Morgunblaðið - 05.11.1989, Qupperneq 6
6 FRETTIR/INNLENT
j iiaaMavófri .a jiodauumwij^ ■u.jn.iawa.aio.^
MÖRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1989
Sjaldnast sagt frá þegar
lögreglumenn slasast
- segir Grétar Norðflörð varðstjóri, sem slasaðist illa
í átökum við aflbrotamann
GRÉTAR Norðfjörð, varðstjóri
á stjórnstöð lögreglunnar, slas-
aðist við skyldustörf fyrir
skömmu. Grétar, sem verið
hefur í lögreglunni í þrjátíu ár,
liljóp á eftir manni sem grunað-
ur var um töskuþjófnað. Maður-
inn sneri sér við og rak Grétari
þrjú bylmingshögg í andlitið
með þeim afleiðingum að Grét-
ar nefbrotnaði.
G
ein-
Irétar segir að þetta mál sé
langt frá því að vera einsdæmi.
„Á síðustu fimm árum hafa á
þriðja tug lögreglumanna slasast
við skyldustörf og sumir þeirra
munu aldrei ná sér að fullu. Þessi
mál verða einhverra hluta vegna
útundan í fjölmiðlum. Það er
sjaldnast sagt frá því þegar lög-
reglumenn slasast en blásið út
þegar lögreglumenn slasa
hvern,“ segir Grétar.
Hann bætti því við að lögreglu-
menn í Reykjavík væru stundum
óhressir með hvernig íjallað er
um mál þeirra. „Vissulega kemur
það fyrir að lögreglumenn slasa
einhvern. En það er án undan-
tekningar óvart, og yfirleitt þegar
þeim er veitt veruleg mótspyrna.
Lögreglumenn gæta ávallt fyllstu
varúðar en ef þeir telja sig í hættu
þá neyðast þeir til að beita afli.
Grétar Norðfjörð.
Þegar svo óheppilega vill til að
einhver meiðist gleymist sjónar-
mið lögreglunnar,“segir Grétar.
Margt breyst á 30 árum
Grétar hóf störf árið 1959 og
hann segir að margt hafi breyst
á þijátíu árum.
„Við getum tekið dæmi. Þegar
ég var nýliði, fyrir þijátíu árum,
fengum við stundum tilkynningar
um slagsmál við BSR. Þá fóru
tveir gangandi lögreglumenn á
staðinn og þegar þeir birtust
hættu allir að slást. Ef þetta gerð-
ist í dag þyrftum við að senda
bíl og þijá til fjóra lögreglumenn.
Og þegar þeir birtust myndu allir
fara að slást, jafnvel við lögregl-
una.
Hvert föstudags og laugar-
dagskvöld er í raun eins og gaml-
árskvöld. Ástandið í miðbænum
er mjög alvarlegt og það verður
að finna lausn á því.“
Grétar hefur þurft að ganga í
ýmis störf á þeim þijátíu árum
sem hann hefur verið í lögregl-
unni. En hvað skyidi vera ánægju-
legast við starfið?
„Það er að finna þakklæti fyrir
veitta aðstoð og þegar tekist hef-
ur að bjarga mannslífum en það
hefur gerst oftar en einu sinni.
Það versta er aftur á móti þegar
manni er sýnt vanþakklæti fyrir
góðan greiða en það gerist mjög
oft.“
En hvaða hug ber Grétar til
samborgara sinna?
„Mér þykir vænt um þá. Ég
haf ánægju af því að þjóna þeim
og það er líklega ástæðan fyrir
því að ég er enn í lögreglunni,“
segir Grétar.
Flugmálastjórn;
Lausn kjaradeilu flug-
virkja ekki í sjónmáli
FORSVARSMENN Flugvirkjafélags íslands og launaskrifstofu íjár-
málaráðuneytisins íúnduðu í fyrradag í samgönguráðuneytinu
vegna kjaradeilu flugvirkja hjá flugmálasfjórn. Þar voru lagðar
fram óformlegar tillögur til lausnar deilunnar, og var fjallað um
þær innan Flugvirkjafélagsins siðdegis. Sámkvæmt heimildum
Morgunblaðsins voru tillögurnar taldar óaðgengilegar, og virðist
því lausn á kjaradeilunni ekki vera í sjónmáli.
