Morgunblaðið - 27.03.1990, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.03.1990, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990 27 Urslitakeppni Bikarmótsins í Reiðhöllinni: Miklar sviptingar í úrslitunum Hestar Valdimar Kristinsson Bikarmóti Reiðhallarinnar var fram haldið á laugardag er fram fóru úrslit í ölluin greinum. Hófst keppnin fyrir hádegi en hlé gert um hádegisbilið vegna vetrar- uppákomu íþróttadeildar Fáks. Var dagskrá fram haldið um klukkan sex síðdegis. Óhætt er að segja að miklar sviptingar hafi orðið í öllum grein- um og öllum aldursflokkum. Breytt- ist röð keppenda mikið og í að minnsta kosti þremur tilvika unnu keppendur í fimmta sæti sig upp í fyrsta sæti. Sævar Haraldsson Fáki sigraði í bæði tölti og fjórgangi fullorðinna á Kjarna frá Egilsstöðum. Hafði hann verið í fimmta sæti í fjórgang- inum eftir forkeppnina. Annar í tölti varð Hafliði Halldórsson á Flosa frá Hjaltastöðum og Sigur- björn Bárðarson þriðji á Prins en hann varð annar í fjórgangn á Há- koni frá Torfastöðum og Hinrik Bragason á Darra þriðji. í fimm- gangi sigraði Atli Guðmundsson á Kol, Guðni Jónsson á Atlasi frá Gerðum annar og Sigurbjörn Bárð- arson þriðji á Kafteini. Keppt var nú í fyrsta skipti í flokki ungmenna en þar sigraði í tölti Halldór Viktorsson, Gusti, á Herði frá Bjarnastöðum, önnur varð Hrönn Ásmundsdóttir, Mána, á Eldi og í þriðja sæti Þorgerður Guð- mundsdóttir, Mána, á Sóta sem gerði sér lítið fyrir og sigi-aði í fyór- gangi eftir að hafa verið í fimmta sæti í forkeppninni. í fimmgangi ungmenná sigraði Sigi-ún Erlings- dóttir, Gusti, á Hreggi, annar Dan- íel Jónsson, Fáki á Glettu og félagi Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Sigurbjörn Bárðarson fékk aflientan bikar sem fylgdi titlinum Hesta- íþróttamaður ársins 1989. í lokaathöfn bikarmótsins var Sigurbjörn fánaberi og sat Prins. hans Sigurður Matthíasson varð þriðji á Baldvini. í tölti unglinga sigraði Þorvaldur Þoi’valdsson, Fáki, á Giýtu, önnur varð Berglind Árnadóttir, Herði á Rífandi Gang og Elín Rós Sveins- dóttir, Fáki. í fjórgangi sigraði Maríanna Gunnarsdóttir, Fáki, á Kolskeggi, Þorvaldur Þorvaldsson, Fáki, á Grýtu og Aron Sverrisson, Gusti, á Drang. Stjarna mótsins í barnaflokki var án efa Þóra Brynjarsdóttir, Mána, því hún sigraði í bæði tölti og fjór- gangi og hlaut auk þess ásetuverð- laun Félags tamningamanna. Þóra keppti á hestinum Gammi. í öðru sæti í báðum greinunum varð Guðmar Þór Pétursson, Herði, en hann keppti á Mána. Þriðji í tölti varð Victor Victorsson, Gusti, á Snúði en þriðji í fjórgangi varð Ragnar Ágústsson, Sörla, á Njáli. Þóra Brynjarsdóttir tekur við verðlaunum Félags tamninga- manna úr höndum Trausta Þórs Guðmundssonar. Áð lokinni keppni fór fram verð- launaafhending sem gekk hálf brösulega til að byija með en allur komst þó góðmálmurinn til skila að endingu. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 26. mars. FISKMARKAÐUR hf. Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 92,00 50,00 79,97 42,059 3.363.566 Þorskur(óst) 80,00 45,00 62,64 20,505 1.284.407 Ýsa 151,00 50,00 119,34 4,166 497.189 Ýsa (ósl.) 138,00 60,00 87,59 1,930 168.997 Karfi 63,00 20,00 38,52 1,828 70.419 Ufsi 32,00 20,00 29,32 0,770 22.576 Steinbítur 48,00 45,00 45,53 0,876 39.885 Langa 60,00 34,00 54,09 0,726 39.273 Lúða 400,00 315,00 356,17 0,133 47.370 Koli 80,00 35,00 49,95 1,198 59.838 Hrogn 170,00 170,00 170,00 0,178 30.260 Samtals 74,81 81,643 6.107.499 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 82,00 63,00 75,02 35,773 2.683.586 Þorskur(ósL) 79,00 52,00 69,80 22,320 1.557.862 Ýsa 163,00 95,00 144,81 1,151 166.675 Ýsa (ósl.) 128,00 77,00 106,09 1,170 124.121 Karfi 44,00 20,00 29,76 3,476 103.425 Ufsi 38,00 36,00 37,78 41,966 1.585.664 Steinbítur 58,00 40,00 42,43 2,340 99.290 Lúða 440,00 325,00 377,18 0,181 68.270 Skarkoli 65,00 39,00 50,30 2,040 102.603 Hrogn 170,00 25,00 163,85 0,148 24.250 Samtals 58,83 111,281 6.546.195 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 92,00 35,00 84,06 81,070 6.814.532 Ýsa 152,00 50,00 121,85 10,313 1.256.594 Karfi 46,00 33,00 37,84 1,855 70.191 Ufsi 10,00 10,00 10,00 0,088 880 Steinbítur 32,00 32,00 32,00 0,194 6.208 Langa 49,00 40,00 48,11 0,607 29.203 Lúða 350,00 100,00 232,38 0,330 76.685 Skarkoli 53,00 53,00 53,00 0,155 8.215 Keila 23,00 22,00 22,58 0,103 2.326 Skötuselur 150,00 140,00 149,43 0,400 59.770 Samtals 87,41 95,319 8.331.531 Selt var úr Hauki GK og dagróðrabátum. FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA I VESTUR-ÞÝSKALAND 26. mars. Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð (kr.) (kr.) (kr.) Þorskur 89,69 82,52 86,11 Ýsa 215,26 97,58 156,42 Karfi 156,42 60,99 108,70 Ufsi 90,40 71,75 81,08 GÁMASALA í BRETLANDI 26. mars. Hæstaverð Lægstaverð Meðalverð (kr.) (kr.) (kr.) Þorskur 147,64 95,25 121,45 Ýsa 188,92 155,58 172,25 Karfi 82,55 82,55 82,55 Ufsi 84,14 79,38 81,76 Vetraruppákoma á Fáksvellinum í mótshléi bauð íþróttadeild Fáks upp á vetraruppákomu á Fák- svellinum, þar sem keppt var í tölti og gæðingaskeiði. Úrslit í töltkeppninni urðu þessi: Barnaflokkur, 14 keppendur: 1. Davíð Jónsson á Vini, 2. Jóhanna Classen á Blíðu, 3. Lilja Jónsdótt- ir á Gáska, 4. Steinar Sigurbjörns- son á Lipurtá, 5. Ragnheiður Kristjánsdóttir á Roða. Unglingaflokkur, 15 keppend- ur: 1. Edda Rún Ragnarsdóttir á Sörla, 2. Gísli Geir Gylfason á Ófeigi, 3. Sigurður Matthíasson á Blesa, 4. Svava Kristjánsdóttir á Glóstjarna, 5. Daníel Jónsson á Tvisti. Kvennaflokkur, 13 keppendur: 1. Þórdís Sigurðardóttir á Sókrpn, 2. Sigríður Benediktsdóttir á Ár- vakri, 3. Kristbjörg Eyvindsdóttir á Hetti, . 