Morgunblaðið - 01.08.1989, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989
39
Minninff:
Sigurm undur
Einarsson trúboði
Fæddur 25. október 1902
Dáinn 19. júlí 1989
Nú er- fallin þessi hetja Guðs,
Sigurmundur Einarsson, trúboði.
Farinn aftur heim til Drottins, eftir
langa bið eftir fararleyfi. Sumir
þurfa að bíða lengi, aðrir bíða skem-
ur. En nú er hann fijáls og kominn
heim, eins og Prédikarinn segir:
Og andinn aftur til Guðs, sem gaf
hann.
Sigurmundur var fáum mönnum
líkur. Svo einlægur þjónn Guðs var
hann, að leitun er að öðrum eins.
Svo einlægur Jesúmaður og ákafur
trúboði, að sjaldgæft telst. Svo
hjálplegur öllum sem leituðu Guðs,
leituðu trúarlegra takmarka, að
stundum virtist sem Kristur sjálfur
starfaði í honum og um hann.
Sagt var um Sigurmund, að hann
hafi frelsast tæplega fertugur að
aldri, eftir að hafa horft á vin sinn
hrapa til bana er þeir voru að háfa
fugl í Vestmannaeyjum. Skelfing
atburðarins hafi grafið sig djúpt í
vitund hans og þungi ótal spurn-
inga, sem vakna um örlagastund,
höggvið nærri hugarfylgsni hans. —
Hvað býr í hugarfylgsni manns?
Er ekki fylgsni felustaður, eða
skýli? Er það ekki þar sem kjarni
mannsins býr, í hugarfylgsni? Þar
sem maðurinn er hann sjálfur, án
allra sjónhverfinga sem beitt er til
þess að hljóta samþykki í mann-
heimi, — og upplifað í einni svipan
verðleysi hinnar almennu uppgerð-
ar og verið knúinn af óáþreifanleg-
um rökum til þess að finna dýrari
svið, til þess að lífið verði bærilegt.
Ekkert kerfi hugsunar í veröldinni,
annað en Jesús Kristur, á svar við
hinni dýpstu spurningu. Þess vegna
hlaut svar Sigurmundar að verða í
Jesú: „Ég er vegurinn, sannleikur-
inn og lífið. Fylg þú mér“. Og það
gerði Sigurmundur, og gerði það
allt öðru vísi en flestir aðrir menn.
Hann gerðist liðsmaður Guðs, af
heilum hug, ákafur og einlægur.
Hann hafnaði öllu veraldarinnar
oflæti, sem flestum verður á að
burðast með, þrátt fyrir orð um
annað.
Sigurmundur fór um allt ísland,
ferð eftir ferð. Á svo til hvert ein-
asta heimili kom hann og bauð til
sölu bækur og rit, trúarlegs efnis.
Hann bauð til bænastunda ef hon-
um fannst fólk í þörf, bauð til söngs
og vitnisburðar um atburðinn mikla
á Golgata. Hann prédikaði öðrum
betur, fann aðgengilegri rök í Orð-
inu. Stjórnaði kór. En umfram allt
var hann listamaður tveggja manna
tals. Listamaður, kallaður af Guði
til þeirrar þjónustu að mæta ein-
staklingum í einkasamtali, þegar
þeir gátu hvorki talað né spurt að
fleiri viðstöddum. Þegar einkamál
þeirra þrengdu svo að, að ekki var
hægt að sýna þau hveijum sem
var. Hann vænti leiðbeiningar an-
dans, um stað og stund, hvar sín
væri þörf. Og Guð gat sent hann
um landið þvert og endilangt, einan
í kassabíl, til þess að mæta af-
skekktum einstaklingum sem and-
varpað höfðu til óljóss Guðs um
hjálp, af því að Sigurmundur var
trúnaðarmaður Drottins.
Fyrir tuttugu og fimm árum,
nákvæmlega, sendi Guð Sigurmund
í veg fyrir undirritaðan. Sá var þá
á flótta. Hundeltur af sjálfsásökun
og sjálfsdæmingu. Um flóttamann-
inn söfnuðust ýmiss konar legátar
með léttvægar lausnir. Tveir menn
■ stóðu upp úr. Guðni Markússon í
Kirkjulækjarkoti, fulltrúi orðsins
um elskuna í hjartanu, og Sigur-
mundur Einarsson, sem fulltrúi
orðsins um lausnina og lausnarann.
