Morgunblaðið - 06.12.1989, Síða 29

Morgunblaðið - 06.12.1989, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989 29 Opinberar lántökur 1989: LánsQ ár heimildir aukn- ar um sjö milljarða Fj ármálastj órnin hefur brugðizt, segir stjórnarandstaðan Ólafiir Ragnar Grímsson fjármálaráðherra mælti í gær fyrir stjórn- arfrumvarpi til breytinga á lánsfjárlögum líðandi árs. Frumvarpið gerir ráð fyrir að heimila ríkisstjórninni að auka erlendar lántökur 1989 úr 5.135 m.kr. í 6.035 m.kr., það er um 900 m.kr., og innlend- ar lántökur úr 5.300 m.kr. í 11.300 m.kr., það er um 6.000 m.kr. Þingmenn sljórnarandstöðu, sem þátt tóku í umræðunni, töldu að stóraukin lánsljárþörf ríkisstjórnarinnar, sem væri hin hliðin á tröllv- öxnum ríkissjóðshalla, sýndi, að fjármálastjórnin i ríkisbúskapnum hafi gjörsamlega brugðizt. Ólafúr Ragnar Grímsson Qár- ipálaráðherra sagði hækkun er- lendrar lántöku vera vegna endur- lána Atvinnutryggingarsjóðs út- flutningsgreina. Aukin innlend lán- taka yrði hinsvegar notuð til að fjár- magna halla ríkissjóðs á árinu, sem nú væri áætlaður 4,7 til 5,0 millj- arðar króna. Friðrik Sophusson (S-Rv) sagði að tröllvaxinn ríkissjóðshalli væri meginorsök stóraukinnar lánsíjár- þarfar ríkissjóðs. Fjárlög ársins, sem stóðu til 630 m.kr. tekjuaf- gangs, eftir að skattar höfðu verið hækkaðir um 7.000 m.kr., stefni langleiðina í 5.000 m.kr. halla, að sögn ráðherra. Haliinn á ríkissjóði og stóraukin ásókn hans á innlend- an lánsijármarkað valdi því, að vextastig sé hærra en ella væri. Geir H. Haarde (S-Rv) tók und- ir það að ijármálastjórn ríkisins væri í molum og hefði mistekizt. Ríkið sé í vaxandi samkeppni við atvinnulífið á lánsfjármarkaðinum með tilheyrandi áhrifum á vaxta- stig. Þingmaðurinn sagði að raun- vextir af ríkisvíxlum væru mjög breytilegir, hefðu á stundum reynzt neikvæðir en einnig farið yfir 20%. Ríkisvíxlar v'æru nú fjórum sinnum fyrirferðarmeiri á lánsfjármarkað- inum en fyrir einu til tveimur árum og stærstu kaupendur væru innl- ánsstofnanir. Tal og breytni í vaxta- málum færu ekki saman hjá stjórn- arliðum. Hreggviður Jónsson (FH-Rn) sagði ríkisvaldið í óeðlilegri sam- keppni við atvinnulífið um takmark- að lánsfjármagn. Það safnaði upp skuldum, sem ofsköttuð heimili og ofsköttuð fyrirtæki yrðu trúlega að bera straum af í enn hærri sköttum. Stefán Valgeirsson (SJF-Ne) sagði minni þenslu í Jjjóðféláginu nú en 1987-1988 þegar ríkisvíxlar hefðu stórhækkað allt vaxtastig í landinu. Matthías Bjarnason (S-Vf) sagði að eiginíjárhlutfall Byggða- stofnunar hafi lækkað úr 30% á sl. ári í 24% um mitt þetta ár og það væri enn minna nú. Afgreiðsla lána hjá stofnuninni væri í biðstöðu. Astæðan verri eiginljárstöðu væri Ólafur Ragnar Grímsson. fjárhagsstaða fyrirtækjanna í landinu, lélegri innheimta, gjaldþrot og það sem þeim heyrði til, m.a. tilboð stofnunarinnar í þrotabú til að tryggja hagsmuni sína. Mikil- vægt væri að hraða afgreiðslu þessa máls, m.a. til að styrkja starfsað- stöðu Byggðastofnunar. Fleiri tóku tii máls þó ekki verði frekar rakið. Frumvarp um aðstoð við loðdýrabændur lagt fram: / Aðstoðin kemur að litlu