Morgunblaðið - 13.03.1990, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990
Milljón ára nauðungarvinna
eftirKára
Valsson
Sunnudaginn 28. janúar mátti
lesa á fímm blaðsíðum í Morgun-
blaðinu lýsingu á „byltingu gleðinn-
ar“ í Tékkóslóvakíu. Ein kvenna,
sem þar voru teknar tali var nafn-
greindur háskólakennari. Hún lýsti
álíka hóflegri ánægju með hrun
kommúnismans og hæstvirtur annar
þingmaður Austurlands hafði opin-
berað í sjónvarpinu við fall Berlín-
armúrsins. Ég vil hlífa þessari kunn-
ingjakonu minni og nefni hana til
hægðarauka aðeins frú K. — að
hætti Franzs Kafkas. Megi nafn
hennar tengjast því góða, sem hún
hefur áorkað á menningarsviðinu,
en hinu er bezt að gleyma. Þó er
nauðsynlegt að varpa ljósi á orð
hennar.
Blaðamaðurinn, sem hafði hina
snjöllu hugmynd að láta í fagnaðar-
kórnum heyrast líka rödd kommún-
ista, setti viðtalið í ramma. Að
mínum dómi hefði átt að auðkenna
viðtalið greinilegar lesendum til
glöggvunar. Ég veit ekki, hve slyng-
ir menn eru að lesa milli lína og
draga ályktanir af því svo sem:
„Þama er kona, sem fékk að lesa
í háskólanum fræði þau, sem hún
vildi. Slíkt var meinað Václav Havel
og öllum hinum, sem höfðu ekki
gengið kommúnismanum á hönd.
Hún mátti stunda nám við erlendan
háskóla. Henni leyfðist og að fara
oft út úr harðlokuðu landinu, meðan
menn gátu hlotið átta ára fangelsis-
dóm fyrir það eitt að vilja sjá sig
um í heiminum. Þessi kona hlýtur
að vera eða hafa verið kommúnisti."
Staðreynd þessa nefni ég henni
ekki til hnjóðs. I svokölluðum sósí-
alískum lýðveldum austan járntjalds
var flokksskírteinið bráðnauðsyn-
legt öllum, sem hugðu á framabraut
á annað borð. Það hefði heldur eng-
inn getað orðið prófessor í Þýzkal-
andi Hitlers án blessunar nasista-
flokksins. í ljósi þess má líta á
ummæli frú K. sem heimild um
skoðanir kommúnista á nýfengnu
frelsi tékknesku þjóðarinnar.
Allir endurráðnir!
Fram .undan er óvissa, hugsa
þeir. Bezt að reyna að smjaðra fyr-
ir hinu unga fólki, sem á framtíð-
ina. En aumingja unga fólkið veit
ekki glöggt, „hvað er sósíalismi"
eða „hvað er lýðræði". „Það eina
sem eftir stendur af sósíalismanum,
er að réttlæti ríki fyrir alia. En það
er kannski það, sem kapítalistar
segja líka?“ — „Ég veit ekki, hvað
fólk hefur skýrar hugmyndir um
lýðræði,“ segir frú K. „Núna hugs-
ar fólk fyrst og fremst um mál-
frelsi, ritfrelsi, listafrelsi... ferða-
frelsi."
Eitthvað mun svona einföldun
stangast á við skilgreiningu marx-
isma-lenínisma á hugtökunum sós-
íalismi og lýðræði.
„Persónulega er ég bæði svolítið
kvíðin og hlakka til,“ segir frú K.
enn fremur. „Stúdentamir vilja
breyta öllu. En við höfum ekki fleiri
FULLKOMNUN
Matthias hefur samið sína þriðju bók um WordPerfect.
1987: Bók um WordPerfect 4.1
1988: Bók um WordPerfect 4.2
1990: Bók um WordPerfect 5.0
Hann hefur nú enn betur lagt sig i lima við að sýna ekki aðeins hvað
WordPerfect getur gert, heldur til að sýna hvað þú getur gert.
Vissirðu um alla möguleikana sem þú hefur til að nota myndir, letur-
gerðir, textadálka o.s.frv.? Eða hvernig þú getur blandað þessu öllu
saman og náð „fagmannlegu" útliti?
