Morgunblaðið - 06.12.1989, Side 28
^8
MORGUNBLAÐÍÐ ÍVUÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
Bæj arstj órn Akureyrar:
Fasteignagjöld hækka
að meðaltali um 22,5%
Útsvar verður 7,2 %
ÁLÖGÐ fasteignagjöld hækka um 26,1% milli ára á Akureyri. Ef
tekið er tillit til tiilögu um aukinn afsiátt til ellilífeyrisþega, sem felur
í sér lækkun fasteignagjalda um 0,6% munu tekjur bæjarsjóðs af
fasteignagjöldum hækka um 25,5% á milli ára. Fasteignagjöld bæj-
arbúa munu hins vegar hækka að meðaltali um 22,5% vegna tæp-
lega 3% aukningar á íbúðarhúsnæði í bænum. Tekjur bæjarsjóðs
vegna fasteignagjalda munu við það hækka úr 306 milljónum í 386
milljónir, en þá er ekki tekið tillit til afsláttar á fasteignaskatti hjá
elli- og örorkulífeyrisþegum, sem var 3,7 milljónir á þessu ári og
er áætlaður 7 milljónir á næsta ári.
Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar
í gær, var samþykkt að fasteigna-
skattur verði 0,45% af álagninga-
stofni íbúðarhúsnæðis og 1,25% af
álagningastofni atvinnuhúsnæðis.
Þá var einnig samþykkt að vatns-
gjald verði 0,18% af álagninga-
stofni, sem og einnig fráveitugjald.
Hvað álagningu útsvara varðar var
samþykkt að útsvarsprósenta í
staðgreiðslu opinberra gjalda verði
sú sama fyrir árið 1990 og hún er
á þessu ári, eða 7,2%. Vegna mik-
illa endurbóta sem fyrirhugaðar eru
Eigendur hunda
hvattir til að
láta hreinsa þá
TALSVERT er um að hundaeig-
endur hafi ekki komið með hunda
sína til hreinsunar á fyrirfram
auglýstum hreinsunardögum.
Svanberg Þórðarson hjá um-
hverfisdeild Akureyrarbæjar sagði
að eigendum hefði verið boðið upp
á þijá daga í nóvember til að koma
með hunda til hreinsunar, en sam-
kvæmt skýrslum vantaði töluvert á
að allir hefðu skilað sér. Hann sagði
að samkvæmt landslögum væri eig-
endum hunda skylt að koma með
þá til hreinsunar og vildi hann
hvetja þá sem það hefðu ekki gert
að hafa samband við umhverfis-
deildina og fá tíma.
223 skráðir
atvinnulausir
UM síðustu mánaðamót voru
alls 223 skráðir atvinnulausir
á Akureyri, en á sama tíma
á síðasta ári voru þeir 112.
Um mánaðamótin nóvemb-
er/desember árið 1987 voru
36 á atvinnuleysisskrá á Ak-
ureyri.
Vinnumiðlunarskrifstofan á
Akureyri hefur tekið saman
tölur um atvinnuleysi í nóvem-
ber, en í lok mánaðarins voru
223 á atvinnuleysisskrá, 128
karlar og 95 konur. Á sama
tíma í fyrra voru 112 á skrá,
66 karlar og 46 konur, en fyrir
tveimur árum voru samtals 36
á skrá.
Hjá Vinnumiðlunarskrifstof-
unni fengust þær upplýsingar
að langmest atvinnuleysi væri
meðal verkafólks, en alls eru
69 verkakonur, úr Verkalýðs-
félögunum Einingu og Iðju á
atvinnuleysisskrá og 57 karlar.
Alls eru 45 konar og 41 karla
úr Verkalýðsfélaginu Einingu á
atvinnuleysisskrá.
Þá eru skránni 21 bílstjóri
og 17 iðnaðarmenn, trésmiðir,
málmiðnaðarmenn, rafvirkjar
og múrarar.
á holræsakerfi bæjarins var sam-
þykkt að hækka holræsagjöld um
60% frá fyrra ári og þá hækkar
lóðaleiga um 12%. Lækkun fast-
eignaskatts hjá ellilífeyrisþegum
var einnig tekin til umræðu á fundi
bæjarstjórnar, en þeim lið var vísað
til bæjarráðs til frekari umfjöllunar.
