Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 40
Hafskipsmálið: Skýrsla 'Ragnars lögð fram SAKADÓMUR Reykjavíkur varð í gær við ósk lögmanns Ragnars Kjartanssonar, fyrrum stjórnarformanns Hafskips, um að skýrsla, sem Ragnar hefur ritað um meðferð málsins hjá lögreglu og ákæruvaidi, fengist lögð íyrir dóminn. Sakadómur og Hæstiréttur höfðu áður synjað um framlagn- ingu skýrslunnár. Dómurinn féllst á að skýrslan yrði lögð fram nú, þar sem allir ákærðu í málinu hefðu fengið að tjá sig um ákæru. Jónatan Þórmundsson, settur sak- sóknari, mótmælti ósk Ragnars en undi ákvörðun dómsins. Sjá nánari frásögn á bls. 14. Víðir fékk 53 tonn af þorski á einni nóttu TOGARINN Víðir HF mok- fiskaði í vitlausu veðri við Eldey í fyrrinótt. Fékk togarinn 53 tonn af stórum þorski og ufsa að sögn Jóns Friðjónssonar for- stjóra Hvaleyrar hf. í Hafnar- firði, sem gerir togarann út. ->► „Víðir ætlaði að fiska í siglingu en hætti við vegna veðurs og afl- inn verður seldur á fiskmarkaðin- um í Hafnarfirði,“ sagði Jón Frið- jónsson. Hann sagði að Víðir HF væri búinn að landa um 140 tonn- um frá áramótum og aflaverð- mætið væri trúlega um 9 milljónir Morgunblaðið/RAX Allir Sandgerðisbátar voru bundnir við bryggju í gær. Ofsaveður á landinu MJÖG djúp lægð gekk yfir landið í gær og var sums staðar fárviðri. Þegar Morgunblaðið hafði síðast fregnir eftir mið- nætti hafði hvergi orðið alvarlegt tjón. í Vestmannaeyjum fúku plötur af húsum og ýmislegt lauslegt fauk svo sem fískkassar. Almannavarnir sendu frá sér viðvörun og báðu fólk að fara varlega og huga jafnframt að eignum sínum. Að sögn Magnúsar Jónssonar veðurfræðings voru 8-12 vind- stig af suðri í gærkvöldi. Spáð var 11-12 vindstigum í éljum frá Faxaflóa austur á Austfirði í nótt og í dag er því spáð að versta veðrið verði á Norðaustur- og Austurlandi, 10-12 vindstig. Lægðin sem veðrinu veldur er 932 millibör og er með dýpstu lægðum sem hér hafa mælst. Allt f lug fór úr skorðum í gær og Vegagerðin varar fólk við að leggja á fjallvegi í þessu veðri. Skólahald féll víða niður og skólayfirvöld í Reykjavík vildu vekja athygli foreldra á þvLað við slíkar kringumstæður er heimilt að halda börnum heima ef ekki er hægt að fylgja þeim í skólann, jafnvel þótt skólahald falli ekki niður. Samningamenn ASÍ, VSÍ og VMS: Spor í snjó afhjúpuðu gluggagægi MAÐUR var handtekinn í fyrri- nótt eftir að tilkynnt hafði verið um afbrigðilega hegðun hans við hús i Hlíðunum. Skömmu fyrir klukkan 4 um nóttina tilkynnti íbúi við Mávahlíð lögreglunni um mann, sem lægi á gægjum við glugga. Lögreglan kom á.staðinn og fann manninn fljót- lega. Þar sem nýlega hafði snjóað og maðurinn verið einn á ferli á þessum tíma nætur var auðvelt að rekja slóð hans frá glugganum, að gluggum í næstu húsum og loks að bifreið, en í henni sat hann. Lögreglan handtók manninn, sem var fluttur í fangageymslur. Vindur olli óhöppum TVÖ umferðaróhöpp í Reykjavík í gær mátti rekja til hvassviðris. Rútu hlekktist á i vindhviðum á Höfðabakka og sendibill fór út af Reykjanesbraut af sömu ástæðu. Rútunni var ekið norður Höfða- bakka þegar óhappið varð. Þegar vindurinn reif í bifreiðina kastaðist hún til hliðar og lenti á kyrrstæðri bifreið, sem hafði verið skilin eftir utan vegar vegna bilunar. Um svip- að leyti reif vindurinn í sendibíl á Reykjanesbraut, við Blesugróf. Sendibíllinn fór út af og lenti ofan í gróf, sem skilur að akgreinarnar. Engin slys urðu á fólki í þessum óhöppum. Ottast að kjaradeila sjómanna sigli samningaviðræðum í strand króna. Þar af voru 55 tonn seld á fisk- markaðinum í Hafnarfirði fyrir um 3,3 milljónir króna, eða rúmlega 60 króna meðalverð. Meðalverð fyrir þorskinn var 99 krónur, karf- ann 53 krónur og ufsann 51 króna. „Víðir selur einnig tvo karfagáma í Vestur-Þýskalandi eftir næstu ^elgi," sagði Jón. Skipstjóri á Víði er Jón Arn- bergsson. SAMNINGAMENN Alþýðusambands íslands og vinnuveitenda hafa áhyggjur af því að kröfúr sjómanna á Austfjörðum um hærra fiskverð geti siglt þeim samningaviðræðum í strand, sem staðið hafa yfir undan- farnar vikur, um kjarasamninga sem miðast