Flugvirkjarnir sjá um tæknilegt
eftirlit með flugflota lands-
manna og hafa auk þess séð um
viðhald flugvélar Flugmálastjórn-
ar. Flugvirkjafélagið lagði bann
við því og hefur það bann verið í
gildi í tæpa tvo mánuði. Af þeim
sökum hefur ekki verið hægt að
nota flugvél Flugmálastjórnar til
að stilla blindflugstæki á flugvöll-
um hérlendis, en það þarf að gera
með ákveðnu millibili.
Síðasti dagur til þess að stilla
blindflugstæki vegna aðalbrautar-
innar á Reykjavíkurflugvellli var
í gær. Þess vegna hafa Flugleiðir
hækkað lægstu flughæð í skýjum
úr 200 fetum í 590 fet. Flugmála-
stjórn sendi út tilkynningu um
þetta fyrir viku síðan, þar sem
flugmenn eru varaðir við þessu
ástandi. Næ-st jiarf að stilla blind-
flugstæki í Isafjarðardjúpi 10.
nóvember, á Húsavík 13. nóvemb-
er, á Sauðárkróki 15. nóv., og á
Akureyri 16. nóvember. Stillaþarf
V erðlagsstofnun:
Spurningaleikur brýtur
í bága við verðlagslög
VERÐLAGSSTOFNUN hefur komist aðþeirri niðurstöðu að spurn-
ingaleikur á vegum Bylgjunnar og Sjóvá-Almennra, sem auglýstur
hefur verið undanfarið, brjóti í bága við verðlagslög. Hefur stofnun-
in sent viðkomandi aðilum bréf, þar sem þess er krafist að leiknum
verði þegar hætt.
Samkvæmt upplýsingum Verð-
lagsstofnunar brýtur spurn-
ingaleikurinn ótvírætt í bága við
33. grein verðlagslaga, en þar seg-
ir að í því skyni að öiva sölu á
vöru, þjónustu eða öðru því sem í
té er látið, sé óheimilt að úthluta
vinningum með hlutkesti, í formi
verðlaunasamkeppni eða á annan
hliðstæðan hátt, þár sem tilviljun
ræður að öllu leyti, eða að hluta,
hver niðurstaðan verður.
blindflugstæki á Keflavíkurflug-
velli 6. desember, en Flugmála-
stjórn sér um það samkvæmt
samningi við varnarliðið. Samn-
ingurinn er upp á 70 þúsund
Bandaríkjadali á ári eða sem jafn-
gildir rúmum fjórum milljónum
íslenskra króna.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Feðgarnir Ármann Árnason og Einar Ármannsson að landa.
Góður afli hjá trillunum
Neskaupstað.
MJÖG góður afli hefur verið á línu hjá smábátum hér undanfarið,
þegar gefið hefur á sjó. Um síðustu helgi koniu þeir með samtals
120 lestir að landi.
Ul
40 trillur og smábátar
stunda róðra héðan um þessar
mundir, en nú er farið að þrengja
að um kvóta hjá þeim og einhveijir
þegar búnir með hann.
- Ágúst
V erðlagsstofiiun
gerir athugasemdir
við taxta dagmæðra
VERÐLAGSSTOFNUN liefur gei-t athugasemd við hækkuu taxta
dagmæðra sem tók gildi 1. október síðastliðinn. Þá hækkaði launalið-
ur taxanna um 20%. Samtök dagmæðra hafa ákveðið að breyta ekki
gjaldskránni, þar sein taxtarnir hafi verið orðnir of lágir og þörf á
leiðréttingu. Hefúr forysta samtakanna verið boðuð á fund í Verðlags-
stofnun eftir helgi og að sögn Olafs Gunnarssonar, fulltrúa á Verð-
lagsstofnun, kemur til greina að fara með inálið fyrir verðlagsráð
og setja þessa þjónustu undir verðlagsákvæði.
