Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 21
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990 21 Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald-1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið. Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fuíltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Sjálfetæðisflokkurmn og kjarasamningar orsteinn Pálsson, for- maður Sjálfstæðis- flokksins, skrifaði grein í Morgunblaðið sl. laugardag, þar sem hann vék að við- horfum í þeim kjarasamning- um, sem nú standa fyrir dyr- um og sagði: „Forystumenn atvinnurekenda og launþega eru um þessar mundir upp- teknir við að búa til efna- hagsstefnu fyrir ríkisstjórn- ina og veitir ekki af. Satt bezt að segja er það eitt virð- ingarverðasta frumkvæði í þjóðmálum um margra mán- aða skeið. Á þeim vettvangi hefur það meginmarkmið verið sett að ná niður verð- bólgu. Forystumenn launþega sýnast vera reiðubúnir til þess að ganga að svonefndri „núlllausn" í kjarasamning- um. Þó að kaupmáttarfórnir séu auðvitað erfiðar skiptir þó höfuðmáli að ná niður verðbólgu og flest bendir til þess, að nú sé lag til þess að ná verulegum árangri í því efni, ef ríkisstjórnin er þá í færum til þess að taka við slíkri efnahagsstefnu að gjöf.“ Það fer ekkert á milli mála, að með þessum orðum sýnir Þorsteinn Pálsson, að hann vill leggja sitt lóð á vogarskálina til þess að tak- ast megi að gera skynsam- lega kjarasamninga, sem stuðli að minnkandi verð- bólgu. Þótt deilur milli stjórnar og stjórnarandstöðu séu óvenju harðar um þessar mundir er formaður Sjálf- stæðisflokksins bersýnilega tilbúinn til þess að víkja þeim til hliðar og þar með pólitísk- um skammtímahagsmunum til þess, að þau markmið náist, sem meiru máli skipta fyrir framtíð og velferð þjóð- arinnar, þ.e. að ná niður verðbólgunni. Þessi ábyrga afstaða formanns Sjálfstæð- isflokksins á viðkvæmum tímum í viðræðum aðila vinnumarkaðar er fagnaðar- efni og í samræmi við sögu og hefðir stærsta stjórn- málaflokks þjóðarinnar. Nú þegar hafa tekizt ein- lægar viðræður milli vinnu- veitenda og verkalýðssam- taka. Að vísu kunna blikur að vera á lofti vegna ágrein- ings um kaup og kjör sjó- manna en ' þess verður að vænta, að sjómenn taki ekki síður þátt í því en aðrir að stuðla að raunhæfum kjara- samningum og lækkandi verðbólgu. Nú hlýtur athyglin að beinast að ríkisstjórninni. Þorsteinn Pálsson bendir réttilega á það í grein sinni, að hlutur hennar er ekki sem skyldi. Á sama tíma og reynt er að ná raunhæfum kjara- samningum leggur ríkis- stjórnin á stórfellda nýja skatta. Morgunblaðið vakti athygli á því fyrir nokkrum dögum, að einkafyrirtækin hafa gengið hart fram í því á síðustu misserum að draga úr útgjöldum til þess að bæta stöðu sína. Því miður verður ekki hið sama sagt um ríkisstjórnina. Hún hefur ekki gengið hart fram í því að lækka ríkisútgjöld en í þess stað hefur hún stór- hækkað skatta. Sú sérkennilega staða er því að koma upp á hinum pólitíska vettvangi, að Sjálf- stæðisflokkurinn, aðal stjórnarandstöðuflokkurinn, skipar sér í sveit með þeim þjóðfélagsöflum, sem vilja stuðla að minnkandi verð- bólgu með kjarasamningum á lágum nótum, en ríkis- stjórnin, sem á að hafa mest- an pólitískan hag af því, að sá árangur náist, lætur sinn hlut eftir liggja. Á næstu vikum hlýtur sú krafa að verða gerð til ríkis- stjórnar Steingríms Her- mannssonar, að hún stuðli að því fyrir sitt leyti, að þess- ir samningar náist eins og að hefur verið stefnt. Fari þessi tilraun út um þúfur blasir við ný kollsteypa, ný verðbólga, aukin