Morgunblaðið - 13.03.1990, Side 47
mgrgunbí,kt)ni wuúJUDkduk ik' iviAte ráa'o 1
47'
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
bróður míns,
KRISTJÁNS ELÍS STEFÁNSSONAR,
Bræðraborgarstig 36.
Steinunn Stefánsdóttir og fjölskylda.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð-
arför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
BRAGA MARSVEINSSONAR,
Álfaskeiði 53,
Hafnarfirði.
Unnur Lovísa Maríasdóttir,
María Bragadóttir, Gunnar Þórleifsson,
Bragi Bragason, Ragnhildur Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Blómastofa
FriÖfinns
Suðuriandsbraut 10
108 Reykjavík. S(mi 31099
Opið öil kvöld
tii kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Láttu drauminn um ævintýraferðina rætast um páskana
Hefurþig aldrei langað til að reyna eitthvað nýtt, kynnast öðrum heimsálfum og öðruvísi fólki?
Um páskana liggur leiðin til Thailands, í sextán daga ógleymanlega ævintýraferð.
Töfrar Thailands
5. apríl verðurflogið til Kaupmanna-
hafnar, stigið upp í þægilega breiðþotu
SAS og ekki lent fyrr en i Bangkok. Þar
verðurgist í 2 næturá fyrsta flokks
hóteli, Hótel Menam. Boðið verður upp á
skoðunarferðir til markverðustu hluta
Bangkokborgar og nágrennis, t.d. á
fljótandi markað, í konungshöllina og í
hof Gullbúddans.
Við fljugum í skoðunarferð
til Chiang Mai
8. april fljúgum við til hinnar fornu
höfuðborgar Thailands, Chiang Mai,
við rætur Himalayafjalla. Þarerdvalið í
5 daga og gist á glæsihótelinu
Mae-Ping, um leið og færigefstáað
kynnast landi og þjóð frá gjörólíkri hlið.
Síðan liggur leiðin til Pattaya
strandarinnar - perlu austursins - þar
sem dvalið verður í 7 næturá hinu
vinalega fyrsta flokks hóteli Siam
Bayview. Enn erboðið upp á
skoðunarferðir, enda afnógu að taka.
Auðvitað geturðu tekið það rólega á
gullinni ströndinni og notið veðursins
eða nýtt hin endalausu tækifæri til
vatnasports, verslunarog
skemmtunar sem þérbjóðast í Pattaya.
fíeglan er: Þú hefur það alveg eins og þú vilt.
Veður- og verðlag: Frábært!
Veður er ákjósanlegt á þessum tíma,
hitastigið 23-30gráður og hægir
Monsúnvindar úr norð-austri.
Verðlag er með ólíkindum lágt og
Thailendingar viðræðugóðir kauþmenn,
þannig að hægt erað gera reyfarakaup á
handverki í skartgripa-, list- og
fataiðnaði. Þúgeturmeira aðsegja
prúttað um leigubílinn!
Nú er tækifærið til að láta drauminn
rætast: Að heimsækja Asíu. Iþessari
ævintýraferð hjálþar allt til við að gera þér
hana ógleymanlega - þú lofarþér
örugglega að fara einhverntíma aftur!
Verð í tvíbýli kr.
Verð í einbýlikr.
119.795,-
141.300,-
Verð miðast við staðgreiðslu
oggengi 10. janúar 1990.
Innifalið í verði erflug,
gisting með morgunverði,
íslensk fararstjórn
og allurakstur í Thailandi.
Brottför: 5. apríl.
Heimkoma: 20. apríl.
Fararstjóri: Svavar Lárusson.
Ath. Hægteraðframlengja
dvöl í Singapore.
/////S4S
Samvinnuferöir - Landsýn
Reykjavík: Auslurslræti 12, s. 91 -691010, Innanlandsferöir, s. 91 -691070,
póstfax 91 -27796, telex 2241, Hótel Sögu viö Hagatorg,
s. 91 -622277, póstfax 91 -623980
Akureyri: Skipagötu 14, s. 96-27200, póstfax 96-27588. telex 2195.
