaframtaki.
Reuter
Flugeldasýning
íParís
FLUGELDUM var skotið á loft í París að
kvöldi föstudags í lok hátíðarhalda á þjóðhátí-
ðardegi Frakka, 14. júlí. Fulltrúar margra þjóða
tóku þátt í skrautsýningu niður Champs-Elysée
breiðstrætið frá Sigurboganum. Fremstir fóru
Kínveijar sem minntu á lýðræðisbaráttu náms-
manna þar og báru þeir höfuðbönd eins og
talsmenn frelsis á Torgi hins himneska friðar
fyrir blóðbaðið þar í byijun júní.
■Meðal áhorfenda voru um 30 þjóðaleiðtogar,
þar á meðal frá sjö helstu iðnríkjum heims sem
hófu formlegar viðræður á árlegum fundi sínum
í París í gær. Þjóðaleiðtogamir funda í nýju
stórhýsi í la Defénse-hverfinu í París en á
fimmtudagskvöld voru þeir við fyrstu tónleik-
ana í nýju Bastillu-óperunni, en sýningar hefj-
ast ekki þar fyrr en í byijun næsta árs.
Atvinnuleysi vex í Noregi:
Stjórnin höfðar til atvinnu-
rekenda að fjölga störftim
Ósló. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins.
STÖÐUGT berast nýjar og ógn-
vekjandi fréttir um atvinnuleysið
í Noregi. í byijun júlí voru 87.600
manns á atvinnuleysisskrá í Nor-
egi og er það nýtt met.
Ríkisstjómin hélt í þá von að
meiri atvinna myndi bjóðast um
sumarið en nú virðist ljóst að at-
vinnuleysið á eftir að vaxa er hallar
sumri. Atvinnuleysið verður því fyr-
irsjáanlega aðalkosningamálið í
þingkosningunum í september.
Verkamannaflokkurinn hefur
ætíð haft „atvinnu fyrir alla“ á
stefnuskránni. Fyrir fjómm ámm
síðan, skömmu áður en flokkurinn
tók við, hét hann því að ekki yrðu
fleiri en 45.000 Norðmenn atvinnu-
lausir í stjórnartíð hans.
Bein afleiðing atvinnuleysisins
er sú að verðlag hefur lítið hækkað
í Noregi. í fyrra var verðbólgan
4,7% og er það nokkm lægra en
hjá helstu viðskiptalöndum Noregs.
Vextir hafa einnig lækkað og em
nú í kringum 10% á fjármálamörk-
uðum.
Stjórnvöld vonuðust einnig til
þess að lágir vextir og lítil verð-
bólga myndu stuðla að aukinni fjár-
festingu í atvinnulífinu en svo hefur
ekki verið. Gro Harlem Bmndtland,
forsætisráðherra Noregs, hefurgef-
ið sterklega til kynna að hún vænti
þess að atvinnurekendur leggi sitt
af mörkum við að fjölga störfum.
Ferð Bush til Póllands og Ungverjalands:
Afturhaldsöflin óttast
óeiningu í Austur-Evrópu
FERÐ George Bush Bandaríkjaforseta til Póllands og Ungveija-
lands í vikunni varpaði skæru ljósi á ágreininginn milli umbóta-
sinna og harðlinumanna í kommúnistaríkjum Austur-Evrópu.
Þessi deila ógnar nú einingu ríkjanna meira en nokkru sinni fyrr.
Þegar forsetinn kvaddi Pólveija og Ungveija á fimmtudag flutti
hann öllum þjóðum Austur-Evrópu skýran boðskap: fetið umbóta-
brautina og Bandaríkjamenn skulu beita sér fyrir því að Vestur-
lönd taki sig saman um að stuðla að frelsi og hagsæld í ríkjum
ykkar. Þessi boðskapur var fagnaðarefiii fyrir pólsk og ungversk
sljórnvöld, sem þegar hafa komið á nokkrum umbótum. Tékkar
og Rúmenar, sem ásamt Austur-Þjóðveijum og Búlgörum vilja
halda í horfinu hvað sem það kostar, brugðust hins vegar ókvæða
við.
