Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990 23 Greiðslustöðvun Dags og Dagsprents lokið: Dagsprent yfírtek- ur rekstur Dags DAGSPRENT hf. mun taka yflr rekstur dagblaðsins Dags og hlutafé í Dagsprenti verður aukið verulega. Þetta var niðurstaðan eftir að fimm mánaða greiðslustöðvun íyrirtækjanna er runnin út. Stjórn KEA hefúr samþykkt að Ieggja fram aukið hlutafé, en KEA er stærsti hlut- hafinn í Dagsprenti. Hluthafafundur Dagsprents verður haldinn næsta laugardag og þar verður tekin afstaða til hlutafjáraukningarinnar. Hlutafé Dagsprents hf. er nú rúm- ar 23 milljónir króna og á Kaupfélag Eyfirðinga þar um 55% hlut, en auk þess eiga á annað hundrað einstakl- ingar hlut í fyrirtækinu og verður þeim gefinn kostur á að auka það auk þess sem nokkur hiuti verður boðinn til sölu á almennum mark- aði. í drögum að samningi milli Dags og Dagsprents hf. er gert ráð fyrir að núverandi eigendur Dags, Framsóknarfélag Akureyrar og Framsóknarfélag Eyjafjarðar, fái hlut sinn í blaðinu greiddan með hlutabréfum í Dagsprénti hf. en end- anleg ákvörðum um þau mál er háð samþykki félaganna. í fréttatilkynningu frá Sigurði Jóhannessyni stjórnarformanni fyr- irtækjanna segir að á greiðslustöðv- unartímabilinu hafi allra ieiða verið leitað til að tryggja áframhaldandi rekstur Dags og Dagsprents hf. og hafi þar m.a. verið gerðar ítarlegar tilraunir til að selja húseignir fyrir- tækjanna við Stfandgötu, en án ár- angurs. Þrátt fyrir væntanlega hlutafjáraukningu verður áfram reynt að selja hluta af húseignum fyrirtækjanna, því skuldir fyrirtækj- anna eru enn mjög miklar. Með þeim breytingum sem gerðar verða, ásamt þeim ráðstöfunum sem gripið var til í lok ársins 1988 telja stjórnir fyrirtækjanna sig hafa treyst reksturinn og samkvæmt 9 mánaða uppgjöri beggja fyrirtækjanna hefur afkoman batnað mikið frá fyrra ári, segir í fréttatilkynningunni. Jólin kvödd á þrettándagleði Þórsarar héldu þrettándagleði á félagssvæði sínu-á laugardag. Þangað kom fjöldi fólks að kveðja jólin með viðeigandi hætti. Að sjálfsögðu mættu álfakóngur og drottning, púkar, tröll og jólasveinar auk furðu- dýra af ýmsu tagi, sem vöktu ómælda ánægju á meðal yngstu kynslóðarinnar. Dans var stiginn, Jóhann Már Jóhannsson söng nokkur lög og einnig Bjartmar Guðlaugsson, og bræðurnir Halli og Laddi fóru með gamanmál. Þrettándagleðinni lauk að venju með flugeldasýningu. Skoðanakönnun á meðal framsóknarmanna: Erlingur íþróttamaður ársins hjá KA Erlingur Kristjánsson fyrirliði ís- landsmeistara KA í knattspyrnu og þjálfari 1. deildarliðs karla í handknattleik var valinn íþrótta- maður ársins 1989 hjá KA í hófi sem haldið var á sunnudag. Þetta er í annað sinn sem KA-menn velja íþróttamann ársins, en í fyrra varð Guðlaugur Halldórsson júdómaður fyrir valinu. Bikarinn sem íþróttamaður ársins fær er gefinn af KA-klúbbnum í Reykjavík. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM 8. janúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægstá Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 99,00 63,00 76,39 35,009 2.674.349 Ýsa 130,00 71,00 119,51 13,664 1.632.875 Karfi 61,00 50,00 53,44 43,613 2.330.451 Ufsi 51,00 50,00 50,88 4,325 220.056 Samtals 72,00 115,937 8.347.467 í dag verða meöal annars seld 12-15 tonn af stórum þorski og um 25 tonn af ufsa úr Víöi HF, svo og þorskur, steinbítur og fleira úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 77,00 57,00 72,86 18,078 1.317.190 Þorskur(ósL) 71,00 51,00 60,75 57,238 3.477.260 Ýsa 131,00 68,00 102,18 4,332 442.632 Ýsa(ósl.) 122,00 70,00 105,04 8,577 900.958 Samtals 67,40 100,302 6.760.708 [ dag verður selt óákveðið magn úr Gissuri ÁR og netabátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 90,00 48,50 72,27 62,451 4.513.587 Ýsa 140,00 40,00 107,20 12,038 1.290.506 Karfi 64,00 39,00 53,07 0,138 7.323 Ufsi 32,00 15,00 24,98 0,063 ■1.574 Samtals 76,48 80,117 6.127.694 SKIPASÖLUR í Bretlandi 2. til 5. janúar. Þorskur 