Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 10
10
G8f!J LIUI. .01 HUOAQUKKU2 GIQAJaHUOH
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989
•
> -
F
. „ ■
mm JOLDI KVENNA semfær
brjóstakrabbamein eykst stöðugt, Þrettánda
hver íslensk kona getur búist
við að íá brjóstakrabbamein einhvern tíma á
lífsleiðinni. Dánartíðnin hefur hins vegar haldist
óbreytt. Af hverjum 100 konum sem greinast
með brjóstakrabbamein lifa 68 í fimm ár eða
lengur samkvæmt upplýsingum
Krabbameinsskrárinnar.
Þeir eru margir sem hafa lagt hönd á plóginn
í baráttunni gegn þessum sjúkdómi í gegnum
tíðina og skiljanlega ekki hægt að gera grein
fyrir þeim öllum í grein sem þessari. Fengnir
voru þrír sérfræðingar til að skýra nánar
hugtakið brjóstakrabbamein og um leið að
greina frá þeim aðferðum sem beitt er í
baráttunni við þennan sjúkdóm.
V d
*V
r.
ORSÖKIN
eftir
Jóhannes Kára Kristinsson
Hrafii Tulinius
HRAFN TULINIUS, yfirlæknir Krabbameinsskrár
Krabbameinsfélagsins, var fenginn til að greina frá
hugsanlegum orsökum brjóstakrabbameins,
sérstaklega með tilliti til aukinnar tíðni þess.
Ef við ræðum fyrst stutt-
lega um orsakir sjúk-
dóma almennt verður að
koma fram að það eru
oftast margir þættir sem
valda hveijum sjúkdómi," sagði
Hrafn. „Ef við tökum berkla sem
dæmi þá vitum við að berklasýkillinn
veldur berklum. En það er ekki þar
með sagt að í hvert sinn sem einstakl-
ingur kemst í tæri við sýkilinn fái
hann sjúkdóminn. Þar koma fleiri
þættir til, svo sem lélegt fæði og
húsakostur. Faraldsfræðin hefur því
komið sér upp hugtökunum orsaka-
hluti, fullkomin orsök og nauðsynleg
orsök. Berklabakterían er t.d. nauð-
synleg orsök, en þó aðeins orsaka-
hluti. Hvað krabbamein varðar höf-
um við ekki nauðsynlega prsök eins
og í áðurnefndu dæmi. Ýmsar að-
ferðir hafa verið þróaðar til að mæla
vægi hvers orsakaþáttar, þ.e. hve
miklu máli skipta þeir í tilurð sjúk-
dómsins. Reykingar eru t.d. stór or-
sakaþáttur í sambandi við lungna-
krabbamein, en aðrir þekktir orsaka-
þættir krabbameina vega mun
minna.“
Fáir og léttvægir
orsakaþættir
„Það er því erfitt að fást við hug-
takið orsök. í stórum dráttum má
segja að þeir orsakaþættir bijósta-
krabbameins sem við þekkjum séu í
raun fáir og léttvægir. Fremst í þeim
flokki er fæðingarsaga konunnar.
Það var frá gamalli tíð haldið að
bijóstagjöf kæmi í veg fyrir bijósta-
krabbamein, þ.e. að því lengur sem
kona hafði barn á bijósti þeim mun
minni líkur væru á því að hún fengi
krabbamein. Þetta er eðlilegt ef
gengið er út frá því hlutverki bijósta-
kirtilsins að framleiða mjólk, það er
að segja ef hann fær ekki að gegna
því hlutverki gæti hann tekið breyt-
ingum. Árið 1970 var gerð fjölþjóðar-
annsókn á vegum Harvard-háskóla
í Massachusetts í Bandaríkjunum.
Sú rannsókn leiddi í ljós, að aldur
konu við fyrstu fæðingu skipti mestu
máli, en lengd bijóstagjafar skipti
litlu eða engu máli. Niðurstöður okk-
ar rannsókna hafa leitt það sama í
Ijós að því viðbættu að barnafjöidi
skiptir einnig máli. Við höfum ekki
gögn yfir bijóstagjöf íslenskra
kvenna.
Þessir áhættuþættir eru hins veg-
ar ekki stórir. Konu er eignast ekki
sitt fyrsta barn fyrr en eftir 35 ára
aldur er tvöfalt hættara við að fá
bijóstakrabbamein heldur en kona
sem eignast barn fyrir tvítugt, hætt-
an eykst úr 5% í 10%. Síðan hafa
verið gerðar margar rannsóknir og
sennilega skiptir barnaíjöldi mestu
máli.“
Barnafjöldi
Hrafn benti á að æðri spendýr,
líkt og villtir apar, væru yfirleitt
annað hvort að ganga með afkvæmi
sín eða með þau á spena og tölur
leiddu ekki bara í ljós mun á krabba-
meinstíðni kvenna sem ættu tvö og
fjögur börn, heldur líka á þeim sem
ættu t.d. sjö og níu böm. Ef kona
eignaðist síðan um tuttugu börn yfir
ævina væri þessi þáttur farinn að
skipta verulegu máli. Nú á dögum
skipti hann minna máli, barnafjöldi
væri samt sem áður sterkasti
áhættuþátturinn sem þekktist í sam-
bandi við bijóstakrabbamein.
„Lengd bijóstagjafar, barnafjöldi,
aldur við fyrstu tíðir og fæðingu
fyrsta barns, eru að sjálfsögðu þætt-
ir sem við getum ekki breytt, en
þeir gefa vísindamönnum þá vísbend-
ingu að lengd þess hluta fijósemis-
skeiðsins sem konan er hvorki þung-
uð né með barn á bijósti sé orsaka-
þáttur. Hvað er það sem líkaminn
leggur konunni til þegar hún er að
eignast börn eða með börn á bijósti?
Ef það er eitthvað efni, þá gætu
vísindamenn hugsanlega notað það
til að lækka tíðni bijóstakrabba-
meins, en eins og er hefur það ekki
fundist."
— Hafa komið upp einhveijar til-
gátur?
„Þær kenningar sem hafa komið
fram um það hafa reynst haldlitlar
en þær fjalla um hormón."
Fj ölskyldugengi
Hrafn kvað fjölskyldugengi vera
annan áhættuþátt, ef kona ætti móð-
ur sem fengið hefði bijóstakrabba-
mein væru u.þ.b. 2,6 sinnum meiri
líkur á að hún fengi sjúkdóminn en
aðrar konur. Það væri hins vegar
alls ekki ljóst hvort ástæðan lægi í
erfðum, því það væri svo margt ann-
að í umhverfi fjölskyldumeðlima sem
■