kjaraskerð- ing, fleiri gjaldþrot. Hveijir hafa hagsmuni af því? Það er alla vega ljóst, að launþeg- ar hafa ekki hagsmuni af því, að sú verði þróunin. Kaup Landsbankans á hlnt Sambandsins í Samvinnubankanum: Tilboð Landsbankans var samþykkt eftir mikil átök Þrír stóórnarmenn skiptu um skoðun milli fimda STJÓRN Sambands íslenskra samvinnufélaga ákvað á fundi sínum á sunnudag að ganga að tilboði Landsbankans í hlut Sambandsins í Samvinnubankanum. Atkvæði féllu þannig að fimm stjórnarmanna voru samþykkir tilboðinu og fjórir andvígir. Atök voru mikil á fundin- um, og lengi vel var talið að meirihluti stjórnarinnar yrði andvígur tilboðinu og því yrði þar með hafnað, en þrír sljórnarmenn, sem andvígir voru tilboðinu á fundinum á föstudag, höfðu fyrir fundinn á sunnudag snúist á sveif með þeim sem vildu selja Landsbankanum 52% hlut sinn fyrir 605 milljónir króna. Auk þess samþykkti stjórnin að selja hlut Sambandsins í íslenskum aðalverktökum. Þeir sem samþykktu söluna voru Ólafur Sverrisson, formaður stjórn- arinnar, Þröstur Ólafsson, Hörður Zophaníasson, Helga V. Péturs- dóttir og Þórarinn Sigurjónsson. Þau sem voru á móti voru Birna Bjarnadóttir, Þorsteinn Sveinsson, varaformaður stjórnarinnar, Gunn- Ölafiir Sverrisson: Hagnaður af sölu Samvinnu- banka vinnur ekkiupp taprekstur síðasta árs ÓLAFUR Sverrisson sljórnar- formaður Sambandsins segir að ekki þurfi að óttast um afkomu Sambandsins, en losa þurfi um meira af peningum heldur en með sölu 52% hlútar í Samvinnu- bankanum Hann segir hagnað vera af sölunni, sem dugi þó ekki til að vega upp taprekstur síðasta árs. Hann segir að of sterkt sé að orði kveðið að erlendir lána- drottnar hafi verið farnir að ókyrrast. „En, þeir fylgjast með okkur.“ ar Sveinsson og Jónas R. Jónsson. „Við erum í lýðræðislegu félagi og við verðum bara að taka þessari niðurstöðu,“ sagði Þorsteinn Sveinsson í samtali við Morgun- blaðið, þegar hann var spurður hvort þessi ákvörðun stjórnarinnar væri honum mikil vonbrigði. Þor- Hann segir ástæðu sölunnar ein- faldlega vera þá, að Sambandið þurfi að losa fjármuni, ýmislegt hafi verið gert í því, en það stærsta hafi verið þessi sala. Ákvörðunin á sunnudag var ekki einróma. „Þessi naumi meirihluti, _ fimm atkvæði gegn fjórum, var nú ekki eingöngu málefnalegur, heldur sumpart vegna þess að menn vildu fresta ákvörðun, kanna aðra mögu- ieika fyrst, þetta á við suma þeirra sem voru á móti, ekki alla.“ Hinir, sem greiddu atkvæði á móti, vildu alls ekki selja hlutinn í Samvinnu- bankanum, að sögn Ólafs. Hann var spurður hvaða áhrif sala hlutarins í Samvinnubankanum hefði á stöðu Sambandsins, hvort óttast þurfi um fyrirtækið og lífsnauðsynlegt sé að selja fleiri eignir. „Eg held að það þurfi ekki að óttast um afkomu Sambandsins, en það þarf að losa um meira af peningum heldur en þetta sem núna losnar við sölu bankans." Ólafur segist telja að- skuldir Sambandsins séu á bilinu 9 til 10 milljarðar króna. Eiginfjárstaðan hefði batnað við sölu Samvinnu- bankans, þar sem söluverðið væri nokkuð mikið hærra en bókfært steinn kvaðst ekki telja að í fram- haldi þessa yrði um tvær stríðandi fylkingar að ræða innan stjómar Sambandsins. Þórarinn Siguijónsson segist hafa hann ákveðið að styðja söluna, að fengnum upplýsingum frá nefnd- sem átti að kanna vissa þætti máls- ins. Hann sagðist hafa metið stöð- una þannig að Sambandið ætti engra kosta völ og yrði að selja Landsbankanum. „Ég held að ýmissa hluta vegna hefði verið mjög hæpið að bíða. Erlendir bankar voru orðnir óróleg- ir og við máttum illa við því að missa traust," sagði Þórarinn, „þannig að það var minn dómur að það yrði að taka þessa ákvörðun.