Morgunblaðið - 27.03.1990, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
Norðurlöndin og ný
skipan mála í Evrópu
effir Uffe
Ellemann-Jensen
Norðurlöndin hafa í mörg ár
verið svolítið fjarri sviðsljósinu í
Evrópu, frá því að svo ógæfulega
tókst til að álfunni var skipt og öll
skipan mála í henni riðlaðist. Nú
er verið að teikna Evrópukortið upp
á nýtt. Og Norðurlöndin hafa góða
möguleika á að öðlast að nýju eðli-
legan sess í Evrópu, færast nær
vettvanginum þar sem ákvarðanir
eru teknar, ekki aðeins landfræði-
lega þegar skiptingin heyrir sög-
unni til heldur einnig efnahagslega
og með tiiliti til stjórnmálanna. Það
er að segja ef íbúar Norðurlanda
vilja þetta sjálfir.
Það _er alveg ljóst hvers ég
vænti. Ég álít að öll Norðurlönd
eigi að feta í fótspor Dana: Taka
afstöðu til framtíðar Evrópu — og
láta til sín taka í samræmi við þá
afstöðu með öllu sem því fylgir.
Þetta er hægt að segja með skýrum
hætti: Það er eðlilegt að Norður-
löndin hasli sér völl innan Evrópu-
bandalagsins (EB) í framtíðinni.
Þar geta þau í sameiningu haft
áhrif á þróun mála í álfunni, þar
getur norræn samvinna þvi aftur
öðlast þrótt og raunhæft markmið.
Forsendan er sú að menn viður-
kenni að vilji þeir áhrif verða þeir
að einnig að deila ábyrgðinni. Það
er þetta sem Norðurlandabúar
verða nú takast á við.
•
Þróun mála í Evrópu undanfama
mánuði hefur verið gífurlega hröð.
Það er hægt að hafa áhyggjur af
þessu en við á Norðurlöndunum,
hægfara og tómlát í eðli okkar,
getum ekki gert neitt við því. Við
getum þó huggað okkar við það
að það verður ekki hægt að ljúka
við koma á nýrri skipan í efna-
hags- og stjómmálum auk öryggis-
mála í Evrópu á fáeinum mánuðum.
Við megum samt ekki horfa fram
hjá því að það er núna sem verið
er að taka örlagaríkar ákvarðanir
um framtíðina.
Ég tel að þrennt muni einkenna
þróun Evrópumála á næstunni:
—Sameiningin í Vestur-Evrópu
mun halda áfram af fullum krafti;
EB vinnur ótrautt að því að hrinda
innri markaðnum í framkvæmd. í
kjölfar þess mun m.a. koma æ
nánara samstarf á sviði efnahags-
mála og í gjaldeyrismálum. Félags-
legi þátturinn í þessari þróun mun
svo hafa í för með sér frekari sam-
einingu á öðrum sviðum.
—Sameining Þýskalands er í
vændum. Enginn efast um að hún
muni verða og það muni gerast
hratt. Þetta eykur enn áhugann á
sameiningu Evrópu til að hægt
verði að varðveita núverandi tengsl
Þýskalands við önnur Evrópuríki.
—Afram verður stefnt að fjöl-
flokkakerfi og markaðsbúskap í
Austur- og Mið-Evrópu. Þegargrár
hversdagsleikinn tekur við í lönd-
unum eftir fyrstu fijálsu kosning-
amar verður knúið á um víðtækan
stuðning vestrænna ríkja. Og
„gömlu“ lýðræðisþjóðimar geta
ekki skilið þær nýju eftir á köldum
klaka.
Þessi gmndvallaratriði í þróun-
inni sýna með skýrum hætti að
EB er sú þungamiðja sem þróun
Evrópu mun taka mið af á kom-
andi ámm.
Nú þegar er EB orðið segullinn,
helsti hvatinn að auknum samein-
ingartilraunum í Evrópu. Og það
er enginn vafi á að EB mun hafa
úrslitaáhrif á pólitíska og efna-
hagslega framtíð álfunnar.
Ríki Fríverslunarbandalags Evr-
ópu (EFTA) hafa gert sér grein
fyrir þessu. Við sjáum að mikil
áhersla er lögð á að ná árangri í
viðræðum EFTA og EB um Evr-
ópska efnahagssvæðið (EES).
