Morgunblaðið - 05.11.1989, Page 32
MORGVNBLADID. ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 6H1S11, POSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTIH5
SUNNUDAGUR 5. NÓVEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Bitinn í
andlitið
af hundi
HUNDUR beit mann í andlitið
upp úr miðnætti aðfaranótt laug-
ardags í Skeifunni í Reykjavík.
Maðurinn var fluttur í slysadeild,
þar serti hann gekkst undir að-
gerð í gærmorgun.
*
Igærpiorgun
var ekki ljóst
hvernig atvikið
bar að höndum.
Lögreglan náði
hundinum, og
kom honum í
'geymslu á Dýraspítalanum í Víði-
dal. Á Dýraspítalanum fengust þær
upplýsingar að þetta væri stór og
illúðlegur Coliie'-hundur og greini-
lega grimmur. Enginn hafði vitjað
hans um hádegið í gær.
Norðurlandaráð:
Þingið
haldið í Há-
skólabíói
ÞING Norðurlandaráðs, sem
haldið verður hér á landi 27. febr-
úar til 2. mars á næsta ári, fer
fram í Háskólabíói, að sögn Snjó-
laugar Olafsdóttur, framkvæmda-
stjóra íslandsdeildar Norðurland-
aráðs.
Sagði Snjólaug að nokkur hús
hefðu komið til greina sem fund-
arstaðir, þar á meðal Borgarleik-
húsið. í ljós hefði komið að mikill
verðmunur var á Borgarleikhúsi
annars vegar og Háskólabíói hins
vegar. Taldi hún eðlilegt að dýrara
væri að taka Borgarleikhúsið á leigu
þar sem leggja þyrfti niður fjölda
leiksýninga í húsinu til að rýma fyr-
ir Norðuriandaráðsþinginu.
Snjólaug sagði að auk aðalsalar
Háskólabíós yrðu fundir í tveimur
kvikmyndasölum sem verið er að
byggja við bíóið. Einnig yrðu fundar-
salir á Hótel Sögu.
Yerkfall í Boeing-verksmiðjunum:
Sex vikna töf á afgreiðslu
þriggja Flugleiðavéla
NÚ ÞEGAR er ljóst að afgreiðsla
á þremur flugvélum til Flugleiða
tefst um tæpar sex vikur vegna
verkfalls vélsmiða í Boeing-verk-
smiðjunum í Seattle í Banda-
ríkjunum. „Ennþá erum við
þokkalega settir en ef verkfallið
fer eitthvað yfir eina viku í viðbót
gæti það valdið okkur einliverjum
erfiðleikum,“ segir Leifur Magn-
Enginn íslending-
ur í fískifræðinámi
ENGINN Islendingur hefur lokið námi í almennri fiskifræði í
tæpan áratug og enginn mun vera í slíku námi nú. Síðast útskrif-
uðust þrír fiskifræðingar sneinma á þessum áratug og komu til
starfa hjá Hafrannsóknastofnun, en nokkrir líffræðingar hafa
komið til starfa þar síðan. Engu að síður er skortur á eiginlegum
fiskifræðingum farinn að há stofnuninni.
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, segir í
samtali við Morgunblaðið, að hjá
stofnuninni sé skarð fyrir skildi.
Hann viti að auki ekki um neinn,
sem sé í beinu fiskifræðinámi og
líkleg skýring sé sú, að undanfar-
in ár hafi sú stefna ríkt hjá stofn-
uninni, vegna takmarkaðs ráð-
stöfunarfjár, að ekki hafi verið
ráðið í nýjar stöður. Það virðist
hafa fælt menn frá námi og nú
sé staðan orðin sú, að. Hafrann-
sóknastofnun vanti til datmis sár-
lega sérfræðing í stofnmælingum
með bergmálsmælingum. Hins
vegar hafi komið nokkrir lífræð-
ingar til starfa hjá stofnuninni
undanfarin ár og sé það vissulega
gott, en eiginlega fiskifræðinga
vanti engu að síður. Það sé ein-
kennileg staða hjá þjóð, sem stæri
sig af því að véra meðal mestu
fiskveiðiþjóða heims og sé liáðari
fiskveiðum og rannsóknum á því
sviði en flestir, að enginn sjái sér
fært að mennta sig í þessum fræð-
um, Þetta sé vissulega slæm ný-
liðun, eins og það heiti á máli
fiskifræðinnar.