“ verð bréfanna er. „Hins vegar var taprekstur á síðasta ári, þannig að þessi sala vinnur það tæplega upp.“ Ólafur kveðst ekki treysta sér til að nefna tölur um hve mikið tap varð á rekstrinum á síðasta ári. Morgunblaðið ræddi við Ólaf þar sem hann var staddur í London í gærkvöldi, en þangað fór hann þeg- ar að afloknum stjórnarfundinum á sunnudag. Guðjón B. Ólafsson for- stjóri Sambandsins var staddur í Detroit í Bandaríkjunum í gær og tókst ekki að ná tali af honum. Þorsteinn Pálsson: Ekki hægt að taka skúma- skotaákvarð- anir um svona stórmál ÞORSTEINN Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir þá skyldu hvíla á ríkisstjórninni að upplýsa almenning um öll atriði varðandi sölu hlutabréfa Sam- bandsins í Samvinnubankanum til Landsbankans. Einkum segir hann að yfírlýsingar forsætisráð- herra um alvarlega stöðu Lands- bankans vegna stöðu Sambands- ins og að sómi íslands gagnvart öðrum þjóðum sé í hættu kalli á að allar upplýsingar verði veitt- ar. „Það er ekki hægt að pukr- ast með málið, eins og mér sýn- ist að eigi að fara að gera. Það er ekki hægt að vera með svona stórmál í einhveijum skúma- skotaákvörðunum," segir Þor- steinn. Þorsteinn segir að stjórnarand- stöðuflokkarnir hafi óskað eftir skýrslu um málið og farið fram á að það verði ekki afgreitt fyrr en Alþingi hafi fengið tækifæri til að ræða þær upplýsingar sem í skýrsl- unni verði. „Ég vona enn að alþingi verði ekki virt svo að vettugi að þessi eðlilega krafa nái ekki fram að ganga,“ segir hann. „Forsætisráðherra hefur svo lýst því yfir að Landsbankinn sé kominn í svo alvarlega stöðu að ekki sjái fyrir endann á því máli ef SIS fer í greiðslustöðvun. I annan stað hef- ur hann lýst því yfir að að minnsta kosti verulegur hluti að erlendum skuldum Sambandsins séu óveð- tryggðar og almenningur geti ekki látið þær skuldir falla. Þetta kallar auðvitað á nýjar upplýsingar af ýmsu tagi. Meðal annars svör við því hverjir bera ábyrgð á því að Landsbankinn er kominn í þessa stöðu sem forsætisráðherra greinir frá. Verða þeir menn dregnir til ábyrgðar? Er hugsanlegt að hags- munaárekstur sé í málinu með því að einn af bankastjórum Lands- bankans hefur fyrir ekki löngu látið af stjórnarformennsku í SÍS? Kann að vera að hann beri að hluta til ábyrgð á því í hvaða stöðu Lands- bankinn er kominn. Ef almenningur á að borga brúsann, þá verður að koma með allt dæmið upp á yfir- borðið og alla fjárhagsstöðu Sam- bandsins og raunhæft mat á eignum þess. Það er ekki hægt að ætlast til þess að almenningur borgi brús- ann án þess að það komi fram hverj- ir það eru sem bera ábyrgð á því að færa þarf þetta yfir á skatt- borgarana,“ segir Þorsteinn. Hann segir að enn sé málið í þeim farvegi að verið sé að borga verulegt yfirverð fyrir hlutabréfin í Samvinnubankanum. „Samkvæmt fréttum hefur komið fram að útlán Samvinnubankans til SIS eru að minnsta kosti þrefalt eigið fé Sam- vinnubankans. Hveijir bera ábyrgð á því? Hefur Bankaeftirlitið haft þar einhver afskipti eða hefur það brugðist skyldum sínum samkvæmt lögum.? Þetta þarf allt að draga fram í dagsljósið.