Morgunblaðið - 06.12.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
27
Litlu jólin á Holiday Inn:
Jólahlaðborð í miðju
myndlistargalleríi
Listamenn matargerðar og myndgerðar leggja saman á Holiday
Inn hótelinu í Reykjavík og bjóða gestum og gangandi til veislu í
jólamánuðinum. Veislan er tvíþætt, annars vegar fyrir lystina, jóla-
hlaðborð með kræsingum frá mörgum löndum, hins vegar prýðir
list veggi anddyris hótelsins þar sem 11 listamenn sýna verk sín.
List Gallerí stendur fyrir sýningunni.
Wilhelm Wessman hótelstjóri
segir að ákveðið hafi verið að
brydda upp á nýjungum í jólamán-
uðinum, gefa fólki kost á að koma
og njóta veitinga hvenær sem er
dagsins og um leið eru gestimir
staddir á myndlistarsýningu. Allar
myndimar em til sölu og geta
gestir tekið þær með sér heim strax
að máltíð lokinni.
Jólahlaðborðið er saman sett úr
réttum frá mörgum löndum. Þar
má nefna danska rifjasteik,
sænska síldarrétti, gljáð grísalæri,
franska kæfu, danska eplaköku,
franskar jólakökur, íslenskt hangi-
kjöt og laufabrauð. Þá er sérstakt
kaffihlaðborð síðdegis og á
síðkvöldum.
Listamennirnir sem sýna á Litlu
jólum Holiday Inn eru Aðalheiður
Valgeirsdóttir, Björg Þorsteins-
Morgunblaðið/Bjarni
Jóhann Jakobsson yfirmatreiðslumeistari og Wilhelm Wessman hótel-
stjóri á Holiday Inn við jólahlaðborðið.
dóttir, Guðbjörg Ringsted, Ingi-
bergur Magnússon, Jóhanna Boga-
dóttir, Jón Reykdal, Lísa Guðjóns-
dóttir, Ríkharður Valtingojer, Sig-
rún Eldjárn, Tryggvi Árnason og
Valgerður Hauksdóttir.
Bolungarvík:
Óskað er eftir rannsókn á meintri
heimaslátrun tveggja lögreglumanna
Bolungarvík.
BÆJARFÓGETANUM á Bolungarvík barst síðastliðinn mánudag
bréf fi’á heilbrigðisfulltrúa Vestfjarða þar sem óskað er rannsókn-
ar á meintri heimaslátrun sex aðila á Bolungarvík. I þeim hópi eru
báðir lögreglumenn staðarins, og hefur því bæjarfógetinn óskað
eftir aðstoð frá Rannsóknarlögreglu ríkisins við rannsókn málsins.
Að sögn Adólfs Adólfssonar
bæjarfógeta á Bolungarvík hefur
heilbrigðisfulltrúi Vestfjarða farið
fram á rannsókn á meintri heima-
slátrun á Bolungarvík vegna þrál-
áts orðróms um að slíkt hafi átt
sér stað.
„Ég óskaði eftir aðstoð Rann-
sóknarlögreglu ríkisins vegna þess
að undirmenn mínir eru báðir til-
greindir í bréfi heilbrigðisfulltrú-
ans, þannig að ég hef engan til
að vinna að rannsókn þessa máls.