Þetta og margt annað í 264 blaðsiðna bók fyrir byrjendur og sjóaða
notendur. Fyrir tækifærisritvinnslu, þungavigtarritvinnslu og hátiðarrit
vinnslu.
SJÖ DAGA TILBOD
Næstu sjö daga verður bókin á sérstöku gjafverði, þegar pantað er
gegnum póstkröfu, aðeins kr. 1.990 (póstkröfukostnaður innifalinn).
Eftir það kostar bókin kr. 2.490. Bókinni má skila innan 10 daga, ef þú
ert ekki fyllilega ánægð(ur).
PANTANASÍMAR
Reykjavík: 91-18593 Landsbyggðin: 93-66885
BÓKAÚTGÁFAN ALDAMÓT,
Skólavörðustíg 22C, 101 Reykjavík
Dr. Milada Horáková
Kári Valsson
bækur en áður og ekki fleiri
kennslustofur.“
Þetta þarfnast skýringar við. Svo
er mál með vexti, að deildarforseti
frúarinnar, Cerný, hefur endurráðið
alla kennarana, sem höfðu einhvern
tíma verið reknir. Afleiðingamar
urðu þær, að nú eru kennararnir
þrisvar sinnum fleiri en vom til
skamms tíma. Hvar á svo þessi
kennarafjöldi að athafna sig? Eins
verður erfítt og kostnaðarsamt að
fá allar fræðibækurnar, sem komm-
únistar höfðu hafnað í rúm fjömtíu
ár.
Forseti listiðnaðarakademíunnar
hafði annan hátt á en starfsbróðir
hans í heimspekideildinni. Hann
sagði upp öllum kennurunum. Síðan
gefur hann kost á að sækja um
endurráðningu, bæði kommúnistum
og þeim, sem urðu brottrækir sakir
skoðana sinna. Þar með tekur hann
upp þá nýlundu að velja í kennara-
stöður eftir hæfni en ekki eftir
flokkshollustu.
Erfíðir áratugir
Hverjir vom þeir? Frúin fræðir
okkur um það: Þeir voru hin „hörðu
ár á eftir 1968“. Og af hveiju?
„Þéttriðin, almáttug-
mafía flokksins þoldi
engar aðrar skoðanir
en sínar eigin. Ekkert
utanaðkomandi vald
gat haft þar nokkur
áhrif.“
„Áður trúði margt fólk á komm-
únismann, en síðustu 20 árin hefur
nær enginn gert það og eiginlega
ekki trúað á neitt. Allavega ekki á
flokkinn. Og samkvæmt sögulegri
skoðun álitum við að öll endurnýjun
og endurskoðun yrði að hefjast inn-
an flokksins sjálfs, enda hafði svo
verið. En það var ekki hægt að
vonast eftir neinu því frá þessum
flokki eins og hann þróaðist eftir
1968.“
Hin „sögulega skoðun“ um end-
umýjun innan flokksins er aðeins
að sumu leyti rétt. Þéttriðin, almátt-
ug mafía flokksins þoldi engar aðr-
ar skoðanir en sínar eigin. Ekkert
utanaðkomandi vald gat haft þar
Ræðumennska og mannleg samskipti
Kynningarfundur
Kynningarfundur verður haldinn f kvöld
kl. 20.30 á Sogavegi 69, gengið inn að
norðanverðu.
★ Námskeiðið getur hjálpað þér að:
★ Öðlast HUGREKKI og meira SJÁLFSTRAUST.
★ Láta í Ijósi SKOÐANIR þínar af meiri sannfæring-
arkrafti í samræðum og á fundum.
★ Stækka VINAHÓP þinn.
★ Starfa af meiri LÍFSKRAFTI
- heima og á vinnustað.
★ Halda ÁHYGGJUM ískefjum og draga úr kvíða.
