Morgunblaðið - 05.11.1989, Page 25
MORGUN^LAÐIÐ MIIMNINGARvSUNNUPAfiUR
5. NOVEMBER 1989
25
Minning:
Jenný Agústa
Guðbrandsdóttir
Hún Jenný Ágústa Guðbrands-
dóttir, Nenna, elskuleg föðursystir
mín er látiri. Þetta eru einföld orð
og segja ekki mikið. Ekki hve mikið
hefur horfið burtu með henni, hve
söknuðurinn er sár og minningarnar
ljúfar sem streyma fram. Minningar
um góða og vandaða man'neskju sem
alla sína ævi lifði fyrir aðra og hugs-
aði ekki um sjálfa sig.
Það kom fram í erfiðum veikind-
um hennar undangengin tvö ár, hún
kvartaði ekki um eigin líðan en
spurði þegar heilsan leyfði hvernig
vinum og vandamönnum vegnaði.
Hún sá það góða í fari hvers
manns og ailt baktal var henni fjarri.
Látlaus og hógvær í framgöngu og
tali, en þó va_r tekið eftir því sem
hún sagði. Hun kunni að gleðjast
með öðrum í meðlæti og þjáðist ef
öðrum leið illa.
Foreldrar Jennýjar voru Sigríður
Jónasdóttir og Guðbrandur Magnús-
son. Þau hófu búskap í Arabæjar-
hjáieigu í Flóa þar sem Jenný fædd-
ist 17. ágúst 1902.
Bjuggu þau síðan í nokkur ár í
Ölfusi við kröpp kjör en fluttu svo
til Reykjavíkur í von um betra líf.
Guðbrandur vann almenna verka-
mannavinnu og eins og gerðist á
þeim tíma var stopul vinnan og laun-
in lág. Samt tókst þeim hjónum að
mennta börn sín. Jenný lauk prófi
frá Kvennaskólanum í Reykjavík og
hóf síðan störf við ritsímann og á
símstöðinni starfaði hún í hálfa öld.
Hún byggði hús með bróður
sínum og konu hans, foreldrum
Minning:
Kveðja frá Félagi
sérkennslufræðinga
Það er með söknuði og trega sem
við félagar í Félagi sérkennslufræð-
inga kveðjum vin okkar og læriföð-
ur,_ Magnús Magnússon.
í sögunni „í túninu heima“ segir
Halldór Laxness eftirfarandi um vin
sinn og velgjörðarmann, vinnukon-
una í Laxnesi, Halldóru Álfsdóttur:
„Þó ég ætli mér stundum að setja
eitthvað saman um fólk eins og
Halldóru Álfsdóttur, fallast mér
ævinlega hendur og því veldur fá-
tækt þeirra orða sem ég hef á valdi
mínu; kannski einnig vanmáttur
orðsins sjálfs til að skilgreina hluti
sem eru ekki að einhveiju leyti tákn
og stórmerki."
Ég ætla mér ekki þá dul að halda
að ég, í litlu greinarkorni, geti kom-
ið til skila, hver Magnús Magnússon
var, eða hvað hann var mér og öllum
öðrum sem vinna við sérkennslu á
íslandi. Til þess var hann of stór
og ég of lítill í orðsins list.
Ég kynntist Magnúsi fyrst þegar
ég var nemandi í sérkennslufræðum
við framhaldsdeild Kennaraháskóla
íslandi. Mér eru enn minnisstæðar
kennslustundirnar hjá Magnúsi,
innihaldsríkar, skemmtilegar og
gefandi. Hann fyllti kennslustund-
irnar mannúð og mannvirðingu en
krafðist jafnframt skipulagðra
vinnubragða, góðs undirbúnings og
reglu.
I mínum huga er minningin um
Magnús fyrst og fremst minning
um mannvin og eldhuga sem aldrei
unni sér hvíldar né lét undan ef
beijast þurfti fyrir rétti þeirra sem
á aðstoð þurftu að halda. Magnús
var svarinn óvinur sýndarmennsku
og fláttskapar og sýndi þá enga
miskunn hvorki í orðum eða gjörð-
um. Hann vissi sem var að þeir sem
þykjast og sýnast og fyrst og fremst
leita eftir upphefð fyrir eigin metn-
að, eiga ekkert erindi í þennan
málaflokk.
