Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.01.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990 Eigendur Andra BA íhuga skaðabótakröfur Engin svör enn frá Bandaríkjamönnum um vinnsluheimildina EIGENDUR Andra BA, íslenska fískvinnsluskipsins við strönd Alaska, íhuga nú skaðabótakröf- ur á hendur Bandaríkjamönnum vegna sviptingar vinnsluleyfis, sem þeir töldu sig hafa fengið fyrir skipið. Þeir töldu að skipið hefði leyfí til að vinna 30 þúsund tonn af þorski, á grundvelli sam- komulags milli islenskra og bandarískra stjórnvalda frá ár- inu 1983. Kostnaður við úthald skipsins nemur 15 til 20 þúsund Bandaríkjadollurum á dag, eða rúmri milljón króna, og er upp undir 10 milljóna dollara fjárfest- ing í húfi, eða á sjötta hundrað milljóna króna, að sögn Ragnars S. Halldórssonar framkvæmda- stjóra ÍSÚF, sem gerir Andra út. í gærkvöldi hafði ekkert svar borist frá viðskiptaráðuneyti Drangavík ST laskast í illviðri við ísröndina ísafirði. RÆKJUTOGARINN Drangavík frá Hólmavík skemmdist í ís á Dhornbanka á sunnudag. Gat kom á vélarrúm og sjór komst í ljósavél skipsins. Ekki var um alvarlegar skemmdir að ræða og fer skipið aftur til veiða þegar veður leyfír. Drangavík var einskipa að leita að rækju á norðaustanverðum Dhornbanka, en hafði fengið lítinn af la. Slæmt veður gerði aðfaranótt sunnudagsins og kom þá mikill ís rekandi að skipinu úr austri og lok- aði venjulegri siglingaleið að landinu. Skipið hélt suður með ísröndinni en í dimmingu á sunnu- dagskvöld kom skipið að glufu í ísinn sem virtist vera fær, þar sem um hundrað metra ísspöng skildi skipið að frá auðum sjó til lands. Þar sem veður var orðið mjög slæmt og nótt að falla á, taldi skipstjórinn ástæðu til að reyna að komast þama í gegn. Um það bil sem skipið var að komast út úr ísnum, skrúfuðust stórir jakar upp beggja vegna skips- ins og skárust inn í síður þess með þeim afleiðingum að gat skarst á bakborðssíðuna aftur við vélarrúm. Sjór komst í ljósavél og stöðvaðist hún. Enginn frekari skaði varð og kom skipið á mánudag til ísafjarð- ar, þar sem viðgerð fer fram. Að sögn skipstjórans var veður mjög slæmt þegar óhappið var, 10 til 12 vindstig og rak ísinn með 5 til 6 mílna hraða á klukkustund í stefnu suðvestur. Hann segir skipið aldrei hafa verið í teljandi hættu. 10 manna áhöfn er á Drangavíkinni og sakaði engan þegar óhappið varð. Úlfar Margeir tap- aði og vann TVÆR umferðir voru tefldar um helgina á hinu sterka skákmóti í Reggio Emilia á Ítalíu Margeir Pétursson vann Portisch frá Ungveijalandi ör- ugglega á laugardag en tapaði fyrir Karpov fyrrum heims- meistara á sunnudag. Tíunda og síðasta umferðin verður tefld í dag og mætir Margeir þá Ribli. Margeir hefur 4 vinninga og er í 8. sæti en Ehlvest frá Sovétríkjunum er efstur með 6 'A vinning. Bandaríkjanna um vinnsluleyfi Andra. Leyfið var afturkallað á gamlársdag án skýringa og hefur Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra ritað bandaríska við- skiptaráðherranum bréf í tilefni af því og lýst áhyggjum sínum ef samningurinn frá 1983 verður ekki í heiðri hafður. Ragnar S. Halldórsson fer í dag á fund Jóns Sigurðssonar viðskipta- ráðherra og síðan á fund með Charles Cobb sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi um málið. Cobb hefur áður beitt sér í þessu máli og var skömmu fyrir jól talið að fyrir hans atbeina hefði Andra ver- ið tryggt vinnsluleyfið, en