Morgunblaðið - 06.12.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
31
Halda forráðamenn skipasmiðja að
útg’erðarmenn séu viljalaus verkfæri?
eftir Eirík Ólafsson
Af málflutningi hagsmunaaðila
í íslenskum skipaiðnaði má ráða,
að þeir álíti íslenska útgerðarmenn
„viljalausa aula“ sem láta ein-
hvetja ráðgjafa útí bæ segja sér
fyrir verkum.
' Sannleikur málsins er hins veg-
ar sá, að útgerðarmenn leita til
ráðgjafastofa til að hanna fyrir sig
ný skip og/eða sjá um breytingar,
sem síðar eru boðnar út til þeirra
aðila, sem útgerðin ákveður.
Þegar tilboð hafa borist tekur
útgerðarmaðurinn ákvörðun um
hvaða tilboði hann tekur.
En aftur á móti er það eitt að
skipasmíðastöðvar og tækjafram-
leiðendur hafa oft boðið lægra
verð eftir að tilboð hafa verið opn-
uð og þar hafa íslenskir framleið-
endur ekki verið eftirbátar þeirra
erlendu og tekið þátt í þeim leik
að fullu.
Undirritaður veit engin dæmi
þess að íslenskur útgerðarmaður
hafi tekið erlendu tilboði hafí hann
fengið hagstæðara eða jafnhag-
stætt innlent tilboð.
Þar sem ég þekki til, hafa út-
gerðarmenn fengið ráðgjafa til að
aðstoða sig við að meta tilboð.
Að því loknu hefur ráðgjafinn lagt
faglegt mat á niðurstöðurnar, án
þess að reyna að beina viðskiptum
til ákveðinna skipasmíðastöðva
eða tækjaframleiðenda.
Með þessu vil ég aðeins leggja
áherslu á að íslenskir útgerðar-
menn taka sjálfir ákvarðanir um,
hvert þeir beina viðskiptum sínum
og jafnframt taka þeim tilboðum
sem eru þeim hagkvæmust hverju
sinni.
Að lokum vil ég taka fram, að
skiparáðgjafafyrirtækin urðu til,
vegna þess að útgerðirnar gátu
ekki lengur sætt sig við að semja
við verkstæði og skipasmíðastöðv-
ar án útboðs. Þegar útgerðarmað-
ur fer með skip sitt í skipasnn'ða-
stöð og felur henni jafnvel stór-
breytingu á skipi sínu án útboðs,
er hann ofurseldur skipasmíða-
stöðinni bæði með verð og
verktíma.
Það er mín skoðun að fyrirtæk-
ið sem ég starfa við hafi hagnast
á að kaupa ráðgjafaþjónustu. Að
sjálfsögðu myndum við ekki skipta
við ráðgjafa nema við treystum
þeim til að vinna fyrir okkur af
heilum hug.
Höfundur er útgerðnrstjóri
Ilraðrrystihúss Fáskrúðsfjarðar
hf.
t
Móðir okkar,
SIGFRIÐ (LILLÝ) BREIÐFJÖRÐ,
Réttarholtsvegi 89,
lést í Vífilsstaðaspítala þann 4. desember.
Börn hinnar látnu.
t
Ástkær móðir okkar,
MÁLFRÍÐUR JÖRGENSEIM,
Sörlaskjóli 66,
lést í Borgarspítalanum aðfaranótt mánudagsins 4. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Böm hinnar látnu.
Eiríkur Ólafsson
t
Faðir okkar og afi,
BJARNI E. GUÐMUNDSSON
frá Seli, Grímsnesi,
Hlaðhömrum, Mosfellsbæ,
lést 4. desember. Jarðarförin auglýst síðar.
Björg Bjarnadóttir,
Helga Bjarnadóttir
og barnabörn.
t
Systir okkar,
SIGRÍÐUR HANNESDÓTTIR,
Bjargi,
er andaðist 1. desember, verður jarðsungin frá Oddakirkju laugar-
daginn 9. desember kl. 14.00.
Ólafur Hannesson,
Sigurður Hannesson,
Ingólfur Hannesson.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
andaðist að morgni þriðjudagsins 5. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Margrét Helgadóttir,
Guðrún Helgadóttir,
Pétur Helgason,
Sigurlaug Helgadóttir,
Hallgrímur Heigason,
Björg Helgadóttir,
Páll Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Jóhann Ingimarsson,
Ása Ásbergsdóttir,
Ragnar Á. Ragnarsson,
Magnús Fr. Sigurðsson,
Bjarney Einarsdóttir,
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
Föstudaginn 8. desember 1989
fara fram nauðungaruppboð, þriðja og síðasta, á eftirtöldum
fastelgnum:
Aðalgötu 32, A, D og E hluti Siglufirði, þingl. eign Einars Jóhannsson-
ar & Co hf., eftir kröfum Valgarðs Briem hrl., Brunabótafélags ís-
lands, Guðmundar Jónssonar hdl., Jóns Kr. Sólnes hrl., innheimtu-
manns ríkissjóðs og Björns Jónssonar hdl. Kl. 13.10 á eigninni sjálfri.
