Morgunblaðið - 05.11.1989, Page 21
sumrin var hann með skútur, sem
gerðar voru út frá Stykkishólmi.
Hann var áreiðanlega meðal þeirra
síðustu sem kynntust slíkum at-
vinnuháttum. Sjósóknin frá Sandi
á fyrstu áratugum aldarinnar var
hörkuleg, afar erfið lendingaskil-
yrði og hættur vofðu yfir. Sjómenn
lentu nær því á hverri vertíð í mann-
raunum, slys voru tíð. Um slíka
viðburði og þátttöku Siguijóns í
þeim má lesa í frásögn vinar hans
Karvels Ögmundssonar í endur-
minningabókum hans, Sjómanns-
ævi. Siguijón tók próf í skipstjórn-
arfræðum á ísafirði 1924 og hélt
áfram að stunda sjöinn bæði frá
Snæfellsnesi og víðar.
Siguijón giftist Sigríði Ólafs-
dóttur 11. desember 1926. Þau
bjuggu í hamingjusömu hjónabandi
í rúmiega sextíu ár, en Sigríður
lést árið 1987. Þau eignuðust fimm
börn, en þau eru: Steinar rithöfund-
ur f. 1928, Oddný Ólafía f. 1929
g. Benedikt Hermannssyni á Akur-
eyri, Heiðar Hafberg f. 1931 g.
Trennu Mulligan í Bandaríkjunum,
Sævar f. 1932 d. í janúar 1952 og
Kristján Stefán húsgagnasmiður f.
1933 g. Helgu Kristjánsdóttur í
Kópavogi. Auk þess ólu þau Sigur-
jón og Sigríður upp tvö barnabörn
sín; Siguijón Guðmundsson og
Sigríði Steinarsdóttur.
Siguijón og fjölskylda hans fluttu
til Akraness árið 1936, þar var Sig-
uijón skipstjóri á ýmsum bátum,
þar til hann hætti sjómennsku árið
1959. Heimili þeirra var annálað
fyrir gestrisni og hlýju húsbænd-
anna. Siguijón vann í Sementsverk-
smiðjunni frá 1960 þar til hann
flutti suður til Reykjavíkur 1963.
Þá hóf hann störf hjá Áburðarverk-
smiðjunni þar sem hann- vann þar
til starfsævinni lauk. Um það leyti
fluttu þau heimili sitt í þjónust-
íbúðir aldraðra við Hrafnistu þar
sem heitir Jökulgrunnur. Þegar-
Sigríður dó, flutti Siguijón inn á
gömlu Hrafnistu þar sem hann
dvaldi þar til yfir lauk.
Þegar fjölskyldan bjó á Akranesi
urðu hjónin fyrir þeirri þungbæru
raun að Sævar sonur þeirra fórst í
sjóferð í janúarbyijun 1952. Hann
var þá við nám í sjómannaskóla,
var í orlofi heima hjá sér og ætlaði
að leysa föður sinn af í þessari ferð.
Það varð hans hinsta ferð. Þessi
viðburður setti mjög mark sitt á
Siguijón og fjölskylduna.
Siguijón Kristjánsson .var heit-
trúaður maður, trú hans stóð djúp-
um rótum. í viðtali við blað starfs-
manna í Sementsverksmiðjunni um
1960 sagðist honum svo frá: „Ég
varð oft, eins og gefur að skilja að
sækja undir stjúpa minn með eitt
og annað á mínum bernskuárum,
en þá var hans venjulega svar þetta:
Hjálpaðu þér sjálfur, þá hjálpar guð
þér! Þetta heilræði stjúpa míns, sem
alltaf var sett fram af hlýleik og
án alls þótta, kunni ég vel og
kannski fyrst að meta þegar ég
Kveðja frá
Knattspyrnufélagi IA
Pálmi Ólafsson verkamaður verð-
ur jarðsettur í Reykjavík á morgun,
mánudag. Með Pálma er fallinn í
valinn einn dyggasti stuðningsmað-
ur okkar Skagamanna undanfarna
áratugi.
