Morgunblaðið - 13.03.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990
41
eftir ávöxtum hennar. Að vísu voru
kommúnistar líka að hengja hvorir
aðra, líkt og ellefu flugur í einu
höggi 3. desember 1952. Þeirra á
meðal var ráðherra sakfelldur
vegna þess, að hann hafði gert við-
skiptasamning við auðvaldsríkið Is-
land. (Sjá Morgunblaðið frá 11.
desember 1952 og frá 5. október
1983.) En flokksmennirnir voru í
hverfandi minnihluta meðal fórnar-
lamba hinnar „sögulegu nauðsynj-
ar“.
Meðan öll kurl eru ekki komin
til grafar, verður ekki fullyrt, hve
margir tugir ef ekki hundruð munu
hafa fallið fyrir morðsveitum
kommúnista. Hitt er víst, að á
fyrstu sex árum kommúnistastjórn-
arinnar var fullnægt ekki færri en
187 dauðadómum. Meðal hinna
hengdu voru Dr. Milada Horáková,
og ætti kvenhetja þessi skilið nán-
ari umfjöllun.
Auk hinna myrtu eða líflátnu
voru tugþúsundir manna dæmdir
til langvarandi fangelsisvistar. Það
þýddi, að þeim var útjaskað endur-
gjaldslaust í þágu atvinnuvega, því
hagkerfi öreiganna gat ekki staðizt
án þræla. Unnvörpum misstu menn
heilsu og líf í fangelsum víða um
landið, þar sem atvinnuveitandinn,
hinar vinnandi stéttir, þurfti ekki
að sjá um hollustuvernd á vinnu-
stöðvum. Verstar vinnubúðanna
þóttu úrannámur í Jáchymov (Jó-
achimstal) í Norður-Bæheimi.
Sé tala hinna dæmdu margfölduð
með meðallengd refsivistar, verður
"útkoman rúm milljón ár nauðungar-
vinnu. Þrátt fyrir svona sæmilegt
framlag til framleiðslu, að ógleymd-
um sparnaði í launagreiðslum, var
þjóðarhagurinn ekki upp á marga
fiska.
Nú hafði hver hinna myrtu,
hengdu eða þrælkuðu sinn vinahóp
og sinn frændgarð. Og vinir og
vandamenn þeirra sættu margvís-
legum hrellingum af hálfu flokks-
ins, en þeir óttuðust ekki síður, tor-
tryggðu eða sviku hvorir aðra. Og
ekki er trúlegt, að sælli væru hinir
vammlausu, beittir nauðung á
vinnustöðvum sínum til að heimta
hina „þyngstu refsingu" handa sak-
borningum í síendurteknum gervi-
réttarhöldum.
Af nógu er að taka, en hér skal
staðar numið. Fjórtán miljónir
manna voru vansælar í fjörutíu og
tvö ár. Það gerir samtals
588.000.000 ár óhamingju. En til
er bót í máli: Allt var þetta „gert
í svo góðri trú upphaflega“.
Að lokum óska ég frú K. alls
góðs. Megi henni auðnast að fljóta
ofan á eins og korktappi í umróti
gleðilegu byltingarinnar og fá næði
til að stunda fræði sín í kyrrþey.
Blaðamanninum Vilborgu Harðar-
dóttur þakka ég af alhug, að hún
svipti hulunni af hugskoti tékkn-
esks kommúnista.
Höfundur er prestur af
tékkneskum uppruna.
V E R Ð D Æ M I
BE2lííT
2 vikur
fyrir 6!
RINCONADAREAL
(Raðhús)
Kr 35.300
pr. mann
Miöaö viö 2 fulloröna, 2 unglinga
12 - 15 ára og 2 börn 2-11 ára
og aö pöntun sé staöfest fyrir 1 apríl.
Ekki innifaliö fveröi:
Flugvallaskattar og forfallatryggingar.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
Aöalstræti 16. sími 62 14 90.