Töluverðar umræður urðu um
álagningagjöldin á bæjarstjórnar-
fundinum og lögðu fulltrúar bæði
frá Alþýðubandalagi og Framsókn-
arflokki fram tillögur um breyting-
ar á álagningastofni fasteigna-
skatts á íbúðarhúsnæði. Bæjarfull-
trúar Alþýðubandalags lögðu til að
álagningastofninn yrði 0,5%, en
fulltrúar Framsóknarflokks að hann
yrði 0,425%. Báðar tillögurnar voru
felldar og tillaga meirihluta bæjar-
ráðs um 0,45% fasteignaskatt af
álagningastofni var samþykkt.
A fundinum gerði Sigfús Jónsson
bæjarstjóri grein fyrir fyrirhugaðri
lækkun fasteignaskatts ellilífeyris-
þega, en meirihluti bæjarráðs hafði
samþykkt flatan 15 þúsund króna
afslátt til allra ellilífeyrisþega sem
búa í eigin íbúð. Sigfús sagði að
þessi afsláttur næmi um 7 milljón-
um króna á næsta ári, en var 3,7
milljónir á þessu ári. Þessum lið var
vísað til frekari umfjöllunar í bæjar-
ráði.
Nokkrar umræður urðu um
gjalddaga fasteignagjalda, en
meirihluti bæjarráð hafði lagt til
að þeir yrðu fimm á næsta ári,
fyrsta hvers mánaðar frá febrúar
til júní. Fulltrúar Alþýðubandalags-
ins lögðu til að greiðslunum yrði
dreíft meira yfir árið og yrði greitt
annan hvern mánuð frá febrúar til
október, en fulltrúar Framsóknar-
flokks lögðu til að greiðslurnar yrðu
átta á næsta ári. Tillögurnar voru
felldar.
í máli Sigurðar Jóhannessonar
(B) kom fram að verið væri að stór-
auka álögur á bæjarbúa, þrátt fyrir
að atvinnuástand í bænum væri
bágborið og kaupmáttur fólks færi
rýrnandi. Sigurður J. Sigurðsson
forseti bæjarstjórnar (D) sagði að
Bóma heldur
bókaveislu
Bókmenntafélag Menntaskólans
á Akureyri stendur fyrir bókaveislu
í Möðruvallakjallara, sal raun-
greinahúss Menntaskólans, í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20.
Nokkrar athyglisverðar nýút-
komnar bækur verða kynntar og
úr þeim lesið. Á vegum þriðja bekkj-
ar verður glæsilegt hlaðborð og
ungir tónlistarmenn munu flytja
tónlist, þannig að boðið verður upp
á eitthvað gott fyrir öll skilningar-
vit.
Veislan hefst stundvíslega kl. 20
í Möðruvallakjallara og eru allir
velkomnir á meðan húsrúm leyfir,
en aðgangur er ókeypis.
(Fréttatilkynning)
menn gerðu sér fulla grein fyrir því
að verulegur samdráttur væri í
þjóðfélaginu, en menn hefðu talið
mjög sanngjarnt að halda útsvars-
prósentunni óbreyttri. Þá sagði
hann einnig að ekki væru miklar
líkur á að staðið yrði við loforð um
að skuldir ríkisins við sveitarfélögin
yrðu greiddar og það væri alvarleg-
ur hlutur fyrir sveitarfélögin að
þurfa að taka inn ný verkefni á
næsta ári, en fá ekki þessar skuld-
ir greiddar. Varðandi hækkun á
holræsagjöldum sagði Sigurður að
ekki væri verið að íþyngja bæjarbú-
um vegna þeirra, heldur væri hluti
af tekjum Vatnsveitunnar færðar
yfir í þær framkvæmdir sem fram-
undan væru í holræsagerðinn, en
veitan stæði mjög vel.
Fundur um virðis-
aukaskattinn
Félag viðskipta- og hagfræð-
inga á Akureyri efnir til fúndar
á Hótel KEA í dag, miðvikudag,
og hefst hann kl. 12.15.
Gestur fundarins verður Olafur
Nilsson löggiltur endurskoðandi og
mun hann ijalla um virðisauka-
skattinn.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ný myn dban daleiga
Ný myndbandaleiga hefiir verið opnuð á Akureyri og heitir hún
Arnarmyndbönd. Að henni standa bræðurnir Haukur og Pétur
Guðjónssynir og Hafþór Jörundsson. Arnarmyndbönd eru til
húsa á Móasiðu 1 og verður leigan opin virka daga frá kl.
16-23.30 og um helgar frá 13-23.30. Arnarmyndbönd hafa yfir
að ráða um 700 titlum og þar er boðið upp á heimsendingar-
þjónustu.
