Morgunblaðið - 13.03.1990, Qupperneq 46
46
MORGUNJBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MARZ 1990
Aldarmirming:
Lucinde Sigurðsson
Hjálmtýr Sigurðsson
Fædd 13. marz 1890
Dáin 17. júní 1966
Fæddur 14. apríl 1878
Dáinn 5. júlí 1956
í dag eru liðin 100 ár frá fæð-
ingu ömmu minnar, Lucinde Sig-
urðsson fædd Hansen. Amma hét
fullu nafni Lucinde Fransiska Vil-
helmine Hansen. Bar hún nöfn allra
móðursystra sinna, sem má telja
sérstakt. Amma var dóttir hjónanna
Maríe Bernhöft húsmóður, sem
síðar rak blómaverslunina Sóley,
Bankastræti 14, hún var dóttir
hjónanna Jóhanne og Vilhelms
Bernhöft bakara, og Ludvigs Han-
sen kaupmanns, sem var danskur
og kom hingað ungur á vegum
Martins Smiths kaupmanns og
konsúls og settist hér að.
Marie og Ludvig eignuðust þtjú
börn: elst var amma Lucinde, næst
henni var Jóhanne bókari, ókvænt
og barnlaus, yngstur var Gunnar
en hann dó ungur.
Amma varð ung verslunarstjóri
í Sápuhúsinu, sem þá var útibú frá
stórverslun í Danmörku. Sagði
amma mér frá því á góðum stundum
hvað það var gott og gaman að
vera í Sápuhúsinu.
28. júní 1913 er stór dagur í lífi
ömmu, þá giftist hún afa, Hjálmtý
Sigurðssyni, hann var sonur hjón-
anna Gyðríðar Hjaltadóttur og Sig-
urðar Sigmundssonar frá
Grímsfjósum, voru þau bæði ættuð
austan úr Mýrdal. Attu þau 7 börn:
Hjálmtý, Sigurð, Kristin, Jón, Guð-
rúnu, Ingibjörgu og Guðfinnu.
Þegar afi og amma gifta sig
helgar hún sig alfarið heimilinu,
sem með tímanum varð stórt, þar
sem amma og afi eignuðust átta
börn. Þau eru: María gift Vilhjálmi
Heiðdal, Lúðvíg kvæntur Kristjönu
Pétursdóttur, Asta gift Guðmundi
Sigurðssyni, Sigurður kvæntur
Ernu Árnad. Mathiesen, Gunnar
ókvæntur, Ásdís gift John Callag-
han, Jóhanna gift Axel Thorarensen
og Hjálmtýr kvæntur Margréti
Matthíasdóttur.
Hafði amma í nógu að snúast
við uppeldi barna sinna, en þrátt
fyrir það gat hún alltaf gefíð af
sinni góðmennsku við aðra, ég tala
nú ekki um þá er minna máttu sín.
Amma var mjög hjálpsöm og góð
kona, hún var hvers manns hug-
ljúfí og góð heim að sækja. Hún lét
sig þau mál skipta er erfíðleikar
steðjuðu að hjá öðrum.
Vitna ég hér í bókina Á götum
Reykjavíkur sem kom út fyrir
síðustu jól, þar sem Lúðvíg sonur
hennar rifjar upp gamla daga, þar
segir: „Ég man eftir nokkrum
skólabræðrum mínum, að minnsta
kosti tveimur, ef ekki þremur sem
voru oft áhyggjufullir út af því
hvað þeir fengju að borða, þegar
þeir kæmu heim til sín að kvöldi.
Klæði og skæði voru líka af mjög
skornum skammti.
Ég heimsótti þessa félaga mína
og sá þar af leiðandi eymdina. Oft
tók ég þá með heim tii mín, til þess
að þeir fengju að borða, og var
auðsótt mál hjá móður minni að
gefa nauðþurftamönnum mat. Hún
sendi líka oft út í bæ til fátæks
fólks, sem hún þekkti, bæði tilbúinn
mat, t.d. handa sængurkonum og
ýmislegan varning til þeirra, sem
hún vissi að þurftu þess með.“ Tilv.
lýkur.
Þarna er ömmu vel lýst.
Þegar ég fæðist, er amma orðin
63ja ára gömul, en á mig virkaði
hún ung, svo ung, að að mínu áliti
átti hún langt líf fyrir höndum.
Þannig að frá fæðingu minni er
amma stór hluti af minni tilveru,
þar sem ég fæddist í húsinu hennar
á Sólvallagötu 33 og bjó þar til 10
ára aldurs.
Hún átti yfír 20 barnabörn á
þessum árum og átti þeim eftir að
fjölga og var hún líka þá orðin lang-
amma. Óllum þessum bömum gat
hún gefið þá ást og hlýju sem henni
bar. Hafa í dag allar stelpumar,
sem eru hennar barnabörn, stofnað
með sér „frænkufélag Túllu Han-
sen“, en það var gælunafn á ömmu
þegar hún var ung. Starfar félagið
af miklum krafti, enda í hennar
anda.
Amma var í Thorvaldsensfélag-
inu í mörg ár, lét hún það nægja
hvað félagsstörf snerti, en ræktaði
því betur börnin sín, heimili sitt og
síðast en ekki síst eiginmann sinn.
Afí var einn af þeim mönnum,
sem em sífellt að framkvæma, og
var það meira en að segja í þá daga.
