Morgunblaðið - 06.12.1989, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 06.12.1989, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Athyglin beinist að Evrópu Niðurstaða Möltu-fundar þeirra George Bush Bandaríkjaforseta og Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta mark- ar engin þáttaskil. Hún endur- speglar aðeins viðbrögð við hin- um miklu breytingum sem eru að verða í Evrópu, eftir að al- menningi í kommúnistaríkjun- um varð ljóst, að hann lenti ekki í átökum við sovéska skrið- dreka, ef hann gagnrýndi for- kastanlega stjórnarhætti eigin lands. Fyrir fundinn lýsti Bush yfir því að hann myndi ekki ræða innri málefni Evrópu á fundin- um með Gorbatsjov. Umræður þeirra snerust um fækkun lang- drægra eldflauga og gera menn sér vonir um að unnt verði að rita undir samning um helm- ingsfækkun þeirra, þegar for- setarnir hittast í Bandaríkjun- um næsta sumar. Þá segjast Bandaríkjamenn fúsir til að veita Sovétmönnum bestu við- skiptakjör, ef frelsi til ferðalaga verður aukið í Sovétríkjunum. Að því er stefnt að Sovétmenn gerist aukaaðilar að GATT- samkomulaginu um frelsi í við- skiptum. Síðast en ekki síst kom í ljós á fundinum, að forsetarnir ræddust við af hreinskilni og áttu skap saman. Skiptir það ekki minnstu máli, þegar litið er til framtíðarinnar. Eftir fundinn hitti Bush leið- toga aðildarríkja Atlantshafs- bandalagsins (NATO) í Brussel og Gorbatsjov ræddi við for- ystumenn Varsjárbandalags- ríkjanna í Moskvu. Annars veg- ar lýsti Bush yfir því, að brott- för Bandaríkjahers frá Evrópu væri undir íbúum ríkjanna þar komin. Hins vegar samþykkti Gorbatsjov yfirlýsingu, þar sem innrás heija Varsjárbandalags- ríkja undir forystu Sovétmanna inn í Tékkóslóvakíu 1968 er lýst „tilefnislaus". Á fundi NATO voru leið- togarnir sammála um, að þessa öfluga varnarbandalags lýðræð- isþjóðanna væri áfram þörf. Kvað Margaret Thatcher, for- sætisráðherra Breta, fastast að orði um það og sagði meðal annars, að bíða ætti í 10 til 15 ár til að átta sig á lýðræðis- þróuninni í Austur-Evrópu- ríkjunum áður en skref yrðu stigin til að raska núverandi skipan vestrænna varna. í ræðu sinni á fundinum í Brussel vitn- aði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í ræðu Thatch- er og tók undir með henni, að NATO hefði varðveitt friðinn og yrði að viðhaldá styrk sínum. Á hinn bóginn ætti bandalagið að laga sig að breyttum tímum og grípa frumkvæði samhliða því sem það legði rækt við tryggt og öruggt eftirlitskerfi. George Bush telur að ekki eigi að hrófla við NATO en hann lítur á Evrópubandalagið (EB) sem vaxtarbrodd lýðræðis- þjóðanna í Evrópu. Hann hvatti til þess að samruna innan þess yrði hraðað og ríkin þar mynd- uðu einskonar segul fyrir ríkin austantjalds og þoki þeim sem hraðast í átt til lýðræðis og efnahagslegs frelsis. Falla þessi sjónarmið vel að skoðunum Frakka og Þjóðveija en undir forystu Margaret Thatcher fer breska stjórnin sér hægt á þessu sviði. Um leið og forseti Banda- ríkjanna hvetur bandamenn sína til nánara samstarfs stend- ur forseti Sovétríkjanna frammi fyrir upplausn innan fylgiríkja sinna. Hann viðurkennir villu forvera sinna í von um að það dragi úr spennu innan Tékkó- slóvakíu. Er ekki að efa að þessi viðurkenning á eftir að hvetja