Þjóðir Austur-og Mið-Evrópu
hafa skilið þetta. Þrýst er á um
að gera samninga um samstarf sem
verði fyrsta skrefið á veginum til
sífellt nánari tengsla. Mörg
ríkjanna hafa lýst því yfir að loka-
takmarkið sé full aðild að EB.
Utan Evrópu sjáum við að lönd-
in við Miðjarðarhaf reyna að
styrkja sambandið við EB, banda-
lagið, sem verður driffjöðrin í efna-
hagslegri og pólitískri þróun í okk-
ar heimshluta næstu áratugina.
Öryggismálin — og þá ekki síst
í sambandi við sameiningu Þýska-
lands — em ofarlega á baugi. Og
við emm þegar .byijuð að ræða
mótun heildarlausnar á þessu sviði
fyrir alla Evrópu.
Þegar rætt er um mótun
framtíðarstefnu í efnahags- og
stjómmálum Evrópu, sem vinna
verður að á næstu ámm, er það
aðeins EB sem getur með mark-
vissum hætti samræmt óskir Evr-
ópumanna, jafnt í austri sem vestri,
sem uppfylltar verða á gmndvelli
víðtækrar og ábyrgðarfullrar sam-
vinnu.
Vegna þessa þarf EB einnig að
svara kallinu: Bandalagið verður
að sinna Evrópu allri. Til allrar
hamingju er vaxandi skilningur á
nauðsyn þess hjá þeim 12 þjóðum
sem nú eru í EB.
•
Vilji Norðurlöndin hafa áhrif á
þróun mála verða þau að taka af
fullum krafti þátt í öllu starfinu,
alls staðar þar sem teknar em
mikilvægar ákvarðanir um nýskip-
an mála í Evrópu. Viðræður EFTA
og EB gefa til kynna að þau hafi
hug á því. Danir hafa frá upphafi
unnið ötullega að því að árangur
náist í þessum viðræðum. Við höf-
um reynt að leggja fram okkar
skerf, bæði hvað snertir tæknileg
atriði viðræðnanna og stjómmála-
lega þáttinn. Þetta geram við sum-
part vegna þess að norrænir vinir
okkar æskja þess, sumpart vegna
þess að Danmörk á sjálf augljósra
hagsmuna að gæta.
En á sama hátt og við ræðum
af hreinskilni um framtíð norrænn-
ar samvinnu tel ég að við verðum
einnig að segja álit okkar á mögu-
legri framvindu viðræðna EFTA
og EB. /
Ég skal ekki tala neina tæpi-
tungu: Ég tel það mjög vafasamt
að hægt verði að uppfylla þær
væntingar sem mörg EFTA-ríki
hafa um árangur viðræðnanna.
Mikilvægasta atriðið verður
möguleiki landa utan EB til að
hafa áhrif á ákvarðanir sem teknar
em í bandalaginu. í þessu sam-
hengi er nauðsynlegt að tjá sig
skýrt. Það er ekki hægt að gera
hið ómögulega. Raunveruleg
áhrif er aðeins hægt að hafa með
aðild. Öðruvísi getur þetta ekki
orðið.
Ef við reyndum að sjá fyrir okk-
ur fyrirmynd að lausn þar sem
uppfylltar yrðu óskir EFTA-ríkj-
anna er óhjákvæmilegt að hún yrði
til að veikja samstarf EB-þjóðanna
sem byggist á gagnkvæmum skyld-
um. Það verður að hafa í huga að
eitt brýnasta hagsmunamál EB er
að innri þróttur bandalagsins fari
ekki forgörðum'— og honum er
m.a. haldið við með því kerfi sem
notað er til að taka ákvarðanir.
Styrkurinn út á við byggist á innri
þrótti bandalagsins.
•
Tillagan um EES-viðræðumar
kom frá Jacques Delors, forseta
framkvæmdastjórnar EB og það
er aðeins rúmt ár síðan hann setti
hana fram, í janúar 1989. En ein-
mitt þetta tímabil er mjög langt
í Evrópu nútímans. Sviðið hefur
gjörbreyst, Evrópa er ekki söm og
fyrr. Þess vegna verðum við að
spyija okkur hvort hugmyndin,
sem lá að baki er Delors setti fram
tillöguna um framtíð Evrópusam-
starfsins, sé ekki þegar orðin úrelt
vegna rásar atburðanna.
