Morgunblaðið - 27.03.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
—I ;------------——|-------|-------
41
mm^^mm^^m^^mmmmm^mfmm
MÆLSKUKEPPNIGAGNFRÆÐASKOLA
Austurbæingar unnu Arbæinga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ræðumaður kvöldsins, Þorvarður Jón Löve, í pontu. Árni Lars-
son fundarstjóri er honum á hægri hönd, og tímaverðir, þau
Dóra Marinósdóttir og Finnur Hilmarsson, á þá vinstri.
Eins og sjá má var mikill hugur í áheyrendum.
að var mikið um að vera í
húsakynnum Hagaskóla á
mið vikudagskvöld í síðustu viku,
þar sem leiddu saman hesta sína
í mælskukeppni gagnfræðaskól-
anna lið Austurbæjarskóla og
Árbæjarskóla. Þarna fóru fram, á
hlutlausum velli, undanúrslit
keppninnar, en áður hafði Folda-
skóli tryggt sér sæti í úrslitum
keppninnar, sem eiga að fara fram
þann 3. apríl næstkomandi. Um-
ræðuefni kvöldsins var sú spurn-
ing hvort til væri líf eftir dauð-
ann, og er skemmst frá því að
segja að lið Austurbæjarskóla,
sem mótmælti því að nokkurt líf
væri eftir dauðann, stóð uppi sem
sigurvegari með aðeins átta stig-
um, 1395 stigum gegn 1387.
Liðin sem kepptu í Hagaskóla
voru þannig skipuð, að fyrir Ár-
bæjarskóla töluðu Sigurgeir
Sindri Sigurgeirsson (frummæl-
andi), Gauti Bergþóruson Eg-
gertsson (stuðningsmaður) og
Kolbrún Björnsdóttir (meðmæl-
andi). Liðsstjóri þeirra var Hildur
Óskarsdóttir. Fyrir Austurbæjar-
skóla töluðu Þorvarður Jón Löve
(frummælandi), Magnús Sveinn
Helgason (stuðningsmaður) og
Lísa Kristjánsdóttir (meðmæl-
andi). Liðstjóri var Kolbrún Eva
Sigurðardóttir.
Árni Larsson fundarstjóri, sem
einnig er kennari í Árbæjarskóla,
setti fundinn, og að því loknu
kynntu liðsstjórar lið sín. Keppnin
skiptist í tvær umferðir. 1. frum-
mælandi Árbæinga, Sigurgeir
Sindri Sigurgeirsson, hóf keppn-
ina fyrir þeirra hönd. Árbæingar
beittu ákaft fyrir sig sálarrann-
sóknum og trúarkenningum í
málflutningi sínum. Þeir tíndu
einnig til frásagnir fólks sem telur
sig hafa lifað fyrra lífi. Austurbæ-
ingar minntu hins vegar af krafti
á þá staðreynd að vísindin hafi
ekki leitt neitt það í ljós sem bend-
ir til að til sé líf eftir dauðann.
Mikill hugur var í stuðningsliði
ræðumannanna, og létu þau ákaft
til sín taka á milli þess sem stigið
var í pontu. Það vakti mikla
kátínu, ekki síst meðal Austurbæ-
inga, þegar Lísa Kristjánsdóttir,
meðmælandi í ræðuliði þeirra,
velti fyrir sér í hvaða líki andmæ-
lendur hennar hefðu lifað því fyrra
lífi sem þeir vildu_ hafa lifað. Þá
voru undirtektir Árbæinga engu
minni þegar Gauti Bergþóruson
Eggertsson, stuðningsmaður í
ræðuliði þeirra, tók á móti frænku
sinni framliðinni þar sem hann
stóð í pontu, og fylgdi henni síðan
til dyra.
Að loknum báðum umferðunn-
um drógu dómarar keppninnar,
sem voru frá JC-hreyfingunni, sig
í hlé, og á meðan þeir réðu ráðum
sínum létu gamansamir menn úr
skólunum tveimur ljós sín skína.
Éftir að hafa borið saman niður-
stöður sínar komust dómararnir
sem fyrr segir að þeirri niðurstöðu
að Austurbæjarskóli hefði farið
með sigur af hólmi. Ræðumaður
kvöldsins var kjörinn frummæl-
andi Austurbæjarskóla, Þorvarð-
ur Jón Löve.
12. leikvika - 24. mars 1990
Vinningsröðin: 212-112-12X-1X1
HVER VANN ?
1.934.253- kr.
0 voru með 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð
8 voru með 11 rétta - og fær hver: 45.796- kr. á röð
Þrefaldur pottur!!
Lukkulínan s. 991002
OPINN FUNDUR OPINN FUNDUR
ER FRELSITIL FARSÆLDAR
í UTANRÍKISVERSLUN?
Landsmálafélagið Vörður heldur almennan félagsfund
um frelsi og utanríkisverslun þriðjudaginn 27. mars, kl.
20.30, í Valhöll v/Háaleitisbraut.
Málshefjendur eru:
Kristinn Pétursson,
alþingismaður og fiskverkandi.
Ævar Guðmundsson,
framkvæmdastjóri og fiskútflytjandi.
Ólafur Davíðsson,
framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda.
Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um ofangreint mál.
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR
J
Hinn eini og sanni StórótsölumarkaÖur, Bíldshöfða 10, sími 674511
Adeins
Frítt kaffi
Dæmi um verö:
Buxna- og
kópuefni fró
kr. 150-250
Blússu- og pilsefni
kr 390
Ullarefni
kr. 150
Nóttsloppar + skór
kr 1990
Handklæði
kr 300
Peysur bómull
kr. 600
Nóttföt barna
kr. 300
Jogging gallar
með hettu
kr 1500
Hóskólabolir
kr 500
Pilsbuxur
kr 500
Skyrtur fró
kr 100
Jakkaföt fró
kr 4500-
8900
Rúllukragabolir
kr. 500
Stakar buxur fró kr.
500-1990
Pils
kr. 500
Frakkar
kr 4900
Jakkar
kr 2500
Buxur
kr. 990
Opnunarími
Föstudaga kl. 13-19
Laugardaga kl. 10-16
Aðra daga kl. 13-18
Gúmmístígvel
kr. 450
Peysur og bolir
kr. 1490
Ullarpeysur
kr 990
Islenskar plötur fró
kr. 99-799
dagar
Mynd-
bandaFiorn
Dúnúlpur
kr 1990
Herraskyrtur
kr. 500
Barnaflauels/barna-
galla buxur
kr 1000
Barna jogginggallar
kr. 450
Strigaskór barna fró
kr. 150
Ungbarnaskór fró
kr. 500
Geysladiskar fró
kr. 199-799
Iþróttagallar fró
kr 1 500-
2500
Barnaúlpur
kr. 1990
Knattspyrnuskór fró kr.
990-1990
Dömu leðurstígvel
kr 3990
Dömu rússkinnstígvel
kr. 2000
Herraskór fró kr.
900-2600
Dömuskór fró kr.
900-2900
Barnabuxur, bolir og Barna- herra- og
peysur dömuskór
kr. 500 kr. 500
BÍLDSHÖFÐI 10, SÍMI 674511 (vió hliðina á gamla bifreióaeftirlitinu)