svo reyndist síðan ekki vera þegar á reyndi. íslenska úthafsútgerðarfélagið hf., ÍSÚF, er eigandi Andra BA. Aðaleigendur ÍSUF eru Haraldur Haraldsson og Andri hf., Sigurður Einarsson, Ágúst Einarsson, Jón Búi Guðlaugsson, Tryggingamið- stöðin hf. og Ragnar S. Halldórsson. Ragnar segir að fáist ekki jákvæð svör í þessari viku, verði skipinu siglt á brott frá Alaska. Hann var spurður hvort í önnur hús væri að venda fyrir félagið. „Ég tek bara eitt mál fyrir í einu og þetta er það, að Bandaríkjamenn eiga að stánda við sína samninga. Mér þyk- ir það undarlegt eftir að hafa unnið með Bandaríkjamönnum í 11 ár og . aldrei þurft að kvarta yfir samn- ingsbrigðum, að þá skuli sú staða allt í einu vera komin upp núna,“ sagði Ragnar S. Halldórsson. Morgunblaðið/Þorkell Frá fúndi fulltrúa Alumax og iðnaðarráðherra í Ráðherrabústaðnum síðdegis i gær. Fundað í gær með fiilltrúum Alumax FULLTRÚAR bandaríska álfyrirtækisins Alumax áttu fúndi í gær með Jóni Sigurðssyni, iðnaðarráðherra, stjórn Landsvirkjunar og fulltrúum iðnaðarráðuneytisins um byggingu álvers hérlendis. „Ég tel að það hafí komið í yós að Alumax-menn hafa raunverulegan áhuga á að kanna til hlítar hugsanlegt samstarf í Atlantal-verkefti- inu og munu hitta fúlltrúa fyrirtækjanna Granges og Hoogovens mjög újótlega," sagði Jón Sigurðsson í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi. Hann sagði að sér litist vel á Alumax sem samstarfsaðila. Fyrir- tækið væri traust og væri með mikla álvinnslu í Bandaríkjunum og reyndar líka í Evrópu. Það væri með úrvinnslufyrirtæki í Bretlandi, Hollandi, Frakklandi og Þýska- landi, þannig að aðgangur að Evr- ópumarkaði væri áhugaverður fyrir það og þar með staðsetning á ís- landi. Jón sagði að samstarf við evr- ópsku álfyrirtækin um byggingu og rekstur álvers hefði fyrst og fremst verið rætt, en einnig hefði borið á góma möguleika á að Alumax stæði eitt að byggingu álvers á Eyjafjarð- arsvæðinu. Hefði fyrirtækið einnig sýnt þeim möguleika mikinn áhuga. Annar fundur hefur verið ákveð- inn fýrir hádegið í dag. „Ég tel að þetta hafi verið mjög gagnlegur fundur og gagnkvæmur áhugi á frekari viðræðum komið fram,“ sagði Jón ennfremur. Ný loðnuganga fundin um 60 sjómílur austur af Gerpi Innköllun hafín á hlutafé í Stöð 2 STJÓRN íslenska sjónvarpsfélagsins hefur hafið innköllun á þeirri 400 milljóna hlutafjáraukningu sem samþykkt V£ir um áramótin. Steftit er að því að innkölluninni verði lokið fyrir næstu mánaðamót. Þorvarður Elíasson varaformað- ur íslenska sjónvarpsfélagsins hf. og eignarhaldsfélags Verslunar- bankans sagði við Morgunblaðið að eignarhaldsfélagið væri byrjað að greiða það hlutafé sem það skráði sig fyrir, 250 milljónir króna. Þor- varður sagði að fyrri aðaleigendur Stöðvar 2 hefðu tilkynnt sér á föstu- dag að þeir væru tilbúnir með það hlutafé sem þeir skráðu sig fyrir, samtals 150 milljónir. í gær hefði komið í ljós að svo virtist ekki vera en þeir hefðu hafið viðræður við stjóm hlutafélagsins um greiðslur. Hans Kristján Ámason, ritari stjómar íslenska sjónvarpsfélagsins og einn þriggja fyrri aðaleigenda Stöðvar 2 , sagði þá hafa ítrekað að þeir hefðu gengið frá hlutafjár- undirskrift við félagið eins ogsamn- ingur þeirra gerði ráð fyrir. í þeim samningi væri ekki talað um greiðslur heldur miðað við eðlilega inngreiðslu á hlutafé í félögum sam- Rannsóknaskipið Árni Friðriksson fann loðnugöngu