Hann lét Biblíuna ávallt svara
sjálfa, því að hann kunni hana og
gat sótt orðin í hana á svipstundu.
„Hér stendur skrifað", sagði hann
þá og það var eins og fingur hans
hefðu skynjara í gómunum, svo
fljótir voru þeir að finna fram kapít-
ula og vers.
Og Margrét, blessuð Margrét,
eiginkona Sigurmundar, dáin 1977,
kom til Ástu með fullan stóran disk
af pönnukökum og sagði, eins og
afskandi: „Eru ekki börnin svöng?“
Það var svo innilegt og þessvegna
svo auðvelt að þiggja það. Auðvitað
er stór barnahópur, bláfátækra
flóttamanna, sísvangur. Og Mar-
grét kaus sér að vera varnarstólpi
þeiiTa sem minnst máttu sín.
Óhagganleg.
Guð er svo góður þegar hann
sendir fólk eins og þessa ágætu
vini til manns út í eyðimörkina.
Gegnumfrelsaða vini, eins og það
heitir á máli frelsaðra manna, þeg-
ar einhveijir gefast Guði af lífi og
sál, heilu hjarta, og lifa honum allt
sitt líf upp frá því og líta aldrei til
baka,' og gá aldrei að eigin hag.
Þegar menn, karlar og konur, leit-
ast við að lifa markmiði smiðsins
frá Nasaret, sjálfs. „Ég skal koma
og lækna hann“, sagði Jesús, þegar
hann var beðinn um að hjálpa sveini
hundraðshöfðingj ans.
Nú er tími Sigurmundar liðinn.
Öldin önnur. Í dag fer mest fyrir
mönnum sem hugsa fyrst um eigin
hag. Mönnum sem dansa í kringum
stóla og uppi á stólum og telja sér
trú um að þeir séu að þóknast
Guði. Mönnum, sem bera sjálfa sig
fram.
Aldrei bar blessaður Sigurmund-
ur Einarsson sjálfan sig fram. Hann
bar aðeins Jesúm Krist fram. Aldr-
ei hrósaði Sigurmundur sjálfum
áér. Hann hrósaði aðeins Jesú.
Fólk lærði að þekkja Jesúm, fólk
tók trú á Jesúm, fyrir orð og at-
höfn Sigurmundar.
Yið hjónin þökkum Guði almátt-
ugum fyrir Sigurmund og Margr-
éti, og áhrif þeirra á líf okkar. Biðj-
um Guð að blessa minningu þeirra
og gefa þjóðinni marga sem þau.
„Þessvepa ástundar hinn vitri einfeldni og
verður fyrirraynd allra. Hann býst ekki í
skart, þessvegna Ijómar hann; hann heldur
sér ekki fram, og það er ágæti hans; hann
er laus við sjálfhælni, og þessvegna er hann
virtur; hann er laus við sjálfsþótta og ber
því af öðrum. Og af því að hann keppir
ekki við aðra, getur enginn keppt við hann.“
Lao Tse. óij Ágústsson
Birting nfmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofti blaðsins í Hafiiarstrætí
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara.
Hvað er merkilegt við
þennan Candy kæliskáp?
(Annað en verðið?)
• 380 lítra(240 I kælirog 1401 frystir)• Tvöaðskilin kælikerfi
(2 kæliþjöppur) • Orkusparandi • Hitamælir fyrir frysti
• Hæð 185 sm, breidd 60 sm, dýpt 60 sm.
AFMÆUSTILBOÐ: Áður kr. 61.900, nú kr. 55.710.
Staðgreidd kr. 52.925 — sparnaður 8.975!
G09
Borgartúni 20, sími 26788
Kringlunni, sími 689150
Sömu kjör hjá umboðsmönnum okkar um land allt
... ANSILJÚFFENGT
RJÓMASÚKKULAÐI
MEÐ HNETUM
OG RÚSI'NUM