gagni - segja sjálfstæðismenn STEINGRÍMUR Sigfússon landbúnaðarráðherra mælti fyrir frum- varpi um aðstoð við loðdýrabændur í efri deild í gær. Nokkrar umræður urðu um frumvarpið. Egill Jónsson og Halldór Blöndal, þingmenn Sjálfstæðisflokks, gagnrýndu frumvarpið og sögðu að- stoðina koma að litlu gagni. Stefán Guðmundsson (F/Nv) og Jóhann- es Geir (F/Ne) töldu að einnig mætti ganga lengra í aðstoðinni. Fyrri grein frumvarpsins gerir ráð fyrir að ríkisstjórninni verði heimilt að ábyrgjast með sjálf- skuldarábyrgð lán, sem loðdýra- bændur taka í stað lausaskulda sem myndazt hafa vegna loðdýra- búskapar þeirra á árunum 1986- 1989, samtals allt að 280 milljón- um króna. Sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs skal aðeins veitt ef með henni er unnt að koma rekstri við- komandi bús í viðunandi horf, eða ef lántaki hefur aðrar forsendur til áð greiða af skuldum sínum með öðrum hætti. Abyrgðin má ná til allt að 60% af lausaskuldum hvers bónda frá árunum 1986- 1989, enda breyti viðkomandi lán- ardrottnar því sem eftir stendur í lán til að minnsta kosti átta ára. Seinni grein frumvarpsins gerir ráð fyrir að Stofnlánadeild land- búnaðarins sé heimilt að fella niður allt að 40% höfuðstóls veðskulda fóðurstöðva og einstakra loðdýra- bænda, enda skapi það samhliða öðrum ráðstöfunum viðkomandi aðila viðunandi rekstrarstöðu og hagsmunum Stofnlánadeildarinnar verði talið betur borgið með þeim hætti. Halldór Blöndal (S/Ne) sagði að eins og frumvarpið lægi fyrir væri það gagnslaust. Annað hvort ætti að tryggja almennilegan rekstrargrundvöll fyrir loðdýra- ræktina eða að láta það vera. Egill Jónsson (S/Al) kvaðst ekki telja nóg að gert með frum- varpinu. Hann sagði að landbúnað- arráðherra hefði talað fijálslega til loðdýrabænda um aðstoð og Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S-Vf): Ekkí má leggja af tilraun- ir í veiðum og vinnslu Þorvaldur Garðar Kristjánsson (S-Vf) sagði í þingræðu um sijórn- arfrumvarp, sem kveður á um að leggja niður Fiskimálasjóð, að nær hafi verið að styrkja sjóðinn til að stuðla að meginverkeíhi sínu, seni sé að stuðia að rannsóknum og tilraunum, bæði í veiðum [nýar að- ferðir - ný veiðarfæri] og í verkun og vinnslu sjávarfangs, sem og að veita styrki til markaðsleitar fyrir sjávarvörur. Þingmaðurinn sagði að Fiski- málasjóður hafi að vísu verið „dauð stofnun um nokkur ár“, þar eð hann hafi verið sviptur þeim tekjum sem hann áður hafði. Þegar ríkisstjórnin hreyfir þessum málum á þingi mátti ætla, að nú yrði sjóðurinn efldur til að sinna verkefnum sínum. Raunin varð önnur. Að vísu er stefnt að því að stofna þróunardeild við Fiskveiðasjóð ís- lands. Verkefni hennar eru þó hvergi nærri eins vel skilgreind og gert er í lögunum um Fiskimála- sjóð. Hitt er þó verra að stjórnar- frumvarpið felur ekki í sér tekjuöfl- un til að sinna þessum verkefnum. Rétt er að sjávarútvegurinn er ekki aflögufær eins og að honum er búið. Það er hinsvegar í verkahring sjávarútvegsráðherra og ríkis- stjórnarinnar að búa þessari undir- stöðugrein þau starfskilyrði að hún hafi skilyrði til að leggja fyrir Ijár- muni til