Morgunblaðið - 16.07.1989, Síða 14
Í4
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989
Að lifa í köldu landi
Seinni hluta júnímánaðar fór ég ásamt nokkrum kvennalistakonum
um landið undir kjörorðinu „Konur, sláum hring um landið". Leiðin
lá um Borgarfjörð, Húnavatnssýslur og SkagaQörð, að ógleymdu
Snæfellsnesi, þar sem ég komst óvænt uppá Snæfellsjökul. Ferðalag-
ið var bæði fróðlegt og skemmtilegt, þótt víða sé ástandið á lands-
byggðinni þannig að lítil ástæða er til að gleðjast.
Ferð eins og þessi er afar end-
umærandi og gefandi eftir
inniveru og fundarsetur vetr-
arins. Með skýrslum og tölum er
búið að gefa mynd af ástandinu í
landinu en samtöl við fólkið sem
segir frá sínum viðhorfum og erfið-
leikum gefur mun skýrari mynd.
Það minnir á það sem svo oft gleym-
ist þeim sem alltaf eru að leysa
efnahagsvandann, að fólk er ekki
tölur á blaði sem hægt er að flytja
til og frá og strokak út eftir þörfum.
Því miður hefur viðhorf til
kvenna og þeirra framlags til sam-
félagsins lítið breyst. Enn eru störf
kvenna lítils metin, þótt þær beri
uppi undirstöðuatvinnuvegina, þær
hafa lægstu launin, þær bera
ábyrgð á heimili og börnum og þeg-
ar samdráttur verður eins og nú,
er það fyrst látið bitna á konunum.
Það þarf ekki að fara víða til að
átta sig á að þetta er veruleiki sem
blasir við konum um land allt.
Hér viljum við búa
Þrátt fyrir erfiða lífsbaráttu á
liðnum öldum, langa vetur og stutt
sumur hefur þjóðin þraukað á því
sem landið hefur gefið. Ferð um
landið í sól og birtu og sú hlýja sem
mætti okkur allstaðar hlýtur að
styrkja okkur í því sem formæður
okkar og feður hafa sagt; þetta er
landið þar sem við viljum búa. Við
söknum stundum sólar, en hún þarf
ekki að skína nema í skamman tíma
þá yljar hún svo ótrúlega og það
er eins og svipt sé burtu úr hugan-
um öllu neikvæðu um veðrið og
aðeins hugsað til þess hve við erum
gæfusöm að eiga heima í þessu
stóra og kalda landi. Náttúran er
ómótstæðileg, landið, hafið og sjáv-
arseltan gefa kraft og
þrótt til að takast á
við verkefnin stór og
smá.
Bjargarlaus í
eigin landi
Það skiptir miklu
að við kunnum að
meta kosti landsins,
lærum á dynti veðr-
áttunar, kunnum að
búa okkur gegn kulda
og vosbúð og kom-
umst upp á lag með
að njóta landkos-
tanna. Forfeðrum
okkar tókst þetta ekki
sem skyldi. Það var
eins og sú menning
sem þeir fluttu með
sér út hingað félli ekki
að aðstæðum á íslandi og þeir
næðu ekki að aðlaga sig sem skyldi.
Mikið skorti á að þeir kynnu að
bregðast við rysjóttu veðurfari.
Þeir kunnu tæpast að grafa sig í
fönn né bregðast við kuldanum á
annan hátt. Við þurfum ekki annað
en að líta til nágranna okkar, es_k-
imóa, til að sjá andstæðurnar. Ég
hef oft velt því fyrir mér hvers
vegna enn skortir svo mikið á að
fólk þekki á eigið land og lagi sig
að aðstæðum. A hveiju ári heyrum
við af ijúpnaskyttum sem hafa far-
ið að heiman án hjálpartækja, jafn-
vel án áttavita. Það er alltof al-
gengt að fólk týnist í fjöllum, ferða-
menn ani uppá jökla án nauðsyn-
legs búnaðar og kunn-
áttu og svo mætti
lengi telja. íslending-
ar nútímans hafa
þrátt fyrir tækni og
upplýsingu ekki náð
tökum á því að ferðast
um eigið land og eru
alltaf að lenda í hrak-
förum. Til viðbótar því
sem áður var kemur
tæknihyggja og mátt-
ur auglýsinga borgar-
samfélagsins sem rýf-
ur enn frekar tengslin
við náttúruna og
landið.
