Morgunblaðið - 27.03.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.03.1990, Qupperneq 1
56 SIÐUR B 72. tbl. 78. árg. ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Ungverjaland: Þreyta talningamanna tefiir fyrir úrslitum Búdapest. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins. YFIRKJÖRSTJÓRN þingkosninganna i Ungverjalandi gat ekki birt endanleg úrslit kosninganna í gær, en samkvæmt lögum bar henni að birta úrslit innan sólarhrings eftir að kjörstaðir lokuðu á sunnu- dagskvöld. Hún tilkynnti í gærkvöldi að talningamenn á nokkrum kjörstöðum væru farnir heim frá óloknu verki vegna þreytu. Endan- leg úrslit myndu því ekki liggja fyrir íyrr en í dag, þriðjudag. Reuter Sovésk herþyrla dreifir flugritum yfir Vil- nius í gær þar sem hvatt er til mótmæla gegn ríkisstjórn Litháens í dag. A innfelldu myndinni sjást sovéskir hermenn við inn- gang menntaskóla kommúnistaflokksins í Vilnius í gær. Sovéski herinn hefur skólann og nokkrar aðrar opinberar byggingar í borginni á valdi sínu. Hafa yfirnienn hersins neitað að hverfa á brott úr þeim. Rúmlega 80% atkvæða höfðu ver- ið talin í gærkvöldi og voru hægri flokkarnir ótvíræðir sigurvegarar kosninganna. Lýðræðisvettvangur Ungvetjalands hafði hlotið 24,5% atkvæða og ftjálsir demókratar 21,18%, Bændaflokkurinn 12,16%, Sósíalistaflokkurinn, flokkur um- bótasinna úr gamla kommúnista- flokkurinn, 10,65%, Ungir demó- kratar 8,57% og Kristilegir demó- kratar 6,43%. í gærkvöldi var aðeins vitað um fimm menn sem náð höfðu kjöri í fyrri umferðinni en samkvæmt hinni flóknu kosningalöggjöf landsins átti að kjósa 176 þingmenn af 386 beinni kosningu. Seinni umferðin verður 8. apríl. Miklos Nemeth, for- sætísráðherra, sem bauð sig fram sem óháð, er einn þeirra sem hafa náð kjöri en Lýðræðivettvangurinn studdi hina fjóra. Listar flokkanna 12 sem buðu fram á landsvísu þurftu minnst 4% atkvæða til að ná þingsæti og höfðu sex flokkar náð því marki. Jafnaðar- Gorbatsjov útilokar ekki valdbeitingu í Litháen: Herþyrlur notaðar við boð- un útiíimdar gegn sjálfetæði Talsmenn Sajudis óttast að fiindurinn verði hernum tilefni til valdbeitingar Moskvu. Reuter og Daily Telegraph. SOVÉSKAR herþyrlur voru not- aðar í gær til að dreifa miðum þar sem boðað er til fjöldafundar í Vilnius, höfuðborg Litháens, í dag kl. 16.00 að staðartíma (13.00 að íslenskum tíma). A miðunum sem undirritaðir eru af samtökum rússneska og pólska minnihlutans í lýðveldinu stendur m.a.: „Spyrjið okkar nýju leiðtoga hvar sé nú viðurkenning erlendra ríkja á fullveldi Litháens sem þeir lofuðu og hvar sé efnahagsaðstoðin?" Talsmenn Sajudis, sjálfstæðis- hreyfingar Litháens, sögðust í gær óttast að herinn myndi sker- ast í leikinn ef til óeirða kæmi fyrir utan þinghúsið þar sem fund- urinn verður haldinn. Viðræöur hófust í gær milli hátt- settra yfírmanna sovéska hersins í Vilnius og stjórnvalda þar. Rom- ualdas Ozolas, aðstoðarforsætisráð- herra Litháens, sagði að loknum fundinum í gær að hann hefði verið „lítið skref í þá átt að taka upp við- ræður við Moskvustjórnina". Frekari fundahöld eru áformuð í dag. Carla Gruodis, talsmaður upplýsingaskrif- stofu þings Litháens, sagði hins veg- ar í samtali við Reuters-fréttastof- una að viðræðurnar féllu nokkuð í skuggann af útifundi andstæðinga sjálfstæðis Litháens. Enn er spenna í lofti í Vilnius eftir að aukinn her- styrkur var sendur inn í borgina aðfaranótt laugardags og í kjölfar þess að herinn tók fjórar opinberar byggingar á sitt vald á sunnudag. Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sov- étríkjanna, hitti Edward Kennedy, öldungadeildarþingmann frá Banda- ríkjunum, að máli í gær. Þar lét Gorbatsjov í ljós ósk um friðsamlega lausn deilunnar um sjálfstæði Lithá- ens en útilokaði ekki valdbeitingu ef mannslífum væri ógnað. