Morgunblaðið - 01.08.1989, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989
3Ö___________________
Stförnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Neptúnus
Neptúnus stjórnar Fiskum og
tengist 12. húsi. Hann er
u.þ.b. 14 r í hveiju merki og
er því sameiginlegur öllum
sem fæðast á því tímabili. Sem
slíkur er hann táknrænn fyrir
drauma, óskir og vonir hverrar
kynslóðar, en einnig fyrir
tískustrauma, andlegar sveifl-
ur og hugsjónir. Hjá þeirri
kynslóð sem fæddist með
Neptúnus í Meyju (u.þ.b.
1928-42) var áberandi hve
mikil áhersla var iögð á vinn-
una sem göfuga dyggð. Vog-
arkynslóðin (1942-56), var
boðberi ástar, friðar og
bræðralags, Neptúnus í
Sporðdreka (1965-80) var
boðberi kynlífsbyltingar og
aukins áhuga á sájfræði, dul-
speki og innri leit. í Bogmanni
(1970-84) varð tískan létt,
fijálsleg og íþróttamannsleg
og í Steingeit (1984-98) verða
straumarnir íhaldssamari.
Samvilund mannsins
Hjá einstaklingnum er Nept-
únus táknrænn fyrir þá fórn
sem hann þarf að inna af hendi
til samfélagsins. Á milli
manna eru ákveðin sálræn
tengsl eða straumar. Það er
Neptúnus sem er táknrænn
fyrir þessa strauma, eða orku
sem er sameiginleg öllum og
er stundum kölluð samvitund
mannsinsi
Næmleiki
Maður sem hefur Neptúnus
sterkan er næmur á annað
fólk og er opinn fyrir orku í
umhverfinu, en oft án þess að
taka eftir því sjálfur, því orka
Neptúnusar er oft óáþreifan-
leg.
Fórn
Næmleiki og tengsi við orku
annarra leiðir til þess að menn
Nepúnusar taka tillit til ann-
arra og leggja hömlur á eigin
vilja. Ef sjálf þeirra er á hinn
bóginn sterkt geta þeir átt til
að nota næmleika sinn til að
stjórna öðrum og upphelja
sjálfan sig.
Leit aö lífsfyllingu
Sterkum Neptúnusi fylgir allt-
af þörf fyrir að leita lífsfylling-
ar og flýja gráan hversdags-
leikann. Menn hans skynja
orku sem nær út fyrir hið
persónulega og geta ekki sætt
sig við það eitt að vinna,
borða, sofa, elska og byggja
hús. Þeir skynja að lífið hlýtur
að gefa kost á einhveiju öðru
og meira en daglegum veru-
leika. Þessi leit getur beinst
inn á nokkur svið, en fjögur
stig eru algengust og má gefa
þeim heitin róni, listamaður,
læknir og guðspekingur.
Engin landamœri
Satúrmis er táknrænn fyrir
kerfi okkar, reglur og landa-
mæri. Neptúnus er andstaða
hans, er iandamæraleysi.
Reynsla af orku hans færir
manninn út fyrir sjálfan sig
og eyðir öllum aðskilnaði. „Ég
og lífið erum eitt“, segir Nept-
únus. „Það er því sjálfsagt að
hjálpa þér.“ Tónlist er eitt
tæki Neptúnusar sem brýtur
niður aðskilnað og landamæri,
og sömuleiðis trúin og trúarleg
reynsla.
Blekkingar
Sú hætta sem fylgir orku
Neptúnusar er fólgin í því að
tapa sjálfinu og týna sér í
heimi drauma og blekkinga.
Ást og fegurÖ
Fátt er á hinn bóginn fegurra
en orka Neptúnusar þegar hún
rís hæst í göfugri list sem
endurspeglar lífið og gefur
okkur þá tilfinningu að við
stöndum nálægt Guði. Óeigin-
gjörn ást, djúpur lífsskilning-
ur, umburðarlyndi og hjálp-
semi eru frá Neptúnusi komin.
Eitt af einkunnarorðum hans
er að eLskíualla-og þjónaöJkim. <
GARPUR
SU/O STÖ&F /4LLT 1/jeÐ/ST
T>/K/SA/2FA. I' LAG/ , TEFL/t.
06 A£> KANnA PABB/ UP/S&UK
L/FVÖ/eB/NN, AN/BGÞUK ,
BRjJ / AAEÐ STÖfíFp/N
B/NFÖLD... I E/NS OG
N UBNJULBGAf
\SlF>Ft?ll/M UEL\ Arz //u FtFtP/l
SKYND/LEGA...