Fjárfesting í menntun gefur þér arð ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma
82411
STJÓRIMUIMARSKÚLIIMIM
% Konrað Adolphsson Einkaumboð tyrir Dale Carnegie namskeiðin'
nokkur áhrif. Hver heiðarlegur hug-
sjónamaður, sem reyndi að víkja frá
stefnu flokksins, undirritaði þar
með dauðadóm sinn. í sjötíu ár gat
engin endurnýjun átt sér stað nema
fyrir slysni. Ég minni á Tito og
Khrúsjtsjov.
Svipað „slys“ varð á hinu
títtnefnda ári 1968. Þá gerðist
Alexander Dubcek flokksformaður.
Dubcek stefndi að „sósíalisma með
mannlegri ásjónu", losaði um rit-
skoðun og hlaut vinsældir af. Eftir
tuttugu ár frá valdaráninu 1948
gátu menn allt í einu strokið um
frjálst höfuð óhræddir um líf sitt.
Þetta nefndist „vorið í Prag“. Menn
aðhylltust Dubcek ekki af því að
hann var kommúnisti heldur af því
að hann hafði slakað á kverkataki
alræðisins.
Skyndilega þóttust allir vera
kommúríistar til að styrkja Dubcek
í átökum hans við Moskvuvaldið.
En Brezhnev var meiri stjórnmála-
maður en að láta blekkjast. Hann
svaraði með slægð, sem sjálfur Hitl-
er hefði verið fullsæmdur af. Meðan
hann kyssti Dubcek á jámbrautar-
stöð í landamæraþorpinu Cierna,
undirbjó hann innrás í Tékkóslóv-
akíu, sem heppnaðist 21. ágúst
1968. Þar með frestaði hann gjald-
þroti kommúnistakerfisins um rúm
tuttugu ár.
Ástandið í landinu varð þó ekki
eins þrúgandi og á fyrstu tveimur
áratugum eftir valdaránið. Samt
þóttu frú K. síðari tuttugu árin
hörð, af því að þá hefur enginn trú-
að á neitt. Líklega sýndu menn
enga trú, ef þeir létu sjá sig í kirkju,
þótt þeir sættu afarkostum í námi
og atvinnu. Og hvað skal segja um
hóp karla og kvenna með núverandi
forseta landsins Václav Havei í far-
arbroddi, sem þorði að setja nafn
sitt undir mannréttindaskjalið
Charta 77, — trúðu þau ekki á neitt?
„Alia vega ekki á flokkinn."
Gömlu góðu dagarnir
„Já, hann (kommúnisminn eða
sósíalisminn) er búinn að vera,“
segir frúin. „Mér flnnst samt svolít-
ið sorglegt, að afskrifa 50 ára sögu
svona á einu bretti, því þetta kost-
aði mörg líf og mikla baráttu og
var gert í svo góðri trú upphaflega."
Það er hvert orð öðru sannara.
Það kostaði mörg líf, en um hina
góðu trú í upphafi er bezt að dæma
Reglugerð
umstarf
hnykkja
HEILBRIGÐIS— og trygginga-
málaráðuneytið hefúr gefið út
reglugerð um menntun, réttindi
og skyldur hnykkja (kíróprakt-
ora). I reglugerðinni segir m.a.
að þeir einir megi kalla sig
hnykkja og starfa sem slíkir sem
til þess hafi leyfi ráðherra.
í frétt frá Kírópraktorafélagi ís-
lands, sem stofnað var síðastliðið
haust, segir að félagið hafi unnið
að mótun reglugerðarinnar í sam-
vinnu við ráðuneytið. Um starfssvið
segir í reglugerðinni að kírópraktor-
ar meðhöndli kvilla í stoðkerfi og
eru nefndir sem dæmi ýmsir kvillar
og sjúkdómsgreiningar á hryggjar-
vandamálum, svo og þreytu- og
vöðvagikt, sem hrjái marga íslend-
inga. Þá geti reglugerðin þess, að
menntun kírópraktora sé ijögur ár
frá viðurkenndum háskóla og auk
þess eins árs verklegt nám.
í Kírópraktoraféiagi íslands eru
þrír kírópraktorar, allir útskrifaðir
frá Anglo-European College of
Chiropractic í Bournemouth á Eng-
landi.
NUDDSTOFA REYKJAVÍKUR
Dalseli 18, sími 79736 - og nú einnig á Hótel Sögu, sími 23131