rannsóknar- og þróunar- verkefna. vitnaði í fréttatilkynningu ríkis- stjórnarinnar frá í júlí, þar sem segir að allir helztu hagsmunaaðil- ar, sjóðir, bankar, stofnanir og samtök, verði boðuð til fundar um framhald málsins og vinnu, sem miði að því að létta greiðslubyrði með skuldbreytingu eða niðurfell- ingu og bæta starfsskilyrði þeirra, sem haldi áfram loðdýrarækt. Eg- ill sagði -að í þessu orðalagi fælust fyrirheit um að reynt yrði að fá aðstoð banka og sjóða. Hann lagði áherzlu á að loðdýrabúskapur hefði verið tekinn upp vegna breyttra áherzlna í landbúnaði, þegar leitazt hefði verið við að skapa ný atvinnu- tækifæri í sveitum. Á þeim tíma hefði loðdýraræktin verið hand- hægasti kosturinn. Hann sagði að meta yrði aðgerðir gagnvart grein- inni í ljósi þessara ákvarðana og minnti á að loðdýrabændur hefðu leigt fullvirðisrétt sinn í sauðfé, og innan tveggja ára væri sá leigutími útrunninn. Þeir gætu því kallað þau framleiðsluréttindi til baka, og allir sæju hvað það myndi þýða; enn meiri offramleiðslu sauðfjára- furða. Egill sagði að það væri ungt fólk, sem hefði byggt upp loðdýra- búskapinn, og menn yrðu að taka tillit til mannlegra sjónarmiða þeg- ar fjallað væri um málið. Hann vitnaði í nýútkomna skýrslu um stöðu Ioðdýraræktarinnar og sagði að miðað við samsetningu nefndar- innar, sem hana hefði samið, mætti ætla að þar væri farið gagnrýnum höndum um loðdýraræktina. í skýrslunni kæmi fram að ætla mætti að framleiðsla á næsta ári yrði minni en skinnasalan á þessu ári, sem benti til að nokkurt jafn- vægi væri komið á í greininni. Þá kæmu fram ýmis jákvæð atriði varðandi samkeppnisstöðu íslenzkrar loðdýraræktar. Þannig væri fóðurverð hér lægst á Norð- urlöndum, en hins vegar væri skinnaverð ekki eins hátt, þannig að enn þyrfti að ná betri árangri í því efni. Hann minnti á að menn yrðu að taka tillit til afleiðinga þess ef greinin hryndi. Samkvæmt skýrslunni myndi tapið umfram hrun greinarinnar hjá þeim, sem ættu hagsmuna að gæta, nema 1,1-1,2 milljörðum króna. Þingmaðurinn sagði að þegar rætt væri um peninga í þessum efnum, yrðu menn að hafa hugfast að loðdýrabændur hefðu ekki ríkis- ábyrgð á launum sínum, en slíkar greiðslur hefðu stóraukizt með fjölgun gjaldþrota. Þeir ættu held- ur ekki rétt á atvinnuleysistrygg- ingabótum og það hlyti að vera eðlilegt að til þeirra yrði horft með svipuðum hætti og annarra, sem þjóðfélagið hefði tryggt að ein- hveiju marki fyrir atvinnuleysi og gjaldþroti. Frumvarpinu var vísað til land- búnaðarnefndar. Stuttar þingfi’éttirl Dagskrármál efri deildar sl.. þriðjudag vóru m.a.: 1) Stjórnarfrumvarp um náms- gagnastofnun (afgreitt til nefhdar), 2) Stjórnarfrum- varp um sóttvarnarmál (af- greitt til nefhdar), 3) Stofnun og slit hjúskapar (afgreitt til þriðju umræðu), 4) Skuld- breytingar vegna loðdýra- ræktar (afgreitt til nefndar). Dagskrármál í neðri deild vóru m.a.: 1) Veiting ríkis- borgararéttar (afgreitt til þriðju umræðu í síðari deild), 2) Sakadómur í ávana- og iíkniefnamálum (fjölskipaður dómur, afgreitt til þriðju um- ræðu í síðari deild, 3) Láns- fjárlög 1989, 4) Veiðieftirlits- gjald, 