fólk til enn frekari andstöðu við stjórnvöld í kommúnistalöndun- um. Afvopnun á höfunum Fulltrúar íslands á fundinum í Brussel minntu enn á það stefnumið íslenskra stjórnvalda, að sem fyrst verði hafist handa við að ræða um afvopnun á höfunum. Þeir tóku þannig und- ir sjónarmið Gorbatsjovs en Bandaríkjamenn vilja ræða um önnur afvopnunarmál áður en kemur að höfunum og leggja áherslu á ólíka aðstöðu sína og Sovétmanna að þessu leyti. Þegar þessi mál eru rædd er nauðsynlegt að hafa í huga, að fæst bendir til þess að mikil- vægi íslands minnki í hernaðar- legu tilliti, þrátt fyrir afvopnun hvort heldur á landi eða höfun- um. Þvert á móti má auðveld- lega rökstyðja þá skoðun, að eftirlit frá Islandi verði enn mikilvægara en áður. Er nauð- synlegt að menn taki til við að líta á þessi mál í réttu ljósi en gefi ekki rangar hugmyndir með því að tala um afvopnun á höfunum. Að henni kemur þeg- ar samið hefur verið um vopn á landi. Vextir af húsnæðislánum hækka um einn hundraðshluta: Þrengt að þeim sem minnst mega sín - segir Björn Þórhallsson fiilltrúi launþega í húsnæðismálastjórn VEXTIR á almennum húsnæðislánum hækka frá og með deginum í dag, 6. desember, um einn hundraðshluta, samkvæmt firétt frá Hús- næðisstofnun ríkisins. Vextir sem til þessa hafa verið 3,5% verða 4,5% og vextir sem hafa verið 1% verða 2%. Þetta á eingöngu við um lán, sem koma til útborgunar frá og með deginum í dag. Lán vegna greiðsluerfiðieika munu bera sömu vexti og áður, 3,5%. Björn Þór- hallsson fúlltrúi launþega í húsnæðismálastjórn segir með þessu vera þrengt að þeim sem þrengst eiga í búi fyrir í þjóðfélaginu á sama tíma og ríkissjóður þenjist út. Björn var í hópi þeirra stjórnarmanna sem fyrir nokkrum vikum felldu tillögu um vaxtahækkun í húsnæðismála- stjórn. Ríkisstjómin hefur um nokkurt skeið haft á borði sínu tillögu um að hækka vextina af húsnæðislán- unum. Húsnæðismálastjórn lagði til við félagsmálaráðherra að vextir yrðu óbreyttir, Seðlabanki lagði hins vegar til hækkun. Ákvörðun var tekin í gær. „Skoðun mín hefur nú komið áður fram,“ segir Björn Þórhalls- son. „Eg er á móti þessari hækkun. Þegar allt þjóðfélagið stynur undan fjármagnskostnaði virðist ráð valdamanna vera að hækka vextina á þeim sem ef til vill eiga einna bágast með að borga. Ef svona á að stýra þjóðfélaginu hljóta menn auðvitað að fara að velta fyrir sér fyrir hveija er stjórnað. Þrengt er að þeim sem þrengst eiga í búi fyr- ir, en bumban á ríkissjóðnum þenst út, þar er engum hlíft. Hækkun um einn hundraðshluta af almennum lánum er nógu þungt áfall, þó ekki séu tvöfaldaðir vextir hjá þeim sem einna bágast eiga. Ég vona að al- menningur svari þessu með viðeig- andi hætti, með atkvæði sínu.“ Hin nýja vaxtatafla fyrir lán úr Byggingarsjóði ríkisins er sem hér segir. Lán til nýbygginga, kaupa á not- uðum íbúðum, til byggingar leiguí- búða eða heimila fyrir aldraða og dagvistarstofnana fyrir börn eða aldraða, lán til meiriháttar endur- bóta og endumýjunar á notuðu húsnæði, til orkusparandi breyt- inga, til almennra kaupleiguíbúða og til sérhannaðra íbúða fyrir 60 ára og eldri munu öll bera 4,5% vexti. Lán vegna greiðsluerfiðleika munu bera 3,5% vexti. Lán til útrýmingar á heilsuspill- andi húsnæði og sérstök lán til ein- staklinga með sérþarfir munu bera 2% vexti. ÁRLEG landssöfnun Hjálpar- stoftiunar kirkjunnar, „Brauð handa hungruðum heimi,“ er nú hafin. Starf Hjálparstoíhun- ar hefiir verið öflugt á þessu ári og mikið starf bíður, meðal annars til styrktar skólum í Namibíu, að sögn Sigríðar Guð- mundsdóttur framkvæmda- stjóra Hjálparstofnunar. Þá er að byrja samstarf við Kristni- Fjórir stjórnarmenn Hjálparstofnur hungruðum heimi.