Royal
súkkulaðibúðingur
- eftirlæti barnanna
Ungir sjálfstæðismenn:
Ríkisstjórnin flandsam-
leg sveitarfélögunum
FUNDUR formanna félaga ungra sjálfstæðismanna, sem haldinn var
í Keflavík 24. febrúar síðastliðinn samþykkti svofellda stjórnmálaá-
lyktun:
„Undanfama mánuði hafa átt sér
stað stórtíðindi á sviði heimsmál-
anna. Þjóðir Austur-Evrópu hafa
hver á fætur annarri varpað af sér
oki sósíalismans og virðast vera að
snúast til lýðræðislegri stjómar-
hátta. Þróunin í þessum löndum er
besti vitnisburðurinn um hmn fé-
lagshyggjunnar. Ungir sjálfstæðis-
menn vona að þessar þjóðir beri
gæfu til að byggja þjóðskipulag sitt
á vestrænum ftjálslyndishugmynd-
um, mannréttindum og markaðs-
búskap.
Stjórnmálaástandið á íslandi
verður ekki metið nema með hlið-
sjón af þessum stóratburðum. Með-
an aðrar þjóðir taka skrefið fram á
við og bijóta niður múra helsis, er
hér á landi stigið skref aftur á bak.
Frá því ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar tók við hefur hjóli
tímans verið snúið við og horfið
aftur til fyrirgreiðslupólitíkur,
skattpíningar, sjóðasukks og þjóð-
nýtingar. Brýnt er fyrir þjóðina að
snúa aftur til stefnu frjálslyndis og
framfara undir stjóm Sjálfstæðis-
flokksins svo útþensla ríkisbáknsins
verði stöðvuð.
í komandi bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum er nauðsynlegt
að kjósendur hafi hugfast hve
fjandsamleg núverandi ríkisstjóm
er sveitarfélögum. Í síauknum
mæli hefur hún seilst ofan í sjóði
sveitarfélaga og þannig skert fjár-
hagslegt sjálfstæði þeirra og um
leið aukið miðstýringu ríkisvaldsins,
sem var næg fyrir. Þar má nefna
brot ríkisstjórnarinnar á samkomu-
lagi um verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, álagningu virðis-
aukaskatts á ýmis lögboðin verkefni
sveitarfélaganna og áform um
skattlagningu orkufyrirtækja.
Kostirnir em skýrir. Valið í kom-
andi kosningum stendur á milli
Sjálfstæðisflokksins og þeirra
flokka sem að ríkisstjórninni
standa. Góður árangur Sjálfstæðis-
flokksins mun gefa fólki von um
bjartari framtíð.
í vor ganga þúsundir nýrra kjós-
enda að kjörborðinu. Samband
ungra sjálfstæðismanna skorar á
ungt fólk að fylkja liði um Sjálf-
stæðisflokkinn. í krafti nýrrar kyn-
slóðar getum við lagt gmnninn að
uppbyggingu öflugra sveitarfé-
laga.“
Þingeyrar- og Auð-
kúluhreppur sameinast
Þingeyri.
Félagsmálaráðuneytið ákvað þann 2. mars síðastliðinn að Auðkúlu-
hreppur skuli sameinast Þingeyrarhreppi frá og með 1. apríl næst-
komandi, samkvæmt lögum er kveða á um að hreppar er hafa færri
en 50 íbúa í þrjú ár skuli leggjast niður. 1 Auðkúluhreppi er nú 31 íbúi.
Samkvæmt upplýsingum
Hallgríms Sveinssonar, oddvita
Auðkúluhreopps, hefur hreppurinn
verið fjárhagslega sjálfstæður og
staðið við allar sínar skuldbindingar
fram að þessu. Að áliti hans er
ekkert unnið við þessa sameiningu
fyrir íbúa Auðkúluhrepps nema
samgöngur verði stórlega bættar
innan hins nýja Þingeyrarhrepps.
Sagðist hann vænta bréfs um þau
efni innans kamms. Þingeyrar-
hreppur mun því frá og með 1.
apríl næstkomandni ná frá Langa-
nesi í Amarfirði í Dyrafjarðarbotn.
- Hulda
‘Dói&viúttwi
Duni dúkarúllur
kalia fram réttu stemmninguna
við veisluborðið.
Faiiegir litir sem fara vel við
borðbúnaðinn geta skapað þetta litla
sem þarf til að veislan verði fullkomin.
Duni dúkarúllurnar eru 50m á lengd
og l,25m á breidd og passa því á öll borð.
Og þú þarft ekki að þvó dúkinn á eftir.
Fannir hf. - Krókhálsi 3
Sími 672511