Morgunblaðið - 17.11.1989, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 17.11.1989, Qupperneq 31
MORGUHBLAÐIU FÖSTUDAGUR 17. N0VEMBER .1986 ' 31. Slippstöðin hf.: Viðræður um sölu ný- smíðaskipsins í gangi VIÐRÆÐUR hafa verið í gangi við ákveðinn aðila um kaup hans á nýsmiðaskipi Slippstöðvarinnar hf. Það ræðst væntanlega í næstu viku hvort af kaupunum verður. Stærsta verkefni stöðvarinnar er við strand- ferðaskipið Heklu, en þau verkefni sem nú er unnið að og eru væntan- leg eru fyrst og fremst á sviði trésmíða. Nú bíða Slippstöðvarmenn eftir að ákvörðun verði tekin um hvar gera eigi við hafrannsóknarskip- ið Árna Friðriksson, en tilboð í verkið voru opnuð fyrr í þessum mánuði. Ákvörðun verður líklega tekin um helgina, en lægsta tilboðið kom frá Póllandi. Sigurður Ringsted forstjóri Slipp- stöðvarinnar sagði að eftir að samn- ingur sá sem gerður hafði verið við útgerðarfyrirtækið Þór hf. á Eski- firði um kaup á skipinu brast hafi viðræður við þennan aðila verið teknar upp að nýju. Þessi aðili hafi sýnt skipinu áhuga, en viðræður dottið niður eftir að samningar tók- ust við Þór hf. á Eskifirði um kaup- in í júlí síðastliðnum. „Þetta er einn þeirra aðila sem sýndi skipinu áhuga á sínum tíma og hann vaknaði aftur til lífsins eft- ir að ljóst varð að skipið færi ekki austur á Eskifjörð," sagði Sigurð- ur.„Við höfum verið í viðræðum við þennan aðila um kaup á skipinu og ég reikna með að málið skýrist í næstu viku.“ Þau verkefni sem unnið er að hjá Slippstöðinni mæða mest á trésmið- um og verða fimm til sex smiðir ráðnir að stöðinni á meðan unnið er við þessi verk. Stærsta verkefnið er við Hekluna, en einnig er verið að skipta um stýrishús í Otri frá Dalvík og íbúðarbreytingar í skipinu. Þá er unnið að viðgerðum á Nökkva frá Blönduósi, en hann varð fyrir ísskemmdum og Skinney frá Homa- firði er væntanleg á næstunni. Breyta á íbúðum skipsins. Sigurður sagði að verkefni vant- aði fyrir jámiðnaðarmenn. „Það myndi bjarga okkur, ef við fengjum verkið við Arna Friðriksson," sagði Sigurður. Alls bámst 16 tilboð í verkið, lægsta boðið kom frá Pól- landi, 43 milljónir, næstlægsta frá Englandi, 43 milljónir, og þá komu svipuð tilboð frá þremur íslenskum stöðvum sem vom í kringum 57 milljónir króna. Þessi tilboð vom frá Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Ákranesi, Slippstöðinni og Vél- smiðjunni Stál og Vélsmiðju Seyðis- fjarðar, sem buðu sameiginlega. Vignir Thoroddsen hjá Hafrann- sóknarstofnun sagði að ekki væri búið að ákveða hvaða tilboði yrði tekið, en ákvörðun þar um yrði að líkindum tekin um helgina. Um umfangsmiklar breytingar á skipinu er að ræða, spilbúnaður þess er ónýt- ur og þarf því að skipta um hann, þá er ætlunin að byggja rannsókriar- stofu ofan á skipið aftan til og út- búa aðstöðu fyrir starfsfólk og einn- ig þarf að endurbyggja vélina. Reiknað er með að byijað verði á verkinu í janúar og það taki um fjóra mánuði. Morgunblaðið/Rúnar Þór Frá vinstri á myndinni eru Brandur Hermannsson yfirtæknifræðing- ur, Alexander Pálsson umdæmistæknifræðingur, Bergþór Halldórs- son yfirverkfræðingur, Hilmar Ragnarsson yfirverkfræðingur, Ár- sæll Magnússon umdæmisstjóri og sitjandi er Gísli J. Eyland stöðvar- stjóri. Póstur og sími: Tvær nýjar stafrænar sím- stöðvar teknar í notkun TVÆR nýjar stafrænar símstöðv- ar hafa verið teknar í notkun, annars vegar á Akureyri og hins vegar fyrsta útstöðin sem er á Dalvík. Stöðvarnar voru tengdar aðfaranótt fimmtudags. Á Akureyri var tekin í notkun ný stafræn símstöð sem annast mun sjálfyirka langlínuumferð á 96- svæðinu og er auk þess móðurstöð Pólarpels á Dalvík: Annað tilboð í reksturinn FÓÐURSTÖÐIN á Dalvík á mikilla hagsmuna að gæta varðandi áfram- haldandi