Morgunblaðið - 17.11.1989, Side 4

Morgunblaðið - 17.11.1989, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1989 * _____ Olafur Ragnar Grímsson á landsfundi Alþýðubandalagsins: Islenskt eignarhald ræð- ur ekki úrslitum í stóriðju ÓLAFUR Ragnar Grímsson Qár- málaráðherra og formaður Al- þýðubandalagsins sagði í setn- ingarræðu sinni á landsfundi flokksins í gær að nýta yrði ís- lenskar orkulindir og reisa orkufrek iðjuver. í því sambandi þyrfti islenskt eignarhald eitt og sér ekki að vera úrslitaatriði í samstarfi við erlend íyrirtæki ef Islendingar hefðu af því umtals- verðan hagnað, tryggt væri að íslensk lög giltu um fyrirtækin og að íslensk stjórnvöld hefðu áhrif á stefnumótun fyrirtækj- anna. Ólafur sagði í þessu sambandi að svissneska fyrirtækið Alusuisse hefði leikið íslendinga grátt í tvo áratugi. Margt benti til þess að fyrirtækið hafi aldrei í alvöru viljað ræða við íslendinga eða fyrirtækin sænsku og hollensku í Atlantal- hópnum um nýja áfanga í orkufrek- um iðnaði á íslandi. Því kæmi til greina að ríkisstjórn íslands beitti sér fyrir sérstökum viðræðum við álfyrirtækin frá Svíþjóð og Hol- landi. Landsfundur Alþýðubandalags- ins ber yfirskriftina: 2001 Nýir tímar - nýr grundvöllur. í setning- arræðu sinni fjallaði Ólafur Ragnar meðal annars um þær breytingar sem orðið hafa í Austur-Evrópu að undanförnu. Hann sagði í því sam- bandi að harðstjóm sú, sem sovéski herinn hefði komið þar á fót, hefði nú blessunarlega mnnið sitt skeið á enda. Hagkerfi hinnar stalínísku miðstýringar riði nú til falls. Síðán sagði Ólafur að fyrir ári hefði Alþýðubandalagið tekið þá ákvörðun að stöðva tortímingareim- reið fijálshyggjunnar í íslensku þjóðfélagi og ný landsstjórn hefði tekið við því erfiða verki að sauma saman sárin eftir fimm ára forræði Sjálfstæðisflokksins. Á þessu ári sagði Ólafur að tekist hefði að snúa þróuninni við og taldi upp ýmislegt máli sínu til stuðnings. Ólafur sagði að nú væri björgun- in senn á enda og skapa þyrfti nýjan grundvöll á öllum sviðum atvinnuvega og þjóðlífs. Það væri verkefni Alþýðubandalagsins að tryggja að á næstunni verði þessi gmndvöllur lagður. Ólafur ræddi stefnumótum flokksins og sagði að rök fortíðarinnar tilheyrðu fortíð- inni. Ekki mætti torvelda umbóta- starfið með viðbrögðum sem sprott- in væm af sárindum eða vinnu- brögðum sem ættu við aðra tíma í sögunni en nú væm, og aðra gerð af stjómmálasamtökum en Alþýðu- bandalagið hefði ásett sér að vera. Tvær stjórnmálaályktanir Drög að tveimur stjórnmálaá- lyktunum liggja fyrir landsfundi Álþýðubandalagsins. Önnur drögin hefur stjórn flokksins lagt fram. Þar er m.a. lagt til að að veiðirétt- ur verði í formi kvótaleigu og ókeypis veiðiréttur verði afskrifaður á nokkrum árum. Þá er lagt er til VEÐURHORFUR íDAG, 17. NÓVEMBER. YFIRLIT í GÆR: Austan eða suðaustan gola eða kaldi á landinu. Snjókoma eða rigning á Norðurlandi, súld eða rigning austan- og norðaustanlands en skýjað og þurrt í öðrum landshlutum. SPÁ: Haegviðri eða austangola. Slydduél á Suður- og Vesturlandi og sumstaðar norðanlands en léttir til austantil. Hiti nálægt frost- marki. