Morgunblaðið - 27.03.1990, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
Stjórnvöld:
A
Ahyggjur vegna þeirra
sem ekkí hafa samíð
Ríkisstjórnin íhugar lagasetningu
RÍKISSTJÓRNIN hefur vaxandi áhyggjur af gangi mála í viðræðum
þeirra launaþega við vinnuveitendur, sem enn eiga ósamið. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins eru ráðherrar Framsóknarflokksins, Al-
þýðuflokksins og Borgaraflokksins þeirrar skoðunar, að fáist ekki lausn
á kjaradeilu ISAL og starfsmanna þess á næstu dögum, sé rétt að
grípa til lagasetningar, sem feli í sér framlenginu á samningi síðastlið-
ins árs, með þeim breytingum sem samdist um í almennu lqarasamn-
ingunum 1. febrúar sl.
og VSÍ og geri frekari kröfur.
Áhyggjur þeirra munu einkum bein-
ast að samningum við flugvirkja,
en meiri bjartsýni rikir varðandi
samninga við flugmenn og flug-
freyjur.
Stjórnvöld hafa áhyggjur af því
að verði samið á öðrum og hærri
nótum við þessa aðila, séu forsend-
ur kjarasamninganna frá 1. febrúar
sl. þar með brostnar. Stjómvöld
hafa iðulega látið að því liggja að
lagasetning á aðra samninga kæmi
vissulega til greina, svo fremi sem
ósk þar að lútandi kæmi frá aðilum
vinnumarkaðarins. „Ég hefði talið
afar skynsamlegt hjá þessum aðil-
um að biðja um það. Ég útiloka
ekkert ef þessi forsenda samning-
anna er að bregðast. En þá yrði
það að vera gert að höfðu samráði
við þá aðila sem samningana
gerðu,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Hann
kvaðst á þessu stigi ekkert vilja um
það segja hvort möguleiki væri á
því að frumkvæðið að lagasetningu
kæmi frá ríkisstjórninni sjálfri.
Þessu munu ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins vera andvígir og segja
að þeir geti ekki staðið að slíkri
lagasetningu, nema til komi ósk
Alþýðusambands íslands þar að lút-
andi.
Eins og kunnugt er, hefur verk-
fall verið boðað í álverinu í
Straumsvík á miðnætti 30. mars
og hefur Morgunblaðið upplýsingar
um að forsvarsmenn ÍSAL hyggist
í engu gefa eftir og láta fremur
koma til lokunar. Þessu hafa stjórn-
völd áhyggjur af. Auk þess er bent
á að lítið samningahljóð heyrist úr
herbúðum Flugleiða, en 1. apríl nk.
eru samningar þar lausir. Forsvars-
menn Flugleiða munu telja ólíklegt
að flugliðar séu reiðubúnir til þess
að gangast inn á kjarasamning ASÍ
Morgunblaðið/Ingvar Guðmundsson
Lögreglumenn hafa handtekið einn árásarmannanna við Hallærisplanið
aðfaranótt sunnudagsins og leita að bareflunum í bíl piltanna. A inn-
felldu myndinni sjást barefli piltanna í höndum Hjartar Sæmundssonar
lögregluvarðstjóra.
Gengii um miðbæínn
vopnaðir bareflum
Morgunblaðið/Frímann Óiafsson
Sigurður Agústsson, aðal-
varðsljóri með bruggtækin
sem lögreglan tók í sina
vörslu.
Grindavík:
Fíknieftii
og bruggtæki
gerð upptæk
Grindavik
LÖGREGLAN í Grindavík
tók 70 lítra af bruggi og
nokkuð af spíra ásamt am-
fetamíni, hassi og verkfærum
til fíkniefnaneyslu í tveimur
húsum í Grindavík um helg-
ina. Auk þess voru bruggtæki
og tæki til suðu gerð upptæk.
Sigurður Ágústsson, aðal-
varðstjóri, sagði að grunur
hefði leikið á að bruggun og
fíkniefnaneysla færi fram á
þessum stöðum og þegar lög-
reglan lét til skarar skríða kom
í ljós að svo var.
Sjö manns voru færðir til
yfirheyrslu hjá lögreglunni.
Sigurður kvað þá hafa neitað
sölu á bruggi eða fíkniefnum
en viðurkenndu að hafa ætlað
að selja brugg til þess að fjár-
magna fíkniefnakaup.
FÓ
FIMM piltar, 17-19 ára voru handteknir vopnaðir kylfum og barefl-
um í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudagsins. Einn þeirra hafði
skömmu áður barið mann í hnakkann með kylfú svo sprakk fyrir
og þurfti að sauma sex spor í höfúð mannsins á sjúkraliúsi. Áður
höfðu piltarnir, sem eru búsettir í Hveragerði og Ölfúsi, gengið um
og ógnað fólki með bareflunum en ekki er vitað til að séð hafi á
fleirum.
Barefli piltanna voru austurlensk
bardagakylfa, hornaboltakylfa, er-
lend lögreglukylfa og að auki sjálf-
lýsandi vegstika sem þeir höfðu
vísvitandi keyrt niður á Hellisheiði
þar sem einn þeirra vantaði barefli.
Þannig fóru piltarnir um bæinn og
ógnuðu nokkrum vegfarendum áð-
ur en þeir mættu ungum manni á
gangi við Hallærisplanið. Einn pilt-
anna gekk í veg fyrir manninn en
annar kom aftan að honum og sló
hann í hnakkann. Maðurinn vank-
aðist og féll við en missti ekki með-
vitund. Lögreglumenn voru skammt
undan, sáu hvað gerðist og fóru
strax á staðinn. Piltarnir voru hand-
teknir og færðir á lögreglustöð þar
sem þeir voru vistaðir um nóttina.