Fyrsta átakið gegn siQa-
spellum er að hefjast
Símatími annað kvöld og á laugardag
FYRSTA skipulagða átakið gegn sifjaspellum á Akureyri er að fara
í gang, en að því standa þær Brynja Óskarsdóttir félagsráðgjafi
og Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur sem báðar starfa á Félags-
málastofnun Akureyrar. Þær verða með opinn símatíma annað
kvöld, fimmtudagskvöld, frá kl. 19-23 og næstkomandi laugardag
frá kl. 13-17, en síminn er 25880. Einnig mun Valgerður taka við
símtölum frá þolendum siljaspella alla næstu viku frá kl. 13-14.
Ef konur kjósa svo, þurfa þær ekki að segja til nafiis. Fyrst og
fremst mun átakið beinast að því að rjúfa þann þagnarmúr sem
verið hefiir í kringum kynferðislegt ofbeldi, en einnig er fyrir-
hugað að koma upp svokölluðum sjálfshjálparhópum ef á því reyn-
ist áhugi.
Þær Brynja og Valgerður segj-
ast sækja fyrirmynd að átaki sínu
til vinnuhóps um siijaspell sem
starfandi hefur verið í Reykjavík
í tengslum við kvennaráðgjöfina.
En einnig hafa þær sótt ýmsar
upplýsingar annars staðar frá,
m.a. til erlendra rannsókna. „Þetta
er fyrsta átakið sem gert er í þess-
um málum hér fyrir norðan og við
ætlum að sjá hversu margar konur
hafa samband við okkur. I fram-
haldi af því munum við bjóða upp
á ýmsa möguleika til úrlausnar
fyrir þá sem hafa við okkur sam-
band, en fyrst og fremst yrði um
að ræða sjálfshjálparhópa, en
reynslan hefur sýnt að sú leið hef-
ur gefið góða raun,“ sagði Val-
gerður.
Þær konur sem hugsanlega
gætu haft samband vegna kyn-
ferðislegs ofbeldis eru annars veg-
ar ungar stúlkur, sem lausar eru
undan ofbeldinu fyrir skömmum
tíma, hins vegar fullorðnar konur
og einnig mæður þolenda, sem
ekki síður en hinar búa yfir erfiðri
reynslu. Aðaleinkenni þeirra
kvenna sem orðið hafa fyrir kyn-
ferðislegu ofbeldi, segja þær
Brynja og Valgerður, vera lítið
sjálfstraust, léleg sjálfsmynd og
einnig eigi þær erfitt með að
mynda tengsl við annað fólk og
að treysta því. Þær eigi þess vegna
gjarnan við kynlífsvandamál að
etja, þunglyndi og leiðist oft út í
misnotkun á vímuefnum.
„Það er mjög mikilvægt að kon-
ur sem orðið hafa fyrir þessari
reynslu átti sig á því að fleiri en
þær einar búi við þessi sömu
vandamál,“ segja þær Brynja og
Valgerður. „Tilgangurinn með því
að koma upp sjálfshjálparhópum
er m.a. sá að auka sjálfstraust
þeirra, hjálpa þeim að fást við til-
finningar sínar og kenna þeim
smám saman að treysta öðrum.
Þá verða konur oft að bæta tengsl
við upprunafjölskyldur sínar en
þau hafa iðulega reynst vera stirð.“
Möl og sandur hf.:
Um 20% samdrátt-
ur í steypusölu
LIÐLEGA 20% samdráttur varð í steypusölu hjá Möl og sandi hf.
íyrstu ellefu mánuði ársins, miðað við fyrra ári, en samdrættinum
hefur verið mætt með aukningu annarra þátta fyrirtækisins, röra-
og hellusölu, jarðvinnu og vinnuvélaleigu.
Hólmsteinn Hólmsteinsson fram-
kvæmdastjóri Malar og sands sagði
að verkefnastaða fyrirtækisins væri
góð og betri en oft áður á þessum
tíma. Hjá fyrirtækinu vinna 45
manns og er unnin einn yfirvinnu-
tími á dag. Hólmsteinn sagði að
reiknað væri með að því yrði haldið
áfram í allan vetur. Stærstu verk-
efnin sem fyrirtækið vinnur nú að
\
er bygging dagvistar við Þverholt
og einnig er verið að vinna að röra-
og hellugerð og, við einingafram-
Ieiðslu. Þá er einnig unnið að við-
haldi véla og tækja fyrirtækisins.
„Við erum að safna birgðum fyr-
ir næsta sumar, það er að vísu
þungt að fjármagna það, en við
verðum að birgja okkur upp til að
vera klárir í slaginn í vor.“