112,87 161,105 18.183.490 Ýsa 143,47 8,370 1.200.822 Karfi 117,36 4,225 495.867 Koli 107,06 3,570 382.220 Grálúða 172,43 1,265 218.128 Samtals 114,52 179,260 20.528.320 Selt var úr Ottó Wathne NS 3. jan. og Arnarnesi Sl 4. jan. Selt var í Grimsby. GÁMASÖLUR í Bretlandi 2. til 5. janúar. Þorskur 107,60 441,979 47.554.995 Ýsa 122,69 121,200 14.870.525 Ufsi 75,95 3,735 283.681 Karfi 66,61 2,315 154.213 Koli 133,09 55,408 7.374.049 Samtals 113,61 642,379 72.982.823 SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 2. til 5. janúar. Þorskur 106,82 1,398 149.337 Ýsa 125,37 0,413 51.778 Ufsi 157,35 2,484 390.853 Karfi 113,40- 271,777 30.819.013 Samtals 109,99 303,577 33.388.985 Selt var í Bremerhaven úr Engey RE 3. jan. og Sveini Jónssyni KE 4. jan. Þórarinn líklegur í eitt af efstu sætunum EFNT var til skoðanakönnunar á meðal Framsóknarmanna á Akur- eyri 'um helgina, en þar voru flokksbundnir framsóknarmenn beðnir um að skrifa 6 nöfti manna er þeir vilja sjá á íista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í maí. Uppstillingarnefiid, sem skipuð er 9 mönnum, hefiir enn ekki farið yfír seðlana, en það mun væntanlega verða gert nú í vikunni. Sigurður Jóhannesson sem skip- aði fyrsta sæti á lista Framsóknar- flokksins fyrir síðustu bæjarstjóm- arkosningar hefur gefið út þá yfir- Iýsingu að hann gefi ekki kost á sér til áframhaldandi setu í bæjarstjóm Akureyrar. Úlfhildur Rögnvalds- dóttir sem var í öðm sæti listans kvaðst ætla að meta það eftir út- komu skoðanakönnunarinnar hvort hún myndi áfram gefa kost á sér til setu í bæjarstjóm. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er talið líklegt að Úlfhildur Rögnvaldsdóttir verði í einhveiju af efstu sætum listans, en einnig var Þórarinn E. Sveinsson mjólkursam- lagsstjóri nefndur þar til sögunnar. Þá nefndu menn einnig þær Kol- brúnu Þormóðsdóttur kennara og Sigfríði Þorsteinsdóttur tækniteikn- ara, en Kolbrún hefur verið varabæj- arfulltrúi og Sigfríður sat eitt kjörtímabil í bæjarstjóm fyrir Kvennalistann. Aðrir sem nefndir vom á nafn vom Guðmundur Stefánsson fram- kvæmdastjóri ístess og Björn Snæ- björnsson varaformaður Einingar. RIF hf. í Hrísey hefúr tekið Frosta ÞH frá Grenivik á leigu og verður hann að línuveiðum fyrir fisk- vinnsluna í janúar og febrúar. Jóhann Sigurbjörnsson fram- kvæmdastjóri Rifs hf. sagði að Frosti ÞH hefði farið í sinn fyrsta róður í leigu fyrirtækisins nú í vikunni og væri hann nú að veiðum í Reykja- Einn þeirra sem rætt var við í gær sagði að áhugi væri fyrir því að fá ungt fólk í eitthvað af efstu sætun- um. Úr yngri deildinni vom helst nefndir þeir Sigfús Karlsson formað- ur Félags ungra framsóknarmanna, Bragi Bergmann ritstjóri Dags, Bjami Hafþór Helgason sjónvarps- stjóri Eyfirska sjónvarpsfélagsins og Þorsteinn Sigurðsson verkfræðing- fjarðarál um tlu tíma siglingu frá eynni. Svanur EA, 60 tonna bátur i eigu Rifs hf. liggur við bryggju í Hrísey og sagði Jóhann að Frosti ÞH hefði verið tekinn á leigu vegna þess hve langt þyrfti að sækja og ekkert vit að senda svo lítinn bát þessa leið. Hrísey: Rif hf. tekur Frosta ÞH frá Grenivík á leigu ÁRNAÐ HEILLA Þórhallur Björnsson frá Kópaskeri, Hamraborg 14, Kópavogi. Hann dvelur nú hjá dóttur sinni, Kristveigu, sem er búsett í Danmörku á Asavænget 36,2800 Lyngby. Q/A ára afinæli. Í dag, 9. OUjanúar, er áttræður Jónas Halldórsson, rakara- meistari, Rjúpufelli 15 hér í Rvík. Lengst af starfaði hann við iðn sína á Siglu- firði. Hann tekur á móti gest- um nk. sunnudag 14. janúar í Kiwanishúsinu, Brautarholti 26, milli kl. 15 og 19. ára afinæli átti í gær uU frú Marta Elínborg Guðbrandsdóttir frá Loft- sölum í Mýrdal, Skeggjagötu 10 hér í Rvík. Nafn afmælis- barnsins misritaðist illilega hér í Dagbókinni á sunnudag. Þar stóð að hún væri Guð- mundsdóttir og fyrra nafn hennar féll niður. Er beðist afsökunar á mistökunum um leið og misritunin leiðréttist.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.