Morgunblaðið - 13.03.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990
27
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ANDRA LAXDAL
Nýr forseti tekur við embætti í Brasilíu:
Hafði betur í keppni um
hylli lágstéttarinnar
Á fimmtudag gerast þau tíðindi í Brasilíu að lýðræðislega kjörinn
forseti tekur við völdum í fyrsta skipti frá árinu 1964 þegar her-
inn tók völd í landinu. Reyndar hefur verið borgaraleg stjórn í
landinu undanfarin fimm ár en þar sem fólkið var ekki spurt
álits við skipun hennar má segja að kosningarnar 17. desember
hafi verið merkisviðburður í sögu Brasilíu.
Forsetakosningarnar voru
merkilegar fyrir margar sakir
ekki síst þær að í þeim átti
óbreyttur verkamaður möguleika
á að'komast til valda, maður sem
á ekkert skylt með menningarsó-
síalistum Vesturlanda og náði
með fábrotnum orðaforða og ríku-
legum málvillum að koma fram
sem einn af fólkinu.
í Brasilíu er kjörfyrirkomulagið
þannig að fái enginn frambjóð-
enda yfir helming atkvæða er
kosið á ný milli tveggja efstu
manna. Sigurvegari seinni um-
ferðarinnar og næsti forseti Bras-
ilíu er hægri maðurinn Fernando
Collor de Mello, sem hlaut 50%
atkvæða gegn 44% vinstri manns-
ins Luis Inacio Lula da Silva.
Sagði skilið við flokkinn
Collor de Mello er sonur þing-
manns og erfingi öflugs ættar-
veldis. Hann á sjónvarpsstöð í
fylki einu í Brasilíu og hefur á
liðnum árum verið borgar- og
ríkisstjóri í smáfylkinu Alagoas.
Hann freistaði þess að fá tilnefn-
ingu sem fulltrúi síns gamla
flokks í þessum forsetakonsingum
en undirtektir reyndust dræmar.
Þá sleit hann sig lausan, stofnaði
nýjan flokk og skipulagði kosn-
ingabaráttuna með vinum og
vandamönnum. Collor hélt iðulega
fáum og einföldum málefnum á
lofti. Til dæmis tók hann upp við-
urnefnið „veiðimaður huldufólks-
ins“ en með því vildi hann leggja
áherslu á að hann væri ötull bar-
áttumaður gegn þeim sem þiggja
peninga frá ríkinu án þess að
vinna fyrir þeim. Þessir „huldu-
menn“ eru lygilega margir í Bras-
ilíu sakir spillingar og óvenju
ríkrar áráttu landsmanna að koma
sínum nánustu vel fyrir. Þá gagn-
rýndi hann og stjórnvöld og frá-
farandi forseta landsins harðlega.
Reyndar gekk Collor svo langt að
forsetinn José Sarney lagði fram
kæru gegn Collor fyrir meiðyrði.
Collor er fijálshyggjumaður og
fylgjandi einkavæðingu ásamt
minnkandi umsvifum ríkisins.
Hann segist ætla að gera út af
við verðbólguna á nokkrum mán-
uðum og lofar annars vegar betri
menntun, öflugri heilsugæslu og
auknum kaupmætti. Umbótavon-
unum í óhag er þó sú staðreynd
að lífskjör í Brasilíu eru hvergi
verri en þar sem Collor var borg-
ar- og síðar ríkisstjóri.
Styrkur Collors felst í því að
hann hefur kjark, orku og skap
til að koma hlutunum í framvæmd
en hvort hann hefur getu og vilja
verður tíminn að leiða i ljós. Spill-
ingin í Brasilíu er gríðarleg og
stjórnmálin átakanlega laus við
hugsjónir. Þannig hafa þingmenn
200-föld lágmarkslaun og njóta
ýmissa fríðinda. Ágóðavonin verð-
ur því til þess að margir ákveða
að leggja stjórnmálin fyrir sig.
Óvænt fylgi
Andstæðingur Collors í kosn-
ingunum'þann 17. des., Lula da
Silva, er athyglisverður maður,
ekki síst í ljósi þessa. Hann lauk
ekki barnaskólanámi og vann sem
rennismiður í Sao Paulo. Hann
hóf stjórnmálaferil sinn sem bar-
áttumaður fyrir eitt af stéttarfé-
lögum verkamanna en í Brasilíu
er það einkennandi hvað stéttarfé-
lögin eru veikburða og áhrifalitil,
sem aftur skilar sér í bágbornum
kjörum launþega.
Fyrir ári hefði engum dottið í
hug að Lula yrði annar tveggja
efstu manna og fæstir vissu raun-
ar hver hann var. En á lokasprett-
inum jókst fylgi hans jafnt og
þétt og þegar talið var upp úr
kjörkössunum hafði hann mjakað
sér fram fyrir vinstri manninn
Leonel Brizola sem spáð hafði
verið öðru sæti. Reyndar var Briz-
ola ekki fullsáttur við úrslitin en
hét þó loks Lula stuðning sinn
sakir hugsjónatengsla með eftir-
farandi orðum: „Það verður un-
aðslegt að horfa framán í forrétt-
indastéttina ef þessi skeggjaði
froskur verður forseti." Þannig
gaf Brizola í skyn að Lula væri
skárri kosturinn af tveimur slæm-
um og það verður að segjast eins
og er að hvorugur frambjóðandinn
var mjög sannfærandi.