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjastjórnar, lýsti því yfir í gær að „frekari aðgerðir" Moskvu- stjórnarinnar gegn Litháum gætu komið niður á samskiptum Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna. Sjá viðtal við fréttamann út- varpsins í Vilnius á bls. 22. mannaflokkurinn hlaut aðeins 3,5% fylgi og gamli kommúnistaflokkur- inn 3,6%. Joszef Antall, formaður Lýðræð- vettvangs, var sigurviss í gærdag. Hann sagði að flokkar smábænda og kristilegra demókrata væru eðli- legir samstarfsaðilar hreyfingarinn- ar í samsteypustjórn. Jaspar Kis, förmaður ftjálsra demókrata, var ekki reiðubúinn að viðurkenna ósig- ur fyrir Lýðræðisvettvangnum. Danir spilla samningum EB og EFTA Utanríkisráðherrar þriggja Norðurlanda, sem eiga aðild að Fríverslunarbandalagi Evrópu (EFTA), Finnlands, íslands og Svíþjóðar, hafa brugðist hart við blaðagrein Uffe Ellemann-Jen- sens, utanríkisráðherra Dana, um málefni Evrópubandalagsins (EB) og EFTA. Að sögn Ríkisútvarps- ins saka ráðherrarnir þrír starfs- bróður sinn frá Danmörku um „skemmdarverkastarfsemi". Talsmaður Ellemann-Jensens skýrði Morgunblaðinu frá því að í viðtölum við norræna fjölmiðla hefði ráðherrann furðað sig á þessum hörðu viðbrögðum við greininni. „Ég er í sömu stöðu og litli drengurinn í ævintýri H.C. Andersens um Nýju fötin keisarans," sagði Ellemann- Jensen. „Ég er viss um að litli dreng- urinn sem hrópaði um keisarann: „Hann er ekki i neinu!“ var flengdur þegar hann kom heim og var sendur beint í rúmið.“ Sjá grein Ellemann-Jensens á bls. 18. Talsmaður pólska utanríkisráðuneytisins: Sameinað Þýskaland verði í Atlantshafsbandalaginu Varsjá. Frá Ásgeiri Sverrissyni, blaðamanni Morgunblaðsins. PÓLSKA rikisstjórnin telur að öryggishagsmunir Evrópuríkja og stöðugleiki í álfunni verði best tryggður með því að sameinað Þýskaland verði aðili að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Kom þetta fram í samtali Morgunblaðsins við Vladislav Klaczynski, talsmann pólska utanríkisráðuneytisins, í gær. Klaczynski sagði Pólvetja hlynnta sameiningu Þýskalands, hins vegar væri enn óljóst hvernig staðið skyldi að samruna ríkjanna. Pólveijar vildu í fyrsta lagi að gerður yrði bindandi samningur um að vesturlandamæri Póllands yrðu óbreytt en um þriðjungur landsins heyrði Þýskalandi til er heimsstyrjöídinni síðari lauk. Hafa Pólverjar óttast að Þjóðveij- ar geri tilkall til þessara land- svæða eftir að þýsku ríkin tvö hafa sameinast, þótt yfirlýsingar Helmuts Kohls, kanslara Vestur- Þýskalands, að undanförnu hafi sýnilega dregið úr þeim efasemd- um. I öðru lagi sagði Klaczynski að Pólveijar vildu að tryggt yrði að hið nýja Þýskaland yrði lýð- ræðislegt Evrópuríki sem ekki ógnaði öryggishagsmunum ná- granna sinna. í þriðja lagi kvað Klaczynski pólsku ríkisstjórnina sannfærða um nauðsyn þess að Þýskaland yrði aðili að NATO. Breyta bæri hlutverki NATO og Varsjárbanda- lagsins þannig að þessar stofnan- ir yrðu fyrst og fremst pólitískur vettvangur. Síðar bæri að stefna að því að leysa bæði bandalögin upp um leið og skapaður yrði nýr öryggisvettvangur með þátttöku allra Evrópuríkja. Tilgangurinn yrði þá fyrst og fremst sá, að skapa traust og aukinn stöðug- leika á vettvangi öryggismála í álfunni. „Við lítum svo á að sam- einuð Evrópa sé besta leiðin til að tryggja öryggi Póllands og um leið annarra ríkja,“ sagði Klacz- ynski. Hann sagði þetta vera í samræmi við utanríkisstefnu sam- steypustjórnarinnar, sem mynduð var eftir þingkosningarnar í Póll- andi í fyrra. Hann sagði einn horn- stein þeirrar stefnu vera þann að samskipti við vestræn ríki yrðu stórlega aukin auk þess sem vin- samlegt samstarf yrði tryggt við nágrannann volduga í Austri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.