Morgunblaðið - 16.07.1989, Page 16
eftir Guðm. Halldórsson
HRIKT HEFUR í stoðum
ríkisstjórnar Fidels Castros og
kommúnistaflokksins á Kúbu
vegna stórfellds
eiturlyfjahneykslis og grunur
leikur á að hann hafí notað
málið til að bæla niður andstððu
í heraflanum. Hneykslismál eru
engin ný bóla á Kúbu, en ekkert
mál hefúr komizt í hálfkvisti
við eiturlyfjamálið, sem sumir
kalla Castrogate. Eins
valdamiklir menn hafa aldrei
flækzt í misferli síðan Castro
náði völdunum í byltingunni
1959 og aldrei hefiir verið
gripið til eins víðtækra
hreinsana.
Dularfullt kókaínhneyksli á Kúbu
riðji valdamesti maður
Kúbu, Arnaldo Ochoa
jSanchez hershöfðingi, og
13 aðrir yfirmenn, játuðu
'að hafa hjálpað voldu-
gustu samtökum kókaín-
kaupmanna í Suður-
Ameríku, Medellin-
hringnum í Kólombíu, að smygla
eiturlyfjum til Bandaríkjanna um
tveggja og hálfs árs skeið. Samtökin
greiddu sjö hinna ákærðu a.m.k. 3,4
milljónir Bandaríkjadala fyrir að
leyfa flugvélum þeirra að lenda á
Kúbu með sex lestir af kókaíni, sem
síðan voru fluttar sjóleiðis til Flórída.
Ochoa og þrír helztu samstarfs-
menn hans voru dæmdir til dauða,
en hinir sakborningarnir fengu
10-30 ára fangelsi. Sýnt var frá
réttarhöldunum í sjónvarpi kvöld
eftir kvöld og útsendingarnar höfðu
mikil áhrif.
Tólf hinna ákærðu störfuðu í inn-
anríkisráðuneytinu, sem lögreglan,
leyniþjónustan og öryggiseftirlitið
heyra undir. Innanríkisráðherrann,
José Abrantes hershöfðingi, neyddist
til að segja af sér og yfirmanni flug-
málastofnunar Kúbu, Vicente
Gomez Lopez, var vikið úr embætti.
Höfuðpaurinn í innanríkisráðu-
neytinu var Antonio (,,Tony“) de la
Guardia Font ofursti, einn þeirra
fjögurra, sem voru dæmdir til dauða.
Hann var yfirmaður svokallaðrar
„MC-deildar“, sem hefur það verk-
efni að fara í kringum 30 ára gam-
alt viðskiptabann Bandaríkjamanna.
De la Guardia er gömul byltingar-
hetja eins og Ochoa og var sagður
„valdameiri en flestir hershöfðingj-
ar“.
Aðstoðarforingi Ochoa, Jorge
Martinez höfuðsmaður, var tengilið-
ur hans og Tony de la Guardia.
Majór í innanríkisráðuneytinu,
Amado Padro, skipulagði kókaín-
aðgerðir MC-deildarinnar og stóð í
beinu sambandi við smyglarana.
Bæði Padro og Martinez voru dæmd-
ir til dauða. Tvíburabróðir Tonys,
Patricio de la Guardia, var einn sex
sakborninga, sem voru dæmdir í 30
ára fangelsi, svo og eina konan á
sakborningabekknum, Rosa Maria
\kókaínborginni Medellin í Kólombíu.
Medellin-hringurinn stjórnar allri
eíturlyfjadreifingu frá Andesfjöllum
til Bandaríkjanna. Litlar flugvélar
kókaínsmyglaranna hafa flogið með
farm sinn til lítilla og afskekktra
eyja í Bahamaeyjaklasanum, rétt hjá
strönd Flórída, en stöðugt hefur
verið leitað að nýjum lendingarstöð-
um. Beinasta flugleiðin frá Kólombíu
til Suður-Flórída er yfir Kúbu og
Medéllin-hringurinn hefur lengi haft
augastað á flugvöllum þar.
