Morgunblaðið - 27.03.1990, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
Listahátíð:
Grænu blökkukonurn-
ar og Salif Keita koma
ÁKVEÐIÐ hefur verið að franska
hljómsveitin Grænu blökkukon-
urnar og hljómsveit Salif Keita
frá Malí í Vestur-Afríku taki þátt
í Listahátíð í sumar. Báðar sveit-
irnar eru mannmargar, Salif
Keita kemur með 17 manna flokk
tónlistarmanna og dansara.
Hann flytur blöndu af Afiríkutón-
list og vestrænu tæknipoppi.
r\KBm-§<5-§>
Þ.ÞORGRÍMSSON &C0
mm RUTLAND
mm ÞÉTTIEFNI
ÁÞÖK-VEGGI-GÓLF
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
Tónleikarnir verða haldnir á Hót-
el Islandi að sögn Egils Helgason-
ar, blaðafulltrúa Listahátíðar.
Grænu blökkukonurnar spila
líklega 14. júní og tónleikar Salif
Keita verða eitthvað fyrr. Egill seg-
ir að litlar líkur séu nú á að fleiri
tónlistarmenn láti í sér heyra á lista-
poppi Listahátíðar, það sé þó ekki
útilokað.
Reynt var að fá B.B. King til að
halda hér tónleika, en að sögn Eg-
ils kemst hann ekki. Þá kom til
greina að Gypsy Kings kæmu á
Listahátíð, en ekkert varð úr því
þar sem þeir vildu fá 5 milljónir
króna í þóknun. Hljómsveitirnar
tvær sem samið hefur verið við,
taka ekki eins mikið fyrir að koma
fram, Grænu blökkukonurnar vilja
rúmlega 350 þúsund krónur fyrir
viðvikið og Salif Keita tekur enn
minna fyrir sinn snúð.
SVR fær nýja vagna
Morgunblaðið/JúlSus
Þrír fyrstu vagnarnir af tuttugu, sem Strætisvagnar Reykjavíkur hafa samið um kaup á, eru komnir á
götuna. Aka tveir þeirra á leiðum 13 og 14 um Breiðholtið og einn um Grafarvogshverfin. Að sögn Sveins
Björnssonar framkvæmdastjóra, er þetta í þriðja sinn sem samið er um kaup á vögnmu sem afhendast eiga
á fjórum árum. Vagnarnir taka 90 manns í sæti og stæði og kosta um 10,5 millj. hver. í haust er von á
þremur til viðbótar sömu tegundar.
Japan:
Islenskur
hljómdisk-
ur í hópi
tólfþeirra
eftirtektar-
verðustu
JAPANSKA tímaritið Geijutusu
valdi hljómdiskinn Kveðið í bjarg,
með Hamrahliðarkórnum undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur,
einn af tólf eftirtektarverðustu
diskunum frá Norðurlöndunum
árið 1989. Tónlistin sem kórinn
flytur á þessum hljómdiski er eft-
ir íslensk tónskáld.
í umfjöllun sem fylgdi tilnefning-
unni segir Shozo Ohisuka meðal
annars, undir fyrirsögninni Tærir
tónar skapa einstaka stemmningu:
„Við getum sagt að ísland sé mjög
langt frá Japan og í hugum okkar
virðist það oft vera enn fjarlægara
en hin Norðurlöndin. Við heyrum
því miður íslenska tónlist ekki oft
hér í Japan, en á ísjandi er tónlist-
arlíf mjög blómlegt. íslendingar eiga
mikið af frábærum tónskáldum og
tónverkum, góða sinfóníuhljómsveit,
hljóðfæraleikara og kóra.
Hamrahlíðarkórinn sem flytur
tónlistina á hljómdiskinum Kveðið í
bjarg er mjög góður kór og gefur
góða hugmynd um flutningsmáta
og gæði sem einkenna marga nor-
ræna kóra. Tónn kórsins er sam-
bærilegur við þau gæði sem ein-
kenna sænsku og finnsku kórana. Á
þessum diski með verkum íslenskra
tónskálda geur að heyra einstakan
tónblæ og stemmningu sem leiðir
hug okkar til hinar fjarlægu eyjar í
norðri."
Tólf eftirtektarverðustu hljóm-
diskarnir voru valdir úr miklum
fjölda diska frá þekktum norrænum
útgáfufyrirtækjum eins og Finl-
andia, Bis og Caprice, en útgefandi
disks Hamrahlíðarkórsins er ís-
lenska tónverkamiðstöðin.
IBM PS/2
Þar sem hraði
skiptir máli
í öllum rekstri skiptir hraði máli. Tími skiptir máli og sá tími sem varið er í að sitja
auðum höndum fyrir framan tölvuskjá er að eilífu glataður.
Með PS/2 einmenningstölvunum, OS/2 stýrikerfinu og micro channel tengibrautinni fór
IBM byltingakennda leið til að auka hraða við tölvuvinnslu. PS/2 tölvunni var gert kleift
að vinna að mörgum verkum samtímis. Þannig var ekki nóg með að hraðinn ykist um
eitthvert hlutfall: hann margfaldaðist!
Nú er ekki eftir neinu að bíða
PS/2 einmenningstölvurnar hafa
fyrir löngu sannað yfirburði sína
jafnt fyrir einstaklinga sem
stærstu fyrirtæki. PS/2 er
hraðvirk, öflug, skemmtileg
í notkun og jafnvíg bæði sem
einkastöð og í neti.
Tryggðu þér IBM PS/2.
Láttu aðra um að bíða.
FYRST OG FREMST
SKAFTAHLÍÐ 24 REYKJAVlK SlMI 697700
ARGUS/SIA