rekstur loðdýrabús að Böggvisstöðum, en um 30% af allri fóðursölu fyrirtækisins hafa farið þangað. Fjölmargir hafa setti sig í samband við bústjóra þrotabúsins og lýst yfir eftirsjá verði dýrastofh- inn skorin niður. Tilboði í rekstur búsis, sem hljóðaði upp á 15,2 millj- ónir króna, var hafiiað af kröfúhöfúm á skiptafúndi í fyrradag, en þeir aðilar sem áhuga hafa á rekstrinum áttu fúndu með bústjóra í gær. Talið var líklegt að þessir aðilar skiluðu inn öðru tilboði jafúvel í dag. Ámi Pálsson bústjóri þrotabúsins sagði að menn hvaðanæva af landinu hefðu haft samband við sig og lýst yfir að mikil eftirsjá væri að dýmn- um ef þeim verður slátrað. I gær vom seld 200 dýr úr búinu, en þar em alls um 25 þúsund minkar. Samningur hefur verið gerður við aðila í Skagafirði um verkun á skinn- um og sagði Árni að hann hefði verið gerður, svo ekki hefði þurft að bæta við starfsfólki við búið. Símon Ellertsson framkvæmda- stjóri Fóðurstöðvarinnar sagði að stöðin ætti mikilla hagsmuna að gæta, að rekstur búsins yrði tryggð- ur áfram. Um 30% af allri fóðursölu fyrirtækisins hefur verið til Pólarp- els. „Þama er einn besti dýrastofn á landinu og ég tel það ákaflega mikla skammsýni ef dýrin verða drepin. Eg held að menn verði að taka höndum saman og tryggja að þama verði áframhald á rekstrin- um,“ sagði Símon, en bætti við að tíminn væri að hlaupa frá þeim sem hagsmuna ættu að gæta varðandi það að þarna verði rekið loðdýrabú. fyrir útstöðvar í Eyjafirði. Um leið var tekin í notkun fyrsta útstöðin, sem er á Dalvík og nær hún yfir Dalvíkursvæðið, yfir Svarfaðardal, Árskógshrepp og Hrísey. Símnot- endur á Dalvík hafa notið þjónustu stafræna símkerfisins í nær ellefu mánuði, er fékkst með tengingu símstöðvarinnar sem er í flytjanlegu húsi, svokölluðum „Flakkara," en hann verður nú fluttur að Blöndu- ósi. Með tengingu móðurstöðvarinn- ar á Akureyri býðst ný símaþjón- ustu fyrir þá notendur sem bætast við og tengjast stafrænu stöðinni. Alls bjóðast tólf þjónustuþættir í sérþjónustu stafræna símakerfisins og má þar m.a. nefna að unnt er að stytta löng símanúmer, t.d. til útlanda, eða símanúmer sem oft er hringt í, þá er hægt að láta símtal bíða meðan rætt er við annan við- mælanda og einnig er hægt að láta flytja símtal frá einum síma í ann- an. Þá geta símnotendur einnig gerst áskrifendur að svokölluðu þriggja manna tali, en í því felst að unnt er að koma á símtali fyrir þijá símnotendur, auk þess sem hægt er að tala við tvo viðmælend- ur til skiptis. Tenging móðurstöðvarinnar á Akureyri leiðir til bættrar þjónustu fyrir símnotendur í bænum og á 96-svæðinu, bæði hvað varðar hrað- ari afgreiðslu og minni vandræði á álagstímum. íisMéíc Dansleikur laugardagskvöld Hljómsveitin Kvartett leikurfyrirdansi til kl. 03. Kristjón Guðmundsson leikur fyrir matargesti. Hótel KEA Nýr ACCORD 1990. Stíl- hreint, svipsterkt og klass- ískt útlitið segir ekki allt. Stórfelldar breytingar eru á bílnum frá fyrri árgerð- um. Má þar fyrst nefna 100% aluminium vél, (feyknalega) kraftmikil, 16-ventla og með tvöfalda jafnvægisása á sveifarás, sparneytin og umfram allt hljóðlát. Frábærir aksturseiginleikar sem eiga sér fáar hliðstæð- ur eru framkallaðir með endurbótum á fjörðun, sjálfstæðri fyrir hvert hjól, sem eykur rásfestu og öryggi í akstri. ACCORD 1990 er stærri, rýmri og vandaðri en áður. Aukin þægindi, meiri hljóðeinangrun, vandaður Honda frágangur og rúm- góður bíll fyrir 5 fullorðna, gerir aksturinn og tilveruna að samfelldri ánægjustund. Honda Accord 1990, glæsi- bifreið á hagstæðu verði sem sannarlega er vert að kynna sér. Sýníng laugardag og sunnu- dag. Honda á Islandi, Vatna- görðum 24, sími 689900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.