Ég á von á að hingað komi maður
frá Rannsóknarlögreglu ríkisins og
vinni að skýrslutöku, og það fer
síðan eftir niðurstöðu þeirrar rann-
sóknar hvert framhald málsins
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
5. desember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 80,00 6700 75,55 1,884 142.318
Þorskur(ósl.) 76,00 60,00 71,76 11.389 817.288
Þorskur(smár) 35,00 35,00 35,00 0,081 2.818
Þorskur(smárósl.) 35,00 35,00 35,00 0,202 7.067
Ýsa 96,00 96,00 96,00 0,477 45796
Ýsa(óst) 96,00 40,00 77,87 7,501 584.149
Smáýsa 29,00 29,00 29,00 0,307 8.889
Karfi 65,00 36,00 36,62 60,388 2.211.249
Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,040 790
Langa 49,00 49,00 49,00 0,003 147
Langa(ósl.) 49,00 4900 49,00 0,230 11.270
Keila 15,00 15,00 15,00 0,042 632
Keila(ósL) 15,00 15,00 15,00 1,871 28.066
Lúða 500,00 120,00 269,78 0,347 93.479
Steinbítur 49,00 49,00 49,00 0,195 9.556
Lýsa 33,00 33,00 33,00 0,020 644
Skötuselur 11900 119,00 119,00 0,026 3130
Samtals 46,67 85,002 3.967.288
í dag verður boðinn upp bátafiskur. Áætlað magn er 25 tonn af þorski,
14 tonn af ýsu, 3 tonn af keilu, 1 tonn af karfa, 1 tonn af ufsa, lúða og
fleiri tegundir.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 100,00 59,00 80,32 10,167 816.594
Ýsa 112,00 50,00 71,40 5,864 418.709
Ýsuflök 290,00 290,00 290,00 0,158 45.820
Langa 51,00 50,00 50,54 3,852 194.701
Keila 12,00 12,00 12,00 0,233 2.796
Karfi 37,00 36,00 36,89 22,968 847.349
Ufsi 45,00 45,00 45,00 3,492 157.151
Steinbítur 55,00 52,00 52,01 3,153 164.001
Lúða 52,00 52,00 52,00 0,387 92.965
Skarkoli 52,00 40,00 40,87 0,689 28.182
Undirmálsfiskur 4000 15,00 26,56 0,878 23.320
Samtals 53,85 51,842 2.791.588
í dag verða meðal annars seld 60 tonn af ufsa, 35 tonn af ýsu 10 tonn
af þorski úr Krossnesi, Ásgeiri og fleiri bátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 88,50 50,00 77,96 19,464 1.517.500
Ýsa 106,00 30,00 8970 16,080 1.442.431
Karfi 37,00 15,00 36,79 2,004 73.730
Ufsi 35,00 15,00 26,05 0,831 21.649
Steinbítur 44,00 43,00 43,93 0,399 17.599
Langa 54,00 30,00 49,24 4,184 206.298
Lúða 300,00 73,00 242,59 0,506 122.750
Keila 20,50 13,00 17,18 4,439 76.257
Skata 118,00 85,00 109,91 0,530 58.250
Skarkoli 25,00 25,00 25,00 0,019 475
Hlýri 44,00 44,00 44,00 0,142 6.248
Skötuselur 68,00 68,00 68,00 0,015 1.020
Undirm.fiskur 29,00 22,00 22,85 0,457 10.441
Blandað 15,00 15,00 15,00 0,150 2.250
Samtals 72,26 49,226 3.556.834
í dag verður selt úr dagróðrabátum, línu- og netabátum. Áætlað magn er
j 20 tonn af þorski , 12 tonn af ýsu og fleiri tegundir.
verður," sagði Adólf.
„Allt frá því að ég fékk heimild
bæjarstjómar árið 1975 til þess
að byggja fjárhús og hlöðu í
Minni-Hlíð hef ég stundað þama
fjárbúskap og slátrað á hveiju
hausti dilkum fyrir ijölskyiduna.
Ég hef ekki verið að þessu í hagn-
aðarskyni heldur til gamans og
heilsubótar fyrir mig og fjölskyldu
mna,“ sagði Valdimar Guðmunds-
son, lögregluþjónn í Bolungarvík,
er Morgunblaðið leitaði álits hans
á þessu máli.
Aðspurður um það hve mörgum
dilkum hann hefði slátrað síðastlið-
ið haust sagðist Valdimar myndu
gefa þeim það upp sem kæmu til
með að rannsaka þetta mál. „Það
er hinsvegar skráð í landbúnaðar-
skýrslu og hjá forðagæslumanni,
sem meðal ánnars framkvæmdi
búíjártalningu síðastliðið vor, hve
margar kindur ég er með. Ég bíð
að sjálfsögðu eftir að rannsókn
fari fram, en ég er hins vegar hissa
á því hvernig mál þetta ber að.
Það kom fyrst fyrir heilbrigðis-
nefnd 15. nóvember síðastliðinn,
birtist síðan í fundargerðum bæjar-
stjórnar sem gefnar eru út og
sendar mörgum bæjarbúum, og
eftir það birtist það í fjölmiðlum,
en ósk um rannsókn berst ekki
fyrr nú en 4. desember,“ sagði
Valdimar.
Gunnar
Kópavogur:
Þrír piltar
löguðu brugg
í bílskúr
LÖGREGLAN í Kópavogi
gerði í fyrrakvöld upptæka
brugglögn og bruggunartæki
sem þrír piltar, 16 og 17 ára,
hafa játað að hafa bruggað
höfðu gert sér í bílskúr í aust-
urbænum.
Piltarnir höfðu tekið skúrinn
á leigu í þessu skyni. Þeir höfðu
lagt í og soðið glundrið tvisvar.