“ Sverrir Hermannsson: „Steftia okkar óbreytt að kaupa allan bankann“ SVERRIR Hermannsson, banka- stjóri Landsbankans, segist fagna því að menn hafi náð landi, enda þótt sér sýnist á yfirlýsingu og samþykkt Sambandsins að eitthvað muni á skorta. Þetta sagði bankastjórinn þegar hann var spurður álits á samþykkt stjórnar Sambandsins að taka tilboð Landsbankans í hlut Sam- bandsins í Samvinnubankanum. „Við hér í Landsbankanum búum okkur nú undir það að Samvinnu- bankinn, þótt við eignumst meiri- hluta hlutabréfa, verði fyrir sem minnstri röskun í bili, bæði vegna viðskiptavina hans og einkum og sér í lagi vegna starfsfólksins," sagði Sverrir. „Stefna okkar er óbreytt, að kaupa allan bankann. Fljótlega kunnum við að fara að ræða um hagræðingu úti á landi, eftir því sem kostur er á,“ sagði Sverrir. AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Stormasamur stjórnarfundur Sambandsins: Þeir sem urðu undir reifuðu á GUÐJÓN B. Ólafsson, forstjóri Sambands íslenskra samvinnufélaga, er tvímælalaust sigurvegarinn í þeim átökum sem staðið hafa innan stjórnar Sambandsins um söluna á hlut Sambandsins í Samvinnubank- anum til Landsbankans. Þetta er óhætt að fullyrða, þótt sigurinn hafi ekki getað verið naumari, þar sem niðurstaðan í atkvæðagreiðsl- unni á sunnudag varð sú að fimm greiddu atkvæði með sölunni og fjórir voru henni andvígir. Þetta er talið verða til þess að forsfjór- inn muni í framtíðinni hafa betra næði til þess að stjórna fyrirtæk- inu og meira svigrúm til breytinga og endurskipulagningar. Það er ýmislegt sem kemur á óvart, þegar skyggnst er á bak við tjöldin, frá því stjórn Sambandsins kom saman til fundar á hádegi á föstudag, þar til fundi lauk á sunnu- dag. Eftir að fyrir lá á föstudegi að tvísýnt væri með niðurstöðu í atkvæðagreiðslu um málið, vildu þeir sem voru sölunni fylgjandi fresta fundinum til sunnudags, svo ráðrúm gæfist til frekari könnunar- viðræðna, samráðs við ríkisstjórn- ina og áframhaldandi tilrauna til þess að vinna sölunni aukið fylgi innan stjórnarinnar. Það var ekki fyrr en á laugar- dag, eftir að fimm manna nefnd úr stjórn Sambandsins hafði fundað með fulltrúum ríkisstjórnarinnar, sem línur fóru að skýrast, hvað varðaði afstöðu manna. Þessi fimm manna nefnd var valin á stjórnar- fundinum á föstudag og þeir sem skipuðu hana voru þeir Ólafur Sverrisson, formaður stjórnarinnar, Þorsteinn Sveinsson, varaformaður, Hörður Zophaníasson, ritari, Guð- jón B. Ólafsson, forstjóri, óg Þröst- ur Ólafsson. Fyrir ofangreindan fund með fulltrúum ríkisstjórnarinnar munu þau sjónarmið hafa komið fram hjá þeim Þorsteini og Gunnari Sveins- sonum og Jónasi R. Jónssyni að úr því sem komið 'væri, væri réttast að sýna þjóðinni fram á hvaða af- leiðingar það hefði í för með sér að setja Sambandið á hausinn eða setja það í greiðslustöðvun. Þeir munu hafa látið í ljós þá skoðun að ef slík hótun væri sett fram þá myndi ríkisstjórnin verða skjót til að útvega Sambandinu, einum af stærri skuldurum þjóðarinnar, ríkis- ábyrgð. Á fundinum með ríkisstjórninni fengu stjórnarmenn Sambandsins aftur á móti þær upplýsingar að til ríkisstjómarinnar væri ekkert að sækja í þessum efnum. Sambandið gæti í engu reitt sig á ríkisstjórn- ina. Öldungis óvíst væri að meiri- hluti stjórnarliða vildi samþykkja að veita Sambandinu ríkisábyrgð og enn meiri óvissa væri um hvaða undirtektir slík málaleitan fengi á Alþingi. Spurðu ráðherrar þá Sam- bandsmenn hvort erlendir lánar- drottnar myndu halda að sér hönd- um og hafa biðlund á meðan kann- að væri hvort möguleiki væri á ríkisábyrgð. Þá mun hafa verið fátt um svör. Stjórnarmönnum. kom það spánskt fyrir sjónir, að allan fund- artímann, bæði á föstudag og sunnudag, tók Birna Bjarnadóttir aldrei til máls, né gerði hún afstöðu sína opinbera. Allir aðrir stjórnar- menn tóku til máls á fundinum og flestir oftar en einu sinni. Var þögn Birnu túlkuð á þann veg að hún hefði ákveðið að sitja hjá við