Morgunblaðið - 23.12.1989, Page 14
ar
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989
Dé Longhi djúp-
steikingarpotturinn
er byltingarkennd
nýjung
Verd adeins kr.
10.990,-
stadgreiil
Hallandi karfa, sem snýst
me&an á steikingu stendur:
• jafnari steiking
• notar aðeins 1,2 Itr. af olíu
í stað 3ja Itr. í venjulegum"
pottum
• styttri steikingartíma
• 50% orkusparnaður
DéLonghi erfallegur
fy rirferbarlítill ogfljótur
/FOnix
HÁTÚNI 6A .SIMI (91)24420
Islenskar plötur:
Bubbi er
söluhæstur
Sálin hans Jóns míns
og Geirmundur Val-
týsson fylgja á eftir
SALA á íslenskum hljómplötum
hefur gengpð afar vel fyrir þessi
jól að sögn útgefenda, en alls
hafa þrettán plötur náð gullsölu,
3.000 eintök, og sjö platínu, 7.500
eintök. Söluhæst er plata Bubba
Morthens, en Sálin hans Jóns
míns, Geirmundur Valtýsson og
Ríó eru ekkí langt á eftir.
Pétur Kristjánsson hjá Skífunni
sagði að plötusalan hefði farið fram
úr þeirra björtustu vonum. Hann
sagði söluhæstu plötu útgáfunnar
vera plötu Geirmundar Valtýssonar,
sem selst hafi í rúmum 8.500 eintök-
um, en á hæla hans kæmu Síðan
skein sól og HLH-flokkurinn með
7.500 eintök hvor plata. Plata
Brúðubílsins og jólaplata Björgvins
Halldórssonar hafa selst í 3.000 ein-
tökum, en aðrar plötur minna.
Steinar Berg hjá Steinum hf. sagði
sölu á íslenskum plötum með mesta
móti, en söluhæsta plata hans fyrir-
tækis er plata Sálarinnar hans Jóns
míns, sem selst hefur í um 11.000
eintökum. Þar á eftir er plata Ríó
sem selst hefur í um 8.500 eintökum.
Plata Örvars Kristjánssonar hefur
selst í um 4.000 eintökum og plötur
Valgeirs Guðjónssonar og Nýdan-
skrar hafa selst í 3.000 eintökum
hver. Aðrar plötur hafa selst minna.
Steinar sagði og að fyrirtækið hefði
endurútgefið nokkrar gamlar jóla-
plötur sem hefðu selst meira en nokk-
ur átti von á.
Geisli hf. gefur út eina plötu fyrir
þessi jól, plötuna Nóttin langa með
Bubba Morthens. Sú plata, sem
Steinar dreifir, hefur selst í um
13.500 eintökum og er því söluhæsta
platan seni stendur.
< BG-útgáfan gefur út plötuna
Rokklingarnir og hefur sú plata selst
í um 8.500 eintökum.
Myndin var tekin af kórum kirkjunnar, Bjöllukór og hljóðfæraleikurum, er jólamessa sjónvarpsins
var tekin þar upp á dögunum.
Helgihald í Bústaða-
kirkju um jól og áramót
Að venju verður fjölbreyttur tonhstarflutningur í Bustaða-
kirkju jafnhliða messunum. Barnakór og Bjöllukór hafa verið
stofiiaðir við kirkjuna og koma þeir fram í messunum. Hjónin
Erla Vilhjálmsdóttir og Skúli Jóhannesson færðu kirkjunni bjöll-
urnar að gjöf. Þetta er höfðingleg gjöf og sýnir velvilja og hug
þeirra hjóna til kirkju sinnar.
Á aðfangadag verður barna-
messa klukkan 11.00 árdegis. Að-
fangadagur er að þessu sinni 4.
sunnudagur í aðventu og því verður
fjórða kerti aðventukransins tendr-
að í bamamessunni. Þar verða
sungnir jólasöngvar og eru foreldr-
ar hvattir til þátttöku með börnum
sínum.
Aðfangadagstónleikar verða
klukkan 17.20. Þar koma fram
kirkjukór, barnakór og Bjöllukór
Bústaðakirkju ásamt einsöngvur-
unum Guðrúnu Jónsdóttur, Ing-
veldi Ólafsdóttur og Stefaníu Val-
geirsdóttur.
Klukkan 18.00 verður aftan-
söngur. Þar leika á hljóðfæri Guð-
rún Másdóttir á óbó, Kristín Lárus-
dóttir á selló og Guðrún Jóna Sig-
urðardóttir á flautu.