Þess vegna segi ég að Norður-
löndin verða nú að fara að huga
að aðild að EB.
Þetta geri ég vegna þess að ég
er sannfærður um að löndunum sé
eðlilegt að heyra til þessum sam-
tökum vegna uppbyggingar efna-
hagslífsins í löndum okkar og þró-
Uffe Ellemann-Jensen, utanrík-
isráðherra Danmerkur.
aðs lýðræðisskipulags. Og ég geri
þetta vegna þess að ég óttast að
of miklar væntingar um árangur
EB-EFTA viðræðnanna geti leitt
okkur inn í blindgötu.
Per Kleppe, fyrmm fram-
kvæmdastjóri ÉFTA, komst eitt
sinn hnyttilega að orði er hann lýsti
samtökunum sem „biðstofu EB.“
Árangur viðræðna EFTA og EB
getur orðið til að búa löndin undir
aðild að EB síðar. Og líkja má
þeim fórnum sem EFTA-löndin
þurfa að færa, við fyrstu útborgun
á EB-aðild. Hvers vegna? Vegna
þess að mér sýnist að Norðurlöndin
hUóti að fara þá leið, vegna eigin
hagsmuna sinna. Ella munu þau
eiga á hættu að efnahagslíf þeirra
verði smám saman dæmt til útkjál-
katilveru í Evrópu, auk þess sem
þau munu ekki hafa raunveruleg
áhrif á gang mála í álfunni um
langa hríð.
Fram til þessa hefur það valdið
raunverulegum vanda að sum
EFTA-löndin eru hlutlaus. Einnig
að þessu leyti eru viðhorfín breytt.
Að sjálfsögðu hljóta þessar þjóðir
að ákveða sjálfar hvort hlutleysið
samrýmist aðild að EB. Það er
aðeins á þeirra valdi. Þetta höfum
við sagt við Austurríkismenn. Þeir
hafa sótt um aðild og þess vegna
þegar svarað spurningunni.
Hlutleysishugtakið mun einnig
breyta um inntak í Evrópu fram-
tíðarinnar. Innan skamms mun
núverandi Austur-Þýskaland verða
hluti EB og sama er að segja um
Austurríki. Vonandi og að öllum
líkindum munum við verða vitni
að því er hugtökin austur og vestur
verða ekki meginmálið. Þetta mun
valda því að hlutleysi nýrra aðild-
arríkja verður ekki áhyggjuefni
fyrir EB.
Spurningin uin aðild er mun af-
drifaríkari en svo að hún snerti
eingöngu innri markaðinn eða hlut-
leysi. Þegar öllu er á botninn hvolft
snýst hún um það að koma á lagg-
irnar evrópsku skipulagi sem styrk-
ir samstarf allra lýðræðislanda.
Þjóðir EB-ríkjanna og Norðurland-
anna —hvort sem þær eru hlut-
lausar eða ekki — hljóta í þeim
efnum að eiga sameiginlegra hags-
muna að gæta og styðja slíka þró-
un.
Og hvað verður þá um norræna
samvinnu? Við verðum að viður-
kenna að Norðurlandasamvinnan
hefur ekki reynst nægilega
áhrifarík til að leysa vanda efna-
hagsmálanna. Tilraunir, sem gerð-
ar hafa verið til að koma á sameig-
inlegum markaði landanna, hafa
allar runnið út í sandinn, verið fórn-
að á altari smásmugulegrar vernd-
arstefnu. í reynd er það svo að
sameiginlegur, norrænn markaður
mun aðeins komast á vegna þess
að löndin verða að aðlaga sig innri
markaði EB. Og jafnframt því sem
evrópskt samstarf tekur framför-
um mun verða sjálfsagt að auka
norrænt samstarf.
Norræn samvinna mun gegna
hlutverki í Evrópu framtíðarinnar.
Skilyrðið er að menn beini sjónum
sínum í ríkari mæli að þeirri nýskip-
an Evrópumála sem nú hillir undir.