Við yfirheyrslur daginn eftir geng-
ust þeir við brotum sínum og voru
látnir lausir.
Kjaradeilan í álverinu í Straumsvík:
Tillögii um að vísa ágrein-
ingi til Félagsdóms haíhað
Vinnuveitendasamband ís-
lands lagði til að ágreiningi um
3. grein síðastgildandi kjara-
samnings í Islenska álverinu í
Straumsvík yrði vísað til Félags-
dóms til úrskurðar, en fyrsti
fundur aðila eftir að deilan kom
til kasta ríkissáttasemjara var í
gær. Gylfi Ingvarsson, aðaltrún-
aðarmaður starfsmanna í
Straumsvík, segir að vinnuveit-
endum geti tæpast verið alvara
með þessari tillögu, það geti ekki
verið neinn ágreiningur um hvað
Sljórnarval í stærri hlutafélögum:
Fimmtungxir getur
krafizt hlutfalls- eða
margfeldiskosningar
Frumvarp Eyjólfs Konráðs Jónssonar um margfeldiskosningu í
hlutafélögum með 200 eða fleiri hluthafa varð að lögum síðastliðinn
föstudag. Samkvæmt hinum nýju lögum geta hluthafar sem ráða
yfír einum tíunda hluta hlutafjár eða stærri hlut, krafizt hlutfalls-
eða margfeldiskosningar við val sfjórnarmanna í hlutafélögum með
200 eða fleiri hluthöfum.
í hlutafélagalögum frá 1978 var
kveðið á um að hið minnsta fimmt-
ungur hlutafjár þurfi að standa að
baki kröfu um hlutfalls- eða marg-
feldiskosningu stjórnar. Með hinum
nýju lögum er þetta hlutfail lækkað
í einn tíunda hlutafjár. I greinar-
gerð segir að þetta ákvæði sé „í
samræmi við bann við því að leggja
hömlur á meðferð hluta í þessum
félögum sem margir eiga og gætu
talizt almenningshlutafélög".
felist í því að framlengja samn-
ingum. Annar fundur hefiir verið
boðaður hjá ríkissáttasemjara á
fimmtudaginn klukkan 10, en
verkfall hefúr verið boðað í álver-
inu frá og með laugardeginum
31. mars.
Eftir að verkfall skellur á er sam-
komulag með aðilum um tveggja
vikna aðlögunartíma áður en til
framleiðslunastöðvunar kemur.
Tíminn er notaður til þess að
minnka straum og álhæð í kerum
í áföngum til að draga eins og
hægt er úr því tjóni sem verður ef
til stöðvunar kemur, en mánuði tek-
ur að koma framleiðslunni af stað
aftur ef álverið stöðvast og kostar
hundruðir milljóna.
Tekjur Landsvirkjunar af sölu á
raforku til til álversins voru tæpar
26 milljónir Bandaríkjadala á
síðasta ári, en það jafngildir tæpum
1.600 milljónum íslenskra króna
miðað við gengi um síðustu ára-
mót. Verðið fyrir raforkuna helst í
hendur við álverð og var í hámarki
eða 18,5 mills á fyrra helmingi árs-
ins. Á þriðja ársíjórðungi lækkaði
það aðeins í 18,352 mills og enn
frekar á síðasta ársfjórðungi þegar
það var 16,966 mills. Álverð lækk-
aði þá mjög og fór niður fyrir 1.400
dali tonnið um áramót. Síðan hefur
það farið hækkandi aftur og þriggja
mánaða verðið er nú rúmir 1.600
dalirtonnið á markaðnum í Lundún-
um.
Raforkusala Landsvirkjunar til
almenningsrafveitna nam 3,4 millj-
örðum króna á síðasta ári og bók-
færð sala til stóriðju nam 1,9 millj-
arði alls, sem jafngildir því að
Landsvirkjun hafi um 35% af tekj-
um sínum af orkusölu til stóriðju.
Þar er ÍSAL langstærsti raforku-
kaupandinn, því það kaupir um
1.400 gígawattstundir á ári, ís-
lenska járnblendifélagið 600 og
Áburðarverksmiðjan 140-50 gíga-
wattstundir.
Álverið velti rúmum 10 milljörð-
um á síðasta ári, samanborið við 7
milljarði á árinu 1988. Um 600
menn starfa í álverinu og nær verk-
fallið til um 500 manna í tíu verka-
lýðsfélögum ef til þess kemur.
REYKINGAFÓLK!
Þrotabú Lindalax:
Skuldirnar 1.344 millj-
ónir við gjaldþrotið
FRESTUR til að lýsa kröfum í þrotabú Lindalax rann út í gær, og
að sögn Inga H. Sigurðssonar, annars bústjóra þrotabúsins, námu
lýstar kröfur samtals 544 milljónum króna.
Áður höfðu verið seldar eignir ember.
úr þrotabúinu fyrir um 780 milljón-
ir með því að yfirteknar voru
áhvílandi skuldir á þeim, og er því
Ijóst að heildarskuldir Lindalax
námu 1.324 milljónum krónaþegar
fyrirtækið var lýst gjaldþrota í des-
Að sögn Inga verður á næstunni
tekin afstaða til þess hvort lýstar
kröfur í þrotabúið verði samþykkt-
ar, en fyrsti skiptafundur verður
haldinn 26. apríl.