í „Heimsljósi" Halldórs Laxness
er skáldið Ulfar Örn á einum stað
að segja vini sínum Ólafi Kárasyni
frá meðferð yfirvalda Sviðinsvíkur
á „krepta nakta aumingjanum"
Hólsbúðardísu. Ljósvíkingu rinn,
veikgeðja og viðkvæmur, kveinkar
sér undan lýsingunni og segist þrá
fegurð. Ulfur Örn svarar og segir:
„En hver sem heldur að fegurðin
sé eitthvað sem hann geti notið sér-
staklega fyrir sig sjálfan með því
að yfirgefa aðra menn og loká aug-
unum fyrir því mannlífi sem hann
er samþættur, — hann er ekki vinur
fegurðarinnar ... Sá sem ekki berst
sérhvern dag ævi sinnar til hinsta
andartaks gegn þeim fulltrúum hins
illa, gegn þeim lifandi ímyndum
þess ljóta, sem stjórna Sviðinsvíkur-
eign, hann guðlastar með því að
taka sér nafn fegurðarinnar í
munn.“
Allt fram á síðasta dag var Magn-
úsi hugleikin velferð skjólstæðinga
sinna. Fáum dögum áður en hann
lést fórum við í stjórn Félags sér-
kennslufræðinga að heimsækja
Magnús og héldum stjórnarfund í
herbergi lians, á heilsuhælinu í
Hveragerði. Á þessum síðasta fundi
með Magnúsi varð okkur ljóst að
Magnús var mikið veikur og ætti
skammt ólifað. Þrátt fyrir mikil
veikindi og sárar kvalir vildi Magnús
fá að vita allt um nýjustu drög að
reglugerð um sérkennslu og ræddi
af festu og einurð ýmis atriði er
honum sýndust vafasöm og óljós.
Fyrir ári var Magnús Magnússon
gerður að heiðursfélaga í okkar fá-
menna félagi. í dag erum við einum
félagsmanni færri. Við höfum misst
okkar bestu fyrirmynd og iæriföður
sem stöðugt gat minnt okkur á að
það á aldrei að linna látum fyrr en
öllu óréttlæti er útrýmt, það er hin
sanna fegurð.
Fyrir hönd Félags sérkennslt
fræðinga,
G.Ól.
Ættírædiþjónustan
Kynnið ykkur þjónustuna:
Ættfraeðinámskeið, ættrakning
(ættartölur og niðjatöl), leit að
týndum ættmennum og önnur
upplýsingaöflun, sala ættfræði-
bóka og hjálpargagna í ættfræði.
Sími27101
Magnús Magnússon
fv. sérkennslufulltrúi
undirritaðrar, og þar af leiðandi
bjuggum við Nenna undir sama
þaki öll mín bernsku- og unglings-
ár. Hún var mér sem önnur móðir
og seinna börnunum mínum sem
amma. Nenna var mér ímynd alls
þess besta sem býr með manninum.
Blessuð sé minning hennar.
Sigga
Hún elsku Nenna mín er dáin.
Það er ótrúlegt því mér finnst hún
alltaf hafa verið til. Hún var afasyst-
ir mín og var við mig eins og önnur
amma. Ég var oft hjá henni og átti
mitt eigið herbergi þar líka. Álltaf
fannst mér gaman að gista hjá henni
en það gerði ég mjög oft. Hún las
mikið fyrir mig, uppáhaldsbækurnar
rnínar eða við spiluðum eitthvert
spil. Ég man að alltaf var hún jafn
blíð og góð og vildi alltaf allt fyrir
mig gera. Hún hlustaði á allan
barnaskapinn í tnér og gaf mér ráð.
Ófáar voru sögurnar sem hún sagði
mér frá lífinu í sveitinni þegar hún
var stelpa. Það þóttu mér skemmti-
legar sögur. Mikið mun ég sakna
hennar Nennu.
Sigrún
Gunnar E.
nuddari —
Fæddur 8. ágúst 1959
Dáinn 8. október 1989
Tíminn flýgur og ekki verður rás
hans stöðvuð, tímarnir krefjast
fórna og oft þannig fórna að ekki
verður skilið af hveiju og fyrir
hvern.
Gunnar E. Júlíusson, sá ágæti
drengur er allur, horfinn enn einn
af hinum heiðarlegu ungu íslend-
ingum, sem áttu að vera í varasjóði
hins nýja og hlýja þjóðfélags, sem
hlýtur að vera í sköpun.