Hann ólst upp fyrir austan fjall,
síðan fór hann til náms í Flens-
borgarskólann í Hafnarfirði, hjá
Jóni Þórarinssyni skólastjóra. Afi
starfaði að byggingarmálum og
byggði nokkur stór hús í Reykjavík,
t.d. Grundarstíg 2 og 11, einnig rak
hann um tíma byggingarvöruversl-
un og nýlendurvöruverslunina
Breiðablik, Lækjargötu 10. Amma
og afí bjuggu í kringum 1929 á
Stokkseyri, en afí var mikið í við-
skiptum á þessum tíma, varð hann
hinn 12. febrúar 1929 eigandi allrar
Stokkseyrar, hinn eini, sem það
hefur orðið síðan á 17. öld. Hinn
28. ágúst 1933 seldi hann Lands-
bankanum 9/16 úr Stokkseyri og
1. nóvember 1935 ríkissjóði hina
7/16.
Upp úr 1930, flytur Qölskyldan
aftur til Reykjavíkur, á Sólvallagötu
33. Afí var að mörgu leyti maður
á undan sinni samtíð, vil ég vitna
í eftirmæli um afa, sem Adolf
Björnsson skrifaði í Morgunblaðið,
fimmtud. 12. júlí 1956. Þar stend-
ur: Með Hjálmtý er genginn og
horfínn sjónum og samfylgd merkur
þjóðfélagsþegn, mætur og mikils-
virtur drengur. Sæti hans er autt,
en í hugum okkar og hópi gleymist
Hjálmtýr aldrei. Hann var hinn
góði drengur, sem í minningu okkar
varpar yl og birtu á vegferð kom-
andi ára. Tilv. lýkur.
Síðustu 20 árin, er hann lifði,
starfaði hann í 16 ár í Utvegsbanka
íslands. Hann lést 5. júlí 1956.
Bæði voru þau amma og afi kát
og glaðlynd, bera afkomendur
þeirra þess skýr merki. Þau voru
menningarlega sinnuð, afí var mik-
ilsvirtur þátttakandi í Leikfélagi
Reykjavíkur og fór þar oft á svið,
amma hafði yndi af tónlist, spilaði
á píanó og söng mikið á yngri árum.
Amma lést 17. júní 1966. Áttu þau
saman 43 ár í farsælu hjónabandi.
Við afkorhendur þessara heiðurs-
hjóna þökkum þeirra tilveru, því án
þeirra værum við ekki til.
Blessuð og varðveitt sé minning
þeirra.
Valgerður Sigurðardóttir
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JENNY MARÍA EIRÍKSDÓTTIR,
Rjúpufelli 34,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju í dag kl. 15.00.
Gisli Þorkelsson,
Þorkell Gíslason, Björk Þorgeirsdóttir,
Eiríkur Halldór Gíslason, Gfsli Þorkelsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGEBORG KRISTJÁNSSON,
Úthlíð 7,
Reykjavik,
sem lést í Hafnarbúðum 7. mars verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu fimmtudaginn 15. mars kl. 13.30.
Inger Hallsdóttir, Kristján Baldvinsson,
Rúnar Þór Hallsson, Sigfríð Guðlaugsdóttir,
Heba Hallsdóttir, Eyjólfur Eðvaldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Afi okkar og langafi,
EINAR GUÐMUNDSSON,
Hrafnistu, Reykjavik,
áður til heimilis á Smyrlahrauni 6,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, þriðjudaginn
13. mars kl. 13.30.
Ólafur Einar Sigurðsson, Guðbjörg Guðvarðardóttir,
Guðmar Sigurðsson, Þóra F. Hjálmarsdóttir,
Halldór Sigurðsson, Sigrún Sigurðardóttir
og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSTRÍÐUR ÁRNADÓTTIR,
Suðurgötu 115,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju miðvikudaginn 14. mars kl.
11.00 árdegis.
Ingvar Sigmundsson, Steinunn Kolbeinsdóttir,
Árný Kristjánsdóttir, Helgi Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför föður okkar, —
EINARS GESTSSONAR,
Norðurkoti,
Miðnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Margrét Einarsdóttir, Ármann Jónsson,
Gestur Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför föður okkar, tengdaföður og afa,
FRIÐRIKS Ó. PÁLSSONAR,
Dvalarheimilinu Felli,
Skipholti 21,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Páll Friðriksson,
Kristján Friðriksson,
Einar Friðriksson,
Ólafur Þór Friðriksson,
Bargdis Friðriksdóttir,
Jón Friðriksson,
Susie Bachmann,
Concordia Konráðsdóttir,
Karl Kristinsson,
Randy Friðriksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður og afa,
BENEDIKTS BRUNSTED RÓBERTSSONAR.
Bergljót Þórarinsdóttir,
Jóhanna Jónsdóttir, Oddur Guðjónsson,
Elisabet Benediktsdóttir, Jóhannes Pálsson,
Jóhanna G. Benediktsdóttir, Stefán B. Ingvarsson,
ÞóraG. Benediktsdóttir, Ásgeir Guðmundsson,
Jóhann Eðvald Benediktsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við fráfall elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
HELGU JÓNU JÓNSDÓTTUR,
Faxastfg 4.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja fyrir góða umönnun í veikindum hennar.
Einar Hannesson,
Örn V. Einarsson, Svana Sigurgrímsdóttir,
Gísli V. Einarsson, Björg Guðjónsdóttir,
Sigríður M. Einarsdóttir, Guðmundur Kristmundsson,
Sævar V. Einarsson, Elfn Benedíktsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR DAGBJARTSDÓTTUR
frá Ásagarði,
Ásabraut 11, Grindavík.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks lungnadeildar Vífils-
staðaspítala.
Gfsli Jóhannsson,
Valgerður Gísladóttir, Willard Ólason,
Gísli Willardsson, Eli'n Þorsteinsdóttir,
Dagbjartur Willardsson, Brynja Hjörleifsdóttir,
Guðrún Willardsdóttir
og barnabarnabörn.