Morgunblaðið - 05.11.1989, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C/D
253. tbl. 77. árg.
Suður-Kórea:
Brotið á
höfimdarrétti
skólastúlku
Seoul. Reuter.
HÆSTIRÉTTUR Suður-Kóreu hefur
úrskurðað að menntamálaráðuneyti
landsins beri að greiða tvítugri konu,
Yun Chong Ah, upphæð sem nemur
4,3 milljónum ísl. kr., vegna þess að
ritgerð sem hún skrifaði í skóla var
birt án leyfis í lestrarbók. Yun var
nemandi við barnaskóla í Seoul árið
1980 þegar hún fékk verðlaun í rit-
gerðarsamkeppni. Verðlaunaritgerð-
in var um afa hennar, sem flúið hafði
frá heimabæ sínum í Norður-Kóreu.
„Líkið“ andaði
París. Reuter.
NÍTJÁN ára gamall Frakki var á
batavegi á fdstudag eftir að hafa ver-
ið úrskurðaður látinn vegna lyjjaáfs.
Maðurinn hafði fyrir nokkrum dögum
ekið út í skóg og hellt í sig ókjörum
af barbítúrötum til að granda sér.
Veiðimenn rákust á hann daginn eftir
en læknar fundu ekkert lífsmark með
honum. Maðurinn var þá vafinn
líkklæði og starfsmaður í líkhúsi var
að koma honum fyrir í frystigeymslu
þegar hann tók eftir því að „líkið“
andaði enn.
Frumbyggjar Ástralíu:
Stjórnvöld
ábyrg fyrir
ofdrykkjunni
Sydney. Reuter.
ÞRÍR ástralskir frum-
byggjar hafa höfðað mál
gegn stjórnvöldum og
tveimur stærstu ölgerð-
arhúsum Ástralíu og sak-
að þau um að hafa stuðl-
að að ofdrykkju inn-
fæddra í Eyjaálfu. Tveir
mannanna eru í fangelsi
vegna afbrota sem þeir
frömdu í ölvímu. Verjendur þeirra
ætla að byggja vörnina á því að menn-
irnir hafi verið „varnarlausir vegna
arfleifðar sinnar" þar sem áfengi hafi
ekki verið til í Ástralíu fyrr en hvíti
maðurinn nam þar land.
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1989 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ein milljón manna á mót-
mælafimdi í Austur-Berlín
Flokksbroddum tekið með þrumandi mótmælaöskrum á Alexander-torgi
Austur-Berlín, Prag. Reuter.
MEIRA en milljón manna safnaðist sainan á Alexander-torgi í Austur-Berlín í gær,
laugardag, og krafðist frjálsra kosninga í landinu. Fólkið hrópaði: „Egon, við erum
á leiðinni! og átti við Egon Krenz, leiðtoga ríkisins. Gífurlegur fógnuður braust út
þegar ræðumenn lieimtuðu að komið yrði á fjölllokkakerfi og tjáningarfrelsi, rétt-
indi almennings gagnvart ríkisvaldinu tryggð og stjórnarandstöðuhópum leyft að
starfa þegar í stað. Krenz hefur heitið lýðræðisumbótum af ýmsu tagi og nokkrir
harðlínumenn hafa þegar verið reknir úr forystunni.
Yfirvöld höfðu gefið hóp forystumanna
í menningarmálum leyfi til að halda
fundinn og öryggislögregla var hvergi ná-
læg. Sjálfboðaliðar héldu uppi lögum og
reglu og báru spjöld með áletruninni:„Ekk-
ert ofbeldi! Er tveir flokksbroddar úr stjórn-
málaráðinu gengu í ræðustól dundu þrum-
andi mótmælaöskur yfir torgið. Þetta eru
fjölmennustu mótmæli í landinu frá 1953
er uppreisn gegn kommúnistum var kæfð í
blóði.
■ Tékknesk yfirvöld leyfðu í gær Austur-
Þjóðveijum, sem hópast höfðu til landsins
í von um ferðaleyfi til Vestur-Þýskalands,
að fara umyrðalaust vestur á bóginn. Mörg
þúsund austur-þýskir flóttamenn eru nú í
landinu. Tékkneska fréttastofan CTK sagði
yfirvöld í kommúnistaríkjunum tveim hafa
ákveðið í sameiningu að veita flóttafólkinu
fullt ferðaleyfi. Fyrsta lestin af tólf, sem
ætlað er að flytja á brott u.þ.b. 5.000 Aust-
ur-Þjóðveija frá vestur-þýska sendiráðinu í
Prag, hélt þaðan um hálf níu-leytið á laugar-
dagsmorgun. Fólkið veifaði og fagnaði
ákaft. Margir voru þegar komnir yfir landa-
mærin í eigin bílum og bílstjórar nokkurra
vestur-þýskra langferðabíla, sem voru í
Prag, buðu flóttamönnum far yfir landa-
mærin til vesturs.
Starfsmenn Rauða krossins í Prag töldu
að landamærum Tékkóslóvakíu og Vestur-
Þýskalands yrði ekki lokað aftur. Tékknesku
landamæraverðirnir slepptu öllum forms-
atriðum og könnuðu ekki einu sinni skilríki
fólksins. Stöðugur straumur fólks var frá
Austur-Þýskalandi til Tékkóslóvakíu í gær.
Að sögn fólksins veifuðu austur-þýskir
landamæraverðir til þess og hrópuðu að-
eins: „Sjáumst á ný!
SJUKRASAMLOGIN
ÖR SÖGUNNI/70
YFIR-
VALDIÐ
Jón Isberg
sýslumaöur
Húnvetninga
12
FRÆrWTO
I I LYSÍ I HÖLLIWI
MANNSMYND