Morgunblaðið - 03.11.1989, Qupperneq 28
MOHqUNBtAÐIÐ FÖSTUDAGjJR.3. NÓVEMBEJR 1989 ,,
Móðir mín, t SIGRÚN SVEINSDÓTTIR
frá Gaul,
Skúlaskeiði 20,
Hafnarfirði,
er látin. Sveinn Fri'mannsson.
t
HALLDÓRA I. PÉTURSDÓTTIR
hattameístari,
Hverfisgötu 35,
Reykjavfk,
lést 23. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Frfður Guðmundsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ÁGÚSTA JÓNSDÓTTIR,
Suðurgötu 83,
Hafnarfirði,
lést að morgni 1. nóvember í hjartadeild Landspítalans.
Skarphéðinn Helgason,
Árni Rosenkjær, Guðríður Karlsdóttir,
Karl Rosenkjær, Selma Guðnadóttir,
Guðrún Hildur Rosenkjær,
Ágústa Ýr Rosenkjær, Jóhann Viðarsson,
Guðný Birna Rosenkjær, Sigurjón Einarsson
og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn,
SIGURÐUR SÆVAR ÁSMUNDARSON,
Strandaseli 1,
lést í Landspítalanum 31. október.
Anna Kristjánsdóttir.
t
Systir mín og frænka okkar,
STEINUNN ÁSMUNDSDÓTTIR
frá Vfðum,
Hagaseli 26,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. nóvember
kl. 15.00.
Vilborg Á. Forberg,
Þórhallur Geirsson,
Sigríður Aradóttir.
Guðbjörg Sigvalda-
dóttir — Minning
Fædd 11. febrúar 1915
Dáin 21. október 1989
Elsku amma mín er dáin.
Minningar liðinna ára streyma
fram, amma að spila við okkur,
kenna okkur leiki, sauma og pijóna
eitthvað, amma á ferðalögum út
um allan heim. Hún var alltaf að,
atorkusemin ótrúleg.
Mér er svo minnisstæður morg-
unn einn fyrir þremur árum. Þá
hafði ég komið til ömmu klukkan
átta og við vorum eitthvað að bar-
dúsa saman. Um ellefuleytið segist
hún ætla að leggja sig, hvort ég
vilji ekki bara halla mér í sófann.
Það voru ekki liðnar fimm mínútur
þegar hún kom til mín aftur og
sagði: „Jæja, eigum við ekki að
halda áfram.“ Þá var ég rétt búin
að hagræða mér og Ioka öðru aug-
anu. Svona var allt sem amma
gerði, ekkert hangs heldur drifíð í
hlutunum og ekkert hikað við fram-
kvæmdir. Eg vildi óska að góður
guð gæfi mér slíkan kraft og atorku
á mínum efri árum og visku til að
breyta eins og amma mín.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem)
Aðalheiður Pálmadóttir
Fyrsta laugardagskvöldið í sept-
ember sl. var ég ásamt fjölskyldu
minni í góðum fagnaði í samkomu-
húsi hér í borg. Með okkur voru
nokkrir góðir vinir okkar, en til-
efnið var að fagna stórum áfanga
í lífi mínu.
Ein þessara vina okkar var Guð-
björg Sigvaldadóttir, Bubba, eins
og við kölluðum hana alltaf og ég
minnist þess hve innilega hún ósk-
aði mér til hamingju og bað mér
alirar blessunar í framtíðinni, því
hún átti í ríkum mæli þann eigin-
leika að geta glaðst með glöðum
og hryggst með hryggum.
Mér datt ekki í hug, þegar við
kvöddumst að það væri í síðasta
sinn, sem við sætum við sama borð
og hún leggði af stað í ferðina, sem
enginn snýr aftur úr, svo bráðlega.