í skoðanakönnum fyrir síðari
umferðina reyndist Lula hafa 45%
kjósenda á sínu bandi en Collor
46%. Allt kom þó fyrir ekki og
töldu margir að það hefði ráðið
úrslitum að fyrrverandi unnusta
Lula kom fram í kosningasjón-
varpi Collors og sagði ýmsar
ófagrar sögur af samvistum
þeirra. Voru þó flestir þeirrar
skoðunar að borið hefði verið á
hana fé fyrir að koma fram í sjón-
varpsþættinum þótt frásagnir
hennar kynnu að vera sannar.
Alltjent sagði einn helsti ráðgjafi
Collors af sér og kvaðst ekki vilja
taka þátt í slíkri kosningabaráttu.
Það sem var sérlega athyglis-
vert við þessar kosningar og um
leið þverstæðukennt var sú stað-
reynd að hinir ríku og hinir fá-
tæku stóðu að kjöri Collors en
Lula naut stuðnings millistéttar-
innar. í raun má segja að barátta
frambjóðendanna tveggja hafi
einkum snúist um að sannfæra
alþýðu manna um hver væri vinur
„litla mannsins“ þar sem tveir
þriðju hlutar kjósenda teljast lifa
undir skilgreindum fátæktar-
mörkum. Collor tókst, í krafti vel
smurðrar konsingavélar, að selja
sig sem vin lágstéttarinnar, sem
ef til vill sýnir Ijóslega vandamál
illra upplýstra þjóða.
Vissulega ber að vona að Collor
takist að bæta ástandið í þessu
ríki þar sem þjóðarframleiðsla er
hin áttunda mesta í heimi. Hitt
blasir þó við að vandi Brasilíu og
þeirra 140 milljóna manna sem
þar búa er of mikill til þess að
einn maður nái að rífa landið upp
á við.
Höfundur dvelst núí Brasilíu.
Fernando Collor de Mello, verðandi forseti Brasiliu, á kjördag 17. desember síðastliðinn.
ENDURMENNTUN
BÍLGREINA
NÁMSKEIÐ
Lofthemlar
Fjallað verður um undirstöðuatriði loft- og vökva-
kerfa, helstu lokaog annan búnað, sem þeim tilheyr-
ir. Markmiðið er að gera þátttakendur færari um að
greina bilanir og bregðast rétt við til úrbóta.
Þátttakendur:
Námskeiðið er ætlað þeim málmiðnaðarmönnum
sem annast viðhald flutningabifreiða og þungavinnu-
véla.
Lengd námskeiðs 20 tímar.
Námskeiðið er haldið í Iðnskólanum í Reykjavík 16.,
17., og 18. mars nk.
Innritun fer fram í síma 83011.
Námskeið
sem hefjast á naestunni.
FLUGUHNÝTINGAR.
Föndur laxveiðimannsins. Þú lærir að hnýta sjálf/ur
flugurnar sem þú veiðir á.
Leiðbeinandi: Sigurður Pálsson.
PAPPÍRSGERÐ.
Þú lærir að búa til fallegan handgerðan pappír úr gömlum
pappírog öðru úrgangsefni.
Leiðbeinandi: Helga Pálína Brynjólfsdóttir.
AÐ GERA VIÐ BÍLINN SINN.
Þú lærir að fylgjast með bílnum og halda honum við. Skipta
um platínur, kerti, viftureim og bremsuklossa og annast
minni viðgerðir.
Leiðbeinandi: Elías Arnlaugsson.
Vorið nálgast...
Hafsteinn Hafliðason leiðbeinir á eftirfarandi námskeiðum:
GARÐAR OG GRÓÐUR.
Þú lærir undirstöðuatriði garðræktarinnar, um áburð og
ræktun, vorvinnuna, grasflötina, trjáplöntur, runna og blóm
og tegundarval.
GRÓÐURSKÁLAR, GRÓÐURHÚS.
Allt sem þú þarft að vita um skipulagningu gróðurskála
ræktun í þeim og val á blómum og grænmeti.
POTTAPLÖNTUR OG VORIÐ.
Undirstöðuatriði í ræktun pottaplantna í heimahúsum og
meðferð þeirra á vorin og sumrin. Kynning á algengum og
óvenjulegum plöntum.
KRYDDJURTIR.
Þú lærir að rækta kryddjurtir heima á svölum, í garðinum eða
innanhúss og fræðist um notkun þeirra við matreiðslu og
sem lyfja.
Siðustu saumanámskeið annarinnar eru að hefjast:
Yfirhafnir, barnafatasaumur og fatasaumurfyrir
byrjendur og óvana.
Nánari upplýsingar um stað, tíma og verð:
1ÖM5TUHM
SKOUNN
Skólavöiöustig 28 Sími 621488
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA