Morgunblaðið - 03.11.1989, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVBMBER 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
í dag er það umfjöllun um
ástarlíf hins dæmigerða Hrúts
(20. riiars — 19. apríl) og
Nauts (20. apríl — 20. maí).
Þessi umfjöllun á ekki síður
við um stöðu Venusar og
Mars í merkjum.
Veiðimennska
Hinn dæmigerði Hrútur er
veiðimaður í ást og hefur sér-
stakan áhuga á tilhugalífinu
og spennunni sem fylgir því
að keppa að hylli ástvinarins.
Keppni og spenna æsir hann
upp og kyndir undir elda
ástríðunnar.
Fjör
Hrúturinn vill hafa líf og fjör
í ástamálunum. „Bless elsk-
an“ og koss á kinnina af göml-
um vana á morgnana og
kvöldin er lítt til þes fallin að
halda glóðinni lifandi. Vana-
binding á ekki við. Hjónaband
vegna öiyggis, t.d. af fjár-
hagsástæðum, er einnig sjald-
gæft þegar Hrútur er annars
vegar.
Sprengingar
Ef Hrúturinn er leiður í sam-
bandi verður hann óþolin-
móður og uppstökkur. Hann
á þá til að skella hurðum og
ijúka upp af minnsta tilefni
eða vera hvass í orðum og
æði. Þá er ráðlegt að fitja upp
á nýjum athöfnum og reyna
að hleypa nýju lífí í samband-
ið.
Hreinskilni
Helsti styrkur Hrútsins er
, fólginn í hreinskilni hans og
einlægni. Hinn dæmigerði
Hrútur á ekki til í sér undir-
ferli eða óheiðarleika. Ef hon-
um mislíkar segir hann það
beint og umbúðalaust út.
Andrúmsloftið er hreinsað og
hægt er að byija upp á nýtt.
Það góða við Hrútinn er að
við vitum hvar við höfum
hann.
Ástríðuhiti
Sem elskhugi er hinn dæmi-
gerði Hrútur heitur, kraftmik-
ill og ástríðufullur. Hann tek-
ur frumkvæði í ástarleikjum
og er óheftur, fijálslegur og
laus við stress og bælingar.
Yfírleitt þarf lítið til að kveikja
Þ funann.
Nautiö
Nautið er líkamlegt merki og
laðast að fólki vegna líkam-
legs aðdráttarafls, en síður
vegna t.d. samræðuhæfni við-
komandi. Líkamleg snerting
er Nautinu mikilvæg. Þar sem
Nautið lifir sterkt í heimi
skynfæranna skiptir t.d. Iykt
töluverðu máli í ástarleikjum.
Rétt ilmvatn er því mikilvægt
sem og að umhverfíð sé þægi-
legt.
Líkamlegur næmleiki
Almennt má segja að hið
dæmigerða Naut sé trygglynt
og vilji varanleika í ástum.
Það er líkamlega næmt, en
að öllu jöfnu þolandi og gam-
aldags, þ.e. Nautið tekur ekki
frumkvæði eða breytir oft um
aðferðir. Það leggur áherslu
á gæði skynjunar frekar en
fjölbreytni. Þetta er gott í
sjálfu sér en stundum má
Nautið vera ævintýragjarn-
ara, sérstaklega ef makinn er
í eirðarlausara merki.
Rómantík
Hvað varðar rómatík er talað
um tvær gerðir, venusarnaut-
ið og jaraðrnautið. Það síðar-
nefnda á til að vera þumbara-
legt og órómantískt, er jarð-
bundið og raunsætt og ekki
mikið fyrir að láta tilfínning-
amar hlaupa með sig. Venus-
arnautið er rómantískt, gefur
ástinni sinni blóm og á jafn-
vel til að yrkja eins og eina
eða tvær stökur þegar ást-
arbálið er sem heitast.
GARPUR
V/Ð HÖFOM VER.K AÐ VtNNA -
TÍMI T/L KOMtNN AÐ HBFJA
HZFDBONDNAR ORŒUSJV4ÐFE HÐli
SVO ADHEFJhst^—.
oe> bloss/áin Leseut? a£> landi .