4. Maaike Burggrafer á Drangi, 5. Fríða Steinarsdóttir á Brynju. Karlaflokkur, 26 keppendur: 1. Gunnar Gunnarsson á Stíganda, 2. Sigurbjörn Bárðar- son á Biskupi, 3. Gunnar Árnason á Ör, 4. Álfur Þráinsson á Rökkva, 5. Benedikt G. Benediktsson á Platon. í gæðingaskeiði voru keppend- ur 17. Sigurvegari varð Sigur- björn Bárðarson á Snarfara, 2. Sigurður Magnússon á Degi, 3. Hinrik Bragason á Eitli. ■ UM NÆSTU mánaðamót, helgina 31. mars til 1. apríl, fer fram landssöfnun Krabbameins- félags Islands undir kjörorðinu „Sókn til sigurs“ um land allt. Krabbameinsfélag íslands bað kvenfélagið Seltjörn að taka að sér stjórn og skipulag söfnunarinnar á Seltjarnarnesi. Mun Erna Kolbeins, fyrrverandi formaður félagsins, vera í forsvari söfnunarinnar fyrir hönd félagsins. í morgunverðar- spjalli í kjallara Félagsheimilisins, laugardaginn 31. mars, verða af- hent söfnunargögn og fleira. Li- ons-klúbbur Seltjarnarness hefur lofað að leggja málinu lið. Sjálf- boðaliðar eru beðnir að gefa sig fram í síma 611421 (Erna) og 612324 (Bára). (Fréttatilkynning) ■ LJÓÐADAGSKRÁ verður í Borgurleikhúsinu 27. mars nk. Þar koma fram m.a. Valgeir Skag- fjörð, Bubbi Morthens, Jón Sigur- björnsson, Laufey Sigurðardótt- ir, Grettir Björnsson, Edward Frederiksen, Þorsteinn frá Hamri, Leikfélagskórinn o.m.fl. undir forystu Eyvindar Erlends- sonar. Aðgangur er ókeypis og hefst dagskráin kl. 20.30. ■ FÖÐURNAFN Friðriks S. Kristinssonar misritaðist í tónlist- argagnrýni í Morgunblaðinu á laugardag. Velvirðingar er beðist á mistökunum. ■ ÁRLEGIR tónleikar Tón- fræðideildar Tónlistarskólans í Reykjavík verða haldnir í Bústaða- kirkju í kvöld kl. 20.30. Frumflutt verða verk nemenda. Flytjendur stunda flestir nám við tónlistarskól- ann. ■ ALLIANCE Frantjaise býður upp á tvo fyrirlestra úm franska málaralist á 19. öld. Miðvikudaginn 28. mars kl. 17.45: Þróun nýklass- ikur skýrð með tilvísunum í verk David — 1780-1820. Miðvikudag- inn 18. apríl kl. 17.45: „Symbolismi og Pont-Aven málararnir“. Fyrir- lestrarnir verða fluttir á frönsku af Nathalie Jacqueminet, list- fræðingi frá Louvre listaskólanum. ■ ARCTIC Cat snjósleða, af gerðinni Wildcat, var stolið frá Smiðsbúð 8 í Garðabæ um klukk- an 1 aðfaranótt sl. laugardags. Snjósleðinn er svai-tur með grænum röndum. Þeir sem hafa orðið varir við sleðann eru beðnir um að hafa samband við rannsóknarlögregluna í Hafnarfirði. ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 23. - 25. mars 1990. Talsverður órói var í ölvuðu fólki um helgina. Lögreglan varð að hafa afskipti af tæplega sextíu ölvuðum einstaklingum, aðallega karlmönnum, sem ekki kunnu fót- um sínum forráð. 29 þeirra þurfti að vista í fangageymslunum, 19 á föstudagsnótt, 9 á laugardag- snótt og 1 á sunnudagsnótt. 6 voru færðir fyrir dómara að morgni vegna ósæmilegra ölvuna- róláta og ókurteisi. Þeir höfðu m.a. haft í frammi ósæmilegt orð- bragð, veist að lögreglumönnum í starfi, sýnt opinberlega þá líkamshluta sína, sem öðrum þótti betur fara innan klæða og barið á samborgunum sínum. Mál þeirra voru afgreidd með allt að 10.000 króna sáttargreiðslum, en mál annarra, s.s. vegna líkamsmeið- inga, þjófnaða, innbrota o.