Morgunblaðið - 05.11.1989, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÚTVARP/SJÓNVÁRP
fjfl n\
SUNNUDAGUÍl 5. NÓVEMBER 1989
31
Artúr Björvin Bollason.
Sjónvarpið:
LJtróf
Lítróf í umsjá Aitúrs Björgvins Bollasonar er á dagskrá
QA 35 Sjónvarps í kvöld. Fjallað verður um sýningu Leikfélags
uU — Akureyrar á Húsi Bernörðu Alba eftir Garcia Lorca og
rætt við leikstjórann, Þói-unni Sigurðardóttur. Síðan verður rætt við
Thor Vilhjálmsson um nýja bók sem hann sendir frá sér um þessar
mundir og mun Thor lesa stuttan kafla úr henni. Þá verðr litið inn
á sýningu ungra myndlistarmanna í húsakynnum Borgarspítalans
en sýningin þar er framlag þeirra í baráttu gegn sjúkdómnum alnæmi.
Farið verður í heimsókn að Korpúlfsstöðum þar sem unnið er að
upptökum á verki Ólafs Hauks Símonai'sonar, Bílaverstæði Badda.
Þá verður rætt við rithöfundinn Birgir Sigurðsson um nýja bók hans
er hann hyggst nefna Svartur sjór af síld. Loks verður litið inn hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og spjallað við Kjartan Ragnarsson um sýn-
ingu á Ljósi heimsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Um daginn og veginn. Sigurður
Steinþórsson jarðfræðingur talar.
20.00 Litli barnatíminn • Loksins kom litli
bróðir eftir Guðjón Sveinssori. Höfundur
byrjar lestur sögu sinnar.
20.15 Óratorían Athalia eftir Georg Frierich
Hándel. Annar þáttur. Joan Sutherland,
Emma Kirkby, David Thomas, Aled Jones
og James Bowman syngja ásamt New
College kórnum i Oxford. Hljómsveitin
Academy of Ancient music leikur; Chri-
stopher Hogwood stjórnar.
21.00 Og þannig gerðist það. Umsjón: Inga
Rósa Þórðardóttir. (Frá Egilsstöðum.)
21.30 Útvarpssagan: Haust í Skírisskógi
eftir Þorstein frá Hamri. Höfundur les (6).
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan. Fréttaþáttur um erlend
málefni. (Endurtekinn frá sama degi.)
22.15 Veðurfregnir. Órð kvöldsins. Dagskrá
morgundagsins.
22.30 Samantekt um innviði þjóðkirkjunnar.
Siðari þáttur. Umsjón: Sigrún Björns-
dóttir. (Einnig utvarpað á miðvikudag kl.
15.03.)
23.10 Kvöldstund í dúr og moll með Knúti
R. Magnússyni.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Bergljót Har-
aldsdóttir. (Endurtekinn frá morgni.)
1.00. Veðurfregnir.
1.10 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
RÁS2
FM 90,1
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn i
Ijósið. Leifur Hauksson og Jón Ársæll
Þórðarson hefja daginn með hlustendum.
8.00 Morgunfréttir - Bibba í málhreinsun.
9.03 Morgunsyrpa. Eva Ásrún Alberts-
dóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Stóra
spuningin kl. 9.30, hvunndagshetjan kl.
9.50, neytendahorn kl. 10.03 og af-
mæliskveðjur kl. 10.30. Bibba í mál-
hreinsun kl. 10.55. (Endurtekinn úrmorg-
unútvarpi.) Þarfaþing með Jóhönnu Harð-
ardóttur ki. 11.03.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatiu með Gesti
Einari Jónassyni. (Frá Akureyri.)
14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir
kynnif allt það helsta sem er að gerast
í menningu, félagslífi og fjölmiðlum.
14.06 Milli mála Árni Magnússon leikur
nýju lögin. Stóra spurningin. Spurninga-
keppni vinnustaða, stjórnandi og dómari
Flosi Eiríksson kl. 15.03.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán
Jón Hafstein, Guðrún Gunnarsdóttir, Sig-
urður Þór Salvarsson, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson og Sigurður G. Tómasson. -
Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00. -
Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóöarsálin og málið. Ólína Þon/arð-
ardóttir fær þjóðarsálina til liðsinnis í
málrækt.
