Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990
t
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS BJÖRNSSON,
Hrauntungu 83,
Kópavogi,
lést í Landspítalanum sunnudaginn 7. janúar.
Hildur Einarsdóttir,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
BALDURJÓNSSON,
Miðvangi 29,
Hafnarfirði,
lést í Borgarspítalanum laugardaginn 6. janúar.
Ásdfs Ólafsdóttir,
Sigrún Baldursdóttir,
Sólveig Baldursdóttir, Björn Lúðvíksson,
Hafdis Baldursdóttir, Eiríkur Viðar Sævaldsson,
Snædís Baldursdóttir
og barnabörn.
t
Bróðir minn,
KRISTMUNDUR S. SNÆBJÖRNSSON,
Nökkvavogi 48,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 9. jan-
úar, kl. 13.30
Fyrir hönd vandamanna,
Jón S. Snæbjörnsson.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÞÓRDÍS MAGNÚSDÓTTIR,
Haðarstíg 18,
verður jarðsett frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 10. janúar kl.
10.30.
Vilborg G. Guðnadóttir, Haukur Guðjónsson,
Guðni Þór Hauksson,
Þórdis Hauksdóttir,
Guðjón Hauksson.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
RÖGNVALDUR INGVAR HELGASON
frá Borðeyri,
verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju laugardaginn 13. janúar
kl. 14.00.
Sigríður Ingólfsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
*
Olafur Ingi Jónsson
prentsmiðjustjóri
Fæddur 29. október 1945
Dáinn 25. desember 1989
A jóladag lést í Landspítalanum
eftir erfiða sjúkdómslegu Ólafur
Ingi Jónsson, prentari. Þar með
lauk hetjulegri baráttu þessa unga
manns við þann sjúkdóm sem legg-
ur menn að velli með leifturhraða
eða langvarandi þjáningum og spyr
ekki að aldri.
Ólafur Ingi var fæddur 29. októ-
ber 1945 á Patreksfirði. Foreldrar
hans voru hjónin Jósefína Helga
Guðjónsdóttir og Jón Eggert Back-
mann, loftskeytamaður.
Ólafur Ingi hóf nám í prentverki
hjá prentsmiðju Vísis 1. maí 1963.
Tók hann sveinspróf í setningu 1.
júlí 1967. Að loknu sveinsprófi lærði
hann vélsetningu á sama stað, en
fór um haustið til Englands að
kynna sér meðferð og viðgerð setn-
ingavéla. Vann hann síðan áfram
hjá prentsmiðju Vísis fram til ára-
móta 1971-1972 er hann réðst sem
verkstjóri í Blaðaprent hf. sem þá
hafði verið komið á fót og var sam-
eign fjögurra dagblaða, Tímans,
Vísis, Alþýðublaðsins og Þjóðvilj-
ans. Blöðin fjögur höfðu komið sér
saman um að reisa fullkomna off-
set-prentsmiðju til þess að annast
útgáfustarfsemi þeirra. Þessi
vinnsla í útgáfu dagblaða var alger
bylting hér á landi en hafði tíðkast
um nokkurt skeið erlendis. Alger-
lega ný vinnubrögð urðu að takast
upp á öllum sviðum í vinnslu blað-
anna, þar- sem blýið var horfið úr
setningu og til prentunar, en í stað-
inn tekin upp ljóssetning á pappír
og prentun af offset-plötum. Allt
voru þetta ný vinnubrögð, sem okk-
ur prenturum var að miklu leyti
ókunnugt hvernig leysa ætti af
hendi. Kostaði þessi breyting frá
gamalli og hefðbundinni prentað-
ferð til nýrrar tækni mikla undir-
búningsvinnu. Þar lögðu margir
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURLILJA PÉTURSDÓTTIR,
áðurtil heimilis á Hofsvallagötu 17, Reýkjavík,
verður jarðsungin miðvikudaginn 10. janúar kl. 13.30 frá nýju
Kapellunni í Fossvogi.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Halldór Kjartansson,
Haraldur Kjartansson, Ingibjörg Hannesdóttir,
Guðmunda Kjartansdóttir, Guðmundur Sveinjónsson,
og barnabörn.
t
Útför ástkærs sonar okkar, föður okk-
ar, unnusta míns og bróður,
ÞRASTAR LEIFSSONAR,
Þórufelli 16,
Reykjavík,
fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
11. janúar kl. 15.00.
Bálför fer fram síðar.
Leifur Guðmundsson, Sigrfður Skúladóttir,
Sólrún Halldóra Þrastardóttir, Ásta María Þrastardóttir,
Guðrún Ólöf Barkardóttir,
Sigrfður Elín Leifsdóttir, Bergþór Ingi Leifsson.
+ Systir okkar, GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR hjúkrunarkona, Sólheimum 23, Reykjavík, verður jarðsungin frá Langholtskirkju miðvikudaginn 10. janúar. Fyrir hönd vandamanna, Baldfna Árnadóttir, Guðbjörg Árnadóttir, Ásdfs Árnadóttir.