Ársæll Jónasson
forstjóri ■
Kveðjuorð frá Félagi
íslenskra hugvitsmanna
Heiðursfélagi okkar Ársæll Jón-
asson andaðist 3. mars síðastliðinn
rúmlega 88 ára að aldri. Síðustu
ár átti hann í þeim veikindum sem
nú hafa lagt hann að velli en hann
vissi hvert stefndi og bar veikindi
sín af alkunnri karlmennsku og
æðruleysi. Á langri og athafnamik-
illi ævi, er fyrst og fremst snerist
um flestallt það er lýtur að sjó-
mennsku, safnaði hann þeirri lífs-
reynslu er lagði grunninn að mörg-
um og stórfenglegum nýjungum
sem margar hverjar hafa nú verið
þróaðar til fremstu tækninýjunga í
fiskveiðum.
Má þar nefna sérstakan neta-
veiðibúnað sem skilar aflanum jafn-
óðum að borðstokk fiskiskipsins, en
sá búnaður bíður síns tíma, og í
tengslum við hann dælu sem flytur
aflann upp í skipið. Dæla þessi er
fyrsta hönnun að svonefndum
loðnu- og síldardælum sem nú eru
alþekkt tækniundur og ómissandi í
tæknivæddum fiskveiðum. Ótal
aðrar nýjungar innleiddi Ársæll en
þeirra hefur lítt verið getið í gegn
um tíðina.
Ársæll fæddist 2. október 1901
í Hlíðarhúsum gamla vesturbæjar-
ins í Reykjavík. Hann lærði verk-
lega sjóvinnu, einkum reiða- og
seglagerð, og ritaði síðar
kennslubækurnar Verkleg sjóvinna
I. og II. sem nú eru tímamótaheim-
ildarrit og safngripir. Síðar á
ævinni kenndi hann þessi og önnur
störf í 18 ár við Stýrimannaskólann
í Reykjavík.
Ársæll var glæsimenni að vallar-
sýn og hraustmenni mikið en þess
naut hann öðru fremur við þau
störf sem gátu honum verðskuldað
frægðarorð en það voru köfunar-
og björgunarstörf víða um lönd.
Hann var sæmdur heiðursmerki
franska flotans, „Merité Maritime",
1985 fyrir einstakt björgunarafrek
við mjög hættulegar aðstæður og
-síðar Hinni íslensku fálkaorðu fyrir
margháttuð félags- og kennslustörf
hér á landi.
Ársæll var mjög virkur í félags-
störfum. Hann var m.a. einn af
stofnendum og fyrsti formaður
björgunarsveitarinnar í Reykjavík,
stjómarmaður í Ingólfi og SVFI.
Þá starfaði hann mjög að málefnum
Alliance Francais og Kafarafélags
Islands. Til fróðleiks má geta að
hann hlaut útnefningu sem tyrk-
neskur konsúll á íslandi. Um langt
árabil rak Ársæll sitt eigið köfunar-
og björgunarfyrirtæki og jafnframt
reiða- og seglagerð. Hann kvæntist
1931 Gudrun Geisler Jónasson sem
andaðist langt um aldur fram árið
1960.
Æviferill Ársæls er allt í senn
kjarkmikill, framsýnn og lær-
dómsríkur fyrir alla þá sem djörf-
ung hafa til að lyfta sér upp úr
drunga meðalmennskunnar og
ryðja nýjungum braut í gegn um
torleiði þröngsýni og baknag kyrr-
- Minning
stöðunnar, á sama tíma og braut-
ryðjandinn miðlar æskunni af
reynslu og nýrri þekkingu svo þeir
sem við taka geti haldið merkinu á
lofti og áskapað sér þá elju sem
leggur grundvöllinn að nýjum fram-
förum. Það er þetta sem gerði Ár-
sæl að heiðursfélaga í mörgum fé-
lagssamtökum, þar á meðal í Félagi
íslenskra hugvitsmanna sem nú
kveður hann og hvetur ritfæra
menn til að skrá sögu hans til
varðveislu og eftirbreytni. Blessuð
sé minning hans.
Guttormur P. Einarsson,
formaður Félags
íslenskra hugvitsmanna