Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990 39 Ýsan dýrari en ráðuneytið segir Sæbjörg lækkaði verðið í gær vegna hagstæðra innkaupa ÝSUFLÖKIN kosta 58 krónum meira hvert kíló út úr búð, heldur en fram kom í útreikningum hagdeildar fjármálaráðuneytisins og er skýringin sú, að sögn Gísla Blöndal hjá Kaupstað og Miklagarði, að ráðuneytið notar of lágt innkaupsverð í sínum útreikningum og rangar álagningartölur. Fiskbúðin Sæbjörg náði hagstæðum samn- ingum um fiskkaup um helgina og lækkaði þess vegna verðið um 8% í gær og í dag. Vegna þess fór verð á ýsufiökum niður fyrir 400 krónur. Gísli segir að innkaupsverðið sem ráðuneytið notar, 95 krónur kílóið, sé of lágt. Fiskverð á mörkuðum sé hærra og í verðútreikningum sé verðið 114 krónur haft til grundvall- ar. Þá segir hann rangt hjá ráðu- neytinu, að álagning heildsala sé 30,5%, þarna sé í fyrsta lagi ekki einungis um álagningu að ræða, heldur einnig vinnslukostnað við flökun og snyrtingu. Þessi kostnað- arliður sé 35%. Ennfremur segir hann álagningartölu ráðuneytisins fyrir smásöluna vera ranga, ráðu- neytið segir hana vera 25%, en Gísli segir hana vera 15% Að öllu samanlögðu hafi því ýsuflökin kostað 446 krónur kílóið og er reikningsaðferðin sama og hjá ráðuneytinu. Verðið hefur því lækkað, segir Gísli, frá því sem hefði orðið í söluskattskerfi, úr 487 krónum, eða um 41 króhu og er það 8,42% lækkun. Óskar Guðmundsson hjá Fisk- búðinni Sæbjörgu segir verð á ýsuflökum vera reiknað hjá þeim eftir innkaupsverði hvers dags. Um helgina náðust hagstæðir samning- ar um innkaup, sem duga til tveggja daga, það er í gær og í dag. Af þeim sökum lækkar verðið um 8% frá því fyrir helgi. Þessi lækkun dugði til að kflóið af ýsuflökum fór niður fyrir 400 krónur hjá Sæbjörgu og þeim verslunum sem kaupa það- an, að sögn Óskars. Hann segir að á morgun verði komið nýtt verð_sem fari eftir inn- kaupum í dag og hann bjóst við að það verði hærra. Hæsta verð á ýsu á Jaskmörkuð- um síðan um jól hefur verið á bilinu 90 til 156 krónur og meðalverð 80 til 143 krónur kílóið. í gær var hæsta verð um 130 krónur. Óskar Guðmundsson segir að hæsta mark- aðsverð sé það sem fisksalar kaupa á, þar sem þeir reyni ávallt að kaupa besta fiskinn. Morgunblaðið/Ingvar Bifreið konunnar er ónýt eftir að hafa verið ekið á tvær bifreiðar og hús. • • Olvuð kona ók á bifreiðar og hús ÖLVUÐ kona ók bifreið sinni á tvær aðrar í Kópavogi á sunnu- dag og endaði loks for sína með þvi að aka út af í Elliðavogi. Bifreið hennar er talin ónýt. Konan ók á tvær kyrrstæðar bifreiðar í Kópavogi klukkan rúmlega 16 á sunnudag. Hún ók rakleitt á brott og lýsti lög- reglan í Kópavogi eftir henni. Vart varð við hana aftur um fimmtán mínútum síðar, en þá ók hún fram af kanti við Elliða- vog og stöðvaðist bifreið henn- ar á húsi við Dugguvog. Hún slapp án meiðsla. Fjármálaráðherra um niðurfellingu á skuld Arnarflugs: Tapað fé hvort sem er Staða Arnarflugs rædd á hluthafafundi í kvöld Ágæt færð víðast ÁGÆT færð var víðast um land í gær en hins vegar var vonskuveður og óráðlegt ta- lið