Morgunblaðið - 03.11.1989, Síða 36

Morgunblaðið - 03.11.1989, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1989 „ Bng'm -furSo«- þó ab píanó- stiLl'ingajv\cu5urinri vildi fcL looo Kr.f" Ást er ... ... aðvitaaðhúner að koma á bílnum. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ® 1909 Los Angeles Times Syndicate Þessa regnhlíf keypti ég um daginn. Svona er hún eftir fyrstu regnskúr- ina ... 1046 POLLUX Slysatryggingin þín er í hámarki, sögðu þeir. Þú ættir að fótbrotna oftar ... HÖGNI HREKKVÍSI Bein út- sending frá hverju? Lífskjörin á íslandi Til Velvakanda. Ég mælist til að einhver ágæt stofnun, t.d. Félagsvísindastofnun Háskóla íslands, taki að sér að út- búa línurit um lífskjör á íslandi miðað við nágrannalöndin. Þá kæmi það kannski í ljós hvort það sé fá- tækt á Islandi eða er kannski dulin fátækt á íslandi, eru margir á von- arvöl, er meira um gjaldþrot ein- staklinga á íslandi en í öðrum lönd- um. Nú nýlega var gerður saman- burður á verði matvöru í nokkrum nágrannalöndum, sama vara var keypt hér og varð raunin sú að varan var miklu dýrari hér, að jafn- aði þrefalt dýrari, svo er kaup hér miklu lægra en t.d. í Danmörku og munar þar um helmingi eða meira. Það fengist enginn Dani út á vinnu- markaðinn fyrir kr. 9.000 á viku í ísl. kr. eða 1.125 kr. danskar. Nei, Daninn myndi sitja heima. Svo er Olafur Ragnar Grímsson íjármála- ráðherra að hrópa það upp í fjöl- miðlum að kaupmáttur láglauna- fólks hafí aukist upp á síðkastið. Auðvitað er það blekking eins og annað sem kemur frá núverandi ijármálaráðherra. Það versta er að verkalýðshreyfingin virðist lömuð ef kommúnistar sitja í ráðherrastól- unum. Ef lega íslands væri ekki svona langt frá öðrum löndum myndi fólk í stórum stíl versla í öðrum löndum og ráðamenn kæmust ekki upp með þá óstjórn sem hér viðgengst. Hvað skeður t.d. ef ódýrar ferðir bjóðast til útlanda, fólk er komið í biðröð jafnvel sólahring áður en byijað er að selja. Ég bið fólk að minnast þess vel að núverandi samgöngu- ráðherra, Steingrímur Sigfússon, setti því stólinn fyrir dyrnar að ís- lendingar ættu kost á ódýrari ferð- um til útlanda, það var breskt flug- félag sem gaf kost á 4 daga ferð til Edinborgar fyrir 17.000 kr. með hótelkostnaði. Samkvæmt lögum gat kommúnistinn, þ.e. núverandi samgönguráðherra, stoppað það og að sjálfsögðu gerði hann það, enda eru kommar á móti öllu sem er í fijálsræðisátt. K.S. Til Velvakanda. Óhætt er að fullyrða, að þúsund- ir íslendinga hafi fagnað, þegar nálgast tók, að Borgarleikhúsið í Reykjavík yrði tekið í notkun. Það var því gleðiefni, þegar Sjónvarpið auglýsti, að bein útsending yrði frá vígsluhátíðinni. Að hugsa sér, að fá að beija augum þetta langþráða musteri listanna og það á sjálfan vígsludaginn. Dagskráin hófst. Leikarar Leik- félags Reykjavíkur sungu og ræðu- menn tíndust upp á sviðið, hver á eftir öðrum — ágætir menn og fluttu úrvalsræður. Það mismælti sig meira að segja, að ég held, eng- inn. En hvar var sjálft tilefnið — hús- ið, sem svo lengi hafði verið beðið eftir að sjá, þetta fullkomnasta leik- hús landsins? Hver var hinn marg- umtalaði glæsilegi aðbúnaður leik- ara og áhorfenda? Hvar var verk arkitektanna? Öll tækniundrin birtust mér í formi einnar ljósaperu, sem lýsti upp andlit ræðumanna, sem pauf- uðust — hver af öðrum — einhvers staðar neðan úr myrkrinu upp á sviðið og hurfu síðan í það aftur að ræðu lokinni. Af tónlistarfólkinu var að vísu brugðið upp nærmynd- um, en að öðru leyti tók maður ekki eftir því, að Sjónvarpið væri viðstatt, — hvað þá að það gæfi sjónvarpsáhorfendum þá tilfinn- ingu, að þeir væru vitni að vígslu Borgarleikhússins í Reykjavík. Samkoman hefði þess vegna eins getað farið fram í einhverri „kata- kombu“ frá mínum bæjardyrum séð. Vonsvikinn sjónvarpsáhorfandi Þakkir Til Velvakanda. Ég vil koma á framfæri innilegu þakklæti til Rauða krossins og einn- ig.til lækna og hjúkiunarfólks Borg- arspítalans fyrir afskaplega góða umönnun meðan ég var sjúklingur þar. John Dallimore Yíkveiji skrifar Fyrir skömmu var Víkveiji dags- ins staddur í Hull í Bretlandi og var á leið heim á Frón. Um óttubil var lagt af stað með.flugi frá flug- vellinum á Humbersvæðinu og flogið til Amsterdam. Þar tók við nokkur bið eftir Amarflugsvél, sem var á áætlun klukkan 13.15 til íslands. Víkveiji og ferðaféiagar hans voru ánægðir með að útlit var fyrir heim- komu um miðjan dag, en sú von rættist ekki og ferðalagið varð að lokum heldur sérkennilegt. Vélin fór reyndar á nokkum veginn réttum tíma frá Amsterdam, en þaðan var faiið til Hamborgar með tilheyrandi töfum og er þaðan var farið, var farþegum tilkynnt að vélin væri svo hlaðin að ekki hefði verið unnt að taka á hana nægilegt eldsneyti til heimferðarinnar. Því yrði að Ienda i Prestwick til eldsneytistöku. Um klukkan 18.00 var því tekið elds- neyti í Prestwick í Bretlandi, nokkm norðar og vestar en Hull. Það hafði því tekið Víkveija og ferðafélaga hans hálfan sólarhring að komast brot af leiðinni heim. Hefði verið ljóst frá upphafi, að lenda yrði í Prest- wick, hefði þessum ferðalöngum þótt vænt um að fá að spara sér krókinn allan og koma um borð j flugvélina í Prestwic, því alls tók ferðalagið með þessum hætti um 14 klukku- stundir. Víkveija þykir reyndar ein- kennilegt að ekki skyldi vera hægt í Hamborg að taka nægilegt elds- neyti á vélina til aðeins um þriggja klukkustunda flugs, eða var ekkert eldsneyti tekið þar? xxx Yíkveija hefur borizt éftirfarandi bréf frá Þórhalli Halldórssyni, eftirlitsmanni SVR.: „í Víkveija þann 24.10 ’89 er rætt um akstur SVR um Skólavörðuholt, þ.e. Klapparstígur — Njálsgata, sem lagður var af. Skýring Víkveija er hárrétt, þ.e. að þrengsli vegna breyt- inga á bílastæðum ( skástæði) á Njálsgötu gerðu það að verkum að vagnarnir komust ekki Ieiðar sinnar. Til stóð að svara þessu á þann veg, að leið 1 mundi aka um Bar- ónsstíg — Freyjugötu — Óðinsgötu — Skólavörðustíg og vera þannig í grennd við Skójavörðuholtið. En ein- stefna er sett verður á Freyjugötu í austurátt frá Njarðargötu, svo og mótmæli íbúa við Freyjugötu um að vagninn æki þar um, útiiokuðu þá hugmynd. Þar af leiðir verður leið 1 óbreytt um sinn.“ xxx Soðningin hefur alltaf verið Víkveija ódýrari matur en kjöt. Þess vegna brá Víkveija dagsins dálítið, þegar hann las í miðvikudags- blaði Morgunblaðsins að ýsuflök með roði kostuðu allt að 425 krónur kíló- ið á höfuðborgarsvæðinu og kíló af lambakjöti 428. Rétt er að taka fram að kjötverðið er á útsölu þeiiri, sem ríkið stendur að á birgðum lamba- kjöts frá í fyrra, og er um 16% af- slátt að ræða. Án hans kostaði kilóið 509,5o krónur. En það er fleira fiskur en ýsa. Verðkönnun Verðlagsstofnunar leiddi í ljós, að kíló af rauðsprettuflök- um kostaði allt að 482 krónum, kíló- ið af smálúðuflökum kostaði allt að 675 krónur, gellukílóið var dýrast 550 krónur og hæsta stórlúðusneiða- verðið hljóðaði upp á 620 krónur. Þessar hæstu tölur eru af höfuð- borgarsvæðinu, en verðkönnunin leiddi í ljós, að fiskurinn var ódýrari úti á landi og dæmi vom um 111%, 126% og 143% verðmun. Útsölukjöt Ólafs Ragnars er hins vegar alls staðar jafn (ó)dýrt. Og á meðan selst nýja kjötið auðvitað lítið sem ekkert og verður því sett á út- sölu á næsta ári og þannig koll af kolli, þangað til lambsskrokkurinn leggur sig á einn hundraðasta þess sem soðningin kostar. Ef fisk veiður þá að fá, því hann yrði auðvitað allur farinn út — í gámum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.