Eg kynntist Bubbu fyrir nærri
fjörutíu árum, þegar við hjónin
fluttum í kjallarann tjl hennar og
manns hennar, Hlöðvers Bærings-
sonar, með tvær litlar dætur, sem
fljótt fundu að húsráðendurnir á
efri hæðinni voru fólk sem ekki
kippti sér upp við það þó komið
væri í heimsókn og ekki alltaf haft
hljótt um sig, því þau áttu það sam-
eiginlegt að vera barngóð með af-
brigðum og þau börn mín, sem
fæddust eftir að við fluttum í eigið
húsnæði, hafa ekki farið varhluta
af því. Bubba og Hölli voru miklir
náttúruunnendur og höfðu glöggt
auga fyrir öllu fögru, ferðuðust um
landið eftir því sem kostur gafst
og voru óspör á að miðla öðrum
af þeim sjóði, sem þau höfðu eign-
ast, í fróðleik og þekkingu á falleg-
um stöðum og sérstökum.
Eitt var það, sem öll fjölskylda
þeirra og nánustu vinir hlökkuðu
til allt árið, en það voru jólaboðin.
Þá var safnast saman í Efstasundi
78 og þar sannaðist oft að þar sem
er hjartarúm er líka húsrúm, því
oft var þröngt setinn bekkur, en
ég þori að segja að enginn fann til
þess, því svo var gleðin mikil yfir
-að geta veitt vinum og ættingjum
það besta, ,sem til var og taka vel
á móti gestum að hjá þeim var
íslensk gestrisni eins og hún getur
best verið.
Hlöðver lést langt um aldur fram
og söknuðu hans allir, sem til
þekktu, því umgengnisbetri maður
og greiðviknari fannst ekki, auk
þess að hægt var að gleyma tíman-
um, þegar setið var og rabbað sam-
an, því hann var einn skemmtileg-
asti maður sem ég hef kynnst, fróð-
ur og hafði sérstakt lag á að segja
skemmtilega frá.
Eftir fráfall Hlöðvers tók Pálmi,
eldri sonur Bubbu, við búsforráðum
í JSfstasundi 78, en hún keypti íbúð
í Hátúni 4 og fluttist þangað ásamt
yngri syni sínum, Óskari Jafet, og
þar átti hún heima síðan.
Þó skipt væri um verustað flutti
Bubba gestrisnina með sér og enn
var safnast saman í jólaboðum, af-
mælum og af öðrum tilefnum eins
og í Efstasundinu.
Við áttum því láni að fagna að
t
KARLHALLDÓRSSON,
Lokastig 8,
andaðlst í Borgarspítalanum 1. nóvember.
Emil Guðmundsson.
t
Vinur minn og bróðir okkar,
ÞÓRÐUR KRISTINSSON,
Faxabraut 6,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 4. nóvember
kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent .á
Krabbameinsfélag fslands.
Clara Ó. Árnadóttir
og systkini hins látna.
' Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi;
GUÐJÓN NJÁLSSON,
Furulundi tA,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 6. nóvember
kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameins-
félagið.
Heiðdís Eysteinsdóttir,
Steinunn Guðjónsdóttir, Björn Eiriksson,
Heiðar Ingi Svansson,
Birna Klara Björnsdóttir,
Heiðdfs Björnsdóttir,
Steinunn Lilja Heiðarsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS JÓNSSON
frá Læknisstöðum
á Langanesi,
lést þann 1. nóvember 1989 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Signý Guðbjörnsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Þökkum samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar föður,
okkar, tengdaföður, fósturföður, afa og langafa,
JÓNSH. SVEINSSONAR
fv. bryggjuvarðar,
áður til héimiiis á Hverfisgötu 48,
Hafnarfirði.
Sérstaka þakkir til starfsfólks 2. hæðar Sólvangs fyrir frábæra
umönnun.