Pálmi fylgdist af áhuga með
knattspyrnu frá 1914. Þegar gull-
aldarlið okkar Skagamanna varð til
uppúr 1950 hreifst Pálmi af liðinu
eins og svo margir fleiri. Eftir það
fylgdi hann ÍA að málum. Hann
mætti á alla leiki sem hann gat
hvort sem var í Reykjavík eða á
Akranesi. Allir þekktu Pálma í bláu
kakinfötunum með sixpensarann á
höfði. Ef mikið stóð til á Akranesi
kom hann uppáklæddur með Akra-
borginni. Það fyllti leikmenn bar-
áttumóði er þeir sáu að Pálmi var
mættur á völlinn.
Ég vil fyrir hönd allra knatt-
spyrnumanna á Akranesi færa
Pálma hinstu þakkir fyrir stuðning-
inn og tryggðina við lið okkar. Það
verður svipminna á íþróttavellinum
nú þegar Pálmi er fallinn frá.
Blessuð sé minning vinar okkar
Pálma Ólafssonar.
Gunnar Sigurðsson, forniaður.
M0RGUNBLÁÐIÐ MI l\l NIMG Aft PlóvfcM&R .wkf [^ 21 -
ið hafði hann ritað minningarorð
um vin sinn og fósturbi'óður, en
þeir voru báðir skipstjórar á Akra-
nesi og bjuggu þar hlið við hlið.
Sigurjón lá.þá veikur á spítala og
gat ekki fylgt vini sínum til grafar.
Eftir samræður okkar stóð hann
upp og sagði við mig, að nú væri
hans stund komin, þetta vár sér-
stakt augnablik, þar sem einkenni-
leg ró var í hans fari. Ég hafði á
orði að áður hafi hann nú fengið á
sig slagsíðu í lífinu og myndi hann
áreiðanlega rétta af aftur, eins og
svo oft áður. Þessu fylgdi þéttings-
fast handtak og föðurlegt klapp á
öxl mína, um þijúleytið þennan dag
var Siguijón allur. Þær eru margar
hlýju minningarnar sem við Sigui'-
jón áttum saman hér á Hrafnistu.
Hann var maður trúaður og kirkju-
rækinn, hann tók virkan þátt. í öllum
helgistundum og messum á heimil-
inu ásamt sóknarprestinum okkar.
Ha.nn vai' hér formaður vistmanna-
ráðs og naut mikils trausts bæði
vistmanna og starfsfólks Hrafnistu
og lét sér annt um hag og heill'
þessa litla samfélags okkar, en Sig-
uijón tók mikinn þátt í félagsmálum
sjómanna í sínum heimabyggðum
og undi hag sínum hér ásamt eigin-
konu sinni Sigríði Ólafsdóttur sem
lést í maí 1987.
Við sem á Hrafnistu störfum
sjáum á eftir góðum vini og þökkum
fyrir að hafa kynnst þessum öðlingi.
Blessuð sé minning Sigurjóns
Kristjánssonar.
Rafn Sigurðsson
Námskeiðið er verklegt og ætlað fagfólki í kennslu-,
uppeldis- og heilbrigðisstéttum svo og öðrum, sem
áhuga hafa á að kynnast myndþerapíu af eigin raun.
Aðalmarkmið námskeiðsins er að efla sjálfsþekk-
ingu og sjálfstraust út frá eigin skapandi ferli, sjálfs-
skoðun og hópumræðum.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 17114 eftir
kl. 20.30 næstu kvöld.
Sigríður Björnsdóttir, löggiltur myndþerapisti í
„The Brithish Association of Art Therapists".
*
NAMSKEIÐ w" * l
í MYNDÞERAPÍUM
+
Móðir okkar, amma og systir,
JÓHANNA BJÖRG JÓNSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
lést 29. október.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 7. nóvember
kl. 13.30.
Rósa Jónína Benediktsdóttir,Magnús Guðmundsson,
Jóhanna Björg Pálsdóttir, Erika Magnúsdóttir,
Markús Magnússon,
Haftiði Jónsson, Magnús Jónsson.
t
Móðurbróðir minn,
PÁLMI ÓLAFSSON,
til heimilis að Droplaugarstöðum,
áður Vitastig 11 b,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 6. nóvember
kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Knattspyrnufélag Akra-
ness eða minningarsjóð Karlakórs Reykjavíkur, pósthólf 8484.