19.00 Kvöldfréttir
19.32 Blítt og létt... Gyða Dröfn Tryggva-
dóttir rabbar við sjómenn og leikur óska-
lög. (Einnig útvarpað kl. 3.00 næstu nótt
á nýrri vakt.)
20.30 Útvarp unga fólksins. Sigrún Sigurð-
ardóttir, Oddný Eir Ævarsdóttir, Jón Atli
■ Jónasson og Sigríður Arnardóttir.
21.30 Fræðsluvarp: Lyt og lær. Fjórði þátt-
urdönskukennslu á vegum Bréfaskólans.
(Einnig útvarpað nk. fimmtudagskvöld á
sama tíma.)
22.07 Bláar nótur. Pétur Grétarsson kynnir
djass og blús. (Úrvali útvarpað aðfara-
nótt laugardags að loknum fréttum kl.
5.00.)
00.10 i háttinn
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00,
15.00, 16.00, 17.00, 18.00/19.00,22.00
og 24.00.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Áfram (sland. Dægurlög flutt af
islenskum tónlistarmönnum.
2.00 Fréttir.
2.05 Eftiriætislögin. Svanhildur Jakobs-
dóttir spjallar við Magnús Þór Jónsson,
Megas, sem velur eftirlætislögin sin.
(Endurtekinn þáttur frá þriðjudegi á Rás
1.)
3.00 Blítt og létt... Endurtekinn sjómanna-
þáttur Gyðu Drafnar Tryggvadóttur frá
liðnu kvöldi.
4.00 Fréttir.
4.05 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi mánu-
dagsins.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Bjarni Sigtryggsson. (Endur-
tekinn þáttur f rá deginum áður á Rás 1.)
5.00 Fréttir af veöri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Lisa var það, heillin. Lisa Pálsdóttir
fjallar um konur i tónlist. (Endurtekið úr-
val frá miðvikudagskvöldi á Rás 2.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Á gallabuxum og gúmmískóm. Leikin
lög frá sjötta og sjöunda áratugnum.
NÆTURÚTVARPIÐ
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS
2
8.10-8.30 og 18.03-19.00Útvarp
Norðurland.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Páll Þorsteinsson með morgunþátt.
Fréttir og ýmsar upplýsingar fyrir hlust-
endur, í bland við tónlist. Fréttir kl. 8.00,
9.00 og 10.00.
10.00 Valdis Gunnarsdóttir. Bibba i heims-
reisu kl. 10.30. Fréttir kl. 10.00, 12.00
og 13.00 og 14.00.
14.00 Bjarni Olafur Guðmundsson. Gömlu
lögin, nýju lögin og allt þar á milli. Óska-
lög og afmæliskveðjur. Fréttir 16.00 og
18.Q0. Bibba í heimsreisu kl. 17.30.
18.00 Reykjavik síðdegis.
20.00 Þorsteinn Ásgeirsson. íþróttadeildin
kemur við sögu, talsmálsliðir og tónlist.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9
7.00 Morgunmenn taka á málefnum
liðandj.stundar. Fréttir og fréttatengt efni.
Fólk lítur inn. Tónlist. Umsjónarmenn:
Þorgeir Ástsvaldsson og Ásgeir Tómas-
son.
9.00 Margrét Hrafnsdóttir tekur fyrir ýmis
málefni sem henta í dagsins önn. Létt
tónlist.
12.00 Hádegisútvarp. Umsjónarmenn: Þor-
geir Ástvaldsson og Ásgeir Tómasson.
13.00 Jón Axel Ólafsson og Bjarni Dagur
Jónsson. Sveitatónlist og létt tónlist.
Umræður.
16.00 Fréttir með Eiríki Jónssyni.
18.00 Plötuskápurinn minn. islensk tónlist.
Umræðuþáttur um máléfni sem eru ofar-
lega á baugi.