Á jóladag verður hátíðarguðs-
þjónusta klukkan 14.00. Kristín
Sigtryggsdóttir syngur einsöng og
feðgarnir Hafsteinn Guðmundsson
og Gylfi Hafsteinsson leika á fag-
ott og selló.
Skírnarguðsþjónusta verður
klukkan 15.30.
Annan jóladag verður fjöl-
skylduguðsþjónusta klukkan
14.00. Barnakór Bústaðakirkju
leiðir sönginn ásamt félögum úr
kirkjukórnum. Einsöngvari verður
Sigríður Jónsdóttir og systur henn-
ar, Þórhildur Halla og íma Þöll,
leika á selló og fiðlu,
Jólatrésskemmtun barnanna
verður í safnaðarheimilinu fimmtu-
dagin 28. desember klukkan 14.00.
Á gamlársdag verður aftansöng-
ur klukkan 18.00. Eiríkur Hreinn
Helgason syngur einsöng og Guð-
mundur Hafsteinsson leikur á
trompet.
Á nýjársdag verður hátíðarguðs-
þjónusta klukkan 14.00. Ræðu-
maður verður Sigmundur Guð-
bjarnarson háskólarektor. Það er
sérstakt gleðiefni að fá leikmann
til að stíga í stólinn á þessum degi
og hefja þannig gönguna mót
lengri degi, hækkandi sól og nýjum
reynslusporum lífsins. Einsöngvari
í messunni verður Ingveldur Olafs-
dóttir.
Organisti og söngstjóri Bústaða-
kirkju er Guðni Þ. Guðmundsson.
Hann hefur annast æfingar kóra
og hljómsveita og hefur Guðrún
Jónsdóttir stjórnað barnakórnum
ásamt honum.
Bústaðakirkja hefur ætíð verið
fjölsótt og ekki síst á jólum. Það
er von starfsfólks og sóknarnefnd-
ar að svo verði einnig nú og fólk
mega finna gleði og frið jólanna
með þátttöku í helgihaldi í Bústaða-
kirkju.
Með einlægum jólaóskum.
Pálmi Matthíasson,
sóknarprestur.
I rúmlega hálfa öld hefur gullsmíðastofa Kjartans Ásmundssonar haft mikið
úrval gull og demantsskartgripa á boðstólum.
Aldrei fyrr hefur úrvalið verið meira og allt eru það gæðademantar sem
fluttir eru inn frá Antwerpen, miðstöð demantsviðskipta í heiminum.
Ef þú leitar að fallegri gjöf sem gleður ástvin, - þá líttu við hjá okkur.
Staða sveppa-
ræktar á Islandi
eftir Oddgeir Þór
Árnason
Undanfarna daga hafa fjöl-
miðlar fárast yfir innflutningi á
rotmassa sem notaður er til
svepparæktar af þremur fyrir-
tækjum í þessari grein.
Þessi fyrirtæki eru Sveppa-
ræktin í jarðhúsunum í Ártúns-
brekku, Þrístikla sf. við Vestur-
landsveg og Gró sf. Akranesi.
Samanlagt eru þessi fyrirtæki
með um 75% af markaðnum í dag
og hafa sérhæft sig í notkun á
fyrrnefndum rotmassa. Heilbrigð-
isyfii'völd, þ.e. yfirdýralæknir og
plöntusjúkdómadeild RALA, hafa
fyrir sitt leyti heimilað þennan
innflutning frá byrjun og fyrir-
tækin hafa lagt í ómældan kostn-
að með það fyrir augum að um
varanlegan innflutning væri að
ræða.
Islensk skipafélög flytja rot-
massann frá Englandi í gámum
og hafa verið gerðar pantanir
langt fram á næsta ár.
Við höfum stóraukið neyslu Is-
lendinga á sveppum með lækkandi
verði undanfarna mánuði, ha-
græðingu í rekstri og litlum fjár-
magnskostnaði.
Hvers vegna á nú að bregða
fyrir okkur fæti með lögum frá
1928? Skýringin er einfaldlega sú,
að sveppabóndinn á Flúðum beitir
öllum ráðum til þess að eyðileggja
okkar fyrirtæki og neitar allri
samvinnu við okkur.
Ástæðan fyrir því er sú, að
Oddgeir Þór Árnason
„Það er hryggilegft, að
hinir fáu svepparækt-
endur hér á landi skulu
ekki geta haft með sér
samstarf og samvinnu
við hina erfiðu en
skemmtilegu ræktun.“
hann þarf að fá margfalt hærra
verð fyrir sína sveppi þar sem
fyrirtæki hans skuldar yfir 90%