Morgunblaðið - 17.11.1989, Qupperneq 38
88
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 19:89
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Sigrún Emilsdóttir, eða Silla Delevante eins og hún kallar sig, í vaxtarrætarkeppninni í Sun Coast í
St. Petersburg í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári, en hún sigraði með glæsibrag í keppninni og þykir
skjótur árangur hennar einkar athyglisverður.
VAXTARRÆKT
Islensk kona
UPPGJÖR
Jannicke o g Björn
skiptast á fukyrðum
Jannicke skemmtir sér.
Nú ijalla biöð á Norðurlöndum
mikið um rifrildi þeirra fyrrum
hjóna Jannicke Björling og Björns
Borgs. Stendur styrinn um soninn
Robin, sem búið hefur hjá föður
sínum og hinni nýju konu þans
ítölsku poppstjörnunni Loredana.
Er Jannicke bæði sár og reið, seg-
ist ekki bera ábyrgð á skilnaði
þeirra og Björn hafi passað gaum-
gæfilega upp á að hún fengi ekki
að hitta Robin litla. „Ég veit ekki
einu sinni hvar hann er niðurkom-
inn, hvað þá meira,“ er haft eftir
Jannicke, sem hefur leitað til dóm-
stóla til þess að fá að minnsta kos-
tið hálft forræðið. Hefur málið snú-
ist að miklu leyti upp í persónulegt
skítkast þeirra Jannicke og Björns
um hvort þeirra hafi verið afleitara
í sambúð og sem foreldri.
Jannicke hefur dembt ýmsu á
Björn í blaðaviðtölum síðustu vik-
urnar, greint skiimerkilega frá
meintri kókaínneyslu, framhjáhaldi
og fleiru. Lengst af hefur Björn
ekki viljað of hátt um málið, en
þykir nú mælirinn vera fullur. Hann
svarar fullum hálsi og segir ástæð-
una fyrir slitum þeirra hjóna vera,
að Jannicke hefði verið of villt og
fíkin í næturlífið til þess að geta
talist góð móðir eða eiginkona.
Nótt eftir nótt, viku eftir viku og
mánuð eftir mánuð hafi hún ekki
sést heilu næturnar heima hjá sér
og guð einn vitað hvað hún væri
að bardúsa allan þann tíma. Og
Björn neitar ekki að kókaíns hafi
hann neytt stöku sinnum. En
Jannicke hefði ekki verið eftirbátur
sinn í því, þvert á móti. Jannicke
sé einfaidlega óhæf til að annast
barnauppeldi og mætti ekki fá að
hafa samskipti við son þeirra. Lo-
redana hafi þegar gengið barninu
í móðurstað og væri það vel metið,
enda þekkti Robin vart Jannicke
sem móður sína.
vekur athygli
Islensk kona, Sigrún Emiisdóttir
úr Keflavík, hefur náð athyglis-
verðum árangri í vaxtarrækt í
Bandaríkjunum. Silla Delevante
eins og Sigrún kallar sig vestra
sigraði í fyrstu vaxtarræktarkeppn-
inni sem hún tók þátt í, og í næstu
keppni varð hún í öðru sæti. Silla
hefur aðeins stundað vaxtarrækt í
tæp þijú ár og þykir árangur henn-
ar einkar athyglisverður fyrir þær
sakir.
Silla er nú stödd í Keflavík, þar
sem hún ætlar að leiðbeina við-
skiptavinum sólbaðs- og þrekmið-
stöðvarinnar Perlunnar í Keflavík
næsta hálfa mánuðinn, en þess á
milli æfir hún af kappi fyrir næstu
keppni í Bandaríkjunum.
Silla hefur verið búsett í Banda-
ríkjunum í 19 ár og býr nú í Or-
lando ásamt spænskættuðum eigin-
manni sínum. Hún sagðist hafa
byijað á að fara í leikfimitíma fyrir
liðlega þremur árum og síðan hefði
hvað leitt af öðru hjá sér og nú
væri svo komið að hún æfði í fjóra
Silla og Björk Olsen leiðbeinandi
í sólbaðs- og þrekmiðstöðinni
Perlunni í Keflavík.
tíma á dag og væri auk þess farin
að leiðbeina í þrekmiðstöðinni þar
sem ævintýrið hófst. Fyrsta keppni
Sillu var í St. Petersburg í Flórída
sem hét Sun Coast og fór fram í
COSPER
—Kærastan mín var fyrirsæta, en hún helúr nú slitið
trúlofunnini.
vestra
febrúar og þar sigraði hún glæsi-
lega. Næst keppti hún í Genswille
og varð þar í öðru sæti, en nú undir-
býr hún -sig til að veija titilinn í
Sun Coast-keppninni sem fer fram
í febrúar á næsta ári. BB
Hópurinn sem var í rútunni þegar slysið varð. Morgunblaðið/Frímann ólfasson
UMFERÐ ARSLY S
Hressir skólakrakkar þrátt
fyrir bílveltu
Ifréttum nýverið var sagt frá umferðarslysi þar sem farþegabifreið og fiskflutningabifreið rákust saman. í
farþegabifreiðinni voru skólakrakkar á heimleið til Grindavíkur og það fylgdi í frettinni að enginn skóla-
krakkanna hefði slasast alvarlega og fengið að fara heim að lokinni læknisskoðun.
Tíðindamanni í Grindavík lék forvitni á að vita hver eftirmáli slyssins hefði orðið og hitti krakkana þar sem
þau voru að koma úr skólanum skömmu eftir slysið.
Það var svo sem enginn eftirmáli sögðu þau. „Við fórum heim í annarri rútu eftir að búið var að kanna meiðsl
á fólki,“ sögðu þau. Ekkert þeirra þurfti að vera eftir á sjúkrahúsinu en þegar heim kom, sagðist ein stúlkan
hafa rotast en hún hefði gleymt að geta þess og önnur sagðist hafa verið svo stirð daginn eftir að hún gát
varla hreyft sig. Drengur skarst á úlnlið og var gert að sárum hans á sjúkrahúsinu. Aðrir sluppu án teljandi meiðsla.
-Voruð þið ekki h'rædd?
„Jú, en ekki strax, ekki fyrr en við áttuðum okkur á hvað hefði gerst,“ sögðu þau. Þau tóku fram að
bílstjórinn hefði brugðið fljótt við og látið alla fara út um bílstjóradyrnar þar sem bifreiðin hafði lent á þeirri hlið
sem farþegadyrnar voru á. Þau viðurkenndu að þau fengju smá hnút í magann þegar þau ækju framhjá slys-
staðnum. FO
/ ■- / T • .
Björn og Loredana.