um 60 sjómílur austur af Gerpi á laugardagskvöld en loðnuskipin hafa verið að veiða úr göngu norðaustur af Langanesi undanfarið. Vegna veðurs hefúr ekki tekist að kanna hvar norðurmörk syðri göngunnar eru en hún er að minnsta kosti 45 sjómílna löng og um 10 mílna breið. Engin loðnu- veiði var í fyrrinótt vegna brælu en tvö skip veiddu samtals 280 tonn úr syðri loðnugöngunni í gærmorgun. Um 30 norsk loðnuskip og 3 færeysk voru á miðunum við Langanes í gær. Síðdegis í gær höfðu veiðst 37.607 tonn af loðnu frá áramótum. Á haust- vertíð 1989 veiddust 54.247 tonn af loðnu en á haustvertíð 1988 veiddust 311.431 tonn. í syðri loðnugöngunni er góð loðna, sem er í ágætlega veiðanleg- um torfum, að sögn Sveins Svein- bjömssonar leiðangursstjóra á rann- sóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni en það hefur nú tekið við rannsókn- um á loðnunni af Áma FViðrikssyni, sem leitar nú að stórri síld inni á Austfjörðum. Sveinn sagði í samtali við Morgunblaðið að hann gæti enn ekki sagt til um hversu mikið magn væri í syðri loðnugöngunni. „Þetta er stór og falleg loðna. Hún er ein- göngu þriggja og fjögurra ára gömul og hlutfallið af eldri árganginum fór upp í 45%, sem er óvenju hátt.“ Þessi skip tilkynntu um afla frá hádegi á laugardag til síðdegis í gær, mánudag: Þórshamar 600 tonn til Þórshafnar, Háberg 640 til Rauf- arhafnar, Sighvatur Bjamason 700 til Ve.stmannaeyja, Húnaröst 730 til Þórshafnar, Erling 600 til Siglufjarð- ar, Fífill 610 til Seyðisfjarðar, Örn 700 til Raufarhafnar, Huginn 570 til Siglufjarðár, Þórður Jónasson 700 til Siglufjarðar, Guðmundur 860 til Neskaupstaðar, Guðrún Þorkelsdótt- ir 600 til Eskifjarðar, Dagfari 520 til Reyðarfjarðar, Víkurberg 540 til Raufarhafnar, ísleifur 700 til Nes- kaupstaðar, Víkingur 900 til SFA, Beitir 900 til Neskaupstaðar, Keflvíkingur 300 óákveðið hvert, kvæmt lögum. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er hlutafjárframlag fyrri aðaleigenda tryggt með sölu á jörð- inni Vatnsenda tii Reykjavíkurborg- ar. Hans Kristján sagðist ekkert hafa um það að segja þegar þetta var borið undir hann. Eignarhaldsfélag Verslunar- bankans samþykkti að kaupa eða ábyrgjast sölu á 250 milljóna króna hlutafé. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur hópur kaup- manna og verslana m.a. íhugað að kaupa part af þessu hlutafé. Guðjón Gddsson formaður Kaupmanna- samtaka íslands viidi hvorki játa þessu né neita og Haraldur Haralds- son formaður Félags íslenskra stór- kaupmanna gaf sömu svör. Þor- varður Elíasson sagði að mjög margir væru að skoða þetta mál en hann gæti ekki greint frá hveij- ir það væru á þessu stigi. til Eskifjarðar, Háberg 300 til Eski- fjarðar, Gullberg 250 til Hafsíldar, berg 300 til Eskifjarðar, Björg Jóns- dóttir 300 til Þórshafnar og Höfrung- ur 120 til Seyðisfjarðar. Lítið fiindist af stórri síld Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er í síldarmælingum inni á Austfjörðum en hefúr lítið fundið þar af stórri síld, að sögn Páls Reyn- issonar leiðangursstjóra. Jón Finnsson RE fékk um 5 tonn af stórri síld í Mjóafirði á fimmtudag og Sif SH fékk þar 11 tonn af stórri síld á föstudag en síldveiðar máttu hefjast á ný á miðvikudág. Sjö skip' sem um áramót áttu um þrjú þúsund tonn óveidd af síldarkvóta sínum á vertíðinni, mega stunda veiðarnar til 20. janúar næstkomandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.