Morgunblaðið - 05.11.1989, Qupperneq 8
8
MORQUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR’ 5. NÓVEMBER 1989
T TT A er sunnudagur 5. nóvember, 309. dagur ársins
1 U Aljr 198.9. Allra heilagra messa. Árdegisflóð í
Reykjavík kl. 10.21 og síðdegisflóð kl. 22.54. Sólarupprás er
í Reykjavík kl. 9.23 og sólarlag kl. 16.58. Sólin er í hádegis-
stað í Reykjavík kl. 13.11 ogtunglið í suðri kl. 18.53. (Alman-
ak Háskóla íslands.)
Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð
yður. (Jóh. 15,14.)
ÁRNAÐ HEILLA
Bogi Pétur Guðjónsson,
Kirkjuhvoli, Hvolhreppi,
Rangárvallasýslu. Hann
verður að heiman á afmælis-
daginn.
mmmmmmmmmmmm
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
VESTURGATA 7, þjón-
ustumiðstöð aldraðra, opin
virka daga frá 9-16.30. Málað
á slæður mánudaga og föstu-
daga kl. 10-13. Létt dansspor
á mánudögum kl. 13.30.
Kaffistofan opin virka daga
kl. 14,45-16.
HÚSMÆÐRAFÉLAG
Reykjavíkur heldur basar á
Hallveigarstöðum í dagkl. 14.
KVENFÉLAGIÐ Hringur-
inn heldur sinn árlega handa-
vinnu- og kökubasar í dag
kl. 14, í Fóstbræðraheimilinu
við Langholtsveg.
FÉLAG eldri borgara verð-
ur með kökubasar og fata-
markað í Goðheimum, Sigtúni
3, í dag kl. 14. Opið hús í
Goðheimum í dag, fijáls spila-
mennska og tafl. Kl. 20 dans-
að. Haldin verður skálda-
kynnning um Einar H. Kvar-
an skáld nk. þriðjudag kl. 15
að Rauðarárstíg 18.
VERKAKVENNAFÉL.
Framsókn heldur sinn árlega
basar 11. nóvember nk. kl.
14. Tekið verður á móti mun-
um á skrifstofunni, Skipholti
50A. Kökur vel þegnar.
KVENFÉLAG Fríkirkjunn-
ar í Reykjavík heldur sinn
árlega basar nk. laugardag,
11. nóv. á Laufásvegi 13.
Tekið við munum nk. fimmtu-
dag og föstudag kl. 17-21 á
sama stað.
TÓMSTUNDASTARF aldr-
aðra í Mosfellsbæ efnir til
leikhússferðar í Borgarleik-
húsið fimmtudaginn 23. nóv-
ember á Höll sumarlandsins.
Uppl. hjá Svanhildi s. 666377
og Steinunni s. 667032.
L ANDSPÍTALINN: Messa
kl. 10 í dag. Si'. Jón Bjarman.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
Á fimmtudagskvöld fór
Bakkafoss til útlanda. Olíu-
skipin Kyndill og Stapafell
komu í fyrradag og héldu
samdægurs aftur á ströndina.
Esja fór þá einnig á strönd-
ina. Ögurvík var væntanleg
í gær úr siglingu og í dag var
Jökulfell væntanlegt af
ströndinni og Árfell að utan.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: í fyrradag fóru Jöf-
ur og danski rækjutogarinn
Helen Barse á veiðar.
Grundarfoss fór í fyrrakvöld
til útlanda frá Straumsvík. í
dag er Urriðafoss væntan-
legur að utan og Hofsjökull
af ströndinni.
KVENN ADEILD
Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra heldur fund
annaðkvöld, mánudagskvöld,
kl. 20.30, að Háaleitisbraut
11. Á fundinn kemur Svan-
hildur Svavarsdóttir talkenn-
FORELDRA- og styrkt-
arfélag Greiningastöðv-
ar ríkisins. Opið hús ann-
aðkvöld, mánudagskvöld, kl.
20.30. Fulltrúi frá Þroska-
hjálp mætir.
KVENFÉLAG Laugar-
nessóknar heldur fund
annaðkvöld, mánudagskvöld,
kl. 20 í safnaðarheimili kirkj-
LÁRÉTT: — 1 lítill, 5 hrós-
aði, 8 náðhús, 9 hakan, 11
detta, 14 beita, 15 báran, 16
ilmur, 17 þegar, 19 fyrir of-
an, 21 skatt, 22 bát, 25 spott,
26 púka, 27 guð.
LÓÐRÉTT: — 2 tunga, 3
keyra, 4 sepann, 5 vísar frá,
6 heiður, 7 launung, 9 borg
í Danmörku, 10 svæflar, 12
hnyttið, 13 mannsnafn, 18
pípur, 20 kyrrð, 21 tangi, 23
á fæti, 24 einkennisstafir.