Síðla árs 1986 tóku Tony de la
Guardia og deild hans upp samvinnu
við Medellin-hringinn, skömmu áður
en þringnum fór að ganga erfiðlega
að fá leyfi til lendinga á Bahamaeyj-
um. Tony fór til Kólombíu, sem
Kúbveijar gerþekkja vegna stuðn-
Ochoa hershöfðingi: „Ég sveik landið ...“
Castro:
ásakanir Bandaríkja-
Abierno, sem játaði að hafa tekið
þátt i marijúana-flutningum frá
Jamaica. Þrír fengu 25 ára og einn
10 ára fangelsi.
„Kókaín-deildin“
„MC-deildin“, sem Tony de la
Guardia stjórnaði — og Kúbveijar
kalla nú„marijúana- og kókaíndeild-
ina“ í háði — hefur beitt ýmsum
ráðum til að sniðganga viðskipta-
bann Bandaríkjamanna. Meðal ann-
ars hafa leynilegir bankareikningar
og dulbúin verzlunarfélög verið not-
uð til að afla nauðsynlegs gjaldeyris
og varnings. Panama hefur verið
miðstöð leyniviðskipta Kúbveija
vegna mikillar bankaleyndar þar og
Manuel Antonio Noriega einræðis
herra og fyrri einræðisherrar
hafa þegið ríflega greiðslur
frá Kúbveijum.
Þó er talið að Kúb-
veijar hafi hvergi
mætt eins mikilli
lipurð og í
ings við skæruliða hreyfingarinnar
M-19. Skæruliðarnir stunda ábata-
söm viðskipti við Medellin-hringinn
og komu Tony í kynni við „kókaín-
kónginn“ Pablo Escobar og aðra
forsprakka samtakanna.
Niðurstaðan varð sú að Kúbveijar
fengu stórfé frá kókaín-barónunum
fyrir að leyfa flugmönnum þeirra
að lenda á herflugvöllum á Kúbu og
sjá um að eiturlyfjafarmurinn væri
sendur áfram til Flórída frá ferða-
mannabænum Varadero með hrað-
skreiðum vélbátum og snekkjum.
Einnig sóttu bátar frá Flórída vatns-
helda gáma með kókaíni, sem var
fleygt í sjóinn. Alls voru farnar 15
smyglferðir um Kúbu, þar af átta á
fyrstu fjórum mánuðum þessa árs,
og Kúbveijar lögðu hagnað sinn á
leynireikninga í bönkum í Panama.
„Tony gat flutt fólk ólöglega til
Kúbu,“ sagði kúbverskur embættis-
maður í síðustu viku, „falsað vega-
bréf, sniðgengið tollskoðun, leyft
flugvélum að lenda á venjulegum
flugvöllum og sagt strandgæzlunni
að látast ekki taka eftir neinu þegar
ólöglegir bátar nálguðust strendur
Kúbu.“
Stríðshetjan
Ásakanirnar gegn Ochoa hers-
höfðingja ná aftur til 1987. Áður
en hann flæktist í eiturlyfjahneyksl-
ið var hann þjóðhetja á Kúbu. Hann
er einn sex manna, sem hafa verið
sæmdir orðunni „hetja lýðveldisins"
og hefur hlotið flest önnur kúbversk
heiðursmerki. Fyrrverandi félagi
hans segir að hann hafi verið sjálf-
stæður í skoðunum og vinsæll meðal
hermanna sinna, duglegur og sveigj-
anlegur, átt það til að sniðganga
reglur og venjur og verið meiri her-
maður en marxisti.
Ochoa mun vera 57 ára gamall
og er sonur fátæks bónda í fjöllum
Austur-Kúbu. Níu mánuðum eftir
að hann gekk í lið með byltingar-