5) Tekjuskattur og eignarskattur. Geir Haarde og Pálmi Jóns- son, þingmenn Sjálfstæðis- flokks, hafa lagt fram frumvarp um ríkisbókhald, gerð ríkis- reiknings og fjárlaga. í frum- varpinu felast tvær efnisbreyt: ingar frá gildandi lögum. { fyrsta lagi að skylt skuli að leggja endurskoðaðan ríkis- reikning fyrir Alþingi og af- greiða hann svo skjótt sem verða megi að ijárlagaárinu liðnu. í annan stað að skylt skuli að afgreiða ekki síðar en á vor- þingi eftir ljárlagaárið endan- legt fjáraukafrumvarp fyrir næstliðið fjárlagaár. í svari fjármálaráðherra við fyr- irspurn Geirs H. Haarde (S-Rv) segir að vextir af ríkisvíxlum hafi ekki verið leiðandi í vaxta- hækkunum eða fyrirstaða fyrir vaxtalækkunum hjá bönkunum. í svari Seðlabanka íslands, sem fylgir svari ráðherra, segir: „Við þær aðstæður sem nú eru að halli myndast á rekstri ríkissjóðs jafnframt því sem kapp er lagt á að halda aftur af erlendum lánum má búast við að vaxta- stig haldist hærra en ella.“ Ásgeir Hannes Eiríksson (B-Rv) flytur tillögu til þings- ályktunar, þess efnis, að ríkis- stjórnin skuli „breyta skipulagi ráðuneyta svo að framvegis verði tveir ráðuneytisstjórar í hveiju ráðuneyti. Annar starfi á faglegum grunni en hinn stjórni fjármálum sem undir ráðuneytið og stofnanir þess og fyrirtæki heyra.“ Breyting á lögum um virðisaukaskatt: Tekjuáætlun virðis- auka 38.600 m.kr. Skatthlutfall 24,5% í stað 22,0% í óbreyttum lögum Fram er komið stjórnarfrumvarp til breytinga á lögum um virðis- aukaskatt (nr. 50/1988). Það gerir ráð fyrir 24,5% skatthlutfalli í stað 22,0%, sem lögin kveða á um. Fjárlagafrumvarpið gerði á hinn bóginn ráð fyrir 26,0% skatthlutfalli. Með 24,5% skatthiutfalli standa áætlanir til að virðisaukinn skili ríkissjóði 38.600 m.kr. í verði vöru og þjónustu á árinu 1990, sem er 1.900 m.kr. minna en reiknað var með í (Járlagafrumvarpinu. Frumvarpið gerir ráð fyrir að „teknar verði upp sérstakar endur- greiðslur á virðisaukaskatti af mat- vælum. Þá er undanþágum fjölgað frá gildandi lögum. Þar vega bækur þyngst. Skatthlutfallið hækkar úr 22% í 24,5%, sem er minni hækkun en fjárlagafrumvarpið tíundaði. í greinargerð segir: „Að öllu saman- lögðu er niðurstaðan sú, að virðis- aukaskatturinn muni skila 2 millj- örðum króna minni tekjum í ríkis- sjóð en söluskatturinn gerir í dag.“ Þar segir og: „Það er rétt að hafa nokkurn fyrirvara á öllum áætlun- um um áhrif virðisaukaskatts, þar sem hér er á ferðinni ein umfangs- mesta skattkerfisbreyting, sem hér hefpr orðið. Það skapar óhjákvæmi- lega talsverða óvissu á öllum svið- um áætlanagerðar.“ I greinargerð frumvarpsins er staðhæft að upptaka virðisauka leiði til 0,5% til 1,0% lækkunar á vísitölu framfærslukostnaðar, sem að mestu muni skila sér í janúar- mánuði nk. Þetta muni koma fram í „beinni verðlækkun ýmissa mat- væla, svo sem nýmjólkur og dilka- kjöts um allt að 8%, en einnig veg- ur 20% lækkun bílatrygginga þungt“. „Ahrifin á vísitölu byggingar- kostnaðar eru óhagstæðari fyrst í stað, þar sem breikkun á skatt- stofni mun að öllum líkindum valda um 1% hækkun."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.