Bush var tekið með kostum og
kynjum i Póllandi og Ung-
veijalandi pg virðast vinsældir
hans þar hafa valdið fjölmiðlum
í öðrum ríkjum Austur-Evrópu
verulegum áhyggjum. Rúmenska
dagblaðið Romania Libera sagði
að augljóst væri að Bush stefndi
að því að skapa óeiningu á meðal
kommúnistaríkjanna og blaðið
sakaði hann um íhlutun í innanrík-
ismál þeirra. Bush lofaði Pólveij-
um 100 milljóna
dollara fjár-
stuðningi til að
efla einkafram-
takið, en Ung-
veijum um fjórð-
ung þeirrar fjár-
hæðar. Dagblaðið Pravda í Tékkó-
slóvakíu sagði að þótt þessi efna-
hagsstuðningur væri ekki mjög
rausnarlegur væri honum einung-
is ætlað að þröngva hugsjónum
og gildismati Bandaríkjamanna
upp á þjóðir Austur-Evrópu. „Pen-
ingunum verður varið til að efla
einkaframtakið og pólitískt fjöl-
ræði,“ bætti blaðið við með vand-
lætingu.
Ávinningur Pólveija og Ung-
veija af heimsókn Bush felst ekki
aðeins í þeim efnahagsstuðningi
sem hann lofaði. Ávinningurinn
felst einnig f þeim táknræna
stuðningi sem Bush veitti þeim,
sem helsti leiðtogi Vesturlanda,
með því að heimsækja lönd þeirra
og lýsa yfir stuðningi við frelsis-
baráttu þeirra. Imre Pozsgay, sem
á sæti í stjórnmálaráði ungverska
kommúnistaflokksins, benti á að
ferð Bush væri stóratburður í sög-
unni, ekki aðeins hvað varðaði
samskipti Ungveijalands og
Bandaríkjanna heldur einnig með
tilliti til umbó-
tanna í kommún-
istaríkjum Aust-
ur-Evrópu. „Við
erum í eðli okkar
bandamenn
Bandaríkja-
manna og yfirlýsingar forsetans
hér gætu orðið til þess að efla
óháðu stjórnmálaöflin í Ungveij-
alandi," hafði fréttastofan Reuter
eftir Gyorgy Kadar, talsmanni
Lýðræðisvettvangs Ungveija-
lands. Samstaða, óháðu verka-
lýðssamtökin í Póllandi, höfðu
óskað eftir milljarða dala fjár-
stuðningi frá Bandaríkjamönnum,
en þótt slíkt sé ekki á döfinni
urðu Samstöðumenn síður en svo
fyrir vonbrigðum.
John Sununu, skrifstofustjóri
Bandaríkjaforseta, sagði að leið-
togar Vesturlanda vildu ekki end-
urtaka mistökin frá síðasta ára-
tug, þegar milljörðum dala var
sólundað í lán til kostnaðarsamra
verkefna í kommúnistaríkjunum.
Þess í stað vildu Bandaríkjamenn
tengja efnahagsstuðninginn og
lánafyrirgreiðslu við efnahagsum-
bætur, enda litu þeir svo á að
slíkar umbætur skiluðu ekki ár-
angri án stjórnmálaumbóta.
Þessi stefna er fagnaðarefni
fyrir stjórnvöld í Ungveijalandi
og Póllandi, því þau viðurkenna
að stjórnmálaumbætur séu nauð-
synlegar samfara efnahagsum-
bótum og hafa þegar dregið úr
völdum kommúnistaflokksins.
Gamalmennin á valdastólunum í
Austur-Þýskalandi, Rúmeníu og
Tékkóslóvakíu geta hins vegar
engan veginn sætt sig við þessa
stefnu Bandaríkjamanna. Þau ótt-
ast afleiðingar stjórnmálaumbóta
því óánægja almennings í þessum
löndum er mikil og hætta er á
að upp úr sjóði verði slakað á
klónni.
Bush segist vona að ferð hans
verði til þess að aðrar þjóðir Aust-
ur-Evrópu fylgi fordæmi Ung-
veija og Pólveija. Hann setur það
skilyrði fyrir frekari stuðningi við
Pólveija og Ungveija að þessar
þjóðir stefni ótrauðar að auknu
lýðræði og fijálsu hagkerfi.
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti
hefur hins vegar marglýst því
yfir að hann sé mótfallinn því að
kommúnisminn verði lagður fyrir
róða. Ungveijar og Pólveijar hafa
þegar gengið lengra en Sovét-
menn. Þótt Gorbatsjov kvarti und-
an þvi að umbæturnar gangi of
hægt í Sovétríkjunum mætti alveg
eins búast við því að örari lýðræð-
isþróun í Ungveijalandi og Pól-
landi yrði honum ekki að skapi.
BAKSVIÐ
Eftir Boga Þ. Arason