at- kvæðagreiðsluna, en svo varð ekki. Hún greiddi atkvæði á móti söl- unni. Aðrir sem voru á móti voru bræðurnir Þorsteinn og Gunnar Sveinssynir, og Jónas R. Jónsson. Þeir sem greiddu atkvæði með sölunni voru Ólafur Sverrisson, Hörður Zophaníasson, Þröstur Ólafsson, Helga V. Pétursdóttir og Þórayinn Sigurjónsson. Samkvæmt mínum upplýsingum frá stjórnar- mönnum Sambandsins, þá snerist þeim Helgu, Ólafi og Þórarni hugur frá föstudagskvöldinu fram á sunnudagsmorgun, því stjórnar- menn telja að þegar ákveðið var að fresta fundinum, hafi einungis tveir verið því hlynntir að ganga að tilboði Landsbankans upp á 605 milljónir króna. Guðjón B. Ólafsson var ómyrkur í máli í orðum sínum við Steingrím Hermannsson forsætisráðherra á fundinum, vegna ummæla forsætis- ráðherra í Morgunblaðinu sl. laug- ardag. Þar sagði ráðherrqnn í sam- tali við mig „að hann teldi að ef tilboðið yrði fellt, gæti það haft í för með sér gjaldfellingu erlendra skulda. Forsætisráðherra sagðist telja að ef erlendir lánardrottnar Sam- bandsins töpuðu jafnvel milljörðum króna, við það að gjaldfella skuldir Sambandsins, sem eru að mestu án trygginga, hefði slíkt óskapleg áhrif á þau lánskjör sem ísland nýtur erlendis. „Ég held að þegar svona er orðið, þá geti ríkisvaldið aldrei litið framhjá því að öllu leyti, “ sagði Steingrímur. “ Guðjón gagnrýndi forsætisráð- herra harðlega og kvaðst telja að slík ummæli úr munni forsætisráð- herra íslands gætu verið íslenskum viðskiptahagsmunum stórskaðleg. Það var ekki fyrr en að af loknum þessum fundi á laugardeginum sem línur höfðu skýrst þannig að líkur voru taldar á því að meirihluti hefði myndast í stjórn Sambandsins fyrir því að taka tilboði Landsbankans. Það var þó engan veginn talið ör- uggt fyrr en á sunnudeginum. Niðurstaða stjórnarfundarins á sunnudag er talin fela það í sér að Guðjón hafi nú fengið viðspyrnu til þess að endurskipuleggja fjármál og rekstur Sambandsins. Hann hafi fengið vilyrði fyrir því að selja hlut Sambandsins í íslenskum aðalverk- tökum og þannig er talið að fjár- magn ætti að nást sem dugi til. Á fundinum var jafnframt samþykkt tillaga Þrastar Ólafssonar þess efn- is að forstjóra væri falið að leggja fyrir næsta stjórnarfund greinar- gerð um reksturinn og framtíðar- skipulag félagsins. Ekki hefur verið ákveðið hvenær stjórnin kemur næst saman en ekki er talið ólíklegt að það verði innan tíðar. Akvörðum um físk- verð ekki í samhengi við kjarasamninga - segir Kristján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ „SÚ deila, sem nú stendur yfir svo og ákvörðun um fiskverð er ekki í nokkru samhengi við almenna kjarasamninga. Sam- kvæmt lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins ber því fyrst og fremst að taka mið af markaðsaðstæðum fyrir sjávarafúrðir og afkomu veiða og vinnslu við ákvörðum fiskverðs. Sjómenn og útgerðarmenn hafa þurft að sætta sig við verulega tekjuskerð- ingu vegna aflasamdráttar og tekjur beggja hafa einnig skerzt vegna verðhækkunar á olíu. Þá er víðast um landið greitt meira fyrir fiskinn en lágmarksverð Verðlagsráð er og til þessara stað- reynda verður að taka tillit, þegar lágmarksverð er ákveðið næst,“ sagði Krislján Ragnarsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í samtali við Morgunblaðið. Nú eru hafnar viðræður vegna almennra kjarasamninga og ótt- ast margir að mögulegir samning- ar um umtalsverða hækkun launa sjómanna geti hamlað gerð al- mennra samninga á mjög lágum nótum. Afkoma sjómanna er mjög mismunandi, bæði eftir því hve mikinn kvóta viðkomandi skip hafa og hve mikið af