Að sögn Svanhvítar Ingólfs-
dóttur lögreglufulltrúa játuðu
þeir að hafa selt nokkuð af
brugginu en um stórfellda sölu
mun ekki hafa verið að ræða.
Blaðberi
rændur
14 ÁRA piltur kærði rán til
lögreglu í fyrrakvöld. Hann
hafði verið að rukka inn
áskriftargjöld fyrir dagblað
og var með um 14 þúsund
krónur á sér þegar maður
vatt sér aftan að honum og
tók hann hálstaki.
Að sögn lögreglu var pilturinn
staddur á horni Bárugötu og
Garðastrætis, þegar maður tók
hann hálstaki aftan frá, brá
hnífi og heimtaði af honum pen-
inga. Pilturinn sem var með um
14 þúsund krónur í fórum són-
um afhenti árásarmanninum um
1000 krónur og fór hann þá á
brott.
Rannsóknarlögregla ríkisins
rannsakar málið.
Grunaður um
hasssölu
Fíkniefiialögreglan fann á
laugardag í húsi í Reykjavík
nokkra tugi gramma af hassi.
Maður, sem grunaður er um
hasssölu, var handtekinn þar og
hefur verið úrskurðaður í viku
gæsluvarðhald. Hann hefur áð-
ur gerst sekur um fíkniefna-
brot, að sögn lögreglu.
Rannsóknar krafíst á ummælum í sjónvarpsþætti:
Utvarpsráð sér ekki
ástæðu til aðgerða
ÚTVARPSRÁÐ komst samhljóða
að þeirri niðurstöðu á síðasta
fúndi sínum að aðhafast ekkert
vegna bréfs, sem ráðinu barst frá
nokkrum starfsmönnum Búnað-
arfélags íslands. I bréfinu eru
gagnrýnd ummæli Gunnars
Bjarnasonar, fyrrverandi ráðu-
nautar, í þættinum Fólkið í
landinu sem var á dagskrá ríkis-
sjónvarpsins 18. nóvember. Bún-
aðarfélagsmenn óskuðu þess að
útvarpsráð rannsakaði málið og
ályktaði um það á þann hátt sem
réttmætt þætti, en ráðið sá enga
ástæðu til aðgerða.
I bréfinu, sem útvarpsráði var
sent, sagði að viðtal Ólínu Þorvarð-
ardóttur við Gunnar hefði vikið frá
vandaðri dagskrárgerð vegna um-
mæla Gunnars. „Það slúður, raup
og ósannindi, sem gestur þáttarins
bar fram, var með endemum og
minnti óþægilega á efnismeðferð
„gulu pressunnar“,“ segir í bréfinu.
Þar er einnig sagt að minning lát-
inna manna sé vanvirt í viðtalinu.
Undir bréfið rita Matthías Eggerts-
son, Pétur K. Hjálmsson, Ketill A.
Hannesson, Gunnar Hólmsteinsson,
Jón Viðar Jónmundsson, Ólafur R.
Dýrmundsson, Jóhann Ólafsson,
Árni Snæbjömsson, Pétur Þór Jón-
asson og Ólafur E. Stefánsson.
Eftir að útvarpsráð hafði fengið
í hendur greinargerð Ólínu Þorvarð-
ardóttur, með útskrift af köflum
úr viðtali hennar við Gunnar
Bjamason, ákvað ráðið að ekki
væri ástæða til að álykta um málið
eða aðhafast á annan hátt. „Það
er ástæðulaust að tjá sig um málið.
Menn hafa leyfi til að láta sínar
skoðanir I ljós í viðtali,“ sagði Davíð
Stefánsson útvarpsráðsmaður.
ARNAÐ HHILLA
/? A ára afmæli. Á morgun,
Oi/ 7. des. er sextugur Sig-
urður V. Gunnarsson iðn-
rekandi, Sæviðarsundi 9,
Rvík. Hann og kona hans,
Þyðrún Pálsdóttir, ætla að
taka á móti gestum í safnað-
arheimili Áskirkju við Vestur-
brún eftir kl. 20 á afmælis-
daginn.
A ára afinæli. Í dag, 6.
OO desember, er fimmtug
frú Ragna Erlendsdóttir,
Hjallabraut 14, Þorláks-
höfti. Maður hennar er Sig-
urður Guðberg Helgason. Þau
taka á móti gestum laugar-
daginn kemur, 9. þ.m., í Kiw-
anishúsinu þar í bænum eftir
kl. 20.30.