Olafur sagði að Verðlagssfofnun
hefði fengið ábendingar um
þessa hækkun taxta dagmæðra í
byijun október. Taxtarnir eru leið-
beinandi en mikið miðað við þá.
Sagðist hann þá hafa fengið þær
skýringar hjá Samtökum dag-
mæðra að mistök hefðu orðið við
útreikninginn og taxtarnir yrðu
leiðréttir. Þær hefðu síðar haft sam-
band til að segja frá þeirri ákvörðun
að taka inn leiðréttingu á töxtunum
en lækka þá ekki.
Selma Júlíusdóttir, formaður
Samtaka dagmæðra, sagði að taxt-
arnir væru miðaðir við laun Sóknar-
kvenna og við athugun á þeim nú
í framhaldi af athugasemd Verð-
lagsstofnunar hefði komið í ljós að
taxtarnir hefðu dregist aftur úr og
hefðu verið orðnir það lágir að dag-
mæður sæu sér ekki fært að vinna
eftir þeim. Því hefði verið ákveðið
að lækka þá ekki en ákveðið að
reyna að halda launaliðnum
óbreyttum í vetur. Sagði Selma að
tímakaupið við gæslu á einu barni
væri 80—100 krónur og innifalið í
því væri viðhaldskostnaður og leik-
föng. Þá benti hún á að taxtar
dagvistarstofnana hefðu hækkað
yfir 20% í haust.
Ólafsvík:
Tillögur bæjarstjórans
um sparnað samþykktar
Ólafsvík.
SPARNAÐARTILLÖGUR sem Kristján Pálsson, bæjarstjóri í ÓI-
afsvík, lagði fram í bæjarstjórn Ólafsvíkur í sumar liafa nú hlotið
samþykki í bæjarstjórninni í lítið breyttri mynd. I sumar var tillögun-
um mjög þunglega tekið, ekki síst af félögum Kristjáns í meirihluta
bæjarstjórnarinnar. Nú voru tillögur þessar hins vegar lagðar fram
í nafni alls meirihlutans, lítt breyttar eins og fyrr segir, og hlutu
að auki samþykki sjálfstæðismanna sem fengu fram nokkrar breyting-
ar.
Þessar sparnaðar- og hagræð-
ingaaðgerðir bæjarstjórnar ei'u
í fjórum aðalliðum: 1. Lækkun
reksturskostnaðar, sem með nýrri
verkaskiptingu ríkis- og sveitarfé-
laga á að nema 13,3 milljónum. 2.
Hækkaðar tekjur bæjarsjóðs sem
með nýjum tekjústofnalögum munu
nema samtals 10,8 milljónum. 3.
Frestur útgjalda samkvæmt fjár-
hagsáætlun 1989 kr. 2870 þúsund
og sala eigna 3 milljónir, samtals
þessi liður 5870 þúsundir. 4. Að-
ráðning í hlutastarf. Endanleg sam-
staða um þessar tillögur varð því
góð og það er von bæjarstjórnar-
manna að með þessum aðgerðum
verði komist fyrir vind og staða
bæjarsjóðs batni til frambúðar.
- Helgi.
gerðir sem hafa óbein áhrif svo sem
lengingar lána, færsia reksturs fé-
lagsheimilisins á Klifi út úr bæjar-
reikningunum. Einnig er fyrirhugað
að færa umsvif vegna verkamanna-
bústaða á sérstakan reikning og
fleira mætti teija.
Helsta breyting frá upphaflegum
tillöbum bæjarstjóra er sú, að bæj-
arstjórn fellst ekki á að fresta ráðn-
ingu bæjarritara. Starfi byggingar-
fulltrúa verður hins vegar breytt
þannig, að þar eigi sér stað laus-
Digranes-
prestakall
í messutilkynningum í gær féll
niður hluti tilkynngar frá
Digranesprestakalli. Guðsþjón-
usta er í dag, sunnudag kl. 11
í Kópavogskirkju. Prestur er
sr. Þorbei'gur Kristjánsson.