+ Útför móður minnar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langa- langömmu, JÓNFRÍÐAR GÍSLADÓTTUR, verður gerðfrá Fossvogskapellu miðvikudaginn 10. janúarkl. 15. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á hjúkrunar- heimiliö Sunnuhlíð í Kópavogi. Árný Ingvaldsdóttir, Leifur Halldórsson, Ólöf R. Jónsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
+ Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
DAGBJÖRT EIRÍKSDÓTTIR VALGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR
fóstra, frá Hvanneyri,
Kleppsvegi 120, Reykjavfk, Selvogsgrunni 8,
sem andaðist á gjörgæsludeild Borgarspítalans aðfaranótt 31. sem lóst 1. janúar sl. verður jarðsungin fimmtudaginn
desember verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 10. janú- 11. janúar kl. 13.30 frá Dómkirkjunni í Reykjavík.
ar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
Þeim, sem vildu minnast hennar er bent á Þroskahjálp, Nóatúni 17. minnast hennar er vinsamlegast bent á Átak í landgræðslu.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Þórhallur Runólfsson, Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
HermannJónsson, Sveinn Runólfsson, Oddný Sæmundsdóttir,
Sigurður P. Sigurðsson Kolbrún Gunnarsdóttir, Halldór Runólfsson, Steinunn Einarsdóttír,
Hrafnhildur Ósk, Dagbjört Ólöf, barnabörnin,
Kristfn Edda Sigurðardætur. Þórhallur Halldórsson.
mætir menn hönd á plóginn. Einn
þeirra var Óli Ingi og var hlutur
hans stór í þeim efnum.
í Blaðaprenti lágu leiðir okkar
saman. í nokkur ár unnum við sam-
an hlið við hlið að lausn margvís-
legra vandamála, sem óhjákvæmi-
lega hlutu að koma upp í sambandi
við rekstur slíks fyrirtækis. Vanda-
málin voru leyst, og það var ekki
síst því að þakka hve mikilli þekk-
ingu og útsjónarsemi þessi ungi
maður bjó yfir. Hann fylgdist vel
með tækninýjungum í prentverki
og miðlaði óspart öðrum af þekk-
ingu sinni. Þegar einhvefjir örðug-
leikar steðjuðu að, var það oft við-
kvæði hjá Óla Inga að það yrði
bara að ganga í það að leysa mál-
in. Ekkert víl.
Þetta voru ánægjulegir tímar.
Fólkið sem vann á þessum árum í
Blaðaprenti bast óvenjulega sterk-
um vináttuböndum, sem lýsa sér
meðal annars í því að þótt það sé
löngu hætt að vinna saman, kemur
það ennþá saman einu sinni á ári
til þess að halda hópinn og minnast
liðins tíma. Óii Ingi var vinsæli hjá
þessu fyrrum samstarfsfólki sínu
vegna hreinskilni sinnar og ljúfrar
framkomu. Ég veit að þessi hópur
hugsar nú til Óla Inga með þakk-
læti fyrir samfylgdina og sendir
samúðarkveðjur sínar til konu hans,
barna og annarra ástvina.
Eftir að Óli Ingi hætti störfum í
Blaðaprenti vann hann um skeið í
prentsmiðju G. Ben., sem sölumað-
ur hjá ACO í prentvörum og sem
kennari við prentdeild Iðnskólans.
Á öllum þessum stöðum var hann
mikils metinn. Að lokum réðst hann
sem prentsmiðjustjóri á þann vinnu-
stað þar sem hann hafði hafið
prentnám. Þar hafði hann forystu
um mjög umfangsmiklar tækni-
breytingar á vinnslu DV sem þá
stóðu fyrir dyrum. Eigendur Dag-
blaðsins Vísis kunnu líka vel að
meta þennan hæfileikaríka sam-
starfsmann og studdu við bak hans
með miklum sóma í veikindum
hans.
Ég sem þessar línur rita heim-
sótti Óla Inga á Landspítalann rétt
eftir að sjúkdómur hans hafði verið
greindur. Hann var allhress að sjá.
Ég vissi þó að honUm leið ekki vel.
Samt brosti hann við mér og sagði
að þetta væri eins og hvert annað
mál, sem þyrfti að leysa. Alltaf já-
kvæður og sama baráttugleðin. Ég
fór af fundi okkar fullur vonar, og
óskaði þess af heilum hug að honum
yrði að trú sinni. Svo varð því mið-
ur ekki. Við getum vonað og gert
okkar áætlanir, en það er annar sem
ræður för.
Ekki er hægt að minnast svo Óla
Inga að ekki sé getið konu hans,
því svo kært var með þeim hjónum.
16. mars 1968 fengu þau í hjóna-
band og hafa eignast þrjú mann-
vænleg börn. Elst er Anna Sigur-
borg, þá Ingi Rafn og yngstur er
svo Siguijón. Sirrý hefur reynst
manni sínum tryggur og góður
lífsförunautur og verið honum stoð
og stytta í veikindum hans.
Að leiðarlokum langar mig til
þess að þakka Óla Inga samfýlgd-
ina. Þrátt fyrir töluverðan aldurs-
mun tengdumst við traustum vin-
áttuböndum sem aldrei bar skugga
á. Ég og fjölskylda mín sendum
Sirrý og bömum þeirra hjóna okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Óðinn Rögnvaldsson