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Norðaustanátt og vægt frost um nær allt land. Él víða við strendur landsins, sízt þó vestanlands. HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg breytileg átt og bjart veður víðast hvar. Þó líklega vestan strekkingur við norðurströndina siödegis. Nokkurt frost inn til landsins en hiti nálægt frostmarki við sjóinn. TÁKN: Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað / Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / •|0 Hitastig: 10 gráður á Celsius V * V Skúrir Éi — Þoka = Þokumóða * / * / * / # Slydda / * / * # * * * * * Snjókoma * * * ’, ’ Súld OO Mistur —[- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hKi veður Akureyri 0 snjókoma Reykjavík 1 skýjað Bergen 8 hálfskýjað Helsinki 1 léttskýjað Kaupmannah. 4 léttskýjað Narssarssuaq +7 skýjað Nuuk +4 léttskýjað Osló 2 léttskýjað Stokkhólmur 3 léttskýjað Þórshöfn 8 alskýjað Algarve 20 léttskýjað Amsterdam 7 heiðskirt Barcelona 13 þrumuveður Berlín 6 léttskýjað Chicago +2 snjóél Feneyjar 13 heiöskírt Frankfurt 7 léttskýjaö Glasgow 10 léttskýjað Hamborg 6 léttskýjað Las Palmas 21 skýjað London 10 léttskýjað Los Angeles 16 léttskýjað Lúxemborg 6 léttskýjað Madríd 14 alskýjað Malaga 19 léttskýjað Mallorca 20 þokumóða Montreal 17 skýjað New York 17 skúr á s. kl. Orlando 21 þrumuveður París 8 heiðskírt Róm 14 þokumóða Vin 6 skýjað Washington 17 þrumuveður Winnipeg ^•21 léttskýjað Morgunblaðið/Bjarni Ólafur Ragnar Grímsson flytur setningarræðu sína á iandsfiindi. að svæðaskipulag verði tekið upp í landbúnaði. Hin drögin hafa Ragnar Stefáns- son, Páll Halldórsson , Guðmundur Hallvarðsson og Sveinn Rúnar Hauksson, áður félagar í Fylking- unni, lagt fram og koma þar fram gerólík viðhorf. Meðal annars er sérstakur kafli um ríkisstjórnar- þátttöku Alþýðubandalagsins. Þar segir að ríkisstjórnin hafi verið byggð á þeim grunni að verkalýðs- hreyfingin var svipt samningsrétti, nokkuð sem flestir Alþýðubanda- lagsmenn töldu algerlega óþolandi. Og í stjóminni hafi ráðherrar flokksins staðið í stríði við nánast alla verkalýðshreyfinguna. Evrópuráðið: Skýrsla utan- ríkisráðherra um EB/EFTA JÓN Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra lagði í gær fram skýrslu og flutti yfirlitsræðu uin viðræður EFTA og EB á fiindi utanríkisráðherra aðildarríkja Evrópuráðsins í Strasbourg, en utanríkisráðherra er formaður ráðheiranefiidar EFTA. Jón Baldvin sagði m.a. í ræðu sinni að mikilvægur árangur hefði náðst í þeirri þróun að skapa evrópskt efna- hagssvæði sem næði til þeirra átján ríkja sem eru í EFTA og EB. Þá gerði hann grein fyrir þeim niðurstöðum sameiginlegrar stjóm- arnefndar EFTA og EB, að svo virt- ist sem málsaðilum hefði tekist að skilgreina innihald og form hugsan- legt samkomulags. Ennfremur að undantekningar með tilliti til mikil- vægra hagsmuna einstakra þjóða yrðu viðfangsefni samninga. Utanríkisráðherra ræddi einnig þá áherslu sem EFTA-ríkin leggja á þátttöku í allri mótun og töku ákvarðana um lagaleg og stofnana- leg atriði. Ennfremur að innri mátt- arviðir EFTA yrðu styrktir. Deilt um lóðaút- hlutun til Snorra Ekki algengt að gatnagerðargjöld séu greidd eftir að framkvæmdir hefjast G ATN AGERÐ ARG J ÖLD vegna lóðar Snorra hf. við Lágmúla í Reykjavík voru greidd í gær, en framkvæmdir þar hófust fyrir nokkru. Alfreð Þorsteinsson, varaborgarfulltrúi Framsóknar- flokksins, vakti máls á þessu í borgarstjórn í gær og taldi þessa málsmeðferð óeðlilega. Jón G. Tomasson, borgarritari, sagði það ekki algengt að gefið væri leyfi fyrir byrjunarframkvæmdum áð- ur en gatnagerðargjöld hefðu að fiillu verið greidd en slíkt væri þó ekkert einsdæmi. Alfreð Þorsteinsson, varaborgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, lagði