' D/AN HEKmA&L
TlLKYHN/K '
H£F/ SÉRSTAKA
BÓN T/L
PRJNS/N S
GRETTIR
BRENDA STARR
L/F/Ð EP EKK/
fZETTL 'ATT /VlAEHJt?
V/NNUf? A LLA /E-Vr
06 HUAÐ F/EK /MA£> -
O/Z ?
Al JTFJA , t=G Ef? ASTFAN&I
/ /NN AF’ETÓLKU SEAf
HEIT/f? BKACE LArNP-
\ /yiEp elprautt
HAfZOe
ttJARTA
STt'L .
LJOSKA
JEPPI 03 l’ARA ERU
A£> 6K/LJA
E
L |
IÓA OGJÓI
ERLIAP FLHTjA )
TIL ALASKA _ HL
inxxfi-
FERDINAND
SMAFOLK
vjE5, MAiAM.WE 60T THE
NEU) 006 LICENSE..WE ALSO
GOT A PRIVER‘5 LICEN5E ANP
A FI5MIN6 LICEN5E...
NO, SME 5AV5 VOU UOH T
NEEP A LICENSE FOR THAT..
Já, ungfrú, við fenguim nýtt hunda-
leyfi og sömuleiðis ökuskírteini og
veiðileyfi.
Nei, hún segir að þú þurfir ekki
leyfi fyrir þessu.
BBWB?!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
1 liði Frakka Turku var gam-
all rúberturefur, Sussel að nafni,
sem sýndi það margoft í mótinu
að borðtilfinningin _er meira virði
en líkindafræðin. í eftirfarandi
spili úr leik Frakka og Hollend-
inga hafnaði hann svíningu, sem
hann hafði ekki trú á, og spilaði
frekar upp á varnarmistök.
Norður *ÁK3 ¥ G1094 ♦ Á1032 *84
Vestur Austur
♦ G9762 * 10
y kt ¥ K53
♦ 987 ♦ K654
*763 Suður ♦ D854 * DG1096
¥ D862 ♦ DG *ÁK2
Sussel varð sagnhafi í 4 hjört-
um án afskipta AV. Útspilið var
spaði,-sem Sussel drap í blindum
og spilaði strax hjarta. Vestur
fékk á ásinn og gaf makker
.sínum stungu í spaða; Austur
tók þriðja slag varnarinnar á
hjartakóng og spilaði sig svo út
á laufi.
Nú er svo sem ekkert annað
að gera en svína fyrir tígulkóng
og vona það besta. Sem aðrir
sagnhafar í mótinu gerðu og
fóru einn niður með heiðri og
sóma. En Sussel leist ekki á
svipinn á austri. Hann var ör-
yggið uppmálað og virtist ekki
hafa neitt fyrir vörninni.
Og þegar vestur lét umsvifa-
laust lítinn tígul á drottninguna,
fylgdi Sussel sánnfæringu sinni
eftir með því að stinga upp ás
og spila litlum tígli á gosann
heima! Gömul brella, sem menn
eiga varla að falla fyrir, en aust-
ur vildi ekki tína að því að Suss-
el væri að fórna heiðarlegri vinn-
ingsleið á þennan hátt og lét því
lítið.
Eftir á að hyggja komu menn
auga á betri spilamennsku; taka
strax ÁK í laufi og trompa lauf
áður en hjarta er spilað. Vörnin
tekur sína þijá slagi á tromp,
en austur neyðist til að hreyfa
tígulinn eða spila laufi út í tvö-
falda eyðu.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opna Rilton Cup-skákmótinu
í Stokkhólmi um síðustu áramót
kom þessi staða upp í skák sænska
alþjóðameistarans Wiedenkeller
og Þorsteins Þorsteinssonar,
sem hafði svart og átti leik.
26. - Rxe3! 27. fxe3 - Hxe3+
28. KK (Hvíti kóngurinn gat ekki
flúið yfir á drottningarvæng, því
28. Kdl er auðvitað svarað með
28. - Hxf3!) 28. - d4 29. Dc2 -
Bg4 30. Ddl- - Df4 31. Be2 -
Hae8 32. Rb2 - Dg3+ 33. Kfl
- Bxf3 34. gxf3 - Hxe2! 35.
Hxe2 - Dxf3 og hvítur gafst upp.