Morgunblaðið - 06.12.1989, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1989
41
SKOLASTARF
Nemendur Klúkuskóla
heimsækja Reykjanes
Nemendur klúkuskóla fóru á
dögunum í helgarheimsókn í
Reykjanesskóla í ísafjarðardjúpi.
Var heimsóknin gerð í barnaskól-
ann þar, en samstarf milli skólanna
var tekið upp á síðastliðnu vori,
þegar börn úr barnaskóla Reykja-
ness komu hingað í viku heimsókn
og var þá m.a. haldið hér sameigin-
legt dansnámskeið. Núna var mikið
um keppni milli skólanna í íþróttum
og lauk svo að skólarnir skildu jafn-
ir. Vann hvor skóli í jjórum grein-
um.
Nágrenni skólans á Reykjanesi
var skoðað og fiskeldið sem þar er
rekið, einnig Héraðsskólinn. Tóku
þeir Sverrir Kristinsson kennari við
barnaskólann og Þorkell Ingimars-
son skólastjóri Héraðsskólans á
móti hópnum úr Klúkuskóla. Hafði
margskonar undirbúningur átt sér
stað af beggja hálfu, enda heim-
sóknin sérlega vel heppnuð.
Við Klúkuskóla er áfram unnið
að hönnun viðbótarefnis í stærð-
fræði fyrir nemendur grunnskóla,
VEISLUELDHUSIÐ
ÁLFHEIMUM 74
• Veislumatur og ðll áhöld.
• Veisluráðgíöt.
• Salarleiga.
• Málsverðir í fyrirtæki.
• Tertur. kransakökur.
• Snittur oo pinnamatur.
686220-685660
Þ.ÞORGRfMSSON&CO
. ARMA
W PLAST
ÁRMÚLA 1 6 OG 29, S. 38640
en þar hefir stærðfræðiefni Judy
Instructo kerfisins verið þýtt og
staðfærð og efninu dreift til allra
skóla á Vestfjörðum. Þá er í vetur
unnið að hönnun sérhæfðrar
kennslubókar um efnið „Tíminn“,
allt frá sekúndum upp í ár og ald-
ir. Er þar fornu og nýju efni um
þetta gerð skil og það dregið saman
til notkunar í kennslu í yngri og
eldri deild grunnskólans. Hefir
þessu efni og verkefnum verið vel
tekið af nemendum og nýtist það
bæði við kennslu í móðurmáli og
öðrum málum.
- SHÞ
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
„Mjólk er góð,“ segja nemendur Klúkuskóla, sem hér eru með skólamjólk í fyrsta sinn. Frá vinstri:
Valgeir, Sölvi, Viktor, Hrönn, Steinar, Jóhanna, Aðalbjörg, Hlynur, Bjarki og Harpa.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Guðrún Guðmundsdóttir, upp-
boðshaldari Klausturhóla.
NÝR UPPBOÐSHALDARI
„Gamall
draumur að
rætast
Guðrún guðmundsdóttir hefur
fengið leyfi til að halda opin-
ber uppboð og fyrir nokkru hélt hún
málverkauppboð á vegum Klaustur-
hóla ásamt föður sínum.
Guðrún er dóttir Guðmundar
Axelssonar og sagðist hún lengi
hafa unnið við uppboð. „Nú er gam-
all draumur að rætast.“ Framvegis
munu því tveir uppboðshaldarar
starfa á vegum Klausturhóla.
Þá hefur hún einnig tekið við
rekstri fornbókasölunnar, en ekki
sagði hún að breytinga væri að
vænta á þeim rekstri.
NAD
ÞAR SEM GÆÐIN HEYRAST
5320 GEISLASPILARI KR. 23.900
6325 KASSETTUTÆKI KR. 24.600
3020 i MAGNARI 2x35W KR. 15.900
NAD er fjölþjóðlegt fyrirtæki stofnað og rekið af Hi-Fi
sérfræðingum.
Vegna eigin orðstírs og meðmæla ánægðra notenda auk
stöðugs lofs gagnrýnenda í helstu fagtímaritum hafa NAD
hljómtækin áunnið sér alheimsviðurkenningu fyrir gæði
og gott verð.
Markmið NAD er að framleiða hágæða hljómtæki sem
þjóna sínum tilgangi. Allar tónstillingar eru einfaldar í
notkun og hafa hagnýtan tilgang. Engin áhersla er lögð á
tilgangslitla stillitakka og ljósbúnað sem hækka verð
tækjanna, heldur gæði sem heyrast.
NAD rekur fullkomna ránnsóknarstofu í London og leitar
einnig til heimsþekktra ráðgjafa um þróun hagnýtra
nýjunga. Þetta samstarf ásamt þátttöku viðskiptaaðila frá
meira en 30 löndum hefur gert NAD að brautryðjanda sem
sameinar tæknilega fullkomnun og auðvelda notkun.
Þegar þú velur NAD hljómtæki, fjárfestir þú í heyranlegum
gæðum - ekki sjónhverfingum eða óþörfum stillitökkum
- heldur í leiðandi hönnun, völdum framleiðsluhlutum,
nákvæmu gæðaeftirliti og vandaðri og varanlegri smíð.
Þess vegna eru NAD öðruvfsi tæki.
L* 'li '
8
Ármúla 17, Reykjavík
sími 688840, 685149, 83176