Sjómennskan og
hafið
Undir Jökli voru
fyrr á tíð einhveijar
öflugustu verstöðvar á íslandi. Enn
eru sjávarplássin á Snæfellsnesi
meðal öflugustu útgerðarstaða á
landinu. í ferðinni lagði ég leið
mína í kirkjugarðinn í Olafsvík. Þar
var ég minnt óþyrmilega á harða
lífsbaráttu og þær fómir sem hafið
hefur krafist. Sjómennimir okkar
þurfa að vera viðbúnir öllum veð-
mm og köldum sjó sem gerir út
HUGSAÐ
UPPHÁTT
1 dag skrifar Kristín
Einarsdóttir þingmabur
Kvennalistans.
Móðir Davíðs S.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Yvonne Keuls: Moren til David S.
Norsk þýðing úr hollensku Gunn-
ar Kagge
Útg. Cappelen 1988
Sögumaður er móðir drengsihs
Davids. Hún og maður hennar
voru barnung, þegar David kom
undir, og augljóst að sektarkenndin
vegna þess að þeim — og einkum
finnst móðurinni það — þykir sem
þau beri ekki til hans eðlilegar til-
finningar. Drengurinn er órór, sefur
illa, grætur mikið og þeim finnst
að eitthvað hljóti að vera að. Þau
em fulivissuð um að svo sé ekki,
en það sefar þau ekki. Þegar David
vex úr grasi og er hinn mesti
óþekktarormur ágerist þessi tilfinn-
ing hjá móðurinni að þau hafi ekki
rækt hann á réttan hátt í bemsku.
David leiðist út í eiturlyfjaneyslu
á unglingsámnum og foreldrarnir
standa agndofa og ráðaiaus frammi
fyrir vandanum sem þeim finnst
þau eiga við að glíma. Þó svo að
þau reyni allar leiðir til að hjálpa
drengnum virðast öll sund iokuð,
Yvonne Keuls
hvert sem þau leita koma þau að
lokuðum dyrum eða í besta falli
skilningsleysi, að því er þeim finnst.
Og meðan þessu fer fram sekkur
David lengra og lengra og að því
kemur að þau hjón eru farin að
blekkja hvort annað, togstreitan
milli þeirra vegna drengsins verður
æ meiri. Þau geta ekki komið sér
saman um, hvernig þau eiga að
taka á málinu og fjölskyldulífið er
í rauninni komið í algera kreppu.
Yngri systkinin gjalda þess hvernig
ástandið er milli foreldranna og að
foreldrarnir hugsa aldrei um annað
en David.
Þau kynnast foreldrum drengsins
Bernhards, sem David hefur lent í
slagtogi með í upphafi. Það gæti
verið Bernhard að kenna að David
leiddist út á þessa braut í upphafi,
en það gæti líka verið David að
kenna að Bernhard gefst loksins
upp og sviptir sig lífí. Uns þau fara
að skilja að spurningin snýst ekki
um að finna sökudólginn. Spurning-
in snýst um hvemig þau eiga að
lifa af og lifa með það innra með
sér að David verður sennilega ekki
bjargað.
Þessi bók er stórmerkileg lesning
og lýsir af ótrúlega miklum skiln-
ingi þeirri baráttu sem aðstandend-
ur eiturlyfjaneytenda þurfa að heyja
til þess eins að komast sjálf af. Það
er ekki allra að öðlast þann skilning
enda kannski alveg á mörkunum
hjá þeim; hvort þau hafa orðið að
leggja of mikið í sölumar til að ná
þessu stigi sem þau em á við bókar-
lok.
Ég hef sannarlega Iesið ýmsar
bækur um þetta vandamál og
hvernig eiturlyfjaneytandinn og
aðstandendur hans bregðast við.
Þessi finnst mér óumdeilanlega hin
áhrifamesta, og það er stór ávinn-
ingur að lesa hana. Hún gefur svör
og eykur skilning, svo framarlega
sem hægt er að tala um það þegar
eiturlyfjaneytendur eru annars veg-
ar.
Yvonne Keuls hefur skrifað fleiri
bækur um þetta efni. Á bókarkápu
er þess getið að „Moren til David
S“ hafi verið búið í leikritsform og
verði sýnt á norsku leiksviði á þessu
ári.
plUfi0ílliH«
ÞlaMfe
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
model-ýQ'
Haldin verða námskeiQ í modelstörfym
4 0 Leidbeint veróur í: -f |
1 • Göngu r
•Fóröun
\ •Hárgreióslu j
\ •Tískuljósmyndun J
Aldurshópar: 13-15,16-18,19og eldri.
Leiðbeinendur verða toppfólk í sinni grein enda viljum við aðeins það besta fyrir neméndur okkar.
Námskeiðin hefjast 24. júlí.
Uppl. og innritun hjá Módel 79 í síma 678855 milli kl. 13 og 17 alla virka daga.