Við Norðurlandabúar eigum í sam-
einingu gildi sem em þess virði að
hiúð sé að þeim, að þau séu látin
dafna. Margar þjóðir líta á þjóðfé-
lag qkkar sem það er stefna beri
að. Á ýmsum sviðum verður hægt
að leita til samfélaga okkar um
fyrirmyndir, til lýðræðishefða okk-
ar og stofnana, til að fá innblástur
þegar framtíð Evrópu verður mót-
uð.
Við lifum á tímum alþjóðlegra
samskipta. Það hefur í för með sér
að við verðum að leysa æ fleiri
samfélagsverkefni með alþjóðas-
amvinnu. Eðli þeirra vandamála,
sem leysa skal og sá vettvangur
sem valinn er í hvert sinn, taka
sífelldum breytingum. En þetta
merkir ekki að framvegis verði
ekki þörf fyrir skipulegt samstarf
þjóðahópa á borð við norræna sam-
starfið. Öðm nær.
Við Norðurlandabúar getum lagt
fram ákveðinn skerf til hinnar nýju
Evrópu. En ef við ætlum að láta
vemlega til okkar taka hljótum við
að gera það innan marka hennar.
•
Þessar hugleiðingar mínar em
tilraun í þá átt að gefa norrænu
samstarfi inntak í Evrópu framtíð-
arinnar. Boðskapur minn er þessi:
Styrkjum þátt Norðurlandanna
í mótun nýrrar samvinnu í Evrópu.
Styrkjum rödd Norðurlanda í evr-
ópsku samstarfi. Við skulum með
þessum hætti gefa norrænni sam-
vinnu raunhæft inntak og algjör-
lega nýja vídd í evrópsku samstarfi.
Við megum ekki treysta á tál-
vonir. Við verðum að nýta okkur
þau tækifæri sem gefast. Ný Evr-
ópa er í burðarliðnum. Þungamiðja
hennar er í samstarfi EB, þar sem
allir deila með sér skyldum og
ábyrgð. Þeir sem vilja hafa áhrif
hljóta að taka þátt í samstarfinu —
heils hugar og að fullu.
Höfundur er utanríkisráðherra
Danmerkur og grein þessi birtist
einnig í norska dagbiaðinu
Aftenposten, Dagens Nyheterí
Svíþjóð, Hufvudstadsbladetí
Finnlandi og Politiken í
Danmörku.
Afmæliskveðja:
Ólína I. Jónsdóttir
frá Skipanesi
Þegar ‘hún Ólína frá Skipanesi
verður á vegi mínum eða kemur fram
í huga minn, vakna þau oft í vitund
minni þessi orð Frelsarans: „Það sem
þér gjörðuð einum minna minnstu
bræðra, það hafið þér gjört mér.“
Svo oft hefi ég orðið hennar var á
þeim slóðum, þar sem sjúkir og ein-
stæðir em. Þangað er hún knúin af
þeim mannkærleika, sem er svo snar
og sterkur þáttur í lífsstefnu hennar.
Og nú er Ólína áttræð í dag. Hún
fæddist á páskadagsmorgni hinn 27.
mars árið 1910 á Kaðalsstöðum í
Stafholtstungum. Foreldrar hennar
vom Jón Ólafsson Þorbjamarsonar
af Helgavatnsætt og Guðrún Krist-
jánsdóttir frá Bjargasteini í Staf-
holtstungum. Ólína var heitin eftir
móðursystur sinni, sem flutti til
Kanada aldamótaárið.
Tíu vikna gömul var Ólína tekin
í fóstur af Árna Guðmundssyni og
Rannveigu Pétursdóttur í Stóm-
Skógum í Stafholtstungum. Þau
reyndust henni sem bestu foreldrar
og minnist hún þeirra með miklum
hlýhug og einlægu þakklæti. Rann-
veig lést árið 1917. Þremur áram
síðar fór Ólína frá Stóru-Skógum að
Húsafelli til hjónanna Þorsteins Þor-
steinssonar og Ingibjargar Kristleifs-
dóttur, sem þá voru að hefja búskap
þar.
Á Húsafelli átti Ólína svo heimiiis-
festi þangað til hún fór að búa sjálf
og undi þar hag sínum hið besta.