Þorsteinn Jónsson,
Esther Jónsdóttir,
Borgþór Jónsson,
Bryndfs Jónsdóttir,
Sverrir Jónsson,
Vilborg Helgadóttir,
Reynir L. Marteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kristfn Vestmann,
Halldóra Guðmundsdóttir,
Kristján Kristjánsson,
Mari'a Jónasdóttir,
eignast vináttu Bubbu og Hölla og
vorum alltaf velkomin á heimili
þeirra, það samband entist til enda-
loka og ég veit að ég mæli fyrir
munn allrar fjölskyldu minnar þeg-
ar ég segi að þær minningar, sem
við eigum frá samverustundum í
Efstasundinu og Hátúninu, séu dýr-
gripir sem aldrei fellur á.
Bubba var mikil félagsmanneskja
og vann mjög mikið starf í þágu
Góðtemplarareglunnar og einnig
veit ég að henni var mjög annt um
kirkju sína og eyddi ótöldum stund-
um í hennar þágu, því hún sparaði
aldrei orku sína, ef hún taldi sig
geta lagt góðu málefni lið.
Þessar línur eiga ekki að vera
nein ævisaga, til þess er ég ekki
fær, en mig langaði til að senda
kveðju og þakklæti okkar fyrir ót-
aldar ánægjustundir og ég vona að
það góða samband sem við höfum
átt við ykkur, Pálmi, Hanna og
Oskar, eigi eftir að endast, eins og
það var við foreldra ykkar, um leið
og ég sendi ykkur og öðrum að-
standendum innilegar samúðar-
kveðjur okkar allra.
Jón Sigurðsson
_____________Brids_________________
Amór Ragnarsson
Landsbankamót Bríds-
félags Hornaflarðar
1. umferð 22. október 1989
Jón G. Gunnarsson - Kolbeinn Þorgeirsson,
Jón Gunnar Helgason - Jón Níelsson 509
Sigurður Skúlason - Skúli ísleifsson,
Einar Jensson - Þorsteinn Sigjónsson 469
Guðbrandur Jóhannsson - Gunnar P. Halldórsson
ÁmiStefánsson-IngvarÞórðarson 423
Þórir - Ófeigur,
Gunnlaugur-Ragnar 418
Gestur Halldórsson - Ámi Hannesson,
Magnús Jónasson - Skeggi Ragnarsson 415
Skarphéðinn Larsen - Sverrir Guðmundss.,
Gunnhildur Gunnarsdóttir - Auður Jónasdóttir 397
Svava Gunnarsdóttir - Gísli Gunnarsson,
BirgirBjömsson-BjömGíslason 393
Meðalskor 432 stig.
Spilað er í Golfskálanum kl. 19.30 á
sunnudögum. Það er nóg rými fyrir
fleiri spilamenn, og allir ávallt velkomn-
ir.
Bridsdeild Barðstrendinga
Nú er lokið 5 kvölda tvímenningi
hjá deildinni. Efstir í 5. umferð
urðu:
Vaidimar Sveinsson - Gunnar Kjartansson 390
Þórarinn Ámason - Gísli V íglundsson 366
ÁmiEyvindsson-JeanJensson 363
EinarGuðnason-EgiilHaraldsson 363
Hallgrimur Kristjánsson - Hörður Hallgríms. 359
Lokastaða efstu para:
ValdimarSveinsson - GunnarKjartansson 1845
Þórarinn Ámason - Gísli Víglundsson 1800
Anton Sigurðsson - Bergur Þorleifsson 1763
EggertEinarsson-BjömÁrnason 1755
Elísabet Jónsdóttir - Leifur Jóhannsson 1705
Bridsfélag Reykjavíkur
Hafinn er 52 para Butler-tvímenn-
ingur óg er staða efstu para eftlr 7
umferðir þessi:
Guðmiindur Hermannsson -
Björn Eysteinsson 64
Jón Hilmarsson -
Oddur hjaltason 57
Jón Baldursson -
Aðalsteinn Jörgensen t 51
Sigurður Siguijónsson -
Júlíus Snorrason 50
Alfreð Alfreðsson -
Gísli Hafliðason 46
Óli Már Guðmundsson -
Jón Steinar Gunnlaugsson 44
Vilhjámur Pálsson -
Kristján M. Gunnarsson 42
Hermann Lárusson -
Ólafur Lárusson 4Q