19.00 Darri Ólason. Tónlist í bland við fróð-
leik.
22.00 „Undir fjögur augu. Hlustendur taka
virkan þátt. Umsjón: Bjarni Dagur Jóns-
son.
24.00 Dagskrárlok
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.10— 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Rás 1u
Innvidir
Þjóðkirkjunnar
UmmWM í kvöld heldur Sigrún Björnsdóttir áfram að fjalla um inn-
99 30 viði íslensku þjóðkirkjunnar. í fyrra þættinum var forvitn-
~~ ast um ytri starfshætti þjóðkirkjunnar. í þessum þætti
verður fjallað um innra starf kirkjunnar og hvað hún telur sig varða.
Með það að-markmiði var litið inn á nýliðið kirkjuþing og klerkar
teknir tali urn einstök mál er bar hátt á þinginu. Einnig var rætt
við biskup Íslands, sem jafnframt er forseti þingsins. I þættinum
verður rætt við Helga K. Hjálmarsson um starf leikmanna innan
kirkjunnar.
& Ármúla 29 simar 38640 - 686100
£ þorgrímsson & co
Armstrong LOFTAPLÖTUR
KORkOPLASST GÓLFFLÍSAR
Warmíplist einangrun
GLERULL STEINULL
GARUR
eftir Elínu Pálmadóttur
Nú er það svart,
maður!
Oskaplega getur myrkrið
verið svart! Það rann á
mánudagskvöldið upp fyrir
hálfri þjóðinni, þeirri sem býr í
ljósadýrðinni í þéttbýlinu á suð-
vesturhorninu. Hver man nú þá
tíð er rafmagnsleysi í vetrarveð-
rum var árviss viðburður og allir
höfðu við hendina kerti og jafnvel
hitunaráhald? Það er orðið langt
síðan. Nú standa menn eins og
glópar, sjónvarpið slokknað, út-
varpið þagnað, ljósið farið og þeir
sjá hvorki daginn
né veginn. Sem
undirrituð fálm-
aði sig að fata-
hengi á opin-
berum veislu-
stað, þreifaði sig
niður marga
stiga, ók gegn
um myrka borg-
ina og staulaðist
upp á áttundu
hæð, komst ein
hugsun að: Hve
myrkrið getur
verið kol, bika
svart á íslensku
hausti.
Inn á milli
birtist draumsýn.
Ef það hefðu nú
verið stjörnur á
himni og kannski
tindrandi norður-
ljós! Þá hefði nú
verið gaman,
myrkvunin nýst
til þess að upplifa þá dýrð, sem
maður fær aldrei lengur í þessu
skellibjarta rafljósaumhverfi. Þarf
raunar ekki rafmagnsbilun til að
svipta mann þeirri dýrðarskynjun.
Nútímamaðurinn hefur a.m.k. allt-
af bílljósin með sér, ef ekkúvill
betur, til að trufla áhrifin af
stjörnubjörtum himni. En svona
eru draumsýnir. Rafmagnið fer
víst ekki af í góðviðri og undir
heiðskírum himni.
En hvað gerir fólk nútímans
þegar allt í einu og óvænt ríkir
alger þögn og ekki ljósglæta neins
staðar? Stendur eins og þvara.
Veit ekkert hvað skal taka til
bragðs. í ofboðinu er bytjað að
leita að kertum. Og öll vandamál
má leysa. (Sbr. meðfylgjandi
mynd). Dagfinnur kollega Gáru-
höfundar sagði frá samtali við
konuna sína í myrkrinu. Spurði
sjálfan sig hvað fólk hefði eigin-
lega gert áður en rafmagnið kom
með öll þessi undratæki, sem gera
manni tilveruna svo undur létta.