fram fyrirspurn á fundi borgarráðs á þriðjudaginn, þar sem hann spurði hvort borgaryfirvöld ætluðu að aftur- kalla úthlutun lóðar fyrir verslunar- og skrifstofuhúsnæði við Lágmúla 6 til 8 í Reykjavík. Eitt fyrirtækjanna sem þar fengu úthlutað var innflutn- ingsfyrirtækið Snorri hf., sem er í eigu Júlíusar Hafstein, borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins. Alfreð taldi forsendur úthlutunar til Snorra hf. brostnar, þar sem Júlíus hefði selt rekstur fyrirtækisins fyrir nokkru og ásakaði hann um lóða- brask. Júlíus vísar ásökunum um lóðabrask á bug Á fundi borgarstjórnar í gær sagði Júlíus Hafstein að fyrirspurn Alfreðs einkenndist af illgirni og meinfýsi í sinn garð. Hann kynnti síðan svar sitt við fyrirspurn Jóns G. Tómasson- ar, borgarritara, um byggingaráform Snorra hf. og kom þar fram, að lóð- inni að Lágmúla 8 hefði verið úthlut- að til fyrirtækisins og Ólafs H. Jóns- sonar hf. sameiginlega árið 1985, framkvæmdir hefðu hafist í haust og ætti verktaki að skila húsinu fok- heldu í mars næstkomandi. Eftir þar tækju eignaraðilarnir hvor við sínum hluta hússins og tækju þá akvörðun um áframhald verksins. Vegna sölu ákveðinna rekstrarþátta hefðu um- svif Snorra hf. verið minni að undan- förnu en áður. Það væri þó einungis tímabundið ástand; unnið hefði verið að því að afla nýrra viðskiptasam- banda og áæltlað væri að auka um- svifin eftir að fyrirtækið flytti í nýja húsnæðið í Lágmúlanum. Júlíus lagði áherslu á það í máli sinu, að engar athugasemdir hefðu komið fram vegna úthlutunar lóðar- innar á sínum tíma, sagði að öll sam- -skipti við borgaryfirvöld vegna máls- ins hefðu verið góð og vfsaði á bug ásökunum um lóðabrask. Framkvæmdir hófiist áður en gjöld voru greidd Alfreð Þorsteinsson sagði að ekk- ert nýtt hefði komið fram í máli Jú- líusar og ítrekaði þá skoðun sína, að honum bæri að skila lóðinni. Hann sagði enn fremur, að komið hefði í ljós, að framkvæmdir hefðu hafist áður en gatnagerðargjöld og bygg- ingarleyfisgjöld hefðu verið greidd, en slíkt væri óheimilt. Gatnagerðar- gjöldin hefðu ekki verið greidd fyrr en í gærmorgun. Sagðist hann ætla að fara fram á að borgarendurskoð- andi skæri úr um hvort sú málsmeð- ferð væri eðlileg. Jón G. Tómasson, borgarritari, tók til máls vegna þessa atriðis og sagði, að byggingarfulltrúi borgarinnar hefði gefið leyfi til að hefja byijunar- framkvæmdir þótt þessi gjöld hefðu ekki verið greidd. Slíkt væri ekki algengt en þó ekkert einsdæmi og væri til úrskurður félagsmálaráðu- neytisins um að slík málsmeðferð væri heimil. Borgarritari sagði að málið yrði aftur tekið til umræðu á fundi borgarráðs næstkomandi þriðjudag. Slys í Hafiiaríjarðarhöfn: Tildrög ókunn KONAN, sem fannst drukknuð í Hafnarfjarðarhöfn i fyrrakvöld, var um þritugt og frá Grænl- andi. Að sögn rannsóknarlög- reglu hafði hún verið látin í nokkrar klukkustundir þegar hún fannst en ekki var ljóst seint í gær hvernig dauða hennar hafði borið að höndum. Konan var veðurteppt hér á leið sinni frá Danmörku til Grænlands og hafði, ásamt fleirum sem líkt var komið á með, verið gestkom- andi um borð.í grænlenskum togara í Hafnarfjarðarhöfn. Rannsoknar- lögregla ríkisins yfirheyrði í gær þá sem talið var að gætu varpað ljósi á málið en ekki var enn vitað hvernig slysið hafði atvikast síðast þegar innt var frétta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.