að vera á ferð á fjallveg- Fært var um allt Norður- og Austurland og allt vestur á Snæfellsnes en Steingríms- fjarðarheiði var aðeins fær stórum bílum. Þá voru hálku- blettir á Hellisheiði. Hjá Vegagerð ríkisins feng- ust þær upplýsingar í gær að vegna vonskuveðurs væri óráð- legt að vera á ferð á fjallvegum og sömuleiðis í Hvalfirði og Holtavörðuheiði. „RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í mars í fyrra að stuðla að fjárhags- legri endurskipulagningu Arnarflugs með því að fella niður 150 miHjónir kr. af skuld Arnarflugs við rikið eða breyta í víkjandi lán enda má segja að þetta sé í reynd tapað fé hvort sem er,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra þegar hann var spurður um uppgjör á skuldum Arnarflugs við ríkið eftir sölu á þotunni sem ríkið leysti til sín frá félaginu. Framkvæmdastjóri Arriarflugs segir að skipting millilandaflugs á milli flugfélaganna samsvari mörg hundruð milljóna króna ríkisstyrk til Flugleiða og að allt fé sem lagt væri í Arnarflug brynni jafnóðum upp vegna þess að félagið hefði ekki aðstöðu til að keppa á markaðnum. Ólafur Ragnar sagði að niður- tíunda nákvæmlega hvernig þær staða af viðræðum fulltrúa fjár- rúmlega 100 milljónir sem Arnar- málaráðuneytis og Arnarf lugs lægi ekki fyrir, en áætlaði að skuld fé- lagsins við ríkið væri eitthvað yfir 200 milljónir kr., en eftir væri að taka tillit til skuldaniðurfellingar- innar í því dæmi. Sagði hann að eftir væri að fá heimild Alþingis fyrir niðurfellingu skulda Arnar- flugs. Fyrst hefði þurft að selja þotuna til að sjá hvað eftir stæði og síðan að gera málið upp í heild. Fjármálaráðherra sagðist ekki vilja f lug skuldar ríkinu, fyrir utan rúm- lega 100 milljóna króna skuldina við Ríkisábyrgðarsjóð, skiptist. Það væru ýmis opinber gjöld. Sagðist hann alltaf hafa reiknað með því að Arnarflug greiddi opinber gjöld félagsins. Segir einokun Flugleiða jafiigilda mörgum milljónum Kristinn Sigtryggsson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs hf., segir að á hluthafafundi sem stjórn fé- lagsins hefur boðað til í kvöld yrði fjallað um stöðu félagsins, sam- skiptin við fjármálaráðuneytið að undanfömu og þau skilyrði sem félaginu væri gert að búa við. Sagði hann að sú einokun sem aðalkeppi- nautur félagsins, þ.e. Flugleiðir, hefði í flugi til og frá landinu væri jafngildi mörg hundruð milljóna króna ríkisstyrk, kannski 400-500 milljónum á ári. Þar að auki væru þeir undanþegnir eldsneytisskatti í flugi yfir Norður-Atlantshafið og þar með á leiðinni á milli íslands og Lúxemborgar, en Amarflug ætti í mestri samkeppni við þá á þeirri leið. Flugleiðir gætu með þeim ríkisstyrk, sem gæti verið 50 milljónir kr. á ári, haldið verðinu á fargjöldum á þessari leið mun lægri en til þeirra borga sem þeir hefðu minni samkeppni. Þá nefndi hann einnig afgreiðslugjöld í Flugstöðinni Vestmannaeyjar: Fjölmenni á þrettándagleði Vestmannaeyjum. MIKIÐ fjölnienni tók þátt í þrettándagleði í Vestmannaeyjum á laugardagskvöld. Hátíðahöldiri fóru vel fram og urðu engin óhöpp eða