Aðalgötu 20, Siglufirði, þingl. eign Bergþórs Atlasonar, eftir kröfum
Brunabótafélags íslands, innheimturrianns rikissjóðs, Verslunar-
banka íslands og Lögheimtunnar hf. Kl. 13.30 á eigninni sjálfri.
Aðalgötu 22, e. hœð, Siglufirði, þingl. eign Filippusar Birgissonar,
eftir kröfum Sveins Skúlasonar hdl., Jóns Þóroddssonar hdl., Gísla
Kjartanssonar hdl., Ólafs Sigurgeirssonar hdl., Ólafs Garðarssonar
hdl. og Guðmundar Jónssonar hdl. Kl. 13.50 á eigninnl sjálfri.'
Aðalgötu 28, Siglufirði, þingl. eign Leós R. Ólasonar, eftir kröfum
Arnmundar Backmanns hrl., innheimtumanns ríkissjóðs og Siglu-
fjarðarkaupstaðar. Kl. 14.10 á eigninni sjálfri.
Fossvegi 9, Siglufirði, þingl. eign Konráðs Baldvinssonar, eftir kröf-
um Sveins H. Valdimarssonar hrl., Arnmundar Backmanns hrl., Þórð-
ar Þórðarsonar hdl. og Tryggva Guðmundssonar hdl. Kl. 14.30 á
eigninni sjálfri.
Grundargötu 6b, Siglufirði, þingl. eign Bergþórs Atlasonar, eftir kröf-
um Útvegsbanka fslands hf., Tryggingastofnunar ríkisins, Brunabóta-
félags íslands og veðdeildar Landsbanka íslands. Kl. 14.50 á eign-
inni sjálfri.
Hólavegi 9, mið- og efsta hœð, Siglufirði, þingl. eign Önnu Grétars-
dóttur, eftir kröfum Andra Árnasonar hdl. og veðdeildar Landsbanka
fslands. Kl. 15.10 á eigninni sjálfri.
Hólavegi 10, n. hœð, Siglufirði, þingl. eign Guðmundar V. Jónsson-
ar, eftir kröfu Landsbanka íslands. Kl. 15.30 á eigninni sjálfri.
Hvanneyrarbraut 17, e. hœð, Siglufirði, talinn eign Úlfars H.
Sæmundssonar, eftir kröfum Arnmundar Backmanns hrl. og Bruna-
bótafélags islands. Kl. 15.50 á eigninni sjálfri.
Bæjartógetinn á Siglufirði,
Erlingur Óskarsson.
Borgarnes
Tundur verður haldinn i Sjálfstæðishúsinu fimmtudaginn 7. desem-
ber nk. kl. 20.30.
Umraeðuefni: Komandi Bæjarstjórnarkosningar.
Sjálfstæðisfélögin.
smá auglýsingor
Wélagslíf
I.O.O.F. 7 = 171126872 = E.K.
□ GLITNIR 59891267 - 1
REGLA MIISTERISRIDDARA
RM Hekla
06.12.SUR.MT.
I.O.O.F. 8=171126872=9 II
□ 'HELGAFELL 59891267 IVA/
2.
I.O.O.F. 9=1711206872=
Málsv. 1800.
ifffi SAMBAND ÍSLENZKRA
'Sgjí' KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samkoma i kvöld i Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58 kl.
20.30. Ræðumaður Benedikt
Jasonarson. Allir velkomnir.
Akranes - jólaf undur
Jólafundur Báru verður haldinn föstudaginn 8. desember kl. 20.00
i sjálfstæðishúsinu, Heiðargerði 20.
Dagskrá:
1. Jólamatur.
2. Upplestur.
3. Skemmtiatriði.
Konur fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtinefnd.
Jólafundur Ljósgeislans
Uppselt er á fundinn í kvöld.
Stjórnin.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaöarerindisins.
Almenn samkoma i kvöld
kl. 20.00.
Jólafundur
Húsmæðrafélags Reykjavíkur
verður í kvöld miðvikudag í
Dómus Medica, Egilsgötu og
hefst kl. 20.30. Fjölbreytt dagskrá
að vanda. Jólahugvekja. Danssýn-
ing barna. Gamansöngur. Jóla-
happdrætti. Kaffihlaðborð.
Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Mosfelfingar
Bæjarfulltrúarnir
Þórdis Sigurðar-
dóttir og Þengill
Oddsson verða til
viðtals i félagsheim-
ilinu, Urðarholti 4,
fimmtudaginn 7.
desember milli kl.
17.00 og 19.00.
NAR ERU KOMNAR í habitat / j
Ijós og lampar, búsóhöld og gjafavörur, húsgögn í miklu úrvali. Verið velkomin - í jólaskapi inn ö Laugaveg 13, S 625870.