þ.h. verða send áfram til framhalds- rannsókna hjá rannsóknardeild embættisins eða Rannsóknarlög- reglu ríkisins. Tilkynnt var um 28 árekstra þar sem einungis var um eigna- tjón að ræða. Þá varð gangandi vegfarandi fyrir bifreið við gatna- mót Aðalstrætis og Hafnarstrætis á föstudagskvöld. Aðfaranótt sunnudags varð bifreið ekið á vegrið í Ártúnsbrekku og síðan á brott af vettvangi. Ökumaðurinn fannst skömmu síðar og er hann grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis við aksturinn. Fjarlægja þurfti 20 bifreiðir með kranabifreið vegna hættu- legrar stöðu þeirra. Auk þess voru u.þ.b. 140 ökumenn kærðir fyrir ýmis umferðarbrot um helgina: 45 fyrir of hraðan akstur, 20 fyr- ir að aka gegn rauðu ljósi, 15 fyrir að mæta ekki með ökutæki sín til lögmætrar skoðunar og 20 fyrir að leggja ólöglega. 14 ökumenn voru stöðvaðir í akstri grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis. Þá voru 3 rétt- indalausir ökumenn teknir í um- ferðinni um helgina. Tilkynnt var um 7 skemmdar- verk og 19 rúðubrot. Reynt var að kveikja í einangrun í nýbygg- ingu í Grafarvogi, málningu var sprautað á hurð í Ármúla, bifreið var velt við Sjómannaskólann, rúðuþurrkur skemmdar á bifreið, póstkassar skemmdir svo og inn- anstokksmunir. Nokkrir voru handteknir vegna þessara skemmdaverka. Flest rúðubrotin voru í eða í nágrenni við miðborg- ina. 5 líkamsmeiðingar voru kærðar til lögreglu um helgina. Karl- manni var veittur áverki á skemmtistað í miðborginni að- faranótt laugardags. Hann varð að flytja á slysadeild. Maður var handtekinn eftir að hafa veist að öðrum í Austurstræti seint á föstudagsnótt. Um svipað leyti var sparkað milli fóta á karlmanni á Lækjartorgi. Hann vaiv fluttur á slysadeild: Fimm utanbæjar- drengir undir tvítugu voru hand- teknir á Hótel Islandsplaninu skömmu eftir miðnætti á laugar- dag eftir að hafa gert sér það að leik að beija með kylfum á vegfar- endum. Flytja varð einn vegfar- anda á slysadeild þar sem saumuð voru sex spor í höfuð hans eftir barsmíðarnar. Drengirnir höfðu beinlínis komið til borgarinnar í þessum tilgangi. 11 innbrot, 9 þjófnaðir og 2 búðarhnupl voru tilkynnt. Flest voru innbrotin og þjófnaðimir í bifreiðir. Algengast var að radar- vörum, viðtækjum, töskum og bílasíma væri stolið. Þá var stolið úr fataskáp í sundlaugum. Stúlka var staðin að hnupli í verslun við Snorrabraut og drengir voru staðnir að hnupli í versiun í Kringlunni. 4 slys voru tilkynnt og þrisvar sinnum var tilkynnt um eld. Kona og maður duttu í hálku, maður féll við sundlaug og drengur meiddist á auga í vatnsrenni- braut. Eldur var kveiktur í rusla- tunnum. Eldur kviknaði í sauna'- baði í húsi við Skipholt. Þá kvikn- aði í út frá gashellu í íbúð. Tals- verðar skemmdir urðu í síðast- nefndu tilvikunum. 21 sinni var fólki veitt aðstoð við að komast inn í læstar bifreið- ir, íbúðir eða við annað er það þurfti aðstoðar við. Lögreglan varð að loka sölubúð í miðborginni eftir kl. 4.00 aðfara- nótt sunnudags.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.