slys. Knattspyrnufélagið Týr sér um hátíðarhöldin á þrettándanum í Eyjum. Hátíðin hefst með flug- eldasýningu af Hánni þar sem nafn Týs er mótað með logandi kyndlum. Jólasveinar tendra síðan blys sín og ganga niður af fjallinu meðan fram fer mikil flugeldasýn- ing. Síðan er gengið fylktu liði í fylgd Grýlu, Leppalúða, trölla og ýmissa furðuskepna að íþróttavell- inum, þar sem kveikt er í bál- kesti. Þar bætast í hópinn enn fleiri furðuskepnur, púkar og ál- far. Á íþróttavellinum er stiginn dans og hafa jólasveinar og annað hyski í nógu að snúast við að heilsa upp á börn og fullorðna sem fylgjast með. Frá íþróttaveliinum er gengið fylktu liði um bæinn uns jólasvein- arnir drepa í blysum sínum og halda til fjalla ásamt fylgdarliði sínu. í göngunni um bæinn er komið við á dvalarheimili aldraðra og sjúkrahúsinu til að heilsa upp á þá er þar dvelja. Veðurblíða ríkti í Eyjum á þrett- ándanum og er talið að á þriðja þúsund manns hafi tekið þátt í hátíðahöldunum. Grímur Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Grýla og Leppalúði heilsa uppá börnin á Keflavíkurflugvelli, þar sem Árn- arf lugi væri gert að greiða Flugleiif^- um 40-50 milljónir kr. á ári. „Það hefur ýmislegt verið gert til að bæta fjárhagslega stöðu Arn- arf lugs, meðal annars mokað fé inn í félagið. En það er allt brennt upp jafnóðum vegna þess að félagið hefur ekki aðstöðu til að keppa á markaðnum," sagði Kristinn. Hann sagði að of mikið væri fuliyrt að félagið yrði að fá fram breytingar á svæðaskiptingunni til að geta starfað áfram, en ef hún næðist ekki fram yrði félagið að leysa málin sjálft á annan hátt. Ýmsir möguleikar í skoðun í því sambandi. Kristinn sagði að á fundinum í kvöld yrði velt upp ýmsum áleitnum spurningum um tilvist ArnarflugS’T' „Er hún nauðsynleg? Myndi vera hægt að bjóða f lug til og frá landinu á 18.300 krónur án hennar? Er æskilegt að hér eigi sér stað hringa- myndun í flutningastarfsemi, eins og nú er að verða með eignarhlut Eimskips í Flugleiðum, kaupum Fiugleiða á stórum hluta ferðaskrif- stofugeirans og áformum Eimskips um hóteluppbyggingu? Þessir aðilar eru að verða svo sterkir að eftir 3-4 ár verður spumingin um hver eigi ísland raunhæf," sagði Krist- inn. Fulltrúar Aer Lingus komnir hingað Hér á landi eru nú fulltrúar írska flugfélagsins Aer Lingus til við- ræðna við Arnarflug sem skuldar félaginu um 30 milljónir kr. vegna viðhalds á f lugvélum. Kristinn sagði að fulltrúar Aer Lingus kæmu reglulega hingað til lands í þessum erindagjörðum. Nú væru þeir sér- staklega að athuga stöðu sína vegna þess að ríkið er nú að selja þotuna sem aðallega var í viðhaldi há Aer Lingus. Kristinn sagði að _ Arnarflug skuldaði þessum við- skiptaaðila ekki meira núna en oft áður og hefði alltaf tekist að semja við hann. Átti hann ekki von á öðru • enþaðtækistnú. Hjáfjármálaráðu- neytinu fengust þær upplýsingar að fulltrúar Aer Lingus hefðu ekki boðað komu sína í fjármálaráðuney- tið, enda væri þarna um að ræða viðskipti þeirra við Arnarflug en ekki ríkið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.