LAUSN SÍÐUSTU
KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 Tómas, 5
siður, 8 kotið, 9 balar, 11
naggs, 14 iðn, 15 lagin, 16
iðjan, 17 náð, 19 item, 21
anga, 22 gátunni, 25 gat, 26
ára, 27 not.
LÓÐRÉTT: - 2 óða, 3
aka, 4 sorinn, 5 sinnið, 6 iða,
7 ung, 9 belging, 10 laglegt,
12 gijónin, 13 sannast, 18
áður, 20 má, 21 an, 23 tá,
24 Na.
Þingmannanefnd Framsóknarflokks skifar aliti um breýtingar í efnáhags- og atvinnumálum:
Leggja til stefnu sem
losar um gömlu böndin
Það hlýtur að verða meiriháttar grín að sjá framsóknarkálfinn hoppa og skoppa um allar triss-
ur...
unnar. Kvenfélag Langholts-
sóknar kemur í heimsókn.
KVENFÉLAG Kefla-
víkur heldur fund á morgun,
mánudag, kl. 20.30 í Kirkju-
lundi. Kvenfél. Seltjarnarness
kemur í heimsókn.
KVENFÉLAG Garða-
bæjar heldur fund nk.
þriðjudagskvöld, kl. 20.30, í
Garðaholti.
JC-NES heldur fund annað-
kvöld kl. 20.30 á Laugavegi
178, 3. hæð. Ræðukeppni
milli tveggja hópa sem voru
að ljúka námskeiðinu Ræða 1.
FORELDRAFÉLAG
Árbæjarskóla helduraðal-
fund sinn í sal skólans mið-
vikudaginn 15. nóvember kl.
19.30.
KVENFÉLAGIÐ Fjall-
konurnar heldur fund nk.
þriðjudag kl. 20.30 í safnað-
arheimili Fella- og Hóla-
kirkju. Jólaföndur.
KVENFÉLAG Árbæj-
arsóknar heldur fyrsta
fund vetrarins í safnaðar-
heimilinu við Rofabæ annað-
kvöld, mánudagskvöld, kl.
20.30. Gestur fundarins verð-
ur Gunnlaugur Guðmundsson
stjörnuspekingur.
SAMTÖK um sorg og
sorgarviðbrögð halda
fund nk. þriðjudagskvöld kl.
21 í safnaðarheimili Laugar-
neskirkju. Gestur fundarins
Jóhann Ingi Gunnarsson sál-
fræðingur sem ræðir um sorg
og streitu.
ÞETTA GERÐIST
5. nóvember
1414: Kirkjuþingið í Con-
stanza hefst.
1605: Guy Fawkes reynir að
sprengja upp brezka þing-
húsið (yPúðursamsærið“).
1630: Ofriði Englendinga og
Spánveija lýkur með Madrid-
sáttmálanum.
1688: Vilhjálmur af Óraníu
stígur á land í Torbay.
1817: Þriðji Mahratta-ófrið-
urinn gegn Bretum á Ir.dlandi
hefst með árás á Poona, Nag-
pur og Indore.
1840: Mehmet Ali af Egypta-
landi samþykkir skilyrði
Lundúnasáttmálans.
1854: Orrustan við Inkerman
á Krím.
1883: „Mahdíinn" sigrar liðs-
afla William Hicks við E1
Abied og Bretar ákveða að
hörfa frá Súdan.
1911: ítalir innlima Tripoli
og Cyrenaica.
1914: Frakkar og Bretar
segja Tyrkjum stríð á hendur
— Bretar innlima Kýpur.
1916: Miðveldin Iýsa yfir
stofnun konungsríkis í Pól-
landi.
1950: Douglas MacArthur
hershöfðingi skýrir frá mikl-
I*
um liðssafnaði Kínveija í
Norður-Kóreu.
1956: Brezkir landgönguliðar
koma til Port Said — Rússar
hóta að beita eldflaugum, ef
Bretar og Frakkar samþykki
ekki vopnahlé.
1962: Állsheijarþingið krefst
að öllum kjarnorkuvopnatil-
raunum verði hætt fyrir ára-
mót.
1972: Japani handtekinn eftir
rán á japanskri flugvél með
126 manns um borð.
1979: Sendiráð Breta í Teher-
an tekið.
1723: Oddur Sigurðsson
stefnir Gottrup sýslumanni.
1822: Jón Þorkelsson rektor
fæddur.
1848: „Þjóðólfur", fyrsta ísl.
fréttablaðið hefur göngu sína.
1863: Tillaga Halldórs Kr.
Friðrikssonar um þjóðhátíð í
„Þjóðólfi".