við að halda verðbólgu í skefjum svo sem kostur er. Telja aðilar ljóst að ekki verði samið við sjómenn eða aðra hópa um meiri hækkanir en til handa landverkafólki í ASI og er meðal annars á það bent að fiskverð hækkaði meira en laun á síðasta ári. Leysa þurfi deiluna við sjómenn áður eða jafnhliða því að samningar séu gerðir. Aðilar funduðu seinnihluta gær- niður fjóra starfshópa, sem munu dagsins og var þar ákveðið að setja hittast í dag, til að vinna að til- Stjórn Sambandsins tók tilboði Landsbankans: Þrír stjórnarmenn breyttu afstöðu sinni milli fiinda STJÓRN Sambandsins gekk að kauptilboði Landsbankans í hlutabréf Sambandsins í Samvinnubanka á fúndi sínum á sunnudag. Fimm stjórn- armenn samþykktu að selja bréfin en fjórir voru á móti og höfðu þrír stjórnarmanna snúist á sveif með sölunni frá því á föstudag þeg- ar stjórnarfúndur Sambandsins hófst. Auk þess samþykkti stjórnin að selja hlut Sambandsins í íslenskum aðalverktökum. Stjórn Sambandsins kom saman til fundar á föstudag til að taka af- 'stöðu til kauptilboðs Landsbankans. Fundinum var frestað til sunnudags þegar ljóst var að tvísýnt var um niðurstöðu. Raddir v.oru í stjórninni um að setja Sambandið frekar í greiðslu- stöðvun en taka tilboði Landsbank- ans. Ef hótun um greiðslustöðvun eða jafnvel gjaldþrot kæmi fram,. myndi ríkisstjórnin útvega Sam- bandinu ríkisábyrgð á erlend lán fyrirtækisins. En á laugardag sat 5 manna nefnd stjórnarmanna fund með fulltrúum ríkisstjórnarinnar. Þar kom fram, að óvíst væri hvort meirihluti væri í ríkisstjórninni fyrir ríkisábyrgð til Sambandsins og enn meiri óvissa um afstöðu Alþingis. Sjá nánar á miðopnu. teknum verkefnum. Einn hópurinn I kannar vaxtamálin og ræðir þau við viðskiptabankana, annar ræðir lífeyrismál, bæði hvað varðar sam- spil lífeyrisgreiðslna og tekjutrygg- ingar frá almannatryggingum, en einn fundur hefur verið um þau efni fneð heilbrigðisráðherra, og hvað snertir lífeyrismálin almennt og frumvarp um þau sem ekki hefur verið lagt fram á Alþingi, þó það hafi lengi verið tilbúið í fjármála- ráðuneytinu. Þriðji starfshópurinn fer yfir forsendur samninga og fyrir- vara hvað þá varðar og sá fjórði hefur félagsleg málefni á sinni könnu, þ. á m. fyrirkomulag orlofs- og jólauppbótar. Framkvæmdastjórn Verkamanna- sambandsins fundaði í gær og var það niðurstaða fundarins að ekki væri veijandi annað en reyna til þrautar hvort samningar væru mögulegir á þeim grunni sem rætt hefur verið um. Fulltrúar frá sam- bandinu fóru á fund sjávarútvegs- ráðherra, sem fundaði með hags- munaaðilum um fyrirkomulag á út: flutningi á óunnum fiski, en VMSÍ hefur sett fram kröfur um að þeim útflutningi verði haldið í skefjum. Halldór Ásgrímsson segist ekki hafa haft nein afskipti af kjaradeilu sjómanna fyrir austan, en hann sé að kanna viðhorf hagsmunaaðila til útflutnings á óunnum fiski. Fyrir því sé áhugi en hann sé þeirrar skoð- unar að draga eigi úr útflutningi í aflasamdrætti og ótryggu atvinnu- ástandi. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru uppi hugmyndir um aukna stjórn og takmarkanir á út- flutningi á ísuðum fiski. Þijár leiðir eru taldar koma til greina, aukin kvótaskerðing vegna útflutnings, úthlutun svokallaðs útflutnings- kvóta sem hlutfalls af aflakvóta hvers skips sem sé framseljanlegur og loks er rætt um uppboð á út- flutningsleyfum. Bæði Kristján Ragnarsson, formaður Landssam- bands íslenskra útvegsmanna, og Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambands íslands, leggjast. gegn þessum hugmyndum, en segja, nauðsynlegt að koma betri stjórn á, útflutning á ísuðum fiski. Kristján Ragnarsson sagði enn- fremur að hann teldi ákvörðun um fiskverð og þá deilu sem nú stæði yfir á Austfjörðum ekki á nokkurn liátt tengjast kjarasamningum. Samkvæmt lögum bæri við ákvörðun fiskverðs að taka mið af markaðs- verði á sjávarafurðum og afkomu veiða og vinnslu. Þá benti hann á að bæði sjómenn og útgerðarmenn hefðu orðið fyrir umtalsverðri tekju- skerðingu vegna aflaskerðingar og hækkandi olíuverðs. Sjá viðtöl á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.