Jón Sveinsson*
+
Eiginmaður minn,
CARROLL BALDWIN FOSTER,
fyrrv. forstjóri Menningarstofnunar Bandaríkjanna,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 7. nóvember
kl. 13.30.
Helga Weisshappel Foster.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður
okkar og tengdamóður,
STEINUNNAR GUNNARSSON,
Sólvallagötu 14,
Rútur Halldórsson,
Guðrún St. H. Dodsworth,
Brynjólfur H. Halldórsson.
Brian Dodsworth,
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður og afa,
HARALDAR HANNESSONAR
hagfræðings,
Hávallagötu 18,
Ragnheiður Hannesdóttir,
Hannes Haraldsson, Rósa Ármannsdóttir,
Haraldur Hannesson, Sigurlaug Jónsdóttir,
Helgi Ármann Hannesson,
Ragnar ÞórHannesson.
DANFOSS SKAPftR
VEIIÍÐftN Á HEIMIUNU!
Mikil útbreiðsla DANFOSS ofnhitastilla á
Islandi sýnir að þeir eru í senn nákvæmir og
öruggir.
Æ fleiri gera nú sömu kröfur til baðblöndun-
artækja og velja hitastilltan búnað frá
DANFOSS.
Með DANFOSS næst kjörhiti á heimilinu
Þú stillir þægilegasta hitann i hveiju
herbergi og DANFOSS varðveitir hann ná-
kvæmlega, hvernig sem viðrar.
Og í baðinu ertu alltaf viss um réttan
vatnshita. Það er ekki sístöryggi fyrir þá eldri.
Aukirt vetlíðan, lœgri orkukostnaður.
= HEÐINN =
SELJAVEGI 2, SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
byijaði formennsku mína átján ára
gamall og hefur það að miklu leyti
markað lífsskoðun mína æ síðan.“
Siguijón var mikill söngmaður
og söng fram á síðustu stund með
söngfélagi Hrafnistufólks. Síðustu
árin var hann í bræðrafélagi Dóm-
kirkjunnaí. Siguijón aðhylltist já-
kvætt viðhorf til lífsins og tilverunn-
ar. Hann var alla jafnan glaðlyndur
og höfðingsskapur hans var ein-
stæður. Siguijón var ættrækinn og
hjálpsamur eins og fjölskylda rnín'
reyndi oftar en einu sinni þegar á
bjátaði. Vinir hans og ættingjar
minnast hlýju og alúðar þessa
lífsreynda manns. Hann var góður
maður. Að leiðarlokum er Sigurjón
Kristjánsson kvaddur með innilegu
þakklæti og virðingu.
Oskar Guðmundsson
Föstudaginn 27. október var
óvenjufagur haustdagur, haustsól
sem tók upp nýfallna snjóföl, þenn-
an morgun kom að venju til mín
vinur og gamall sveitungi Siguijón
Kristjánsson, en hér á Hrafnistu
hafa leiðir okkar legið saman nú á
annan áratug, Siguijón sem íbúi
og ég sem starfsmaður. Þær eru
búnar að vera margar samveru-
stundirnar sem við höfum rætt sam-
an um sjómennsku og um trúmál,
hann lagði mér og Hrafnistuheimil-
inu alltaf sínar bestu óskir og vildi
allt gera af sínum sérstaka alhug
svo að fólki mætti líða vel.
Þennan morgun sýndi hann mér
bæjarblaðið frá Akranesi, en í blað-
WordPerfect 5.0 (Nýútgéf.)
Námskeið fyrir byrjendur (ný útgáfa). Grundvallaratriði MS-DOS stýrikerfisins. Farið í
allar helstu skipanir í WordPerfect. Æfingar með áherslu á uppsetningu og útlit texta,
leiðréttingar með notkun íslenska orðasafnsins, breytingar og afritun.
ATH: VR og fleiri stéttarfélög styrkja félaga sina til þátttöku
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur á
Einari J. Skúlasyni hf. Grensásvegi 10, sími 686933. f
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.