1871: „Norðanfari" hermir,
að 200 hross hafi fundist dauð
á Hörgárdalsheiði, líklega af
mannavöldum.
1942: Verslunarskólinn fær
að útskrifa stúdenta.
1965: „Berlingske Aftenavis"
hefur birtingu „Ieyniskrár“ í
handritamálinu.
FÉLAGIÐ Svæðameð-
ferð verður með opið hús
annaðkvöld, mánudagskvöld,
kl. 20 í húsi Svæðameðferðar-
félags íslands, Súðarvogi 7.
Gestur fundarins Guðni
Gunnarsson fjallar um lífönd-
un.
ELDRI borgarar í Ár-
bæjarsókn. Opið hús á
miðvikudögum kl. 13.30 í
safnaðarheimili Árbæjar-
kirkju. Helgistund kl. 16.30.
Hársnyrting alla þriðjudaga í
Hárgreiðsiustofunni Stellu.
JC-Reykjavík heldur fé-
lagsfund nk. þriðjudag, 7.
nóv., að Laugavegi 178, kl.
20. Gestur fundarins Vil-
hjálmur Egilsson, frkvstj.
Verslunarráðs.
MINNINGARKORT
MINNINGAKORT Lands-
samtaka hjartasjúklinga
fást í Reykjavík og annars-
staðar á landinu sem hér seg-
ir: Auk skrifstofu samtak-
anna Tryggvagötu 28 í s.
25744, í bókabúð ísafoldar,
Austurstræti, og Bókabúð
Vesturbæjar, Víðimel. Selt-
jarnarnesi: Margrét Sigurðar-
dóttir, Mýrarhúsaskóli eldri,
Kópavogi: Veda bókaverzlan-
ir, Hamraborg 5 og Engi-
hjalla 4. Hafnarfirði: Bókabúð
Böðvars, Strandgötu 3 og
Reykjavíkurv. 64. Sandgerði:
Póstafgreiðslu, Suðurgötu
2—4. Keflavík: Bókabúð
Keflavíkur. Sólvallagötu 2.
Selfoss: Apótek Selfoss,
Austurvegi 44. Grundarfirði:
Halldór Finnsson, Hrann-
arstíg 5. Ólafsvík: Ingibjörg
Pétursdóttir, Hjarðartúni3.
ísafirði: Urður Ólafsdóttir,
Brautarholti 3. Árneshreppi:
Helga Eiríksdóttir, Finnboga-
stöðum. Blönduósi: Helga A.
Ólafsdóttir, Holtabraut 12.
Sauðárkróki: Margrét Sigurð-
ardóttir, Birkihlíð 2. Akur-
eyri: Gísli J. Eyland, Víðimýri
8, og bókabúðirnar á Akur-
eyri. Húsavík: Bókaverzlun
Þórarins Stefánssonar, Garð-
arsbraut 9. Egisstöðum:
Steinþór Erlendsson, Laufási
5. Höfn Hornafirði: Erla Ás-
geirsdóttir, Miðtúni 3. Vest-
mannaeyjum: Axel Ó. Lárus-
son skóverzlun, Vestmanna-
braut 23.
ORÐABÓKIN
Fleirfaldstölur
Síðast var vikið að þeim
töluorðum, sem kölluð eru
fleirfaldstölur og bundin eru
við no., sem alltaf eru höfð
í fleirtölu eða þá í ákveðnum
tilvikum. Eru það orð eins
og lög og svo kosningar.
En þessi orð eru allmörg í
málinu. Sum þeirra valda
tæplega nokkrum ruglingi.
Má þar nefna no. eins og
buxur. Þá er talað um einar
buxur eða tvennar. Sama
máli gegnir um föt, þegar
átt er við alklæðnað. Hann
á þrenn fól eða fern. Svo
má tala um einn sokk eða
annann sokkinn. En sé um
tvo sams konar sokka að
ræða, mynda þeir par og
þá eru það einir sokkar eða
tvennir. Sama gildir um
skóna. Þegar átt er við par-
ið, þrennir skór eða fernir.
Svo getum við látið gera við
annan skóinn eða hinn, þeg-
ar svo ber undir. Þá má
nefna no. eins og hjón, ein
hjón eða tvenn hjón. En
svo ruglast ýmsir í meðferð
talnanna. No. leikur er t.d.
ekki notað í et., þegar um
tónleika er að ræða. Þá
segjum við: Hann hélt eina
tónleika eða tvenna tón-
ieika. Nýlega mátti samt
heyra í Ríkisútvarpinu talað
um fjóra tónleika og það að
ég ætla af tónmenntuðum
manni. Auðvitað átti hér að
tala um ferna tónleika. —
JAJ.