“ Frá vinstri Árr dóttir framkvæmdastjóri, séra Þor boðssambandið um að reisa heil- sugæslustöð í suðurhluta Eþíópíu og ráðgert er að selja á stofn verkmehntaskóla í norð- urhluta landsins. Á Indlandi eru börn styrkt til skólagöngu. Árni Gunnarsson stjómarformaður Hjálparstofirunar segir framlag ríkisins til þróunarmála og skyldra verkeftia til háborinnar skammar, nái ekki tíunda hluta Landssöftiun Hjálparstofiiunar kirkjun Mildl verkefni fi ópíu, Namibíu Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra: Frumvarp um breytingar á lögum um viðskiptabanka JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra kynnti í ríkisstjórn í gær frum- varp sitt um breytingar á lögum um viðskiptabanka, sem nauðsynleg- ar em í framhaldi af kaupum Alþýðubankans; Iðnaðarbankans og Verslunarbankans á hlutabréfiim ríkissjóðs í Utvegsbankanum. Viðskiptaráðherra sagði í sam- tali við Morgunblaðið í gær að nauðsynlegt væri að gera breyt- ingar á lögunum, vegna ákvæðis þar um að enginn einn hluthafi viðskiptabanka skyldi fara með meira magn atkvæða en sem svar- ar fimmtungi. „Þetta er þá gert væntanlega með þeim hæjji að ef viðskiptabanki er hluthafi, eða eignarhaldsfélag sem myndað er af áður starfandi banka, þá megi víkja frá þessari reglu og sama gildi þá um ríkissjóð," sagði við- skiptaráðherra. Ráðherra sagði að í frumvarp- inu væri jafnframt gert ráð fyrir breytingu á nafni bankans, þannig að þar sem stæði í núgildandi lög- um Utvegsbanki íslands, Alþýðu- banki, Iðnaðarbanki eða Verslun- arbanki myndi standa íslands- banki hf.. „Þetta á t.d. við um þar sem nöfn bankanna eru nefnd í lögunum í tengslum við fjárfest- ingalánasjóði atvinnuveganna, þar sem þessir bankar hafa tilnefnt stjórnarmenn, eða farið með rekst- ur eða veitt aðstöðu. Þar kemur íslandsbanki hf. í staðinn,“ sagði Jón. Hann sagði að þetta atriði væri vissulega umdeilt, en hann teldi sig hafa gefið fyrirheit um þetta frumvarp í tengslum við bankasameininguna í sumar og hann myndi nú freista þess að fá þessu breytt. Aðsókn að kvikn húsum minnkar AÐSÓKN að kvikmyndahúsum hefur minnkað um 40% á undanförn- um 8-9 árum. Á síðasta ári komu 1.094 þúsund gestir í kvikmynda- hús höfuðborgarinnar en á árunum 1979-1980 um 1.727 þúsund hvort ár. í nýútkomnum Hagtíðindum er áætlað að hvert mannsbarn hafi farið 5,8 sinnum að meðaltali í kvikmyndahús á síðasta ári en árið 1980 var samsvarandi hlut- fall talið vera 11,2 skipti, Þrátt fyrir þennan samdrátt sækja ís- lendingar kvikmyndahús mun meira en nágrannaþjóðirnar. Árið 1987 töldust Danir fara 2,2 sinn- um í bíó hver maður, Norðmenn þrisvar og Svíar tvisvar. í Hagtíðindum kemur fram að kvikmyndahúsum borgarinnar fækkaði um tvö á árinu 1987 og eru þau nú sex. í þessum húsum eru nítján salir og 4.798 sæti. Á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.