ússon, framkvæmdastjóri flug-
rekstrarsviðs Flugleiða.
Vélsmiðir,
sem sjá um
samsetningu
flugvélanna í
verksmiðjunum í
Seattle, hafa ver-
ið í verkfalli síðan 4. október. Að
sögn breska vikuritsins The Ec-
onomist hefur vinna fallið niður hjá
rúmum helmingi starfsmanna verk-
smiðjanna vegna verkfallsink, eða
57.000 manns. Á yfirstandandi árs-
fjórðungi átti Boeing að afhenda 93
flugvéiar. Þar af hefur tekist að
afgreiða 9 vélar sem voru nær full-
kláraðar þegar verkfallið hófst. Fyr-
irsjáanlegt er að afhending stöðvist
á næstunni vegna verkfallsins. „Af-
greiðsla á flugvélum til okkar tefst
jafn lengi og verkfallið stendur.
Reyndar var gefið í skyn við okkur
núna í vikunni að það verði við-
bótartöf vegna þess tíma sem það
tekur að koma verksmiðjunni aftu’.
í gang. Við gerum ráð fyrir að sá
tími verði um það bil ein vika,“ seg-
ir Leifur Magnússon.
Flugleiðir hafa pantað þijár flug-
vélar frá Boeing-verksmiðjunum,
tvær Boeing 757 og eina Boeing
737, sem afgreiða á í vetur. „Af-
greiðsla úr verksmiðju á fyrri Boeing
757-vélinni átti að vera í lok febrúar-
og hinum tveimur í kringum miðjan
mars. Um miðja næstu viku má
miða við að 6 vikna töf verði á af-
greiðslu vélánna. Eins og er hefur
þetta ekki stór áhrif á rekstur Flug-
leiða. Við þurfum ekki að afhenda
tvær DC-8-vélar, sem við erum bún-
ir að selja, fyrr en í lok maí. Við
eigum svo að skila Boeing 727-vél-
inni, sem við erum með á leigu, í
byijun maí,“ segir Leifur Magnús-
son.
Að sögn The Economist er mikil
harka hlaupin í vinnudeiluna hjá
Boeing. Frank Shrontz, forstjóri fyr-
irtækisins, bauð fyrir skömmu 4%
kauphækkun á næsta ári og 6% á
tímabilinu 1991-92. Vélsmiðir höfn-
uðu því og krefjast mun meiri hækk-
ana og að dregið verði úr yfirvinnu.
Tekið hefur verið á móti 750 nýjum
pöntunum á þessu ári og tekur rúm
fimm ár að framleiða svo margar
flugvélar.
Mikill munur á endur-
heimt eftir fjölskyldum
FYRSTU niðurstöður hafbeitar-
tilraunar, sem liófst árið 1987 í
Kollafirði, staðfesta að inikill
munur er milli fjölskyldna lax-
fiska livað varðar endurheimt úr
hafí. Þá benda niðurstöður einnig
til nninar á milli laxastofna í aflöll-
um og vaxtarhraða á seiðastigi,
og einnig í vaxtarhraða milli fjöl-
skyldna innan sömu stofna. Kom
jietta fram í erindi Jónasar Jónas-
sonar, fiskeldisft-æðings hjá Veiði-
málastoftiun, á ráðstefnu Líffi-æði-
félagsins um fiskeldi, sem lauk í
Norræna húsiiiu í gær.
Frá því tiiraunin hófst hafa í allt
um 300 fjölskyldur af ólíkum
stofnum laxfiska úr tvemur ár-
göngum verið teknar í eldi í Kolla-
firði. Jónas sagði, að þær niðurstöð-
ur tilraunarinnar sem þegar lægju
fyrir, bentu til þess að verulega sé
„hægt að auka vaxtarhraða á gpiða-
stigi með kynbótum, þar sem geysi-
legur breytileiki milli afkvæma feðr-
anna í tilrauninni hefði komð i ljós.
1 efindi Jónasar kom fram, að
mikill munur hefði komið í ljós milli
fjölskyldna í endurheimtarprósentu.
Mestar hefðu heimturnar verið um
4% úr einni íjölskyldu, en úr tveimur
fjölskyldum hefðu engar heimtur
orðið.