Hún átti þau Þorstein og Ingibjörgu
bæði að foreldrum og vinum. Um
nokkurt skeið átti Ingibjörg við
heilsuleysi að stríða. Þá annaðist
Ólína um heimilið og fórst það vel
úr hendi.
Haustið 1930 hóf Ólína nám við
Héraðsskólann á Laugarvatni. Var
hún þar í tvo vetur og sóttist námið
vel, enda námsmanneskja góð og
prýðisvel gefin. „Þar var gott að
vera og mikið lært,“ segir hún sjálf
um námdvöl sína á Laugarvatni.
Haustið 1933 flytur Ólína frá
Húsafelli, en á þar þó lögheimili
áfram fyrst um sinn. Hún var einn
vetur við störf í Reykjavík og eftir
það starfaði hún á ýmsum stöðum í
Borgarfírðinum.
Vorið 1936 hóf hún svo búskap
með unnusta sínum, Stefáni Gunn-
arssyni, og haustið 1937 gengu þau
í hjónaband. Þau bjuggu á Akranesi
til vors 1941. Þá fluttu þau að Skipa-
nesi í Leirár- og Melasveit og hófu
búskap þar. Þau eignuðust 4 börn.
Elstur er Gunnar, starfsmaður á
Gmndartanga, f: 1940, býr á Akra-
nesi, þá er Ármann Ámi, skipstjóri,
f. 1942, búsettur á Akranesi, Svandís
Guðrún, húsmóðir í Skipanesi, f.
1946 og yngst er Jóhanna Gunnhild-
ur, býr í Hafnarfírði, f. 1948, stund-
ar nám við textíldeild Handíða- og
myndlistaskólans í Reykjavík.
Árið 1970 hættu þau Ólína og
Stefán búskap að mestu, en Svandís
dóttir þeirra tók við. Næstu árin var
þó heimili þeirra í Skipanesi. Þá réðst
Ólína til starfa við heimilishjálp á
vegum Kvenfélags Borgarfjarðar- og
Mýrasýslu. í því hlutverki naut hún
sín framúrskarandi vel og vann, af
sinni eðlilægu fómfýsi og mannkær-
leika, mikið og dáðríkt blessunar-
starf á þeim vettvangi, sem þörfin
var allra mest og brýnust.
Árið 1975 fluttu þau hjónin til
Akraness. Þar hélt Ólína áfram að
starfa við heimilishjálpina. Um 11
ára skeið vann hún hálfan daginn,
síðdegis, í Akrapijóni, en árdegis
sinnti hún köllun sinni meðal þeirra
sem á hjálp hennar og liðsinni þurftu
að halda. Þá hefur hún einnig verið
mjög virk í Sjúkravinafélaginu á
Akranesi. Þeir munu fáir meðal Ak-
urnesinga sem oftar leggja leið sína
á Sjúkrahúsið á heimsóknartímum,
til þess að heimsækja vandalausa,
sitja hjá þeim og lesa fyrir þá en
Ólína Jónsdóttir.
í ágústmánuði 1984 fluttu þau
hjónin að Höfðagrund 4 á Akranesi.
Þar hafa þau búið sér fagurt, hlýtt
og friðsælt athvarf. Þangað er gott
að koma og njóta óbrigðullar gest-
risni húsráðanda.
Enn í dag starfar Ólína af lifandi
áhuga í Sjúkravinafélaginu og Góð-
templarareglunni. En bindindis- og
bræðralagshugsjónin hefir alla tíð
verið hennar hjartans mál. Þessi orð
skáldsins gætu verið einkunnarorð
hennar:
Vektu þeim vonir í hjarta,
sem veturinn særir.
Skapaðu gleði úr gráti
og geisla úr skuggum.
Guð blessi þig, Ólína mín, á
merkum tímamótum ævi þinnar.
Heill og gifta fylgi þér héðan í frá
sem hingað til.
Þess skal að lokum getið, að
Ólína tekur á móti gestum í tilefni
afmælisins í Oddfellowheimilinu á
Kirkjubraut 54 á Akranesi laugar-
daginn 31. mars kl. 14-18.
Björn Jónsson