Við áttum ekki mikil samskipti,
en hittumst þó á förnum vegi og
tókum tal saman, síðast í flugstöð
Leifs Eiríkssonar fyrir rúmu ári.
Jákvæðni og lífsgleði geislaði
ávallt af Gunnari og var ég feginn
í þetta sinn þegar auglýst var seinkr
un á báðum þeim flugleiðum, sem
við ætluðum að fara, Gunnar að
þvi er mig minnir til Danmerkur
og ég til Bandaríkjanna.
Við ræddum því saman þangað
til kallað var til brottferðar. Ég
geymi myndina af Gunnari er hann
stóð upp og hress í bragði skellti
hliðartösku sinni yfir hægri öxl og
hélt út brottfararganginn, sneri við
á hæl, veifaði og sagði um leið:
„Við sjáumst síðar, vertu blessað-
ur.“
Ekki varð úr endurfundum, því
miður. Öllum aðstandendum Gunn-
ars heitins sendi ég innilegar sam-
úðarkveðjur og bið góðan Guð um
styrk ykkar til handa.
Friðrik Ásmundsson Brekkan
Með nokkrum fátæklegum orð-
um vil ég minnast míns kæra vin-
ar, hans Gunna, sem var kallaður
á brott, frá unnustu sinni, börnum
og ástvinum svo alltof, alltof fljótt.
Mikið er sárt að kveðja og erfitt
Julíusson
Minning
að skilja svo ótímabært kall, en
hlutverk Gunna hinum megin hlýtur
að vera bæði stórt og mikilvægt.
Ég kynntist Gunna fyrst fyrir
nokkrum árum þegar ég kom til
hans í Paradís, en mér var bent á
að þar færi góður sjúkranuddari,
sem hann reyndist svo sannarlega
vera, enda vár ég hjá honum síðan.
Milli okkar skópst falleg vinátta
sem ég mun ávallt muna og varð-
veita í hjarta mínu.
Gunni var einstaklega jákvæður
maður með bjarta sál. Það bjarta
að hvort sem ég var glöð eða leið
þegar ég kom til hans, leið mér
alltaf betur þegar ég fór heldur en
þegar ég kom. Þar fóru saman hlát-
ursgusur, góðar samræður og hann
sjálfur. Ég er mjög þakklát fyrir
að hafa fengið að kynnast Gunna
og eignast vináttu hans.
Ástvinum hans, börnum, foreldr-
um, systkinum og öðrum aðstand-
endum sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur og bið góðan Guð
að vera með ykkur og styrkja í
ykkar miklu sorg.
Lúlú
ÞARFNAST
HÚSIÐ VIÐGERÐA
NÆSTA
SUMAR?
NÚ ER TÍMINN TIL AÐ
SKOÐA HÚSIÐ OG
AFLA HAGSTÆÐRA TILBOÐA.
VERKVANGUR HF. ER ÞJÓNUSTU- OG RÁÐGJAFAFYRIRTÆKI SEM BÝÐUR UPP Á TÆKNILEGA SÉRÞEKKINGU OG REYNSLU Á SVIÐI, VIÐHALDS OG ENDURNÝJUNAR Á ELDRI HÚSUM.
isaíii^KsWsftSiis KOMDU VIÐ EÐA HRINGDU. VIÐ MUNUM AÐSTOÐA ÞJG VIÐ UNDIRBÚNING FRAMKVÆMDA.
V
VERKVANGUR h.f
ÞJÓNUSTU - 0 G
RÁÐGJAFAFYRIRTÆKI
ÞÓRSGÖTU 24, 101 REYKJAVÍK, SÍMI: 622680
GRUNN I
13. nóv. kl. 9-16
Fyrir byrjendur í tölvunotkun. Fjallað verður um Victor PC-tölvuna, MS-DOS
stýrikerfið kynnt ásamt ýmsum jaðartækjum, t.d. prentara, mús, módemi o.fl.
Framhaldsnámskeið Grunn II verður 15.-16. nóv. kl. 9-13.
Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá Ásrúnu Matthíasdóttur,
Einari J. Skúlasyni hf., Grensásvegi 10, sími 686933
ATH: Vfí og fleiri stéttarfélög styrkja féiaga sina til þátttöku.
Tölvuskóli Einars J. Skúlasonar hf.