VIÐ BWUNA AAAKADA , HtNNt 'A
MtNNSTU AF~NOF£>U!?EV7UA4
GRETTIR
BRENDA STARR
5]
HvaNÆA EZNÆST1 7/MtHjJh
þé/g?
^ ^HHVÖLD. HVÍ .
-JA SFytZDU?
LJOSKA
FERDINAND
SMAFOLK
ir.
Þeir verða uppnæmir þegar þeir
detta niður um ísinn.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þegar spilað er út í rangri
hendi á sagnhafi um þrjá kosti
að velja, samkvæmt bridslögun-
um: (1) hann getur tekið útspilið
gilt, (2) krafist eða bannað út-
spil í viðkomandi lit frá réttri
hendi, eða (3) gefíð útspilið
fijálst og gert hið uppljóstraða
spil að refsispili.
Suður gefur; allir á hættu.
Vestur
♦ KDG97
V52
♦ Á
♦ 108762
Norður
♦ Á
¥ D98
♦ G10543
♦ ÁDG3
Austur
♦ 86543
¥643
♦ D9762
♦ -
Suður
♦ 102
¥ ÁKG107
♦ K8
♦ K954
i
Vestur Norður Austur Suður
— ' — — 1 hjarta
1 spaði 2 tíglar Pass 2 hjörtu
Pass 4 hjörtu 4 spaðar Pass
Pass Pass 5 hjörtu Pass Pass
Utspil: spaðaátta.
Vestur var búinn að klemma
spaðakónginn milli þumals og
vísifingurs þegar austur kom
öllum við borðið á óvart með því
að spila út spaðaáttunni. Keppn-
isstjóri var kallaður til og hann
skýrði frá réttindum sagnhafa.
Með tvo hunda í spaða kaus
suður að meina útspil í þeim lit.
Vestur setti upp fýlusvip og kom
út með lauf. Samningurinn fór
þá snarlega þijá niður, því vöm-
in náði svikamyllu með því að
stinga lauf og tígul á víxl. En
með spaða út fást 11-12 slagir.
Bandaríski keppnisstjórinn
Harry Goldwater ráðleggur spil-
urum að taka alltaf útspil frá
rangri hendi gilt. Ástæðan? Ef
spilari er svo utan við sig að
hann viti ekki hver á út, má
gera ráð fyrir að hann viti ekki
heldur liverju hann eigi að spila
út.
Umsjón Margeir
Pétursson
Þessi staða kom upp í ungversku
deildakeppninni í ár í viðureign
stórmeistarans Joszef Pinter
(2.500), sem hafði hvítt og átti
leik, og dr. Vigh. (2.335).
29. Bxg7+! og svartur gafst upp,
eftir 29. — Hxg7, 30. He8+ —
Hg8, 31. Dd4+ verður hann mát
og sama verður uppi á teningnum
eftir 29. - Kxg7, 30. Dd4+ -
Kh6, 31. Bf3 og næst g5 mát.
Félag Pinter og Sax, Honved,
var slegið út úr Evrópukeppni fé-
laga af v-þýzka félaginu Solingen.
Hitt ungverska liðið í keppninni,
MTK Búdapest (Portisch, Polgar-
systurnar þijár, Benkö, Forintos
o.fl.) mætii hins vegar Taflfélagi
Reykjavíkur dagana 8. og 9. nóv-
ember, í næstu viku.
Einni keppni í átta liða úrslitun-
um er lokið. Solingen (Short,
Spassky, Hiibner o.fl.) vann ör-
uggah sigur á júgóslavneska lið-
inu Gosa frá Smederevska Pal-
anka. Tvö sovézk lið, Vektor og
CSKA Moskva, mætast innbyrðis
í átta liða úrslitunum og Petrosjan
frá Moskvu mætir Wasa, Stokk-
hólmi.
Keppni MTK Budapest og TR
fer fram í Búdapest og er búist
við að bæði félögin stilli upp sínum
Öflugustu liðum.