Morgunblaðið - 23.12.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.12.1989, Blaðsíða 24
24 , MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1989 Sala nýsmíðaskips Slippstöðvarinnar: Neitun Fiskveiðasjóðs alvarlegri en orð fa lýst - segir Hákon Hákonarson formaður Félags málmiðnaðar- manna - kvíða gætir hjá starfsmönnum Slippstöðvarinnar „ÞETTA er alvarlegra mál en orð fá lýst,“ sagði Hákon Hákonar- son formaður Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri um þá ákvörð- un stjórnar Fiskveiðasjóðs að hafha samningi Meleyrar hf. á Hvammstanga vegna kaupa á nýsmíðaskipi Slippstöðvarinnar hf. Fleiri viðmælendur Morgunblaðsins tóku í sama streng, en sem kunnugt er var öllum starfsmönnum Slippstöðvarinnar sagt upp störíum 1. nóvember síðastliðinn vegna fyrirsjáanlegs verke&ias- korts. Ekkert hefur ræst úr varðandi verkefiii, en forráðamenn stöðvarinnar buðu í tvö stór verkefni, smíði mælingabáts fyrir Landhelgisgæsluna og breytingar á Árna Friðrikssyni, en hvorugt verkefiianna kom í hlut Slippstöðvarinnar. í fyrrdag hafiiaði Fisk- veiðasjóður samningi um kaup á nýsmíðaskipi stöðvarinnar, en við skipið átti að vinna mánuðina janúar og fram í apríl. Hákon Hákonarson formaður Félags málmiðnaðarmanna sagðist harma mjög niðurstöðu stjórnar Fiskveiðasjóðs og væru hún raunar með ólíkindum. „Þessi afgreiðsla sannar mér enn einu sinni hversu nauðsynlegt er að hagsmunaaðilar í málmiðnaði eigi greiðan aðgang inn í stjóm Fiskveiðasjóðs, þannig að ekki einungis þrengstu hags- munir útgerðaraðila komist að í umræðunni," sagði Hákon. Hann sagði valið standa um það hvort menn ætluðu að halda áfram að flytja vinnu úr landi eins og gert hafi verið varðandi endurnýjun á fiskveiðiflotanum og innleiða stór- fellt atvinnuleysi í málmiðnaði í kjölfarið, eða hvort menn ætluðu að taka tillit til heildarþjóðarhags- muna, en það væri engin spurning að yrðu verkefni unnin innanlands mættu þau kosta á bilinu 20-25% meira en erlendis. „Ég hef enga trú á að þessi ákvörðun verði tii þess að beygja menn, við verðum að halda áfram að beijast á öllum vígstöðvun þar til sigur er í höfn,“ sagði Hákon. „Ég er alveg bit á þessari af- greiðsiu,“ sagði Þorsteinn Konráðs- son formaður starfsmannafélags Slippstöðvarinnar. Hann sagði mik- inn kvíða í starfsmönnum stöðvar- innar og nú væri alveg ljóst að tals- verður hópur manna með langa starfsreynslu yrði atvinnuiaus um mánaðamótin janúar/febrúar á næsta ári „Menn eru virkilega kvíðnir, því þetta verkefni átti að koma okkur yfir svartasta skamm- degið," sagði Þorsteinn. „Manni sýnist sem verið sé að reyna að keyra þetta fyrirtæki niður með öllum ráðum.“ Þorsteinn sagði að -stjórnvöld gætu haft áhrif á ákveðna hluti varðandi þennan at- vinnurekstur, þau gætu stýrt og miðlað hluta verkefnanna og haft áhrif á sjóðakerfið. „Þetta er í ann- að skipti sem kerfið hefur brugðist og manni sýnist sem stjórnvöld ætli sér að skipta sér af beinum rekstri stöðvarinnar, því einhveijar vöflur voru á mönnum vegna þess að við ætluðum að taka gamalt skip upp í, það er einhver annarleg- ur hugsanagangur ríkjandi í sam- bandi við það,“ sagði Þorsteinn. Morgunblaðið/Rúnar Antonsson Ók aftan á Harður árekstur varð á Þingvallastræti við Spennistöð rétt eftir hádegið í gær. Fólksbíll hafði stöðvað við gangbrautarljós til að hleypa gangandi vegfaranda yfir götuna, en jeppa sem kom á eftir var ekið aftan á hann. Fólksbíllinn er svo til ónýtur eftir aftaná- keyrsluna. Engin slys urðu á fólki. Plasteinangrun; Fær heimild til að leita nauðasamninga PLASTEINANGRUN hf. hefiir verið veitt heimild til að leita nauðasamninga við kröfuhafa sina, en fyrirtækið leitaði eftir slíkri heimild eftir að framlengd greiðslustöðvun þess rann út 10. desember síðastliðinn. Arnar Sigfússon, skiptaráðandi hjá bæjarfógetaembættinu á Akur- eyri, hefur verið að skoða stöðu fyrir- tækisins og hefur hann nú kveðið upp þann úrskurð að Plasteinangrun hf. verði veitt heimild til að leita nauðasamninga við kröfuhafa sína. Næsta skref í málinu er birting inn- köllunar í Lögbirtingablaðinu þar sem skorað er á kröfuhafa að lýsa kröfum sínum og verður haldinn fundur 21. mars á næsta ári þar sem greidd verða atkvæði um frumvarp að nauðasamningum. Á þeim fundi ætti að koma í ljóst hvort kröfuhafar samþykkja að fara nauðasamninga- leiðina. Óskum öllum vidskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gle^ilegra jóla og farsæls miýs árs. Þökkum viðskiptin á árinu. o ^ ^ ÍM.U Óskum öllum landsmónnum gleöilegra jóla og farsœls komandi árs og þökkum frábœr viöskipti á árinu. Blómabúðin Laufás, Hafnarstræti 96, Akureyri. Óskum öllum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleáilegra jóla og farsæls mýs árs. Þökkum vióskiptin á árinu. Beséui og mýárseskiF sendum við öllum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum. Þökkum vióskiptin. HAGKAUP Norðurgötu 62 Grleðileg jól farsæltt komanJi ár Þökkum viðskiptin. WTTmi Furuvöllum 9, sími 2 21390. antHadur ma: ur í úrvali Leggjum áherslu ágóða ogörugga þjónustu. Klœðskeraþjón usta. Sendum bestu jóla- og nýárskveðjur til vióskipta- vina okkar um land allt. Sendum viðskiptavinum okkar og landsrúönnum öllum okkar bestu r p r floJla- og nýarsostar. Þökkum viðskiptin á liðnum árum. BÓKVAL Kaupvangsstræti 4, sími 26100. Sendum öllum viðskiptavinum okkar svo ogöllum landsmönnum okkarbestu jjóla- og nýárskveðjjur Þökkum viðskiptin Skipagötu 12, sími21464 Óskum öllum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleeilegra j) <og farsæls nýs árs. f ökkum viðskiptin á árinu. ÍBÍNAÐARBANKI ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.