Morgunblaðið - 27.03.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.03.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990 19 Kaffi og kransæðadauði eftirHrafh V. Friðriksson íslendingar eru mikið fyrir kaffi- sopann og margir hverjir eru sötr- andi kaffi allan liðlangan daginn. Bijóstsviði og jafnvel lífshættu- leg maga- og skeifugarnarsár voru algengir fylgikvillar mikillar kaffi- drykkju en nú er þeim haldið niðri með dýrum lyfjum. Of mikil kaffi- drykkja veldur einnig svefnleysi og er streituvaki en streita er áhættu- þáttur hjarta- og æðasjúkdóma. Færri er kunnugt um að kaffi- drykkja í sjálfu sér er sjálfstæður áhættuþáttur kransæðadauða og veldur einnig hækkun á blóðkóleste- róli, sem er einn þekktasti áhættu- þáttur hjarta- og æðasjúkdóma. Um helmingur allra ísiendinga deyr úr hjarta- og æðasjúkdómum og marg- ir fyrir aldur fram. Engar íslenskar rannsóknir hafa verið gerðar á hugsanlegu sam- bandi kaffidrykkju og hjarta- og æðasjúkdóma. í nýlegri norskri rannsókn á um 39.000 körlum og konum 35-54 ára gömlum, sem fylgt var eftir í 6,4 ár og voru án einkenna um hjarta- og æðasjúkdóma í byijun, var sýnt fram á 13,1% hækkun á blóðkól- esteróli hjá körlum og 10,9% hækk- un hjá konum, miðað við minnstu og mestu kaffineyslu. Slík hækkun á blóðkólesteróli (um 0,5 mmól/lítra) getur í sjálfu sér aukið tíðni kransæðadauða um 10-20% samkvæmt öðrum norskum rann- sóknum, og hefur þá verið tekið tillit til annarra áhættuþátta. Hrafin V. Friðriksson „Minni kaffidrykkja er ein ódýrasta forvörnin gegn ótímabærum kransæðadauða. “ Rannsóknarmönnum þótti for- vitnilegt að athuga hvort áhættan á kransæðadauða ykist eftir því sem fleiri kaffibollar væru drukknir. Kom í ljós, eftir að búið var að taka tillit til aldurs, heildarblóðkólester- óls, háþéttniblóðkólesteróls (góða kólesterólið), blóðþrýstings og sígarettureykinga, að hlutfallsleg áhætta var 2,2 fyrir karla og 5,1 fyrir konur, sem drukku níu bolla af kaffi eða meira á dag, miðað við þá sem drukku minna en einn bolla á dag. Dánartíðni hækkaði jafnt og þétt hjá körlum, sem drukku tvo eða fleiri kaffibolla á dag. Athyglisvert er einnig að hlut- fallsleg áhættuaukning á krans- æðadauða við að drekka tveimur bollum af kaffi meira á dag sam- svarar því að reykja 3,5 (konur) til 4,3 (karlar) sígarettum meira á dag, að efri mörk blóðþrýsings auk- ist um 6,9 mm Hg (karlar) til' 11,2 mm Hg (konur), að heildarblóðkól- esteról aukist um 0,47 mmól/1 (karl- ar) til 0,74 mmól/1 (konur) eða háþéttniblóðkólesteról (góða kól- esterólið) minnki um 0,24 mmól/1 til 0,39 mmól/1. Þessar niðurstöður styðja þá skoðun, að kaffidrykkja getur aukið tíðni kransæðadauða fram yfir þá aukningu' sem nemur hækkun á blóðkólesteróli af hennar völdum. Minni kaffidrykkja auðveldar einnig streitustjórnun, sem aftur getur dregið úr áhættuhegðun t.d. reykingum, lækkað blóðkólesteról og blóðþiýsting, sem hver um sig er sjálfstæður áhættuþáttur krans- æðadauða. Til mikils er að vinna með minni kaffidrykkju. Minni kaffidrykkja er ein ódýrasta forvörnin gegn ótíma- bærum kransæðadauða og bætir andlega líðan fólks. Höfundur er yfirlæknir í heilbrigðisráðuneytinu. Vinningstölur laugardaginn 24. mars ’9CL VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5al5 0 2.318.128 2. - TM 3 134.370 3. 4af 5 110 6.321 4. 3af 5 3.759 431 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 5.038.908 kr. LLÍUJL') UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULINA 991002 ?OLO — I>ýskur sendibíll minni stærdarflokki sér- staklega gerður fyrir hverskonar atvinnu- rekstur ❖ ALHLIÐA PIPULAGNIR HF ❖ AMAIÖR LJÓSMYNDAVÖRUR HF ❖ FAXAMJÖL HF ❖ HEBRON HF ❖ KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ HF ❖ KURANT HF í* MALARNAM NJARÐVIKUR HF NATHAN & OLSEN HF :♦ Ó. JOHNSON & KAABER HF ►:♦ ORKA HF * SKELJUNGUR HF ►:♦ SKÓVERSLUN KÓPAVOGS HVERS VEGNA? Spameytínn - Lipur í akstrí Lág bilanatíðni Kraftmikill - Auðveld hleðsla Örugg þjónusta HF Laugavegi 170-174 Slmi 695500 r lYi.a. völdu VW 1*010 lil að þjóna sínu íVrirbvki: POLO Kjörið tækifæri til aukinnar hagkvæmni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.