Þarna kom eyða í frásögnina, þar
til næsta morgun er rafmagnið
var komið á nýjan leik og fór um
hann fagnaðarylur. En það sagði
hann ekki við konuna sína. Þegar
hér var komið lestrinum á blaðinu
læddist að lúmsk og vísast synd-
samleg hugsun, þýðing Auðuns
Braga á grúkku eftirlætiskálds
Gáruhöfundar, Piets Heins - sem
lesendum hefur um skeið verið
hlíft við. Vísan sú vildi endilega á
prent í penu blaði:
Er Guð vildi finna upp eitthvað sem eigi
var íþrótt né spil eða matur og drykkur,
en ljúfan heim þeirrar leikandi hvíldar,
er lætur sálina bráðna og hlýna,
hann skipti mannkyni í skvísur og peyja
og skóp þeim þann leik, sem bæði þreyja.
Ekki meira um það. Víkjum að
því sem framið er í myrkri — en
þó aðeins við rafmagn, kvikntynd-
unum. Á þessu hausti hefur verið
mikið veisluborð fyrir þá sem unna
góðri kvikmynd. Þá er ég ekki að
tala um kvikmyndahátíðina, þar
sem fólk kemur að veisluborðinu
og keppist við að bragða á sem
flestum réttum áður en veislan er
búin. Nei, veisluborðið sem hér er
vikið að, er standandi borðhald,
þeirrar náttúru að hægt er að
koma að því hvenær sem löngun
og tími gefast. Þar bíða þessar
frábæru myndir, sem búnar eru
að ganga í langan tíma. Þessi
nýja aðferð, að færa góða mynd
í lítinn sal eftir fyrstu aðsóknina
er mikill lúxus. Þá þarf hún ekki
að fara fram hjá vinnusjúklingum,
ferðalöngum eða öðrum með sér-
þarfir.
Fremst í þessurn flokki er vitan-
lega danska myndin Gestaboð
Babettu, sem hefur gengið í Regn-
boganum á tólfta mánuð og slegið
öll met. Þessa frábæru mynd hafa
séð ungir sem aldnir. I einhveijum
útvarpsþætti var bíóstjórinn
spurður hvers konar fólk sækti
hana og hann sagði eitthvað á þá
leið, að fyrst hefði unga fólkið
fiykkst á myndina, þá kom biand-
aður hópur og síðan eldri konur,
sem kaupa konfektpoka í ltléinu í
staðinn fyrir popkornið, og nú
væri aftur blandaður hópur.
Kannski þeir sem eru að sjá þessa
mynd um listakokkinn frá París
og smábæjarfólkið í Danmörku í
annað eða þriðja sinn. Henni ætti
enginn ^ð sleppa.
En þær eru fleiri ógleymanlegar
frá þessu hausti, sem enn ganga.
Pelle sigurvegari eftir sögu Ander-
sens Nexö, önnur dönsk mynd sem
fer sigurför um heiminn eftir að
hafa hlotið Óskarsverðlaun.
Kannski danskar myndir séu aftur
að koma og sigra heiminn?
Ógleymanlegar voru myndir Drý-
ers á sínum tíma og teljast til
sígiidra kvikntynda safnanna.
Ekki tjóar að nefna myndirnar
sem þegar eru hornar. En Björninn
eftir Bille August er hér enn á
borðum, frábær mynd fyrir alla
fjölskylduna um bjarnarungann
og stóra sterka björninn. Enginn
óhugnaður til að hræða börn. Því
hefur þessi kvikmyndastjóri, sem
iíka gerði Leitina að eldinum, haft
vit á. Ætli þessar háværu óhugn-
aðarmyndir með veltandi bílum og
eilífum barsmíðum séu ekki að
syngja sitt síðasta? Aðsóknin að
svona myndum kynni að gefa það
til kynna. Enda einhæfni látanna
ósköp leiðigjörn.
Og ekki má gleyma íslensku
myndinni Magnúsi eftir Þráin
Bertelsson, sem enn er á borðum
í Stjörnubíói. Hún hefur nú komist
í úrslit tii Evrópuverðlauna. Hér
er hún okkur íslendingum svo
fjarska nálæg — og hún hefur
þann kost að vera á ómengaðri
íslensku. í menningarannríki
haustmánaða ættu menn ekki að
láta hana hverfa óséða.