aflanum er selt á erlendum og innlendum fiskmörkuðum. Hugmyndir um að takamarka útflutninginn eða dreifa honum hafa komið upp og má þ'ar nefna aukið kvótaálag, ákveðinn útf lutningskvóta á hvert skip sem hlutfall af heildarkvóta þess eða hreinlega uppboð á út- flutningsleyfum. Sjávarútvegs- ráðherra lýsti í haust yfir vilja sínum til aukins kvótaálgs og fisk- verkendur og verkalýðssamtökin hafa einnig gert það. Frumvarp- til laga um hækkun á kvótaáálg- inu, sem nú er 15%, hefur ekki verið flutt enn. Kristján Ragnarsson segir eðli- legast að öllum útflutningi á ísuð- um fiski verði stjórnað af sjávar- útvegsráðuneytinu eða LJÚ í um- boði þess, enda sjái LÍÚ nú um siglingar skipanna og tekizt hafi að takmarka þær. Hins vegar hafi útflutningur á fiski í gámum aukizt, jafnvel í desember, þegar fisk hafi víða skort til vinnslu. Lausnin hljóti því að felast í marg- umræddri aflamiðlun. Uppboð á útflutningsleyfum sé einfaldlega út í hött og útflutningskvóti sem hlutfall af aflakvóta sé óréttlátur. Það sé óréttlátt, að einhveijar útgerðir, sem aldrei hafi stundað útflutning á ísuðum fiski, fái út- hlutað kvóta til þess og geti þá hagnazt á sölu hans á kostnað þeirra, sem erlendu markaðina hafi stundað árum saman og jafn- vel byggt þá upp. Draga þarf úr útflutn- ingi á óunnum físki - segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra Sjávarútvegsráðherra, Hall- dór Ásgrímsson, er nú að kanna viðhorf hagsmunaaðila til þess vanda, sem hann telur vera kominn upp við útflutning á óunnum fiski. „Það er vaxandi áhugi fyrir auknum útflutningi á óunnum fiski. Ég er þeirrar skoðunar að slíkan útflutning eigi að draga saman í aflasam- drætti, ekki auka hann, ætli menn sér að halda hér uppi sæmilegu atvinnuöryggi," segir Halldór. Halldór segir í samtali við Morgunblaðið, að þessar kannanir hafi ekkert með fiskverðsdeiluna, sem nú stendur yfir fyrri austan, að gera. Af þeirri deilu hafi hann engin afskipti haft. Hins vegar sé af hans hálfu verið að fjalla um skipulag útflutnings á óunn- um fiski. Breytingar á því séu á döfinni, enda nauðsynlegt að hans mati að draga saman útflutning samfara samdrætti í afla og ótryggu atvinnuástandi. Núverandi verðmynd- un á fiski gengur ekki - segir Oskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands Islands „ÞAÐ kerfi, sem viðgengst nú til verðmyndunar á fiski upp úr sjó, gengur ekki lengur. Margs konar verð er við lýði hveiju sinni og tekjumunur meðal sjómanna er gífúrlegur. Þann mis- mun verður að leiðrétta, hvernig sem það verður gert, en rétta leiðin virðist vandfundin," sagði Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, í samtali við Morgunblaðið. Óskar sagði ennfremur að Sjó- mannasambandið hefði ekki enn mótað stefnu sína í fiskverðsdeil- unni á Austurlandi og möguleg áhrif þeirra á gerð almennra kjarasamninga. Hann sagðist sjálfur vera þeirrar skoðunar að uppboð á útflutningsleyfum væri út í hött og sér litist engan veginn á útflutningskvóta til handa hverjum og einum. „Það er nóg braskið með afla- kvóta og annað þó ekki bætist við að menn geti farið að braska með útflutningsleyfi. Reynsla sjó- manna af öllu þessu braski er ennfremur sú, að engin trygging er fyrir því að tekjur af útflutn- ingsleyfasölu komi að nokkru til sjómanna. Loks finnast mér hug- myndir um aukið kvótaálaga vegna ísfisksölu einkennilegar. Þær gera ekkert annað en skerða mjög takamarkaða tekjumögu- leika sjómanna. Nóg hafa þeir þurft að taka á sig vegna af lasam- dráttar," sagði Oskar Vigfússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.